Tíminn - 27.03.1984, Síða 5
Iðnaðarráðherra vill
kosningar fljótlega
„Hlýtur að vera
persónuleg skoð-
un ráðherrans"
— segir Steingrímur Hermannsson
■ „Þetta hlýtur að vera persónuleg
skoðun iðnaðarráðherra, en ekki skoðun
flokks hans,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra er Tíminn
spurði hann í gær hvað hann vildi segja
um þau orð Sverrís Hermannssonar
iðnaðarráðherra í Helgarpóstinum þar
sem hann sagðist vera því fylgjandi að
kosið yrði fljótlega, ef ekki á næsta ári,
þá áríð 1986.
„Kjörtímabilið er 4 ár, og það á ekki
að efna til kosninga áður en kjörtímabili
er lokið nema að nauðsynlegt sé af
einhverjum ástæðum, svo sem að upp sé
komin stjórnarkreppa eða að ríkisstjórn-
in komi ekki fram sínum málum eða
eitthvað þessháttar," sagði forsætisráð-
herra jafnframt og bætti við: „Það á því
alls ekki að ganga út frá því fyrirfram að
menn hafi kosningar vegna þess að þeir
hafi gaman af slíku, eða eitthvað þess
háttar."
-AB
„Ekkert
komið
upp á
sem kall-
ar á
kosningar“
— segir Þor-
steinn Pálsson
■ „Það hefur ekkert það komið upp á,
sem kallar á kosningar, en hins vegar þá
verða menn alltaf að vera reiðubúnir, ef
þeir hlutir gerast sem gera kosningar
nauðsynlegar," sagði Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfstæðisflokksins er Tíminn
spurði hann í gær álits á þeim ummælum
Sverris Hermannssonar iðnaðarráðherra
■ Bjöm Björnsson, Jón Þór Hannesson og Egill Evarðsson fóru til New York á norrænu kvikmyndakynninguna sem þar
stendur yfir. Vom þeir félagar ánægðir með viðtökurnar sem Húsið fékk. Tímamynd Jónas S. Guðmundsson.
Tvær íslenskar kvikmyndir á norrænni
kvikmyndahátid í New York:
„HELD AD SÖLUMÖGU-
LEIKAR FARI SMAM
SAMAN AÐ BJÓÐASF
— segir Egill Edvardsson, leikstjóri Hússins
í Helgarpóstinum að hann teldi að
kosningar ættu að fara fljótlega fram, á
næsta ári eða 1986.
„Eins og sakir standa," sagði Þor-
steinn, „hefur ekkert það komið upp á
sem kallar á kosningar.“
-AB
Frá iónasi Giiömiindssvni. frétlaritara Tím-
ans í Bandaríkjunum:
■ Tvær íslenskar kvikmyndir, Húsið
og Hrafninn flýgur, eru um þessar
mundir til sýningar á norrænni kvik-
myndakynningu í New York. Kynn-
ingin er haldin á vegum New Yorker
Films og American Scandinavian Fo-
undation, og stendur í fjórar vikur.
Fjórir aðstandendur Hússins
brugðu sér til New York í tilefni
„Sjáum hag í því
að allt starfið
sé á einni hendi“
— segir Vilhjalmur Þ. Vilhjálmsson
hjá SÁÁ vegna umræðna um
Afengisvarnardeild
■ Að undanförnu hefur verið rætt um
að SÁÁ tæki yflr Áfengisvarnadcild
Heiisuverndarstöðvarinnar. Vegna þess
hafði Tíminn samband við Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson og spurðist fyrir um hvem-
ig málin stæðu.
-Það eru í gangi núna viðræður á milli
Heilbrigðisráðs Reykjavíkur og SÁÁ
um þetta mál. Reyndar fóru fram við-
ræður um þetta mál árið 1977, en það
var ákveðið að bíða og sjá hvernig málin
þróuðust. Síðan eru liðin 6 eða 7 ár og
núna eru þær komnaraf stað aftur. Þetta
eru í sjálfu sérgagnvæmarviðræður, það
eru ekki bara við sem viljum ræða þessi
mál, heldur vilja borgaryfirvöld ræða við
okkur líka.“
-Hvenær er búist við niðurstöðum?
„Við höldum fundi öðru hvoru og
ræðum þetta í rólegheitum. Það er ekki
að vænta niðurstöðu á næstunni."
-Nú hefur Áfengisvarnardeildin ekki
verið samþykk þessu.
„Það er ekki rétt. Að vísu hefur
deildarstjórinn sett fram spurningarsem
túlka má sem andstöðu, en starfs-
mennirnir sem heild hafa ekki tekið
afstöðu og ég veit um a.m.k. tvo af þeim
sem eru samþykkir sameiningu.“
-Hvaða hag sjáið þið í að sameina
þetta?
„Þetta starf er mjög nátengt og aðal-
kjarni starfs Áfengisvarnadeildar tengist
því fólki sem er verið að meðhöndla á
meðferðarstofnunum SÁÁ. Við sjáum
hag í því að allt starfið sé á einni hendi,
og að sá aðili sem sinni þessu, bæði
fyrirbyggjandi starfi og meðferð, geti
gert það með heildaryfirsýn og heildar-
hagsmuni í huga. Það er alltaf hæta á því
að þetta rekist á þegar tveir aðilar eru
með sinn hvorn part. Hitt er annað mál
■ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
að samstarfið hefur verið mjög gott
hingað til.
