Tíminn - 03.01.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur 3. janúar 1986
Varðstjóri hjá slökkviliðinu:
„Annasömustu
áramót sem
ég man
■ Slökkviliö Reykjavíkur var kall-
að úr 48 sinnum á tímabilinu frá því
um miðjan dag á gamlársdag og fram
undir klukkan tvö á nýársnótt. Þaraf
voru 38 útköll á sex klukkustunda
tímabili. Svo til öll útköllin voru
vegna sinubruna.
„Þetta cru annasömustu áramót
scm ég man eftir," sagði Arnþór Sig-
urðsson varðstjóri hjá slökkviliðinu í
samtali við Tímann í gær. Arnþór
hefur starfað 23 ár í slökkviliöinu.
Sinubrunar kviknuðu víða á gaml-
eftir“
árskvöld, og var um að kenna flug-
eldum og blysum sem fólk henti frá
sér og þar sem jörð var þurr komst
eldur í gróður. „Rokið var það mikið
að eldurinn læsti sig um þurra jörð-
ina eins og hann hefði komist í púð-
urtunnu," sagöi Arnþór. Álagið á
skiptiborðið hjá slökkviliðinu var
mjög mikið og sagði Arnþór að ekki
hefði tckist að kanna öll útköll og
hefði borgarinn þá sjálfur slökkt
gróðurelda, með vatnsslöngum og
skóflum. Ekkert tjón hlaust af sinu-
bruntlnum.
Tima-mynd: Sverrir
Áramótabrennurnar urðu sums staðar stærri en ráð var fyrir gert,
Fálkaorðan í
barmi Davíðs
■ „Á fyrri tíð þá fengu margir
embættismenn orður fyrir sín em-
bættisstörf. Það var eiginlega aðal-
venja hér á fyrri hluta aldarinnar.
Venja sem tíðkaðist í Danntörku
þegar ísland var undir dönsku
valdi. Svo hefur þetta minnkað
smám saman og nú eru það ein-
ungis allra æðstu embættismenn
sem fá heiðursmerki lyrir
embættisstörf eftir tiltölulega
skamman tíma," sagöi Halldór
Reynisson forsetaritari sem jafn-
framt er ritari Orðunefndar. 'I'il-
efnið var orðuveiting forseta ís-
lands á nýársdag þar sem nt.a.
Davíð Oddsson borgarstjóri var
sæmdur riddarakrossi fálkaorð-
unnar fyrir embættisstörf.
Halldór gat þess að starf borgar-
stjóra í Reykjavík hefði um langan
aldur verið talið býsna yfirgrips-
mikið og því hefði sú venja ríkt að
borgarstjórar væru sæmdir orðunni
tiltölulega fljótlega cftir að þeir
kæmu í embætti. Því væri umrædd
orðuveiting á cngan hátt óvcnju-
leg. Þess ntá geta að fyrrverandi
borgarstjóri fékk riddarakross er
hann hal'ði gcgnt embætti í svipað-
an tíma og Davíð.
„Orðuveitingum til (slendinga
hefur fækkað nokkuð miðað við
það sem var fyrir svona fimm til sex
árunt. Þetta er ekki formléga fast-
bundið en sanit sem áður hafa veit-
ingarnar ekki aukist. Það ber í því
sambandi að minna á að það er
Orðunefnd sem gerir tillögur um
orðuveitingar til forseta. Málið cr
því að mestu leyti í höndum nefnd-
arinnar eins og annarra stjórnar-
valda," sagði Halldór. Hann sagði
að engin föst hefð væri á því hvern-
ig tillögur væru bornar upp við
nefndina. Þær kæmu ýmist frá ein-
staklingum eða hópum, þó þannig
að tilgreindar væru ástæður fyrir
tillögum.
Þeir sem hlutu heiðursmerki
Itinnar íslensku fálkaorðu að þessu
sinni voru:
Daníel Sigmundsson, húsasntíða-
meistari, ísafirði, riddarakross fyr-
ir störfaðslysavarnamálum; Davíð
Oddsson, borgarstjóri Reykjavík-
ur, riddarakross fyrir embættis-
störf; Eiríkur Björnsson, rafvirki,
Svínadal í Skaftártungu, riddara-
kross fyrir rafvæðingarstörf; Elín
Aradóttir, Brún í Reykjadal, ridd-
arakross fyrir félagsmálastörf;
Hálfdán Einarsson, skipstjóri, Bol-
ungarvfk, riddarakross fyrir út-
gerðar- og félagsstörf; Hallgrímur
Fr. Hallgrímsson, fv. forstjóri,
Reykjavík, stjörnu stórriddara fyr-
ir störf að viðskiptamálum; Heíga
Bachmann, leikkona Reykjavík
riddarakross fyrir félags- og leik-
listarstörf; Hjalti Gcir Kristjáns-
son, húsgagnaarkitekt. riddara-
kross fyrir störf að iðnaðar- og
verslunarmálum; ingibjörg Thor-
arensen, Reykjavík, riddarakross
fyrir félags- og safnaðarstörf; Jón
Magnússon, Skuld, Hafnarfirði,
riddarakross fyrir ræktunarstörf;
dr. Karl Kortsson, fv. héraðsdýra-
læknir, Hellu, riddarakross fyrir
embættisstörf; Ólafur Björnsson,
útgerðarmaður, Keflavík, riddara-
kross fyrir útgerðar- og félagsstörf;
Skúli Pálsson, fiskiræktarbóndi,
Laxalóni við Reykjavík, riddarakr-
oss fyrir fiskirækt; Trausti Sigur-
laugsson, forstöðumaður, Reykja-
vík, riddarakross fyrir störf að mál-
efnunt fatlaðra; Unnur Halldórs-
dóttir, Gröf, Miklaholtshreppi,
riddarakross fyrir störf að sam-
göngu- og ferðamálum; Valborg
Sigurðardóttir, skólastjóri,
Reykjavík, stórriddarakross fyrir
störf á sviði uppeldis- og fræðslu-
ntála; Þorvaldur Guðmundsson,
forstjóri, Reykjavík, stórriddara-
kross fyrir störf í þágu lista- og at-
vinnulíís.
