Tíminn - 04.01.1986, Blaðsíða 7

Tíminn - 04.01.1986, Blaðsíða 7
Laugardagur 4. janúar 1986 Tíminn 7 VETTVANGUR Bjarni Hannesson: Afstaða íslands ■ Ekki verður hjá því komist að maður hugleiði hvers kyns siðgæði það er af hálfu sjálfstæðismanna þegar þeir hóta stjórnarslitum ef fulltrúi íslands greiddi atkvæði með álytkunartillögu Svta, Mex- íkó, o.fl. ríkja unnan UN um fryst- ingu kjarnorkuvopna er lögð var fram til ítrekunar hjá Sameinuðu þjóðunum5/ll 1985. Andi þessarar tillögu er fyrst og fremst ósk um aðgeðrir í kjarn- orkuvígbúnaðarmálum og ætla ég að vitna hér orðrétt í meginmál efnisatriða þeirrar tillögu þannig að um engan misskilning geti verið að ræða. Tölusetningar efnisatriða eru gerðar af greinarritara ogeru innan sviga. Frysting kjarnorkuvopna (1.1) í þeirri trú að brýna þörf beri til að koma í veg fyrir hvers kyns frekari auknirtgu hinna ógn- vænlegu kjarnavopnabirgða kjarn- orkuveldanna tveggja sem þegar hafa yfir að ráða óumdeilanlegri endurgjaldsgetu og geigvænlegum umframeyðingarmætti, (1.2) fagnandi viðræðum Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna um margvísleg úrlausnarefni er varða himingeiminn og kjarnavopn- langdræg og meðaldræg - þar sem þessi málefni öll eru til meðferðar og úrlausnar með tilliti til hvernig þau tengjast innbyrðis, (1.3.) með hliðsjón af því að frysting kjarnavopna, þótt hún sé ekki lokatakmark í sjálfu sér, mundi marka árangursríkasta frumskrefið til að koma í veg fyrir áframhaldandi fjölgun og tækni- lega þróun núverandi gerða kjarnavopna meðan samningavið- ræður standa yfir, (1.4) fyllilega sannfært um að að- stæður nú séu hinar ákjósanlegustu fyrir slíka frystingu þar eð Sovét- ríkin og Bandaríkin búa nú yfir jafn miklum hernaðarmætti á sviði kjarnorku og augljóst virðist að í heild sé nokkurn veginn jöfnuður með þeim, (1.5) vitandi það að notkun þeirra aðferða við könnun, sann- prófun og eftirlit, sem þegar hefur- verið fallist á í nokkrum fyrri tilvik- um, mundi nægja til að veita sann- gjarna tryggingu fyrir trúverðugum efndum skuldbindinga sem frysting felur í sér, (1.6) sannfært um að það yrði öllum, öðrum ríkjum, er ráða yfir kjarnavopnum. í hag að fylgja fordæmi tveggja mestu kjarnorku- veldanna: 1. hvetur enn einu sinni Sovét- ríkin og Bandaríkin, sem tvö fremstu kjarnorkuveldin, til að lýsa yfir, annaðhvort með einhliða yfir- lýsingu samtímis eða sem sameig- inlegri yfirlýsingu, tafarlausri fryst- ingu kjarnavopna sem verða mundi fyrsta skref í átt til allsherjaráætl- unar um afvopnun er að formi og umfangi yrði sem hér greinir: a) hún mundi fela í sér: (a.l) allsherjarbann viðtilraunum með kjarnavopn og skotbún- að þeirra, (a.2.) algera stöðvun framleiðslu kjarnavopna og skotbúnaðar þeirra, (a.3) bann við allri frekari upp- setningu kjarnavopna og skotbúnaðar þeirra, (a.4) algera stöðvun framleiðslu kjarnakleyfra efna í hernað- arlegum tilgangi; (b) hún yrði háð viðeigandi eftir- litsráðstöfunum og reglum, svo sem þeim er þegar hefur orðið sam- komulag um SALT 1 og SALT II í samningunum, svo og þeim sem grundvallarsamstaða hefur náðst um í undirbúningsviðræðum um þríhliðasamningana, sem haldnir eru í Genf, um allsherjarbann við tilraunum; (c) hún yrði í fyrstu miðuð við fimm ára tímabil, mcð fyrirvara um framlengingu eftir að önnur kjarnavopnaríki gerast þátttak- endur í slíkri frystingu, eins og alls- herjarþingið hvetur þau