Tíminn - 25.03.1984, Síða 16

Tíminn - 25.03.1984, Síða 16
 “ i We’ve got some great looking birds in ICELAND ICELANDAÍR ■ Lundinn er hinn spaki fugl og ekki spillir litadýrðin. Þegar hann er kominn með sjónaukann, þá gefur hann engum alþjóðlegum trúista eftir. Þetta er ein af hugmyndunum sem hinir snjollu augiýsingamenn Flugleiða fengu í sambandi við auglýsingaherferð Flugleiða. landsleiðum. Höfum við gert sérstakan samning við SAS í því skyni. Gífurleg aukning á „stop-over" far- þegum á Islandi hefur verið hjá okkur á síðustu árum. Sérstaklcga er eftirtektar- vert, hversu mikil aukning er á lengri dvölinni, það er að segja þriggja sólar- hringa dvöl. Einnig, hve algengt það er, að fólk framlengi dvölina hér um einn eða tvo sólarhringa eftir að það hefur kynnst landinu með „stop-over“ dvöl hér. Þessi þróun er einnig sérstaklega hagstæð með tilliti til þess, hversu mikil áhrif þessi aukni ferðamannastraumur hefur á allt atvinnulíf á íslandi og ferðaiðnaðinn þó sérstaklega. Nýr íslenskur bæklingur Einmitt núna er að hefjast mikið átak í þessu efni og í dag er sá hamingjudagur hjá okkur. sem erum að undirbúa þetta, að Prentsmiðjan Oddi er að byrja prent- un á 200.000, - tvöhundruð þúsund, litprentuðum bæklingum, til dreifingar í vélunum og hjá ferðaskrifstofum víðs- vegar um heiminn, tilkynningar á „stop- over“ þjónustu okkar. Sérstakt ánægju- efni er að skýra frá því að þetta verkefni er alíslenskt því Auglýsingastofa Gunn- ars Gunnarssonar hannaði allan bæk- linginn. t>að, sem meira er, að í ljós hefur komið að íslendingar eru algjör- lega samkeppnisfærir við útlendinga í þessum efnum. Ýmsir aðilar hér á landi hafa sýnt þessu „stop-over" átaki okkar mikinn áhuga, enda skapar þetta mikla atvinnu hjá mörgum og reyndar vítt og breitt um landið. Reykjavíkurborghugleiðireinn- ig að láta vissa þjónustu í té í þessu sambandi, og ef til vill fá þessir farþegar frítt í strætó, í söfn og í sundlaugar borgarinnar. Þá erum við með ýmislegt á prjónun- um fyrir farþega okkar af yngri kynslóð- inni í vélunum. til þess að skemmta þeim meðan á flugi stendur. Nú í framhaldi af þessu er kannski ekkert undarlegt að við erum bjartsýnir hérna hjá Flugleiðum og lítum glaðir fram á sumarið. Einstaka mál og fréttir hafa einnig orðið til þess að styrkja þessa bjartsýni okkar, t.d. komum við mjög vel út úr 15 mínútna ferðaþætti í breska sjónvarpinu BBC fyrir skömmu. Þetta er mjög virtur þáttur, þykir reyndar gagnrýninn, en ísland fékk stöðugt hól í honum. Meira að segja talað um hversu ódýrt sé að versla hér og þá held ég nú að við megum vel við una. Fyrst við erum að nefna Bretland þá má benda á það, að Ferðamálaráð, ferðaskrifstofur og yfirvöld ferðamála á íslandi stóðu að sérstaklega vandaðri kynningu á íslandi og stjórnaði henni Einar Benediktsson, sendiherra í Bret- landi, en hann sýndi þessu máli mikinn áhuga. Árangurinn af þessari sýningu og öðru starfi hefur heldur ekki látið á sér standa, því viðskipti frá Bretlandi hafa aukist um 37% á síðasta ári og fjölgun breskra ferðamanna á sama tíma nam 21,9%. Norðurlandamarkaðurinn tekur ekki svona stór stökk en hann er stöðugur. Við eigum þó von á talsverðri aukningu á Norðurlandamarkaðinum á þessu ári," sagði Hans Indriðason, forstöðumaður Norðursvæðis Flugleiða að lokum. G.T.K. MARS1984 Flugleiðamenn bjartsýnir: Mikil fjölgun n Hans Ind- riðason, for- stöðumaður Norður- svæða Flug- Rætt við Hans Indriðason, forstöðumann Norðursvæðis Flugleiða ■ Gífurlegt starf hefur verið unnið af hálfu Flugleiða hf á undanförnum árum að kynna ísland á erlendum vettvangi og efla markað félagsins beggja vegna Atlantsala. Hans Indriðason er for- stöðumaður Norðursvæðis Flugleiða. Var hann spurður hvað væri helst að ske á þeim vettvangi. „Sé litið á Norðurlandamarkaðinn“ sagði Hans, „en þá er það hinn svokallaði ráðstefnumarkaður á Norðurlöndum, sem við sækjumst einna mest eftir núna. Sérstaklega eru það fyrirtækjaráð- stefnur, sem við erum á höttunum eftir. Þær eru frekar smáar og þægilegar fyrir okkur, svona uppí 150 manns. í þessu sambandi höfum við sett af stað heljar mikla ráðstefnuherferð á Norðurlönd- unum, Bretlandi og í Þýskalandi. Mun auglýsinga- herferð í því sambandi hefjast í næsta mánuði. Auglýsingastofa okkar í