Tíminn - 04.01.1986, Side 2

Tíminn - 04.01.1986, Side 2
2 Tíminn Laugardagur 4. janúar 1986 Norskur og danskur fiskiðnaður: Miklu hærri laun miklu meiri af köst og líka -en hérálandi ■ Hvcmig stendur á því að tisk- vinnslufyrirtæki í nágrannalönduin okkar geta borgaö starfsfólki sínu ntiklu hærri laun (auk þess aö kaupa fiskinn hærra verði) cn íslcnsk frysti- hús „geta“ Itorgaö sínu fólki? Þessa hcfur oft verið spurt af íslcnsku fisk- vinnslufólki og sjótnönnum, en sjaldnast fengist viðhlítandi svör. í skýrslu starfshóps á vegum Kjara- rannsóknarnefndar, sem gerði ítar- legan samanburð á launum og launa- kostnaði í fiskiðnaði í Noregi, Dan- mörku og Englandi, og bar saman við sambærilegan kostnað hér heima, er að nokkru reynt að svara þessum spurningum. 100krónum meiraá tímann Þar kemurm.a. íijós aðþrátifyrir' að fiskvinnslufólk í Noregi og Dan- mörku hafi að meðaltali 60-70% hærra tímakaup (taxtakaup að við- bættum bónus) en hér heima - eða 255-268 kr. á tímann í borðavinnu á meðan íslenskar borðavinnukonur verða að láta sé nægja 159 kr. að meðaltali - þá eru afköst þeirra norsku og dönsku svo rniklu meiri, að launakostnaður á hvert kíló af unnum fiskflökum er um 35% hærri hér cn í Noregi og um 75% hærri en í Danmörku. Sem dæmi um afköst við vinnslu 16,5 lbs. þorskblokkar kemur fram að á meðan íslenskar konur skila að meðaltali 29 kg á klukkutíma miðað við ormafisk og 44 kg ef fiskur er ormalaus, afkasta norskar starfssyst- ur þeirra 64 kg að meðaltali á mann. Hér er miðað við snyrtingu, viktun og pökkun. Þærdönsku 2-3var sinnum fljótari í Danmörku - þar sem nær ein- göngu er unnið eftir sérvinnslukerfi - snyrta þær dönsku að meðaltali um 100 kg af flökum á klukkustund, til samanburðar við 34-55 kg á íslandi, eftir því hvort fiskur er með ormi eða ormlaus. Sömuleiðis pakka þær dönsku 450 kg á tímann meðan ís- lenskar pakka að meðaltali um 209 kg á klukkutímann. Dönsku tölurn- ar eru miðaðar við frystihús á Borg- undarhólmi, þar sem afköst eru þó sögð töluvert minni en á Hanstholm. Lítill vinnuhraði hérað mati norskra Þess ber að geta að enginn ormur er í fiski á Borgundarhólmi og frem- ur lítið er um orm í fiski í norskum frystihúsum. Þetta er talinn veiga- mikill þáttur í hinum mikla afkasta- mun úti og hér heima, þó hann geti engan veginn allur skrifast á orminn. T.d. komu þau viðhorf fram í viðtöl- um við stiórnendur norsku fisk- ■ í fremri dálknum koma fram meðallaun fyrir borðavinnu í frystihúsum á íslandi annars vegar og Noregi og Danmörku hins vcgar, þar sem þau eru um og yfir 100 kr. hærri á klukkutímann. Dæmið snýst hins vegar við í aftari dálkn- um sem sýnir greidd laun fyrir hvert kíló af fiski sem unninn er á borðunum - scm skýrist af miklu meiri afköstum í hinum löndunum. SAMANQJROUR Á LAUN’AKERFUW í FRYST i HLiSUM. SNYRTING: MEÐALLAUN=1007. "ASTUR HLUTI SRrrriLEG- UR HLUTI LÁGMARKS- LAJN PRÓSENl 100 NGRLGUR L.AÍIKC-’-.-t CKTÓ3ER 1985 : ■ Á íslandi er fastakaup og lágmarkslaun jafn há upphæð, um 61% af með- allaunum, í hinum löndunum eru tryggð lágmarkslaun sem eru miklu hærri en hinn fasti hluti launanna hjá þeim sem vinna í bónus. í öðru danska dæminu hefur bónusfólkið t.d. aðeins 19% hærri laun meðaltali heldur en þeir sem fá greidd lágmarkslaun. -Tvöfalda kerfið í algleymingi. vinnslufyrirtækjanna (sem flestir höfðu skoðað frystihús á íslandi), að vinnuhraði sé hér lítill, of niargt fólk sé í framleiðslunni, og mikið sé gert af því að flytja fiskinn frá einum stað yfir á annan. Hugsa mest um hraðann Af öðrum atriðum sem áhrif hafa á afköst má t.d. nefna að dansk- ir og norskir frystihúsaeigendur leggja miklu meiri áherslu á afköstin heldur en nýtinguna við