Upplýstar öndvegissulur
I Á nýársdag tendraði Davíð Oddsson borgar-
stjóri „öndvegissúlur“ við borgarmörkReykja-
víkur í tilefni af 200 ára afmæli höfuðstaðarins.
Útlit þessara upplýstu hliðarstólpa er sótt í önd-
vegissúlurnar í borgarmerkinu og með bjartari
vornóttum er gert ráð fyrir að flögg og borðar
skreyti súlurnar þannig að þær „blómstri“ með
vorblómum . TÍMAMYND-Árni Bjarna.
Tæknimenn
fresta
Máliö fyrir Félagsdóm
■ Ekkert varð úr boðaðri vinnu-
stöðvun tæknimanna hjá útvarpi,
sjónvarpi og Pósti ogsíma, sem hefj-
ast átti í gær. Féllust þeir á að vísa
málinu til Félagsdóms og að hann
myndi skera úr um hvort uppsagnir
122 tæknimanna hjá hinu opinbera,
væru löglegar og verkfallsboðunin
því Iögleg.
Helgi Gunnarsson, starfsmaður
Sveinafélags rafeindavirkja, sagði að
á gamlársdag hefði komið beiðni frá
fjármálaráðuneytinu um að fresta
verkfallinu og leggja málið fyrir Fé-
lagsdóm. Sagði hann að þeir hjá
Sveinafélaginu hefðu orðið sammála
um að fallast á það, þar sem þeir telja
uppsagnirnar löglegar, þrátt fyrir
þann fyrirvara, sem var á þeim.
Nú er alls ekki víst að Félagsdóm-
ur fallist á að taka að sér að skera úr
um hvort uppsagnirnar hafi verið
löglegar eða ekki. Séu þær löglegar
þá eru tæknimennirnir lausir allra
mála við ráðuneytið og samnings-
réttur þeirra í höndum Sveinafélags-
ins.
Helgi sagði að þeir myndu hlíta úr-
skurði Félagsdóms og yrði hann nei-
kvæður verði hann til þess eins að
fresta uppsögnunum, því þær verða
endurteknar og þá án fyrirvara. J afn-
vel kemur til greina að endurtaka
þær strax, til að flýta fyrir gangi
mála.
BSRB:
Viðræður að hefjast
■ ídagmun 10 manna undirnefnd í
60 manna samninganefnd BSRB
koma saman til að móta enn frekar
stefnuna í komandi samningum. 7.
janúar kemur svo 60 manna nefndin
saman og upp úr því munu viðræður
við fjármálaráðuneytið hefjast.
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, sagði við Tímann í gær, að
stefnt yrði að því að auka kaupmátt
og tryggja hann í komandi samning-
um. Þetta á svo eftir að útfæra nánar.
Með þessu er stefnt að því að stjórn-
völd haldi verðlagi í skefjum en þær
hækkanir sem nú eiga sér stað verða
tæpast til þess að liðka fyrir samning-
um.
Bjóst Kristján við því að strax í
kjölfar fundar samninganefndar
hefjist viðræður við fjármálaráð-
herra.
Sérhæfír danskennarar
Brautryðj endur á íslandi í kennslu á
keppnisdönsuxn fyrir alla aldurshópa
svo sem:
gömlu dönsunum og
samkvæmisdönsum,
einnig:
bamadansar, jassballett,
rokk og tjútt.
Félagar í F.Í.D. og Alþjóðasaxntökum danskennar<
Takmarkaður fjöldi
nemenda í hvém tíma.
Kennsla hefst 7. janúar.
/
Kennslustaðir:
REYKJAVÍK
Ármúla 17a
HAFNARF J ÖRÐUR
Linnetsstíg 3
Innritun í símum 52996 og 38830 7
daglega kl. 10-12 og 14-18. /