Tíminn - 03.01.1986, Side 11
10 Tíminn
Föstudagur 3. janúar 1986
Föstudagur 3. janúar 1986
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Enska knattspyrnan á nýársdag:
United byrjar árið vel
- Gibson gerði sitt fyrsta mark fyrir liðið - Liverpool og Everton töpuðu bæði stigum - Rush skoraði þó eftir
langa mæðu - Hartford og Webb skoruðu báðir þrennu - Frestað á Upton Park - Fimm stiga forysta United
Frá Orra Ýrar Smárasyni fréttarilar Timans:
■ Colin Gibson, sem Man. Utd.
keypti frá Aston Villa í nóvember á
síðasta ári, skoraði fyrsta mark sitt
fyrir Manchesterliðið gegn Birming-
ham á nýársdag. Það reyndist vera
eina mark leiksins þrátt fyrir mikla
yfirburði Man. Utd, sem með þess-
um sigri tók fimm stiga forskot í
deildarkeppninni, er með 52 stig en
Chelsea, Everton og Liverpool hafa
öll hlotið 47 stig.
Stigafjöldinn gæti þó átt eftir að
breytast ef Chelsea vinnur leik sinn
gegn West Ham en honum var frcst-
að vegna frosthörku. Þessi leikur átti
að fara fram að morgni nýársdags og
voru fjölmargir áhorfendur mættir
að Upton Park, heimavelli West
Ham. Þeir fóru því fýluferð og voru
margir hoppandi illir yfir hversu
seint frestunin var tilkynnt.
Liverpool náði ekki að sigra Sheff.
Wed. á heimavelli sínum Anfield
þrátt fyrir að hafa töluveröa yfir-
burði mest allan leikinn. Carl Shutt
náði forystunni fyrir „Uglurnar“
strax á 1. mínútu. Ian Rush jafnaði
og Paul Walsh, sem komið hafði inná
sem varamaður fyrir Kenny
Dalglish, náði forystunni fyrir Liv-
crpool. Walsh var búinn að vera inná
í 25 sekúndur þegar hann skoraði.
Það var hins vegar Gary Tompson
sem átti síðasta orðið. Hann jafnaði
metin cftir slæm varnarmistök
skömmu fyrir leikslok.
Enn tapar Aston Villa, að þessu
sinni á hcimavelli fyrir Man. City.
Mark Lillis skoraði eina mark leiks-
ins.
Mike Harford skoraði þrennu fyr-
ir Luton í sigrinum á Leicester. Mark
Bright kom Leicester á blað.
Neil Webb var einnig í þrennu-
stuði í stórsigri Nott. For. á Cov-
cntry. Forest vann 5-2 eftir að Regis
og Evans höfðu komið gestunum yfir
0-2. Þá kom þrenna Wcbbs og Clogh
og Methgod innsigluðu sigurinn.
Varadi skoraði mark fyrir W.B.A.
gegn Southampton á The Dell en
það dugði skammt. Cockerville,
Wallace og Moran skoruðu allir fyrir
heimaliðið og stigin þrjú fóru því
ekkert frá The Dell.
Uppí Newcastle léku heimamenn
gegn Everton. Trevor Steven náði
forystunni fyrir gestina en Peter Be-
ardsley og Paul Gascoigne komu
Newcastle yfir. Graeme Sharp jafn-
aði metin úr vítaspyrnu skömmu fyr-
ir leikslok. Leikmenn Everton
mciddust hver af öðrum og þurftu að
leika með tíu menn langtímum
saman. Paul Bracewell kom verst út,
gæti verið fótbrotinn.
Portsmouth sigraði Wimbledon á
útivelli í toppleik 2. deildar. Mike
Channon skoraði tvö mörk og Vince
Hillare eitt fyrir Portsmouth en Cork
svaraði fyrir Wimbledon. Þá sigraði
Lceds lið Oldham örugglega 3-1 og
fer nú líklega að þoka sér upp töfl-
una.
Heimsbikarkeppnin á skíðum:
Wirnsbergeráfullu
- Sigraði í bruni á gamlársdag og hefur tekið forystu i þeirri grein
■ Austurríkismaðurinn Pcter
Wirnsberger á brunmóti heimsbikar-
keppninnar á skíðum sem haldið var
í Schladming í Austurríki á gamlárs-
dag. Annar varð Svisslendingurinn
Peter Múller.