Þetta er í sjálfu sér ekkert kappsmál,
við 'viljum aðeins kanna málið og ef
þetta gengur ekki, þá er það sársauka-
laust af okkar hálfu." -ADJ
kynningarinnar, og þar átti Tíminn
stutt spjall við einn þeirra, Egil Eð-
varðsson, leikstjóra. Hann var fyrst
spurður hver væri tilgangurinn með
þátttökunni? „Ég lít á hana sem lið í
ákveðinni þróun, ekki bara fyrir þess-
ar myndir, heldur fyrir íslenska kvik-
myndagerð í heild. Við þurfum að
komast í samband við aðila sem hafa
áhrif á auglýsingu og dreifingu. Þá
held ég að sölumöguleikar muni smám
saman fara að bjóðast, en á þeim
þurfum við að halda. Ég á von á
frekari sölu á Húsinu, Hrafninum og
jafnvel Atómstöðinni hér í Bandaríkj-
unum a næstunni,“ sagði Egill.
- Hvernig hefur ykkur gengið að
koma Húsinu á framfæri?
„Ég er mjög ánægður. Við höfum
náð sambandi við fólk sem er að
skoða myndina og skrifa um hana. Ég
hef þegar séð skrif sem munu birtast í
New York Tribuna og eru mjög
vinsamleg. Vikuritið Villiage Voice
ætlar einnig veit ég að birta dóm um
myndina. Nú svo eru New Yorker
Films, annar aðstandenda þessarar
norrænu kynningar og eigandi fjöl-
margra kvikmyndahúsa, með hana til
skoðunar fyrir sig. Og síðan er orðið
mjög sennilegt að Húsið fari á kvik-
myndahátíð í Los Angeles. Þannig að
við teljum förina hingað hafa verið
mjög til góða fyrir okkur.“
- Nú er Húsið líklega sú íslensk
kvikmynda sem bestan aðgang ætti að
eiga að erlendum mörkuðum?
„Ég held að svo sé. Þetta er kvik-
mynd sem ekki krefst þess að áhorf-
andinn þekki séríslenskan hugarheim
og aðstæður. Hún segir sjálfstæða
sögu og er tiltölulega aðgengileg.
En ég vil gefa þessu tíma. Það er
liðið ár frá frumsýningu og fyrir okkur
sem gerðum myndina er hún liðin tíð
- við viljum einbeita okkur að nýju
verkefni. En við höfum samt ekki
gefið upp alla von erlendis, við viljum
gefa myndinni 2-3 ár til að verða
eitthvað meira en hún er orðin. Því er
bara að bíða og sjá.“
-Hvað með nýja verkefnið?
„Ja, ég er að vinna að handriti, sem
verður væntanlega lokið í haust. Það
er líka „þriller", og enn magnaðri en
Húsið, efnið er sótt í gamlar furðu-
sögur. En þetta verður séríslenskari
mynd en Húsið.“
Egill sagði að lokum að hann hefði
notað tækifærið í New York til að
skoða nýjar bandarískar ntyndir og
orðið hrifnastur af Silkwood, mynd-
inni um Karen Silkwood, sem lét lítið
á dularfullan hátt fyrir nokkrum árum
á meðan hún vann að uppljóstrunum
á öryggisbrotum í kjarnorkuverði í
Oklahoma.
Skákmótið á
Neskaupstað:
Tvö jafn-
telf i og 3
skákir í
■ Staðan í skákmótinu á Neskaupstað
er nokkuð óljós cftir 7. umferð, vegna
fjölda biðskáka. Helgi Ólafsson erefstur
með 4'A vinning, 2. er Jóhann Hjartar-
son með 4 vinninga og biðskák, 3. er
Lombardy með 4 vinninga og 4. er
Margeir Pétursson með 3 vinninga og
tvær biðskákir. Þess ber að geta að þeir
Margeir og Jóhann hafa teflt einni skák
fleira en þeir Lombardy og Helgi Ólafs-
son.
í 7. umferð sem tefld var í gærkvöldi
lauk tveim skákum snemma með jafn-
tefli, þ.e. skák Helga Ólafssonar og
Jóhanns Hjartarsonar og skák Svíanna
Schússlers og Wedbergs. Þrjár skákir,
sem þóttu mjög skemmtilegar, fóru allar
í bið og er staðan talin mjög tvísýn í
þeim öllum. Þetta eru skákir: Guðmund-
ar Sigurjónssonar og Dan Hansson,
skák Margeirs Péturssonar og stórmeist-
arans Knezevic og þriðja skákin var á
milli Mc Cambridge og Róberts Harðar-
sonar.
Um helgina varð Benóní Benedikts-
son að hætta þátttöku í mótinu vegna
veikinda. Áttunda umferð verður tefld í
dagkl. 17.00. -HEI.