til; 2. óskar eftir því við fyrrnefndu tvö mestu kjarnavopnaveldin að þau leggi fram sameinginlega skýrslu eða tvær aðskildar skýrslur til allsherjarþingsins, áður en fertugasta og fyrsta þing þess hefst, um framkvæmd þessarar ályktun- ar; 3. ákveður að setja á dagskrá fertugsta og fyrsta þingsins dag- skrárlið er beri heitið: Framkvæmd ályktunar allsherj- arþingsins nr. 40/... um frystingu kjarnavopna."' Nefndartillaga þessi var samþykkt með 113 atkv. gegn 11,6 sátu hjá,28 voru fjarver- andi. Endanleg afgreiðsla í at- kvæðagreiðslu á Allsherjarþinginu þann 16/12 1985 varð sú að 131 ríki samþykkti, 10 ríki voru á móti full- trúar 8 ríkja sátu hjá. Á móti voru USA, Belgía, Bret- landi, Frakkland, Israel, Ítalía Japan, Kanada, Portúgal, og Tyrkland. Fulltrúar 8 ríkja sátu hjá þau voru ísland, Bahama, Grenada, Holland, Kína, Luxemburg, Spánn og Vestur Þýskaland sat hjá. (Breytti afstöðu frá atkvæða- greiðslu í nefnd úr mótstöðu í hjá- >setu). Pentagonþjónusta Talsmaður sjálfstæðismanna Geir Hallgrímsson grípur til þess ráðs til að reyna að verja óverjan- lega afstöðu að vitna til þingsálykt- unar Alþingis frá 23. maí 1985 og fullyrða að sú tillaga hindri og allt að því skyldi íslendinga til að sitja hjá í atkvæðagreiðslu: Orðrétt til- vitnun: Geir Hallgrímsson 5/121985 í umræðum á Alþingi. „Herra for- seti. Ég svara fyrri fsp. á þá leið að það er einmitt afvopnunartillaga sú sem samþykkt var á Alþingi sl. vor, sem gerir það að verkum að ákveð- ið var að atkvæði Íslands skyldi vera óbreytt frá fyrri árum þegar þessi tillaga hefur verið borin undir atkvæði. Að vísu hafa fengist nokkrar endurbætur á þessari til- lögu, m.a. vegna tilrauna okkar og Norðmanna, en ekki nægilega miklar til þess að fullnægt yrði skilyrðum till. til þál. um stefnu ís- lendinga í afvopnunarmálum sem samþykkt var á Alþingi sl. vor.“ Eftir þessa fullyrðingu ber að mcta tillöguna og birtist hún hér öll orðrétt en tölusetning efnisatriða er gerð af greinarritara. Þingsájyktun um stefnu íslendinga í afvopnunarmálum (1) Alþingi ályktar að brýna nauðsyn beri til að þjóðir heims, ekki síst kjarnorkuveldin, geri með sér samninga um gagnkvæma al- hliða afvopnun þar sem fram- kvæmd verði tryggð með alþjóð- legu eftirliti. (2) Ennfremur telur Alþingi mikilvægt að verulegur hluti þess gífurlega fjármagns, sem nú rennur til herbúnaðar, verði veittur til þess að hjálpa fátækum ríkjum heims þar scm tugir milljóna manna deyja árlega úr hungri og sjúkdómum. (3) Alþingi fagnar hverju því frumkvæði sem fram kemur og stuðlað getur að því að rjúfa víta- hring vígbúnaðarkapphlaupsins. (4) Alþingi ályktar að beina því til ríkisstjórnarinnar að styðja og stuðla að allsherjarbanni við til- raunum, framleiðslu og uppsetn- ingu kjarnavopna undir traustu eftirliti, svo og stöðvun á fram- leiðslu kjarnakleifra efna í hernað- arskyni, jafnframt því að hvetja til alþjóðlegra samninga um að árlega verði reglubundið dregið úr birgð- um kjarnavopna. Þessu banni og samningum um niðurskurð kjarn- orkuvopna verði framfylgt á gagn- kvæman hátt þannig að málsaðilar uni því og treysti enda verði það gert í samvinnu við alþjóðlega eftirlitsstofnun. (5) Leita verður allra leiða til þess að draga úr spennu og tor- tryggni milli þjóða heims og þá einkum stórveldanna. Telur Al- þingi að íslendingar hljóti ætíð og hvarvetna að leggja slíkri viðleitni lið. (6) Um leið og Alþingi