Wirnsbergcr fór niöur hina 3408
metra braut á 1:56,87 og var með-.
alhraði hans um 105 kílómetrar á
klukkustund. Sigur hans var öruggur
því Múller varð næstum því sckúndu
á eftir kappanum, Múllcr fór vega-
lengdina á 1:57,92.
Þessi sigur Wirnsberger, hans ann-
ar í bruni á kcppnistímabilinu. kom
honum í fyrsta sætið í stigakeppninni
Skosk súperdeild:
■ Talsverðar líkur eru á að
níu sterk lið á Skotlandi búi til
sína eigin „Super-dcild“ í
knattspyrnunni. Þessi lið eru
Rangers, Celtic, Abcrdccn,
Hearts, Hibernian, Dundee,
Dundee Unitcd, St. Mirren
og Motherwell.
Forráðamenn þessara liða
hafa verið að stinga saman
nefjum og inunu að öllum lík-
indum leggja tillögu sína fyrir
skoska knattspyrnusamband-
ið mjög fljötlega.
í bruni. Þeir Wirnsbergcr og Múllcr
eru afturá móti jafnir í öðru til þriðja
sæti heildarstigakeppninnar með 90
stig. Þar er efstur Lúxemborgarbú-
inn Marc Giradelli, sem varð í
fimmta sæti í þessari brunkeppni.
AMERÍSKUR FÓTBQLTI
49urnar úr leik
Töpuðu fyrir New York Giants í „wild card“ leik
■ Það er nú Ijóst að San Francisco
49crs vcröa ckki Super Bowl-meist-
arar í amcríska fótboltanum annað
árið í röð. Liðið tapaði fyrir New
York Giants í öðrunt ., wild Card"
leiknum. Giants sigruðu !7-3ogáttu
þcir alls kostar við meistarana frá
síðasta ári.
Nú eru átta lið eftir í keppninni í
ameríska fótboltanum. Fyrsta um-
ferðin í úrslitakeppni þessara liða
verður á sunnudaginn. Þá mætast:
Miami Dolphins og Cleveland
Browns, Los Angeles Raiders og
New York Jets, Los Angeles Rants
og Dallas Cowboys, Chicago Bears
og Ncw York Giants.
Framhaldið verður síðan það að
sigurvegararnir úr Dolphins/Browns
og Raiders/Jcts mætast innbyrðis um
sigur í American Conference en sig-
urvegararnir úr hinum viðureignun-
um mætast í leik um sigur í National
Conference.
Við munum að sjálfsögðu fylgjast
með þessum leikjum.
NBAkarfan
■ Síðustu leikir i NBA deildinni voru ó mónudag og þriðjudag. Hór eru úrslitin í þeim en staðan verdur birt fljótlega eftir
helgi:
123-111
Bulls-Cavaliers 121-117
Pacers-Bullets . . 97-80
Bucks-Pistons 121-110
Jazz-Supersonics 107-105
Nuggets-Rockets 125-122
Celtics-Clippers 125-103
Trail Blazers-Spurs 125-110
76ers-Kings . . 87-84
■ Um jólin endurnýjuðu Handknattleikssambandið og Flugleiðir samning sinn um samstarf um eflingu íslensks
handknattleiks og kynningu á starfsemi og þjónustu Flugleiða. Flugleiðir eru nú aðalstuðningsfyrirtæki Handknatt-
leikssambandsins og íslenska landsliðsins fyrir Heimsmeistarakeppnina 1986 og nemur samningurinn nokkrum milij-
ónum króna, allt eftir starfsemi HSI og samskiptum við erlendar þjóðir á samningstímabilinu.
Á myndinni að ofan má sjá samninginn góða í höndum Jóns Hjaltalíns formanns HSÍ. Honum á hægri hönd situr
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða og hinum megin er Sigfús Erlingsson, markaðsstjóri Flugleiða. Tímaaiynd: Svcrrir
Ekkert stoppar Hearts í skosku
úrvalsdeildinni. Liðið sigraði Hi-
bernian 3-1. John Robertsson skor-
aði tvö mörk í þeirri viðureign og
Hearts hefur nú ekki tapað í fjórtán
leikjum í röð. Þá sigraði Celtic lið
Rangers í einvígi Glasgowarliðanna.