snyrtingu á fiski og kemur það fram í uppbygg- ingu launakerfanna. Þar er síðan lögð áhersla á framleiðslu marnings úr afskurðinum, sem sagt er að skili háu verði. Þá er sagt að blokk fari að miklu Ieyti á Evrópumarkaði þar sem minni kröfur virðist gerðar til vöruvöndunar en á Bandaríkjamark- aði. Virkur (unninn) vinnutími er 35-55 mín. lengri á Norðurlöndun- um en hér, þ.e. styttri kaffitímar og pásur. Námskeið skilyrði Verkkunnátta - sem sett er sem al- gert skilyrði fyrir ráðningu fólks í frystihús í Danmörku - hefur og sjálfsagt töluvert að segja um meiri meðalafköst þar en hér. Mörg hundruð manns sækja þar árlega fiskvinnslunámskeið seni haldin eru í fimm skólum í landinu. Þau skipt- ast í 2ja vikna grunnnámskeið og síð- an 3ja vikna framhaldsnámskeið í snyrtingu eða handflökun. Sérstök áhersla er lögð á rétt vinnubrögð og síðan hraða þegar nýtingin og vinnu- brögðin eru talin orðin fullnægjandi. Lítill hluti þeirra 14 þúsund starfsmanna sem vinna í norskum fiskiðnaði hefur notið sérmenntun- ar en talið er að framtíðin geri auknar' kröfur um fagmenntun. Nú hefur verið ákveðið að hrinda þar í fram- kvæmd fræðsluverkefni í fiskiðnaði og er aðalmarkmið þess að auka fag- þekkingu í fiskiðnaði til þess að geta betur mætt auknum kröfum. Meðal markmiða eru: Að auka álit á störf- um í fiskiðnaði, koma á iðnnámi í greininni og styrkja fræðslustarfsemi fyrirtækjanna. Tvöfalda kerfið úti Að sögn skýrsluhöfundanna eru launakerfi á Norðurlöndum mun einfaldari í allri uppbyggingu og framkvæmd en hér á landi. Mikill munur er þó á launakerfum milli fyrirtækja úti. Vegna þeirrar áherslu sem lögð var á afnám tvöfalda kerfis- ins hér er athyglisvert að sjá hve það viðgengst í miklum mæli bæði í Nor- egi og Danmörku, þar sem lág- markslaun geta verið allt að fjórum sinnum hærri en hinn fasti hluti laun- anna. Sömuleiðis er algengt að bónusinn sé stærri hluti heildarlauna en hér gerist. Starfsaldurshækkanir eru hins vegar hlutfallslega mun minni þar en hér. Launatölur sem að framan eru nefndar eiga við um borðavinnu. Enn meiri munur er á kaupi í flökun. f Noregi er það t.d. yfir 100% hærra en hér á landi (tímakaup plús bónus). Erfitt er talið að bera saman afköst við vélflökun, þar sem m.a. mönnun vélanna er mismunandi. Afköstin er þó talin ekki ósvipuð og hér á landi. Allt handflakað í Englandi í Englandi er allur fiskur hand- flakaður og eini vélakosturinn í fisk- vinnslufyrirtækjum sums staðar roð- flettivélin. Meðalafköst handflakara fcngust hjá einu ensku fyrirtækj- inna. Meðalafköstin eru 76 kg af hrá- efni á klukkustund miðað við lítinn þorsk (3 oz. flök, sem bendir til að Bretar flaki 200-300 gr þrosk) um 57 aiaÍlMI kg af smáum skarkola og 95 kg af stórum kola á tímann. Flakararnir eru lang launahæstir í enskum fiskvinnslufyrirtækjum, með 173-222 kr. á tímann í þeim stöðum sem könnunin náði til, (gengi í okt. 59,10 kg). Meðallaun voru hins vegar 118-131 fyrirpökkun • og vinnu í sal, sem er mun lægra en hér heima. Aðeins eitt launatengt gjald í Englandi eru kjarasamningar og launakjör mjög frábrugðin því sem gerist á Norðurlöndunum. Engir allsherjarsamningar eru um laun í landinu né nokkur lögum slíka hluti. Samningar eru einfaldlega gerðir í hverju fyrirtæki fyrir sig og geta laun því verið töluvert mismunandi, jafnvel í fyrirtækjum sem standa hlið við hlið. National Insurance, frá 6- 10,45% á öll laun, ereina lögbundna launatengda gjaldið. Það stendur m.a. straum af veikindagreiðslum til starfsmanna, sem fá 35% laun í veikindum, þó ekki fyrstu 3 dagana. Engin lög eru heldur um orlof, en flest stærri fyrirtæki eru talin gefa fólki kost á orlofi á fullum launum. Meðalkaup í iðnaði 