Tíminn - 13.03.1984, Page 13

Tíminn - 13.03.1984, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 1984 17 ar, aö þessari iist? Hversu fjarlægt er þetta hvað öðru. En sem betur fer skynjum við þó enn þörfina fyrir sam- ræmi og fegurð, og þeirri þörf svalar um stund - falleg ballettsýning. Ég læt kunnáttumönnum eftir að dæma um stöðu þeirrar listar hjá okkur, almennt, en íslenska bellettinum hljótum við að samfagna með vel heppnaða sýningu og stórhuga, og óska honum góðs gengis. skorta á að söngurinn væri nógu fjörugur og kraftmikili, en lögin eru helsta prýði leiksins. Efnið sjálft er sveitasæluróman- tík.Ástarsagan er sú í stuttu máli að djarfur og myndarlegur kúreki Krulli syngur um dýrð dagsins. Elskan hans Lára er eftirsótt en að vísu þegar í upphafi hrifin af honum. Vinnumaður á bænum, durtur mikill, sýnist munu verða skæður keppinautur. Annað ungt fólk er hér einnig að draga sig saman eins og gengur. Að lokum hefur tekist að þvæla öllum í hjónaband og vinnumanninum leiðinlega er sagt upp. Hann birtist þó að lokum þegar fóikið er að syngja fagnað- aróð um hina frjóu jörð, Oklahoma. Þeim lendir saman, honum og kúrekan- um, sem lýkur svo að kúrekinn verður skúrkinum að bana, í sjálfsvörn auðvit- að. Af þessu hlýst minniháttar reki- stefna, en Krulli og Lára eru í brúðkaups- veislu svo ekki má láta dauða eins vinnuþýs spilla henni. Úti er ævintýri. Ég býst við að alvörugefnir rýnendur hafi sitthvað við þennan boðskap að athuga, því boðskapur felst auðvitað í þessu, hvað sem líður „rósrauðum skýjum blekkingarinnar11 sem leikstjóri talar um. En fáumst ekki um það. Allir þátttakendur sýningarinnar lögðu sig fram og unga fólkið í aðalhlut- verkunum kom vel fyrir, án þess að neinn skæri sig úr svo að áberandi væri... Mest mæddi á elskendunum sem Hall- dóra Björnsdóttir og Hilmar Jónsson léku. Auk þeirra má nefna Jónu Guð- rúnu Jónsdóttur, Ólaf H. Samúelsson og Ingibjörgu Svövu Þórsdóttur. Sú síðast- nefnda vakti einkum athygli mína fyrir skemmtilegan og kankvísan leik. Hljóm- sveit er að tjaldabaki og stjórnar henni Ríkharður Örn Pálsson, en Halla Mar- grét Ámadóttir hefur samið dansa og stjórnar þeim. Á undan sýningu var flutt Skrapa rots- predikun að fornum herranætursið. Hún endar á útleggingu þar sem farið er með heimsósóma nokkurn, talað um bomb- una, valdatafl stórvelda, ótta, hatur og mannvonsku sem ráði heiminum, allt þetta gamalkunna: „En hvað gerið þið þá? Jú, þið komið hingað skælbrosandi í sparifötum til þess að horfa á ódýran farsa sem ekkert skilur eftir sig nema tóm. Því segi ég: Eina vitsmunaveran sem enn finnst á íslandi er íslenska sauðkindin." Það var nú svo. Eiginlega finnst mér leikurinn hálfgerður antiklímax eftir svona ræðu. En öneitanlega er það frumleg írónía að lesa svona yfir áhorf- endum áður en farið er með þá út í hveitiekrur Oklahoma. — fannst heil á húfi og vel á sig komin á fimmta tímanum aðfaranótt mánudagsins ■ Leit stóð vfir allan sunnudagseftir- miðdaginn s.l. og lengi fram eftir nóttu að konu sem hafði farið á skíðum frá skálanum í Bláfjöllum rétt eftir hádegið og hugðist vera komin til baka um kaffileytið. Konan fannst síðan heil á húfi á fimmta tímanum um nóttina og hafði henni ekki orðið meint af volkinu. Veður breyttist mjög til hins verra skömrnu eftir að konan lagði af stað en Ixgði með kvöldinu og var gott leitarveð- ur um nóttina. „Konan brást eins skynsamlega við og hægt var er hún uppgötvaði að hún var orðin vilít,“ sagði Magnús Einarsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við blaðið í gær. „Hún tók af sér skíðin reisti þau upp og fann sér afdrep fyrir verðinu. Síðan hélt hún sig á þessum stað, þar til hún fannst og hafði gætt þess að hreyfa sig nóg til þess að halda á sér hita. Það varð ekki merkt að henni hefði orðið meint en farið var með hana á slysadeild- ina til öryggis," sagði Magnús. „Björgunarsveitirnar unnu frábært starf eins og oft áður og sýndu að þar eru menn sem kunna til verka og eru vel búnir tækjum. Hins vegar má þetta verða til að brýna fyrir fólki að búa sig út með áttavita og létt Ijósfæri, þegar það fer í skíðagöngur þarna efra því að veðrið getur breyst á svipstundu og uppi í Bláfjöllum er fólk komið upp á öræfi,“ sagði Magnús Einarsson ennfremur. -JGK ■ Lagt af stað frá skálanum. Snjóslcðamir komu í góðar þarfir.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.