Svíþjóð, mun sérstaklega annast útfærslu á þessu verkefni. I framhaldi af þessu búum við svo til sérstaka „pakka" fyrir stærri fyrirtæki, t.d. Volvo-pakka og Philips-pakka. Þessir pakkar verða að hluta til miðaðir við sérþarfir hvers fyrirtækis og munum við hafa samráð við kynningardeildir þeirra. Að hluta til geta fyrirtækin einnig notað þessi tilboð til þess að örva góða starfsmenn í starfi og gefa þeim frí og farseðil á svona ráðstefnu. Verðlaunað góða starfsmenn og mun þá nafn íslands auðvitað tengjast góðri ferð. I þetta hefur heilmikil vinna farið hjá okkur undanfarið og er unnið sameigin- lcga með öllum söluskrifstofum okkar á Norðursvæðinu t.d. á Norðurlöndum, Þýskalandi, Frakklandi og Bretlandi. Þessi herferð okkar hefur spurst út til fyrirtækja og nú þegar hafa þrjú fyrirtæki pantað ráðstefnuaðstöðu hjá okkur, áður en nokkuð er farið að auglýsa. Þannig njótum við hins nána samstarfs við söluskrifstofur okkar um þetta mál og auglýsingaskrifstofur okkar erlendis, sem eru mjög færar í sínu starfi. Sölu- stjórar okkar erlendis hafa einnig lagt mjög mikið á sig við undirbúning þessa máls og kemur sér nú vel, hversu gott mannval við höfum í fyrirsvari fyrir söluskrifstofunum. Þess njótum við svo sannarlega hjá félaginu og einnig fjölda margir aðilar hér á landi sem beint og óbeint hafa mikla vinnu í kringum þetta allt saman. Skemmtilegt er að skýra frá því, að við beittum okkur fyrir skoðanakönnun í Skandinavíu og staðfesti það fyrri könnun ferðamálaráðs, að ísland var mjög vinsælt og ofarlega í huga fólksins sem ferðaland. Þannig kom fram, að meðaltali var ísland annað landið, sem allir vildu heimsækja. Þessi niðurstaða örvar okkur mjög í markaðsaðgerðum á þessu svæði, þar sem markaðurinn virð- ist svo mjög opinn fyrir okkur. Mikil aukning í vetur Þá hefur það óneitanlega stutt mjög við bakið á okkur, í að efla þessa ferðamennsku, að aðstaða öll hér í Reykjavík er til fyrirmyndar að taka á móti erlendum ferðamönnum. í rauninni er hún hreint á heimsmælikvarða hvað skemmtistaði og veitingahús áhrærir. Sem dæmi um vinsældir íslands, get ég aðeins nefnt, að bara í vetur koma hingað um 1800 Svíar og er þó veturinn ekki heitasti ferðatíminn, ef svo má að orði komast. Frómt frá sagt er það einmitt mjög hagstætt fyrir okkur Islend- inga að fá svona aukningu í ferðamenn- skuna um vetrartímann. Þarna hefur orðið um helmingsaukning á milli ára, því að í fyrravetur komu hingað um 1200 Svíar. Nú, - við veltum auðvitað ýmsu fyrir okkur hérna hjá Flugleiðum og reynum að eygja möguleika fyrir ferðaiðnaðinn í ýmsu, sem fyrir hendi er hér heima. T.d. langar mig sérstaklega að benda á Bláa-lónið við Svartsengi í þessu sambandi. Þarna eru frá okkar sjónar- hóli stórkostlegir möguleikar. Lækn- ingarmáttur vatnsins er óvéfengjanlegur og þetta hefur frést vel út fyrir landstein- anna. Mér er ánægja að skýra frá því, að áhuginn erlendis virðist mjög mikill, jafnt hjá erlendum ferðamálafrömuðum sem erlendri heilsugæslu. Saga farrými Ýmislegt spennandi er einnig að gerast hérna hjá okkur Flugleiðamönnum sjálfum. Sérstakt ánægjuefni er að geta bent á þá viðbótarþjónustu, sem Flug- leiðir koma til með að bjóða í flugvélun- um frá og með 1. apríl. Þá tökum við upp svokallaða „Saga“ - þjónustu. Við vöndum til hennar á allan hátt og leyfi ég mér að fullyrða að hún sé mjög góð og kynni þá einhver að segja, að lengi má gott bæta. Heitið á þjónustunni er sérstaklega valið með tilliti til þess, að orðið „Saga“ er alþjóð- lega þekkt orð og tengt norrænni menn- ingu og íslandi sérstaklega. Við setjum upp lítið þil í vélarnar til þess að afmarka Saga-farrýmið. Gert verður ennþá betur við Saga farþega í mat og drykk og þeir fá aukið pláss og næði. Þessi þjónusta verður til reiðu fyrir alla þá, sem greiða hæsta fargjald. Hún hefur verið reynd hjá SAS-flugfé- laginu með mjög góðum árangri og þykir sérstaklega heppilegt millistig á milli hinnar hefðbundnu skiptingar farþega í fyrsta farrými og venjulegt farrými. Auk þessa aukna pláss og næðis, ókeypis drykkja og borðvína þá fá farþegar á Saga-farrými fljótari afgreið- slu í flughöfnum við sérstakt borð. Erlendis verður þessi þjónusta okkar í flughöfnum á Norðurlanda- og Bret-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.