áréttar þá stefnu íslendinga að á íslandi verði ekki staðsett kjarnorkuvopn hvet- ur það til þess að könrtuð verði samstaða um og grundvöllur fyrir samningum um kjarnorkuvopna- laust svæði í Norður Evrópu, jafnt á landi, í lofti sem á hafinu eða í því, sem liður í samkomulagi til að draga úr vígbúnaði og minnka spennu. Því felur Alþingi utanrík- ismálanefnd að kanna í samráði við utanríkisráðherra hugsanlega þátt- töku Islands í frekari umræðu um kjarnorkuvopnálaust svæði á Noröurlöndum og skili ncfndin um það áliti til Alþingis fyrir 15. nóv. 1985. (7) Jafnframt ályktar Alþingi að fela öryggismálanefnd, í samráði við utanríkisráðherra, aö taka sam- an skýrslu um þær hugmyndir scm nú eru uppi um afvopnun og tak- mörkun vígbúnaðar, cinkum þær sem máli skifta fyrir ísland með hliðsjón af legu landsins og áðild þjóðarinnar að alþjóölegu sam- starfi. Á grundvelli slíkrar skýrslu verði síðan leitað samstöðu meðal stjórnmálaflokkanna um frekari sameiginlega stefnumörkun í þcss- um málum. Samþykkt á Alþingi 23. maí 1985. Til þess að mcta fyrrgreindan skilning Geirs Hallgrímssonar verður að meta alla tillöguna og sést þá að skilningur G. H. er algcrð afliökun á innihaldi tillögunnar og í raun ekkert annaö en nokkurs- skonar „Pentagonskilningur" á efni beggja tillagnanna. Vil ég í því sambandi fullyrða að skilningur G.H. er brot á (3) og (5) málsgrein og afbökun á (4) málsgrein og vil benda á orðalagið „hvetja til“ og yfirfæra það á tillögu hjá UN lið 1. og 1. (a) til og með liðs 1 (b). Þarna leyfir G.H. sér að brcyta svívirðilegri og beinlínis rangri af- bökun og lcyfir sér að fullyrða orðrétt. „1. Að traust eftirlit sé fyr- ir hendi og þctta trausta eftirlit sé á þann veg útbúið að sé í samvinnu við alþjóðlega eftirlitsstofnun. Málsaðilar uni því og trcysti. Þcssu skilyrði varekki fullnægt". Fullyrð- irG.H. Leyfi ég hér með til andsvara og benda á orðalagið í íslensku tillög- unni „jafnframt því að hveta til al- þjóðlcgra samninga um að árlcga verði dregið úr birgöum kjarna- vopna". Ætla mætti að stöðvun aukningar væri áfangi á þeirri lcið. Ennfremur bendi ég á orðalag í til- lögu hjá UN lið“ 1. (b) hún yrði háð viðeigandi eftirlitsráðstöfunum og reglum, svo sem þeim er þcgar hefur orðið samkomulag um í SALT1 og SALT II samningunum, svo og þeim sem grundvallarsamstaða hefur náðst um í undirhúningsvið- ræðum um þríhliðasamninga, sem haldnir eru í Genf, um allsherjar- bann við tilraunum;“ Þetta ákvæði í UN tillögunni að mínu mati, ómerkir með öllu skiln- ing G.H. á eftirlitsákvæðunum. Að lokum vil ég benda á yfir- gripsmestu ákvæði íslensku tillög- unnar lið (3) „Alþingi fagnar hverju því frumkvæði sem fram kemur og stuðlað getur að því að rjúfa vítahring vígbúnaðarkapp- hlaupsins“ og lið (5) „Leita verður allra leiða til þess að draga úr spennu og tortryggni milli þjóða heims og þá einkum stórveldanna. Telur Alþingi að íslendingar hljóti ætíð og hvarvetna að leggja slíkri viðleitni lið“. Þetta ákvæði tel ég að G.H. og sjálfstæðismenn hafi algerlega þverbrotið með afstöðu sinni. Vesöl afstaða Siðfræðilegt mat á afstöðu til nú- verandi þróunar í vígvæðingarmál- um getur ekki orðið annað en það að þeir sem á einhvern hátt styðja núverandi ástand, séu „mannkyns- fjandar" og hlutleysi í þcssum mál- um er ekki verjandi á nokkurn hátt, gcra vcrður kröfu til afstöðu í þessum málum hvort sem það eru einstaklingar eða