Tíminn - 13.03.1984, Page 18
22
EtmmidL
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 19M
fréttir |
■ Sundmcnn Aspar
10 AURA SUNDMÓT
ASPAR
■ íþróttafélagið Ösp heldur áheitamót
í Sundhöllinni við Barónsstíg 3. apríl kl.
20.00. Mótið fer þannig fram að
sundmenn, foreldrar eða velunnarar fé-
lagsins safna áhcitum á sundmenn félags-
ins. Einstaklingar, félög eða fyrírtæki
sem gefa áheit, skuldbinda sig til að
greiða 10 aura til félagsins fyrir hvern
metra sem sundmcnn þess synda á 20
mínútum. Efsyntcr 15 kílómctra greiðir
viðkomandi 150 kr. til félagsins. Ekki er
búist við að upphæðin fari yfir 170 kr.
Iþróttafélagið Ösp er félag í tengslum
við Öskjuhltðarskóla. í félaginu eru
bæði þroskaheftir og hreyfihamlaðir.
Félagið leggur stund á fimm íþrótta-
greinar: Frjálsar íþróttir, borðtennis,
knattspyrnu, sund og boccia. Um 70
manns stunda æfingar hjá félaginu.
Strönd í Medallandi:
ÓMERKTUR flU-
REFUR SKOTINN!
■ Nýlega var alirefur skotinn við bxinn
Strönd í Meðallandi. Það var bóndinn á
bænum, Loftur Runólfsson sem skaut
refinn, sem var ómcrktur.
Að sögn Sveins Einarssonar veiði-
stjóra eiga alirefir að vera merktir, en
þessi var það ekki. Því lítur út fyrir að
þctta hafi verið yrðlingur sem sloppið
hafi í sumar, því yrðlingar cru ekki
merktir fyrr en á haustin. Það sem
merkilegast er við þennan atburð er hve
langt rcfurinn hefur farið, því næstu
refabú við Meðalland eru í Rangárvalla-
sýslu og á Hornafirði. Ekkert er þó vitað
hvaðan refurinn kom. eins og áður segir.
Á síðustu árum hafa á annan tug
alirefa verið skotnir eftir að hafa sloppið.
íslenskir refir taka mjög vel á móti
alirefum og má nefna að í vor voru tvö
grcni unnin á Suðurlandi, annað með
alilæðu og villtu karldýri, en hitt með
alikarli og villtu kvendýri. Frjósemi refa
er mikil, og í fyrrnefnda búinu voru 13
yrðlingar. Yfirleitt eru alirefir spakari en
villtir og auðveldara að ná þeim. Sveinn
vildi benda refabændum á að huga betur
að því að halda refum sínum innan
girðingar, því það kostar mikið fé að
vinna á refum.
-ÁDJ
Loðdýrabændur í Eyjafirði:
FÓÐIIRSTÖDIN DflLVÍK
ST0FNUÐ UM HELGINA
■ Loðdýrabændur ■ Eyjafirði og ná-
grenni stofnuðu nýlega með sér sameig-
inlega fóðurverksmiðju sem hlaut nafnið
Fóðurstöðin Dalvík. Um er að ræða
samvinnufélag 18 loðdýrabænda beggja
vegna Eyjafjarðar, og nágrannasveitum
í Þingeyjarsýslu, sem aðsetur hefur á
Dalvík. Áætlað er að þarna verði fram-
leidd 3000 tonn af loðdýrafóðri á ári sem
siðan verður dreift til bænda á svæðinu
með fóðurtankbíl. Þessar upplýsingar
fengust hjá Ulfari Arasyni á Klöpp,
Svalbarðsströnd sem er formaður fyrir
fóðurstöðinni.