ENGLAND ÚRSLIT
1 1. deild:
Arsenal-Tottenham . 0-0
Aston Villa-Man City . 0-1
Ipswich-Watford . 0-0
Liverpool-Sheff Wed . 2-2
Luton-Leicester . 3-1
Man United-Birmingham . 1-0
Newcastle-Everton . 2-2
Nott Forest-Coventry . 5-2
QPR-Oxford . 3-1
Southampton-West Brom . 3-1
West Ham-Chelsea fr.-
I 2. deild:
Barnsley-Hull . 1-4
Bradford-Sunderland . 2-0
Brighton-Crystal Pal . 2-0
Charlton-Millwall fr.-
Fulham-Norwich . 0-1
Grimsby-Shrewsbury . 3-1
Leeds-Oldham . 3-1
Middlesbrough-Huddersfield .... . 0-1
Sheff United-Carlisle . 1-0
Stoke-Blackburn . 2-2
Wimbledon-Portsmouth . 1-3
I 3. deild:
Bolton-Wigan . 1-2
Brentford-Notts County -. fr.-
Doncaster-Bury . 1-0
Lincoln-Darlington . 1-1
Newport-Derby fr.-
Playmouth-Cardiff . 4-4
Reading-Gillingham . 1-2
Rotherham-Blackpool 4-1
Swansea-Bournemouth . 1-1
Walsall-York . 3-1
Wolves-Chesterfield . 1-0
1 4. deild:
Burnley-Wrexham . 5-2
Chester-Port Vale . 4-1
Crewe-Tranmere fr.-
Hartlepool-Halifax . 3-0
Hereford-Exeter . 4-1
Northampton-Orient -,fr.-
Peterborough-Southend . 1-1
Preston-Mansfield . 0-2
Rochdale-Cambridge . 2-1
Stockport-Scunthorpe . 0-0
Swindon-Colchester . 2-1
Torquay-Aldershot -, fr.-
SK0TLAND
Celtic-Rangers 2-0
Dundee-Aberdeen 0-0
Hearts-Hibernian 3-1
Motherwell-Dundee United .... - -, fr.-
ST Mirren-Clydebank 3-0
S.H. 40 ára
■ Sundfélag Hafnarfjarðar minnt-
ist 40 ára afmælis síns nýlega með
sundmóti í Sundhöl! Hafnarfjarðar
og afmælishófi í félagsheimili Iðnað-
armannafélagsins.
Sundmótið var eitt hið stærsta er
haldið hcfur verið í Hafnarfirði og
var mikill meirihluti þátttakenda af
ungu kynslóðinni.
I afmælishófinu voru allir fyrrver-
andi formenn félagsinssem á lífi eru,
sæmdir gullmcrki sundfélagsins, en
þeir eru:
Ingvi R. Baldvinsson forntaður
1950-53 og 1954-57.
Hjörleifur Bergsteinsson formaður
1953-54.
Hörður Óskarsson formaður
1957-60.
Garðar Sigurðsson formaður
1960-63.
Erling Georgsson fomiaður
1963-66.
Trausti Guðlaugsson formaður
1966-76.
Guðjón Guðnason formaður
1976-82.
Auk þcssara hlutu gullmerkið Her-
mann Guðmundsson, sem einn er á lífi
af frumkvöðlum stofnunar sundfélags-
ins og Vilborg Sverrisdóttir, sem er eini
Hafnfirðingurinn sem tekið hefur þátt í
einstaklingskeppni á Ólympíuleikum.
Núverandi formaður Sundfélags
Hafnarfjarðar er Magnús B. Magnús-
son.
■ Mick Hartford skoraði þrennu og vill nú fá tækifæri hjá enska landsliðinu.
ítalska knattspyrnan:
Platini frábær
- skoraði sigurmarkið gegn Sampdoria - Juventus langefst
■ Michael Platini, knattspyrnumaður Evr-
ópu, heldur áfram að sýna sniili sína á knatt-
spyrnuvellinum. Hann skoraði eina mark leiks
Juventus og Sampdoria sem leikinn var í fyrra-
dag. Þetta var frestaður leikur.
Þetta var áttunda mark Platinis í ítölsku
deildinni og er hann nú í öðru sæti yfir marka-
skorara ásamt Rummenigge. Aldo Serena er
markahæstur á Ítalíu með 9 mörk. Markið gerði
■ Piatini verður betri og betri.
