Tíminn - 03.01.1986, Page 15
Föstudaqur 3. ianúar 198fi
Tíminn 15
III MINNING IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIillli IIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII lUIIIIIIIIIIUIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIII llllll III IIIIIIIIIUIIII III «11 111 1111
Guðjón Ólafsson
fyrrverandi bóndi Stóra-Hofi
Fæddur 1. ágúst 1903
Dáinn 24. desember 1985
Guðjón varð bráðkvaddur á að-
fangadag jóla, þar sem hann dvaldi
um skeið á spítala vegna handleggs-
brots, er hann hlaut við fall á hálku
utan við húsdyr sínar. Hægt og
hljóðlega tók hann andvörpin þar
sem hann hallaði sér til hvíldar að
höfðalagi sínu.
„Ó. þá heill að halla mega höfði
sínu í drottins skaut“ segir í sálmin-
um fagra. Andlát Guðjóns var í sam-
ræmi við líf hans og ferðamáta.
Hann var fljóthuga og fljótur að bú-
ast heiman til ferðalaga og treysti
jafnan skapara sínum og hallaði sér
að forsjón hans. Kom hann jafnan
heill úr hverri ferð.
Guðjón var fæddur á Barkarstöð-
um í Fljótshlíð hinn 1. ágúst 1903,
fyrsta barn foreldra sinna, sem urðu
siö að tölu. Foreldrar hans voru:
Ólafur Porleifsson og kona hans
Hreiðarssína Hreiðarsdóttir, bæði
ættuð úr Rangárvallasýslu. Þegar
Guðjón fæddist voru þau vinnuhjú á
Barkarstöðum hjá Tómasi bónda og
hreppsstjóra Sigurðssyni og konu
hans Margréti Arnadóttur. Ungum
var Guðjóni komið í fóstur til móð-
urbróður síns: Gottskálks Hreiðars-
sonar sem bjó á Vatnshól í Landeyj-
um og svo í Vestmannaeyj um, og hjá
honum ólst hann upp. Þar vandist
hann öllum sveita- og sjávarstörfum
eins og þau voru á hans unglingsár-
um. Varhannstraxviljugurogverk-
laginn. Vélbátaútgerð var komin á
fullt skrið í Vestmannaeyjum þegar
Guðjón hafði aldur til að gerast sjó-
maður, varð hann þá háseti á vélbát-
um í Eyjum í nokkrar vertíðir og tók
þar með þátt í hinni ævintýralegu og
hörðu sjósókn Vestmannaeyinga.
Var hann lipur og röskur sjómaður,
en þó stóð hugur hans nieira til ann-
arra starfa. Guðjón naut barna-
fræðslu eins og þá var lögboðið frá 10
ára aldri til fermingar, en ekki átti
hann kost frekari skólagöngu.
Barnafræðslan nýttist Guðjóni vel
því hann hafði gott næmi og trútt
minni, sem hann hélt óskertu til ævi-
loka.
Þegar Guðjón var tæplega tvítug-
ur fór hann frá Gottskálki fóstra sín-
um og flutti til Reykjavíkur og fékk
þar vinnu við trésmíði, en brátt hóf
hann skósmíðanám. Frá því hvarf
hann og réðist vinnumaður að Graf-
arholti í Mosfellssveit til Björns
Bjarnarsonar hreppstjóra og fyrrv.
alþingismanns. Þar var hann í sjö ár
og kunni mjög vel vistinni á því
menningarheimili. Þar drakk hann í
sig áhuga fyrir búnaðarframkvæmd-
um og lærði að meta gildi félags-
hyggju og samvinnu. Minntist Guð-
jón alltaf veru sinnar í Grafarholti
þakklátum liuga og átti frá þeim
árum, sem hann var þar fagrar æsku-
minningar. Þar hitti hann líka unga
og fallega stúlku, sem varð lífsföru-
nautur hans og eiginkona, Björgu
Árnadóttur ættaða af Borgarfirði
eystra. Vorið 1928 tóku þau til ábúð-
ar jörðina Stóra-Hof í Gnúpverja-
hreppi og bjuggu þar óslitið til ársins
1970 þegar Guðmar sonur þeirra og
Kolbrún Sigurjónsdóttir tóku við
búskapnum. Voru gönilu hjónin þá
orðin lúin og þreytt eftir langan bú-
skap og mikið erfiði. Allan búskap-
artímann voru þau leiguliðar á
Stóra-Hofi, en nokkrum árum eftir
að þau létu af búskapnum rættist
loks sá langþráði draumur, að þau
eignuðust jörðina með því að Guð-
jón keypti hana árið 1977. Nú er
Guðmar sonur hans orðinn eigandi
hennar.
Þegar þau Guðjón og Björg hættu
búskapnum fluttuþautil Reykjavík-
ur og hafa að mestu dvalið þar síðan
við fremur tæpa heilsu, en þó oftast
reynt að vera sem minnst upp á aðra
komin. Þau voru vön því, að halda
vel á öllu sem aflað var og bjargast
sem mest af eigin rammleik.