„Stofnun þessa fyrirtækis ætti að auð-
velda mjög nvjum aðilum að fara út í
þennan rekstur og gæti því orðið til
fjölgunar loðdýrabænda á svæðinu",
sagði Úlfar. „Hingað til hefur fóöur-
framleiðslan verið í höndum ‘tveggja
aðila hvor sínum megin tjarðar. Þegar svo
Kaldbakur sem séö hefui um framleiðsl-
una austan megin fjarðar ákvað að hætta
með sína starfsemi í vor var farið af stað
með stofnun þessa fyrirtækis. Þetta verð-
ur mun hagkvæmara vegna sparnaðar í
tækjakosti. Tækjakostur þessarar verk-
smiðju sem mun framleiða 3000 tonn á
ári verður sá sami og þarf fyrir verk-
smiðju sem framleiðir 1000 tonn", sagði
Úlfar Arason. Reiknað er með að Fóð-
urstöðin taki til starfa í vor og hætta þá
báðar þær verksmiðjur1 sem nú eru
starfandi á svæðinu. -b
Búnaðarþing:
Fordæmir áróður og róg-
burð gegn landbúnaði
■ Rúnaöarþing fordæmir órökstuddan
áróöur sumra fjölmiðla gegn grundvall-
aratvinnuvegum þjóöarinnar, einkum
landbúnaöi og sjávarútvegi. Þá segir
orörétt í ályktun þingsins um þessi mál:
„Búnaðarþing varar viö áhrifum af slík-
um rógi, sem cinkennir blaðaskrif
ákveðinna aðila, sem virðast m.a. vera
aðferð þeirra til að sclja vöru sína. Þessi
áróður eykur tortryggni og úlfúð milli
landshluta.
Því fjölþættar, sem þjóðfélagið verður
og fleiri stunda þjónustu og milliliða-
störf, því meira ríður á, að gagnkvæmur
skilningur ríki milli þjóðfélagshópa. Þá
varðar það mestu að fólk missi ekki
sjónar á því, hver er grundvöllur fyrir
tilveru þjóðarinnar í landinu." -b.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS
KELONAHOLTI - IIO REYKJAVÍK - SlMI 83200
Námskeið í iðnaði
Fræðslumiðstöð iðnaðarins vekur athygli á
eftirtöldum námskeiðum á næstunni.
Málmiðnaður:
Vökvakerfi
60 stunda námskeið um uppbyggingu vökvakerfa, viðhald,
bilanaleit og viðgerðir.
Hefst: 15. mars, kl. 18:00, í Iðnskólanum í Reykjavík.
Þátttökugjald: kr. 3.500
Innritun í síma: 26240, Iðnskólinn í Reykjavík.
Ryðfrítt stál og ál
75-80 stunda námskeið í suðu og efnisfræði, 55 stundir
verklegar æfingar í MIG/MAG og TIC - suðu. Hefst: 5. apríl,
kl. 17:00, í Iðnskólanum í Reykjavík. Þátttökugjald: kr. 5.000.-
Innritun í síma: 83200/165. Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Fræsing I
30 - 40 stunda undirstöðunámskeið í fræsingu.
Hefst: 28. apríl, kl. 8:30, á skólaverkstæði Fjölbrautaskólans
í Breiðholti. Þátttökugjald: kr. 2.000,-
Innritun í síma: 83200/165. Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Loftstýringar
40 stunda undirstöðunámskeið um loftstýrikerfi.
Haldið: I vor (nánar auglýst síðar), í Vélskóla íslands í
Reykjavík.
Þátttökugjald: kr. 2.500.
Innritun í síma 83200/165, hjá Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Byggingariðnaður:
Viðgerðir á steypuskemmdum
60 stunda námskeið um eðli og orsakir steypuskemmda,
viðgerðir og áætlanagerð.
Hefst: 27. mars, kl. 8:30, á Rannsóknastofnun byggingaiðnað-
arins, Keldnaholti.
Þátttökugjald kr. 5.500,-
Innritun í síma: 83200/165, hjá Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Útveggjaklæðningar
30-40 stunda námskeið um val og frágang útveggjaklæðn-
inga.markað og kostnað.
Hefst: 03. apríl, kl. 16:00, á Rannsóknastofnun byggingaiðn-
aðarins, Keldnaholti.
Þátttökugjald: kr. 3.000,-
Innritun í síma: 83200/165, hjá Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Niðurlögn steinsteypu
1 dags námskeið.