Platini á 40. mínútu með þrumuskoti af löngu
færi.
Þar með hefur J uventus náð sex stiga forystu í
deildarkeppni á Ítalíu. Napólí er í öðru sæti
með 20 stig en Inter Mílanó og Roma hafa 18.
Flestir eru sammála um að Juventus muni
ekki láta þessa forystu af hendi. „Ekkert getur
stöðvað Juventus núna. Þeir leika vel, eru
heppnir og hafa Platini," sagði framkvæmda-
stjóri Inter, Mario Corso, í samtali við frétta-
menn á nýársdag. Snillingurinn Diego Mar-
adona, sem er aðalmaður liðsins í öðru sæti
deildarinnar Napólí, tók einnig í sama streng:
„Juventus cru nú þegar komnir með of mikið
forskot en það mun verða heiður að lenda í öðru
sætinu."
Skíðablaðið komið út
■ Nýlega kom út ijórða tölublað Skíða-
blaðsins. Meðal efnis er viðtal við unga
skíðakonu Snædísi Ulriksdóttur og annað
við Ellert B. Schram ritstjóra. Þá eru í
blaðinu fjölmargar greinar t.d. um sam-
skiptamál skíðahreyfingarinnar - áhrif
mataræðis á keppcndur - svig í liðamóta-
stöngum - skíðabraut Menntaskólans á
ísafirði og einnig er í blaðinu kynning á
skíðalandsliðum íslands auk margra
mynda.
Skíðablaðið ermálgagn Skíðasambands
íslands og gefið út af því. Ábyrgðarmaður
blaðsins er Hreggviður Jónsson og rit-
nefnd skipa Hans Kristjánsson, Ottó
I.cifsson og Sigurður Einarsson.
1985?
wt—
HM í knattspyrnu í Mexíkó:
Möguleikar hverra?
- Þau lið sem lenda í þriðja sæti í riðlinum eiga mismikla möguleika á að fara áfram!
■ Nú fer að líða að því að íþróttafréttamenn velji íþróttamann ársins 1985. Tilkynnt mun verða um valið þann 10.
janúar.Eins og á síðasta ári þá hefur bikarnum,sem íþróttamaður ársins hlýtur, verið stillt upp í Miklagarði við Sund
ásamt inyndum og upplýsingum um val íþróttamanns ársins. Það er því kjörið tækifæri fyrir fólk að virða fyrir sér
þennan veglega grip um leið og menn fara að velta fyrir sér íþróttaafrekum liðins árs og hver skuli hljóta gripinn.
Tímamynd: Róbcrt.
Borðtennis:
Stefán er efstur
í punktakeppninni -Tómas í öðru sæti
■ Stefán Konráðsson úr Stjörn-
unni cr efstur í punktakeppninni í
borðtennis en hann hefur í mörg ára-
bil verið einn alsterkasti íþrótta-
maðurinn í þessari grein. Tómas
Guðjónsson, K.R., cr í öðru sæti en
þessir tveir kappar hafa nær einokaö
alla meistaratitla í borðtennis á síð-
ustu árum.
Staðan í punktakeppninni er ann-
ars þessi:
1. Stefán Konráðsson.
Stjörnunni.................63 pt.
2. Tómas Guðjónsson
K.R...................... 45 pt.
3. Jóhannes Hauksson
K.R...................... 13 pt.
4. -6. Albrecht Ehman
Stjörnunni ............... 11 pt.
Vignir Kristmundsson
Erninum ................. 11 pt.
Kristinn Már Emilsson
K.R...................... llpt.
7. Tómas Sölvason
K.R........................10 pt.
Aðrir úr meistaraflokki, en hann
skipa 16 menn, hafa ekki náð að
skapa sér nafn enn sem kömið er.
Fyrsta punktamótið á þessu ári fer
fram í Laugardalshöllinni næstkom-
andi laugardag og hefst það kl.
14.00.
HVER VERÐUR fSí JS
IS.SSSS5SS5ESS55S Santðk iþróttafréttemanna útnefna hann
jaiiíar1986 ““
Kanarbestir
■ Bandaríkjamenn náðu
bestuni árangri í frjálsum
íþróttum á síðasta ári að sögn
franska blaðsins L'Equipc
sem nýlcga framkvæmdi sína
árlegu vísindalegu úttekt á
frammistöðu í 24 greinum
l'rjálsra íþrótta. Sovétmenn
voru í öðru sæti en höfðu áður
skipað það fyrsta. Austur-
Þjóðverjar voru svo í þriðja
sæti og Bretar komu fjórðu.
