Tíminn - 27.03.1984, Page 3

Tíminn - 27.03.1984, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1984 ♦'* *Jv fréttir Vélsledaeigendur undirbúa stofnun landsfélags: STOFNFDNDURINN HflLD- INN A HALENDINU MIÐJU ■ „Ég tcl það öruggt að þetta verði í fyrsta skipti sem landsfélag á borð við það sem við erum að undirbúa sé stofnað uppi á hálendi eða því sem næst á landinu miðju. En hugmyndin með þessu er sú að allir eigi jafn langa leið á stofnfundinn fyrir utan náttúrulega það að við höfum allir gaman af því að ferðast á sleðum uppi í óbyggðum,“ sagði Vilhelm Agústsson, vélsleðaáhug- amaður á Akureyri, í samtali við Tímann í gær. Vilhelm, ásamt fleiri áhugamönnum um vélsleðaíþróttir á Akureyri, hefur undanfarið verið að undirbúa stofnun landssamtaka vélsleðaáhugamanna. Nú hefur verið ákveðið að halda fund áhuga- manna um þessa íþrótt í Nýjadal, sem er í Jökuldölum í sunnanverðum Tungnafellsjökli,7. apríl næst komandi. „Eg veit ekki hvað verður margt þarna. Það ræðst að sjálfsögðu mikið af veðri. En þegar hafa hátt á þriðja hundrað vélsleðaeigendur sett sig í samband við okkur og lýst áhuga sínum á að mæta. Enn er tími til stefnu svo að fleiri gætubæst í hópinn," sagði Vilhelm. Hann sagði að sameiginleg hagsmuna- mál vélsleðaeigenda væru að sjálfsögðu hálendi sem búið væri að merkja, það er að segja að menn vissu ekki um allar þær leiðir sem vélsleðamenn hefðu varðað í gengum árin. Úr því væri hægt að bæta með útgáfu fréttabréfs, sem innihéldi upplýsingar um slíkt. mörg. Hann nefndi sérstaklega að nú væru lúxustollar á vélsleðum og það gæti vel orðið verkefni félagsins-að berjast fyrir því að þeir yrðu afnumdir. Þá sagði hann að margir hefðu talað um að upplýsingar skorti um leiðir uppi á A fundinum í Nýjadal verður vegleg dagskrá og meðal annars verða kynntar nýjungar í björgunartækni, innflytjend- ur vélsleða kynna sína vöru og fleira. -Sjó, Fyrsta biðskýlið í Borgarnesi ■ Fyrsta biðskýlið í Borgarnesi var nýlega sett upp við Borgarbraut, og er það ætlað skúlabömum þar í grennd til að bíða í eftir skúlabílnum. Munu krakk- arnir hafa fagnað þessu framtaki, enda oft verið kuldalegt fyrir þau að bíða á berangri í myrkri og misjöfnum veðrum t.d. nú síðari hluta vetrar. í ráði er að setja upp tvö önnur slík skýli á næstunni. Skýli þetta er hannað af Ingölfi Mar- geirssyni, byggingatæknifræðingi. Rammi þess var smíðaður hjá áhaldahúsi bæjarins, klæðningin framleidd og form- uð af Vírnet h.f. og botnplata steypt hjá Loftorku s.f. Tímamynd Kagnheiður. Mezzoforte: í 14. sæti vinsældarlist- ans í Noregi ■ Mez/oforte heldur áfram aðgerð- um sínum erlcndis. Það er nýjast að frétta að hljómsveitin er á hljómleika- ferð í Þýskalandi og stendur hún til 5. aprfl. Uppselt hefur verið á flesta hljómleika þeirra í Þýskalandi. Eftir að ÞýskalandsreLsu lýkur hcldur hljómsveitin norður á bóginn, og held- ur þar nokkra hljómleika. Bæta þurfti við einum tónleikum í Kaupmannahöfn vegna mikillar aðsóknar. Heldur hefur gengið illa hjá Mezzo- fortc að fylgja eftir laginu sem þeir gerðu vinsælt, Garden Party, með öðru vinsælu lagi. Ný tilraun vargerð í fcbrúar og iagið Midnight Sun gefið út, en það náði ekki inn á lista í Bretlandi, nema diskólistann. Hins- vegar hefur gengið öilu betur með stóru plötuna Observations (Yfirsýn), a.m.k. t Þýskalandi og Skandinavíu. í Þýskalandi kontst platan inn á topp 50, í 14. sætið í Noregi í útgáfuvikunni og í 25. sætið í Dantnörku. Áætluð er útgáfa á þessarri plötu fljótlega í Japan. Hollandi, Belgíu og víðar í Evrópu á næstunni. í apríl á svo aö gera nýja tiiraun til að fylgja Garden Party eftir, en þá á að gefa út lagið Spring Fcver (Heima er best) á lítillt. plötu í Bretlandi. -ADJ. ORUGGASTA OG BESTA VALIÐ FISLÉTTUR, FRÍSKUR BENSÍNSPARI SEM LEYNIR ÁSÉR. MICRA ÖRYGGIO FELST Í: gæðum og endingu sem Nissan verksmiðjurnar einar geta tryggt og gull- tryggðri endursölu og ó verði sem er það langbesta sem nokkur keppinautanna getur boðið ó bilum sem eiga að heita sambærilegir. INGVAR HELGASON HF Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.