Hefst: 16. mars, kl. 8:30, á Rannsóknastofnun byggingaiðnað-
arins, Keldnaholti.
Þátttökugjald: kr. 700.-
Innritun í síma: 83200/165, hja Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Viðgerðir á gömlum timburhúsum
16 stunda námskeið.
Haldið: 27.-28. apríl, í Stykkishólmi.
Þátttökugjald: Auglýst síðar.
Innritun: Hjá Byggingaþjónustunni í Reykjavík.
Málningarefni
30 stunda námskeið í hagnýtum efnisfræðum fyrir málara.
Hefst: 28. mars kl. 16:00, í Skipholti 70.
Þátttökugjald: kr. 2.500.
Innritun í síma: 83200/165, hjá Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Loftræsti- og hitakerfi
25 stunda námskeið um viðhald og rekstur loftræsti- og
hitakerfa.
Haldið: 2. 3 og 4. maí, í Borgartúni 6.
Þátttökugjald: kr. 2.500.-
Innritun í síma: 83200/165, hjá Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Virðisgreining
12 stunda námskeið um leiðir til kostnaðarlækkunar með
virðisgreiningu.
Haldið: 14. og 15. maí, frá kl. 13:00 -18:00, í Borgaretúni 6.
Þátttökugjald: kr. 1.000,-
Innritun í síma: 83200/165, Fræðslumiðstöð iðnaðarins.
Plast og málmgluggar
Helluhrauni 6 Hafnarfirði
sími 53788
Viö minnum á aö þaö þarf ekki fúa-
varnarefni á okkar framleiðslu.
f\r Þegar komið er af vegum með
bundnu slitlagi tekur tíma
^_að venjast breyttum aðstæðum
;:pvFÖRUM VARLEGA! 'T . - ||UMFERÐAR
Kvikmyndir
SALUR 1
Frumsýnir stórmyndina
Tron
Frábær ný stórmynd um striðs og
video-leiki lull af tæknibrellum og
stereo-hljóðum. Tron fer með þig
i tölvustriðsleik og sýnir þér inn i
undraheim sem ekki hefur sést
áður.
Aðalhlutverk: Jeff Bridges, David
Warner, Cindy Morgan, Bruce
Boxleitner. Leikstjóri: Steven Lis-
berger
Myndin er í Dolby Sterio og
sýnd í 4ra rása Starscope
Sýnd kl. 5,7,9,og11
SALUR2
Byggð á sögu eftir lan Fleming.
Leikstjóri: Guy Hamllton
Sýnd kl. 5,7.15,9.10 og 11.15
Goldfinger
JAMES B0ND IS BACK IN ACTION!
EVERYTHING HE TOUCHES
'.; Q'S*?
TURNS TO EXCITEMENT!!!
SEAN CONNERY.^... oor'
GOLIÍF'INGFR
SALUR3
CUJO
Splunkuný og jafnframt stórkosileg
mynd gerð eftir sögu Stephen
King. Bókin um Cujo helur verið
gefin út i milljónum eintaka viðs
vegar um heim og er mest selda
bók Kings. Cujo er kjörin mynd fyrir
þá sem una góðum og vel gerðum
spennumyndum
Aðahlutverk: Dee Wallace,
Christopher Stone, Daniel
Hugh-Kelly, Danny Pinatauro
Leikstjóri: Lewis Teague
Bönnuð börnum innan 16 ára
Sýnd kl. 5,7,9, og 11
Hækkað verð
SALUR4
Segðu aldrei
aftur aldrei
Aðalhlutverk: Sean Connery,
Klaus Maria Brandauer, Barbara
Carrera, Max Von Sydow, Klm
Basinger, Edward Fox sem „M“.
Byggð á sögu: Kevin McClory,
lan Fleming. Framleiðandi: Jack
Schwartzman. Leikstjóri: Irvln
Kershner. Myndin er tekin í
Dolby Sterio.
Sýnd kl. 5 og 10
Daginn eftir
Aðalhlutverk: Jason Robards, Jo-
beth Williams, John Cullum,
John Lithgow.
Leikstjóri: Nicholas Meyer.
Sýnd kl. 7.30