Börn þeirra hjóna eru fimm að
tölu, dæturnar tvær og synirnir þrír,
öll á lífi ásamt móðursinni, sem er nú
mjög farin að kröftum. Fjölskyldan
var jafnan samhent og hjálpuðu
Bbrnin til við búskapinn, en smám
saman yfirgáfu þau æskuheimilið
eins og boðið er í Gamla testament-
inu og stofnuðu sín eigin heimili.
Svo sem vikið var að hér áður fékk
Guðjón snemma mikinn félagsmála-
og umbótahug. Var hann frjór í
hugsun og datt margt gott í hug.
Voru þar stundum á ferð ýms ný-
mæli, sem hann var ófeiminn að
kynna og berjast fyrir. Hann var
áhugamaður um stjórnmál og gerðist
á unga aldri samvinnumaður og
gekk í Framsóknarflokkinn. Var
hann þar virkur félagi alla tíð, full-
trúi í Framsóknarfélagi Árncsinga
og á flokksþingum. Guðjón átti gott
með að tala á fundum. Beitti hann
gagnrýni ef honum þótti þurfa og
gerði sér engan mannamun, var
sama hvort í hlut áttu flokksbræður
eða aðrir. Þótti sumum, að hann væri
óþægilega fundvís á tilefni til á-
dcilna og fremur erfitt væri við hann
að deila, en Guðjón var maður
hreinlyndur og undirhyggjulaus,
vildi hann síst vinna það fyrir vin-
skap manns, að víkja af götu sann-
leikans.
Ég. sem þessar línur rita er alltaf
þakklátur Guðjóni fyrir traustan
stuðning við mig og þau málefni, er
ég leitaðist við að vinna gagn á
stjórnmálaferli mínum. Enginn
kemst neitt né kemur ncinu fram á
þeim vettvangi án góðra og traustra
stuðningsmanna. Alltaf eru þeir
bestu stuðningsmennirnir, sem
hvetja til dáða og segja jafnframt til
hvar betur megi gera og í hverju áfátt
sé. Slíkur var Guðjón, alltaf heill en
aldrei hálfur né veill í málafylgju.
Læt ég nú þessum fáu kveðjuorð-
um lokið og sendi konu Guðjóns
börnum hans og öðrum ástvinum
samúðarkveðju.
Ágúst Þorvaldsson
Auglýsing frá ríkisskattstjóra um
skilafresti launaskýrslna o.fl. gagna
samkvæmt 92. gr. laga nr. 75/1981 um
tekjuskatt og eignarskatt
Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr. nefndra laga hefur
skilafrestur eftirtalinna gagna, sem skila ber á árinu 1986
vegna greiðslna á árinu 1985, verið ákveðinn sem hér
segir:
I. Tilog með20. janúar1986:
1. Launaframtal ásamt launamiðum.
2. Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði.
4. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt samtalningsbl.
II. Til og með 24. febrúar 1986:
1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt samtalningsbl.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt samtalningsblaði.
III. Til og með síðasta skiladegi skattframtala 1986,
sbr. 1.-4. mgr. 93. gr. nefndra laga:
Greiðslumiðar yfir hvers konar greiðslur fyrir leigu eða
afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum,
sbr. 1. og 2. tl. C-liðar 7. gr. sömu laga.
(Athygli skal vakin á því að helmingur greiddrar leigu
fyrir íbúðarhúsnæði til eigin nota vegna tekjuársins er
til frádráttar í reit 70 á skattframtali skv. 3. tl. E-liðar 30.
gr. nefndra laga enda séu upplýsingar gefnar á full-
nægjandi hátt á umræddum greiðslumiðum.)
Reykjavíkl. janúar1986
Ríkisskattstjóri
Auglýsing frá
ríkisskattstjóra
Vísitala jöfnunarhlutabréfa
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga
nr. 75/1981 umtekjuskattogeignarskatthefurríkisskatt-
stjóri reiknað út vísitölu almennrar verðhækkunar í
sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1986 og
er þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100.
I.janúar 1980 vísitala 156
1. janúar 1981 vísitala 247
1. janúar 1982 vísitala 351
1. janúar 1983 vísitala 557
1. janúar 1984 vísitala 953
1. janúar 1985 vísitala 1.109
1. janúar 1986 vísitala 1.527
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða
við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs
eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar hlutafjár eftir
þann tíma, en hins vegar við vísitölu 1. janúar þess árs
sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin.
Reykjavík 2. janúar 1986
Styrkur til háskólanáms eða
rannsóknastarfa í Finnlandi
Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til háskólanáms eða rann-
sóknastarfa i Finnlandi námsárið 1986-'87. Styrkurinn er veittur til níu mán-
aða dvalar og styrkfjárhæðin er 1.300-1.700 finnsk mörk á mánuði.
Umsóknum um styrkinn skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfis-
götu 6,101 Reykjavík, fyrir 15. febrúar n.k. - umsókn fylgi staðfest afrit próf-
skírteina, meðmæli og vottorð um kunnáttu í finnsku, sænsku, ensku eða
þýsku. - Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
27. desember 1985
Bifreiðainnflytjendur
Áætlað er að kaupa um það bil 100 nýjar bifreiðar fyrir
ríkisstofnanir á árinu 1985. Tilboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri og eiga tilboð að berast fyrir 24. janúar
1986.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvagi 3 — Simi 25800