Tíminn - 13.03.1984, Page 11

Tíminn - 13.03.1984, Page 11
 í i ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 1984 heimilistíminn umsjón: B.St. og K.L. ■ Hér er Laurits Luftstrup að kenna á námskeiðinu og túlkur hans er Guðjón Þorkelsson Hvert sæti var skipað á námskeiðinu og áhugi kjötiðnaðarmanna eftir því mikill Tiinamvndir G.E. HELMINGUR AF ÖLLUM KJÖHÐNAÐARMÖNNUM Á ÍSLANDI Á ENDURMEN NTUNARNÁMSKEIÐU M ■ Hér má sjá hluta af hinu glæsilega kjötborði í Hólagarði á föstudagsmorguninn Viðskiptavinirnir eru farnir að bíða eftir að geta keypt sér í sunnudagsmatinn. ^ ■ Nýlega er lokið i Reykjavík endur- menntunarnámskeiðum á vegum Félags íslenskra kjötiðnaðarmanna. Fengnir voru tveir menn frá Slagteriskolen í Roskilde til að leiðbeina þátttakendum. Námskeiðið skiptist í tvo hluta, þ.e. störf kjötiðnaðarmanna í verslunum og um hlutverk og notkun hjálparefna í kjötvörum. Þau voru haldin í húsakynn- um Rannsóknarstofnunar landbúnaðar- ins að Keldnaholti. Námskeiðið var alveg fullsetið, því gert var ráð fyrir 70 manns og urðu þátttakendur þó heldur fleiri. Það má geta þess að á íslandi eru um 150 kjötiðnaðarmenn, svo auðsætt er að þarna hefur verið mikill áhugi, því að um helmingur þeirra tóku þarna þátt í námskeiðunum. Guðjón Þorkelsson, matvælafræð- ingur hjá Rannsóknarstofnun landbún- aðarins, var túlkur á námskeiðunum, en kennslan fór öll fram á dönsku. Hann sagðist vera mjög ánægður með hvernig þetta hefði tekist, og sagðist búast við því, að það kæmi til með að skila mjög góðum árangri í framtíðinni. Guðjón sagði að námskeiðið hefði verið tvískipt, þ.e. verklegi hlutinn og sá fræðilegi. I verklega hlutanum lögðu Danirnir áherslu á aðferðir við að úr- beina kjöt, og má benda á að aðferðir við kjötskurðinn hafa breyst nokkuð vegna þess að meðalfjölskyldustærð hef- ur minnkað. Því er nú lögð áhersla á að útbúa minni steikur eða sneiðar, sem hentugar eru fyrir smærri fjölskyldur og hafa Danirnir komið með ýmsar skemmtilegar nýjungar, sem íslendingar hafa tileinkað sér. Árangurinn sýndur í kjötborði A föstudagsmorguninn komu saman 14 íslenskir kjötiðnaðarmenn og dönsku sérfræðingarnir í Hólagarði í Breiðholti, og þar útbjuggu þeir hið glæsilegasta kjötborð, sem tókst frábærlega vel, að sögn Sigurðar Gunnarssonar í Hóla- garði, sem varð fyrir svörum þar og sagði frá kjötvörunum, sem þarna voru til sýnis, - og seinna sölu. „Miðvikudags- steikin" o.fl. Röðun og skreyting á kjötborðinu var glæsileg og þarna voru kynntir ýmsir nýir réttir og tilbrigði í svínakjöti, nautakjöti og lambakjöti. Allt hráefnið í kjötborðið var frá „Kjöti og áleggi" sem er kjöt- vinnsla í Kópavogi, en það var allt unnið þarna á staðnum. Kjötvörurnar sem þarna voru sýndar voru yfirleitt mjög hagkvæmar til heimil- isnotkunar en ekki einungis veislusteik- ur. Það var mikið um litlar kjötsneiðar eða þá að vöðvi var skorinn sundur og „spekkaður", síðan rúllaður upp og seldur svo í skornum sneiðum. Bæði voru nauta- og svínakjöt í rúllunum. Sérstaka athygli vakti hin svokallaða „Miðvikudagssteik", sem Danirnir kölluðu svo. Hún er unnin úr svínssíðu, sem fyllt er með svínahakki og grænmeti og rúllað upp og steikt. Danirnir sögðu þetta mikið borðað í þeirra heimalandi á miðvikudögum. Kjötborðið var látið standa óhreyft þar til Ijósmyndarar blaðanna höfðu komið og tekið myndir, en síðan var tekið til við að selja úr borðinu, og var þá kominn sá fjöldi af kúnnum, að við höfðum varla undan að bæta í borðið, sagði Sigurður Gunnarsson. Sendið ekki sprautusaltað hangikjöt til útlanda Margt athyglisvcrt kom fram á fræði- lega hluta námskeiðsins, að sögn Guð- jóns Þorkelssonar matvælafræðings. Þar var kennt almennt um uppbyggingu kjöts, ýmis efnafræði-atriði, svo sem um salt, saltpétur, nítrat og ýmis önnur hjálparefni sem notuð eru t.d.í pylsur og unnar kjötvörur. Kennt var að nota þessi hjálparefni rétt, og misnota þau ekki. Það var bent á það á námskeiðinu, að geymsluþol hangikjöts, sem er „sprautu- saltað“ - en það er ný aðferð við verkun hangikjöts- væri miklum mun minna en hangikjöts, sem væri verkað á gamla mátann. Kjötiðnaðarmenn eru farnir að gæta sín á því, að sprautusaltað hangi- kjöt er einungis kælivara með takmarkað geymsluþol. - Það þýðir t.d. alls ekki að reyna að senda sprautusaltað hangikjöt til útlanda í pósti, því það hefur ekki geymsluþol til þess. Það er því áríðandi fyrir fólk, að ganga úr skugga unt hvcrs konar hangi- kjöt það kaupir til slíkra sendinga. Kjötiðnaðarmenn eiga að geta veitt kaupendum allar upplýsingar um þetta, svo þeir séu öruggir um að kjötið komist óskemmt á leiðarenda. Merkingar á kjötfars? Það er mikið rætt um merkingu á kjötfarsi, sagði Guðjón matvælafræð- ingur, bæði um hvaða kjöt er í því, hve mikið fituinnihald, kaloríur o.Ó. Þá er áætlað að kjötfars verði í mismunandi gæða- og verðflokkum og þá það feitasta ódýrast. Danirnir Laurits Luftstrup og Henn- ing Fuhr voru sérlega góðir kcnnarar, sagði Guðjón, og tók fram að lokum, að sínum dómi, hefði námskeiðið verið gagnlegt og farið vel fram og árangurinn ætti áreiðanlega eftir að koma í Ijós í framtíðinni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.