í karlaflokki voru Banda-
ríkjamcnn örugglcga efstir en
það hafa þeir verið síðustu tíu
árin. í kvcnnaflokki voru hins
vegar Sovétríkin efst í A-
Þýskalandi í öðru sætinu.
■ Eitt þeirra fjögurra liða sem
lendir í þriðja sæti í sínum riðli en
kemst samt áfram í 16 liða úrslitin á
heimsmeistarakeppninni í Mexíkó
gæti verið það lið sem í raun stendur
sig verr cn önnur lið sem sitja eftir er
undanriðlunum lýkur. Þetta kom í
Ijós í tölfræðilegri könnun sem þrír
viðurkenndir menn á því sviði fram-
kvæmdu í Englandi og birtist grein
um niðurstöðurnar í blaðinu Sunday
Times nú nýlega.
Þau tólf lið sem lenda í fyrsta og
öðru sætinu í undanriðlunum sex
komast sjálfkrafaí 16liða úrslitin. Þá
eru fjögur lið cftir og koma þau úr
hópi þeirra scx liða sent vernta þriðja
sætið í sínum riðlum. Möguleikar
hvers liðs ættu. santkvæmt öllum
kokkabókum að vera 67% cn Sun-
day Times segir möguleikana hins
vegar vera eftirfarandi:
A-riðill: Ítalía. Búlgaría, Argen-
tína, S-Kórea-47%.
Körfumót í Keflavík
■ í kvöld hefst í Kcfiavík fjögurra
liða mót í körfuknattleik og taka þar
þátt A og B landslið íslands, landslið
Danmerkur og lið frá Luther College
í Ameríku.
Þetta mót er liður í undirbúningi
okkar manna undir Evrópumótið
sem fram fer hér á landi í apríl n.k.
Eftirtaldir lcikmenn munu skipa ís-
Pavel Ploc vann
■ Tékkinn Pavel Ploc hrifsaði
til sín sigurinn í stökki af 90 m
palli sem fram fór í Garmisch-
Partenkirchen í V-Þýskalandi á
nýársdag. Ploc skaust fram fyrir
Ernst Vettori frá Austurríki með
góðu seinna stökki.
Ploc fékk 212,8 stig fyrir stökk
sem mældust 105 og 103 metrar.
Þriðji varð Ulaga frá Júgóslavíu.
lensku liðin:
Ragnar Torfason ....................ÍR
Þorvaldur Geirsson............... Fram
Simon Ólafsson .................. Fram
ólafur Rafnsson.................Haukar
Pólmar Sigurðsson...............Haukar
Henning Henningsson ............Haukar
ívar Webster....................Haukar
Hreinn Þorkelsson..................ÍBK
Jón Kr. Gislason...................ÍBK
Sigurður Ingimundarson ............ÍBK
Valur Ingimundarson.............. UMFN
Jóhannes Kristbjörnsson ......... UMFN
ísak Tómasson.................... UMFN
Kristinn Einarsson .............. UMFN
Póll Kolbeinsson .................. KR
Leifur Gústafsson .............. Valur
Tómas Holton.................... Valur
i Torfi Magnússon.................Valur
Vidar Vignisson.................Haukar
Matthías Matthíasson . . St.Paul Univ. USA
Danir verða sjálfsagt með nokkuð
sterkt lið á þessu móti en þeir lögðu
nýlega Pólverja aö vclli í tveimur
landsleikjum og ferört fram í íþrótt-
inni. Liðið frá Luther College hefur
þegar leikið hér á landi, t.d. fyrir
Njarðvík síðasta mánudag 61-63 og
er því vel keppnishæft.
Molar... 11 flolar...R flolar...
...Manchester United hefur ákveðið
að kasta björgunarhring til Swansea
sem sökum skulda var að fara á haus-
inn. United hcfur ákveðið að spila
æfingaleik gegn Swansea þann 13.
janúar á Vetch Field í Swansea.
Ágóðinn sem hefst uppúr þessum leik
rennur allur til Swansea oggæti verið
nægjanlegur til að halda félaginu á
floti um stundarsakir að minnsta
kosti...