290krónur Lágmarkskaup norsks fisk- vinnslufólks var 180-201 kr. (gengi í okt. 5,26 kr.) - hærri hjá þeim sem ekki er í bónus. Einnig eru í gildi lög um láglaunabætur. sem eru þannig, að ef meðalkaup í einstökum at- vinnugreinum er minna en 85% af meðalkaupi í iðnaðinuni í heild, fá allir starfsmenn í þeim greinum bæt- ur sem mismuninum nemur. Þannig var meðalkaup í iðnaðinum í heild talið 290 kr. í október en 241 kr. í fiskiðnaði. Fiskvinnslufólk átti því aðfágreiddar5,68 kr. á tímann í lág- launabætur, þ.e. til að ná 85% með- altalinu. í samningum um bónusvinnu er yfirleitt miðað við það að helmingur tímakaupsins sé fastur hluti þegar gengið er út frá viðmiðunarafköst- um. í einu húsanna voru þau viðmið- unarafköst t.d. 58 kg á klukkustund í 16,5 punda blokk, og 36 kg í 450 gr neytendapakkningar. f reynd eru afköstin allt upp í fjórðungi meiri, þannig að breytilegi hluti launanna- aðallega afkastabónus - verður tölu- vert hærri. Húsmæðravakt kl. 4-8 á kvöldin Aukavinna er mjög sjaldgæí í norskum fyrirtækjum. í einu hús- anna var hins vegar svokölluð hús- mæðravakt frá kl. 16-20 síðdegis, en vinnan greidd á dagvinnukaupi. Lágmarkslaun fiskvinnslufólks í Danmörku voru 218 kr. fyrir bónus- fólk en 236 kr. hjá þeim sem ekki vinna í bónus. Meðallaunin í þeim 6 frystihúsum sem heimsótt voru reyndust 296 kr. í flökun, 280 kr. í snyrtinguog269 kr. ípökkun. Auka- vinna er einnig óalgeng í Danmörku, en sums staðar unnið á tveim vöktum á vertíðinni. Meðalafköst í einu af dönsku húsunum - miðað við 220- 400 gramma flök - voru 127 kg af snyrtum flökum á mann á tímann eða 36 öskjur af 5 pundum í pökkun. En í Danmörku er unnið eftir sér- vinnslukerfi. Nýtækni sparar20 starfsmenn Til fróðleiks skal drepið hér á rekstur eins norsku fyrirtækjanna, sem rekið hefur frystingu frá árinu 1968. Tvær stækkanir hafa verið gerðar á því síðan, sú fyrri 1975 og í kjölfar hennar veitti fyrirtækið 120 manns atvinnu. Sfðari stækkunin var 1984, samfara tæknibreytingum, sem gera fyrirtækinu kleyft að fram- leiða saman magn og áður, en með 100 starfsmönnum. Velta fyrirtækis- ins er u.þ.b. 40 millj. norskra króna eða um 220 millj. íslenskar á ári. Stærsti hlutinn i smápakkningar Fyrirtækið vinnur úr 4.000 tonn- um af hráefni á ári. Þar af fara 85% í neytendapakkningar (300 gr 400 gr og 5 pund) en afgangurinn í blokk. Um 40% hráefnisins kemur af tveim togurum fyrirtækisins, en hitt er að- keypt. Um helmingur er þorskur, 38% ufsi og 12% ýmsar aðrar teg- undir. Forráðamenn fyrirtækisins töldu meðalverð á hausuðum og slægðum þorski um 38 kr. ísl. (nú- verandi gengi) í lok síðustu vertíðar. En af því fengu þeir um 2,80 kr. endurgreiddar frá Noregs ráfisklag. Laun um 22-23% afveltuíNoregi Arið 1984 voru árslaun í fyrirtæk- inu 80-100 þús. kr. norskar (um 440- 550 þús. ísl. á núverandi gengi), en starfsemin var aðeins í gangi í 9 mán- uði. Þaðþýðir að launagreiðslur hafa numið um 22-23% af heildarveltu. Annað fyrirtæki var nefnt sem hafði 140 millj. norskra króna veltu 1984 og þar af var launakostnaður vegna 270 starfsmanna um 30,8 millj. kr. (um 170 millj. ísl.kr.) eða um 22% af heildarveltú. Til samanburðar má geta þess að hér á landi voru laun og launatengd gjöld 26,6% af heildarveltu frysting- ar árið 1981, 22,8% árið 1982 og 20,6% árið 1983. Bæði í Noregi og Danmörku er mikil áhersla lögð á orkunýtingu/ sparnað. Kælivatn véla er yfirleitt notað til upphitunar og einnig sást búnaður sem hreinsaði og endurupp- hitaði loft úr vinnslusölum. Af- rennslisvatn var hreinsað og föst efni úr því notuð í dýra - eða laxafóður auk þess sem allur úrgangur fer í dýrafóður.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.