þjóðir. Að mínu mati er ekki hægt að kalla þá sem styðja ríkjandi ástand eða cru hlutlausir gagnvart þessum málum, annað en mannkynsfjanda og óvini alls þess sem lifandi er á jörðu hér, tala vopna og þekking á afleiðingum af notkun kjarna- vopna er orðin slík að það ætti að vera skylda hvers hugsandi mánns að berjast gegn þeim með hvcrjum þeirn ráðum scm tiltæk eru og finnst mér einkennilegt að íslend- ingar skuli vera slíkir „Pentagon- þjónar" aö þcir skuli styðja ríkjandi ástand á bcinan og óbcinan hátt með afstöðu sinni innan UN, hjá N ATO og hcima hj á sér með því að leyfa cndurbyggingu Kjeflavíkur- stöðvarinnar scm er að öllu lcyti nothæf sem. kjarnorkuvopnastöö og er máskc þcgar orðin það. Er mál til þess komið af marg- gefnu tilefni að fara að breyta því ástandi og leyfi ég mér að benda á að nauðsyn er á því að utanríkis- ráðuneytið verði svift því valdi sem það hefur haft til að hnýta ísland við vigvæðingu USA því það er allt að því margsannað að það þjónar fremur „Pentagon“ en hagsmun- um íslendinga þegar um hermál er fjallað. Að síðustu vil ég bcnda á að mér finnst það hcldur vesælt að íslend- ingar skyldu ekki vcrða í hópi þcirra 131 ríkja sem stuðla vilja að breyttu og betra ástandi í vígbún- aðarmálum. Vil ég hér mótmæla í cinu og öllu siöfræði- og þjóðernislegu lögmæti ákvörðunar Geirs Hallgrímssonar, tel hana brot á þjóðarrétti, almenn- um lífsrétti, gerða á ábyrgðarlaus- an hátt og sé í einu og öllu mann- kynsfjandsamleg gerð. Ritað 25/12 1985 Bjarni Hannesson. INIIIIIUIIII! BÓKMENNTIR HOIIIIilllHI 01HIIIIIIIHIIIIIII 11II11111 lOIIIIOIIIIIimi! 111 IIIIOIIIIHOHOUIIOIIIOIIOI II1011010111111111011111 lllllllllll 111! 11 Af Suðurnesjafólki Guðmundur A. Finnbogason. Af Suöurnesjafólki. Guðmundur A. Finnbogason. í bak og fyrir. Frásagnir af Suðurnesjum. Útgefandi. G.A.F. ■ Þetta eru fróðleiksmolar af Suðurnesjum en höfundur hefur lengi lagt sig eftir fróðleik um fólk og sögu á æskustöðvum sínum. Lengsti þáttur bókarinnar er um hjónin í Króki, Eyjólf Þorgeirsson og Guðnýju Jóhannesdóttur. Eru þar britar allmargar vísur eftir Eyjólf. Þegar til kemur reynist ég hafa kunnað tvær þeirra. Önnur er hin ágætlega þjóðlega vísa. Engu kvíðir léttfær lund, Ijúft er stríði að gleyma. Blesa ríð ég greitt um grund, Guðný bíður heima. Þetta er falleg vísa og lýsir vel fögnuði heimkomunnar á góðum hesti og er fyllilega sambærilegt við það sem Jónas kvað. Sælla vart er eitt af öllu en að sigla heim til kvenna. En þó að Eyjólfur héldi fagnandi heim til Guðnýjar sinnar á Blesa sín- um kemur nú fram að hann hafi kveðið um Guðnýju þennan hús- gang: Innan um bæinn eins og skass. æðir þessi kona. Fleiri hafa nú fætur og rass. en flíka því ekki svona. Hér segir frá fyrsta vélbát Njarð- víkinga en Finnbogi faðir höfundar var fyrsti formaður á honum. Er margt í þessari bók rakið til hans og í öðru lagi Jórunnar móðursystur höf- undar. Meðal annars rifjar höfundur upp endurminningar og ummæli þeirra frá því að Friörik Hansen var háseti Finnboga og heimilismaður hjá Jór- unni. Þessir þættir Finnboga segja frá merkilegu fólki enda þótt fæst af því væri í heldri manna tölu. Og sumar sögurnar eru góðar. Guðmundur A. Finnbogason er dæmi um alþýðumann sem með elju og natni stundar sögu byggðarlags síns og heldur ýnisu til haga. Það er björgunarstarf sem þar er unnið. H.Kr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.