...Nottingham Forest og PSV Ein-
dhoven frá Hollandi hafa komist að
samkomulagi um að spila vináttuleik
í knattspyrnu á City Ground j Nott-
ingham þann 15. janúar. Þessi viður-
eign er sú fyrsta á milli liðs frá Eng-
landi og liðs frá meginlandinu síðan
bann FIFA á leiki enskra í Evrópu
var tekið aftur þann 12. desember...
...Sovéskir íþróttafréttamenn kusu
bakvörðinn Anatoly Demyanenko
sem knattspyrnumann ársins 1985 í
Sovétríkjunum. Kappinn spilar með
Kiev. Næstur honum í kosningunni
var Olge Protasov sem varð marka-
hæsti leikmaðurinn í sovésku 1.
deildinni...
.. .Sovétmenn hafa valið 22 leikmcnn
til undirbúnings fyrir HM í knatt-
spyrnu. Þeir leikmenn sem eru í
hópnum eru allir leikmenn sem hafa
tekið þátt í undirbúningi og leikjum
sovéska liðsins í undankeppni HM.
Sovéska liðið fer á sunnudaginn til
Spánar og spilar þar leiki gegn liðum
á Spáni auk þess sem landslið Spánar
leikurgegn þeim þann 22. janúar...
...Englendingar hafa ákveðið að
spila gegn Egyptum í stað Júgóslava
þann 29. janúar. Þetta verður vin-
áttulandsleikur í knattspyrnu. Þetta
verður í fyrsta sinn sem Englending-
ar spila landsleik gegn Egyptum...
B-riðill: Mexíkó, Belgía, Parag-
uay, írak-85%.
C-riðill: Frakkland, Kanada,
Sovétr., Ungverjal.-54%.
D-riðilI: Brasilía.Spánn, Alsír, N-
írland-54%.
E-riðill: V-Þýskaland, Úruguay,
Skotland, Danntörk-75%.
F-riðill: Pólland, Marokkó.Port-
úgal, England-85%.
Þessi mismunur á möguleikum
kemur til vegna þess að Alþjóða-
knattspyrnusambandið hefur sett
ákveðnar reglur hvernig liðin verða
valin. Sætin fjögur munu nefnilega
fara til liða sem koma best út úr cftir-
farandi riðla hópum: ACD, ABF,
CDE og BEF.
Ef t.d. lið úr A riðli kemst áfram
þarf það að gera betur í stigafjölda
ellcgar markatölu ellegar mörkum
skoruðunt en lið úr riðlum C og D.
Ef liðinu mistekst þar þarf það að
gera betur en liö úr riðlum B og F. Af
þessu lciöir að lið úr riðli A keppir
gegn fjórum liðum. Hins vegar þarf
liö úr B riöli aðcins að gera betur cn
lið úr riðlum A.F, og E.
Samkvæmt þessari könnun gætu
því liðin sem lenda í þriðja sæti í riðl-
um B og F komist áfram þrátt lyrir að
vera með lakari árangur cn hin fjög-
ur liðin scm lcnda í þriðja sæti í sín-
um riöli.
Greininni í Sunday Tintes lýkur
með þeirn oröunt að í raun sc mögu-
leiki þriðja liðs í A-riöli að komast
áfram í 16 liða úrslitin afar litill. Þó
liðið, sem margir spá að vcrði Búlg-
aría, sé mcð fjórða besta árangurinn
af þeim scx liðum scm verma þriðja
sætið þá eru möguleikarnir að kom-
ast áfram í keppninni aðeins cinn á
móti fimm.
■ Bernd Schustcr.
Enginn áhugi
■ Engin tilboð hafa borist í þýska
leikmanninn Bernd Schuster sern
spilar með Barcclona á Spáni.
Schuster gaf út þá yfirlýsingu fyrir
stuttu að hann vildi hætta hjá Barce-
lona í lok þcssa keppnistímabils og
biðu mcnn þá í ofvæni cftir að heyr-
ast myndi frá einhverju stórum fé-
lögum í Evrópu. Schuster er einn
bcsti leikmaður Barcelona og Evr-
ópu cn hann vill samt enn ekki spila
fyrir V-Þýskaland. Mcstar líkureru á
að ítölsk lið bjóði í kappann þegar
þar að kemur.