Tíminn - 04.01.1986, Síða 11

Tíminn - 04.01.1986, Síða 11
Laugardagur 4. janúar 1986 Tíminn 11 með fjölskyldu sína síðla árs 1945 og var þá ráðinn ritstjóri Búnaðarblaðs- ins Freys, og tók við því starfi frá og með 1. tölublaði 1946. Þá er Gísli rúmlega fertugur, fjölmenntaður í bú- fræði og á öðrum sviðum, með fjöl- þætta reynslu við margháttuð félags- störf, störf við rannsóknir og leið- beiningar en þó framar öðru fullur áhuga á málum bændastéttarinnar, landbúnaðarins og öllu því sem til framfara horfði. Þá hefst hin langa og ótrúlega fjölþætta starfssaga hans hjá Búnaðarfélagi íslands og fyrir bændasamtökin. Þá voru tímamót í útgáfu Freys, hann var stækkaður, Stéttarsamband bænda gerðist aðili að útgáfu hans og fyrirhugað var að starf ritstjóra, sem áður var hluta- starf yrði nú „fullt“ starf. Það var það svo sannarlega, en Gísli var aldrei einhamur og öll þau 30 ár sem hann sá um Frey, lengst af einn og án að- stoðar, sinnti hann fjölmörgum störfum öðrum svo mörgum og um- fangsmiklum að furðu vekur. Hér verður ekki reynt að rekja alla starfssögu Gísla Kristjánssonar í smá- atriðum. Um hana má lesa í upp- sláttarritum og er þar þó ekki allt talið. Af umfangsmestu störfunum sem Gísli sinnti má nefna stjórn hans á „Búnaðarfræðslunni" svonefndu er hófst 1953 og starfaði nokkur ár fyrir sérstök fjárframlög. Til hennar voru ráðnir fjórir umferðaráðunaut- ar, er héldu fræðslufundi um landið og lögðu út tilrauna- og sýnisreiti á túnum og grænfóðurökrum. Nýtt fræðsluefni var samið í stórum stíl m.a. fræðslumyndir og hafin var út- gáfa fræðslurita (smárita) um fjöl- þætt efni. Alls urðu þau yfir 40 og annaðist Gísli ritstjórn þeirra allra og mörg samdi hann sjálfur. Gísli lét sig alifuglarækt alltaf miklu skipta. Hann var stofnandi og framkvæmdastjóri fuglakynbótabús er nefndist Hreiður. Hann sá löngum um innflutning eggja til kynbóta og var lengst af ráðunautur B.í. í ali- fuglarækt þó að aldrei væri það met- ið sérstaklega til launa frekar en svo margt annað sem hann annaðist fyrir Búnaðarfélagið. Gísli annaðist mjög margþætt samskipti Búnaðarfélags íslands við önnur lönd og erlendar stofnanir og félög, einkum þó á Norðurlöndum. Af slíkum störfum má nefna að hann var fulltrúi fræðsludeildar OECD í París hér á landi, og átti þátt í að margir íslensk- ir búfræðingar nutu styrkja til fram- haldsnáms frá þeirri stofnun. Hann hafði milligöngu um skólavist fyrir unga íslendinga bæði á búnaðar- skólanum og búnaðarháskólanum einkum í Danmörku og Noregi, og á sama hátt vistaði hann fjölmörg ung- menni til starfa við landbúnað, ís- lensk á Norðurlöndunum og Norðurlandabúa hjá íslenskum bændum. Allt fram á síðustu ár annað ist hann samskipti B.í við Grænland sem staðið hafa um áratugi og sýndi grænlenskum sauðfjárræktarnemum sem hér hafa dvalist 5-8 á ári hverju, á viðurkenndum sauðfjárbúum, al- veg einstaka umhyggju. Oll þessi að- stoð Gísla við íslensk og erlend ung- menni var veitt sem sjálfsagður hlut- ur án þess að hugsað væri unt það hvað hún kostaði í tíma og fyrirhöfn, hvað þá að hugsað væri um endur- gjald. Þessi þáttur í störfum Gísla fannst mér e.t.v. að lýsi manninum hvað best. Enn eru ótaldir ýmsir þættir af störfum Gísla við búnaðarfræðslu. Hann tók þátt í samstarfi Norður- landanna um gerð fræðslumynda og annars fræðsluefnis. Um aldarfjórð- ung hafði hann umsjón með búnað- arþáttum í Ríkisútvarpinu. Þá var hann lengi virkur í fræðsludeild Norrænu búfræðisamtakanna (NJF). Eitt af stórvirkjum Gísla var rit- stjórn hans á íslenska hlutanum í norrænni samheitaorðabók yfir landbúnaðar- og búfræðiheiti, Nordisk Landbruksordbok, sem kom út í Oslo 1979. Það má þakka Gísla það fyrst og fremst að hlutur ís- lenskunnar lá þar ekki eftir þó að margir legðu þessu lið. Gísli hafði sem fyrr segir mikil af- skipti af vistun fólks á milli íslands og annarra landa. Á 35 árum vistaði hann í allt á milli 2600-2700 útlend- inga til starfa við landbúnað hér á landi. en hann hafði lengi umsjón með Ráðningastofu landbúnaðarins og hafði því cinnig mikil afskipti af vistun unglinga úr bæjum í sveitum. Þá var hann hin síðari ár umsjón- armaður forðagæslunnar og hélt þeim störfum áfram fyrir Búnaðarfé- lagið, eftir að hann lét af föstu starfi fyrir aldurssakir og var þá vakandj yfir öllum þáttum þeirra mála, svo sem að sjá um útvegun og flutninga á heyjum á milli héraða og íandshluta. Eftir að hann lét af föstu starfi sem ritstjóri hélt hann áfram skrifum í Frey og fjölmargar greinar birtust þar eða í öðrum ritum allt til hins síð- asta. Þá sá hann um 6 ára skeið um útgáfu bókaflokks fyrir Skuggsjá, „Faðir minn bóndinn" o.fl. En einna umfangsmest af þessum „eftir- vinnu“-störfum Gísla var útgáfa hans á ritverkum sr. Björns Halldórs- sonar í Sauðlauksdal, er hann vann að fyrir Búnaðarfélagið ásamt dr. Birni Sigfússyni, og komu út 1983. Störf eða ritverk Gísla verða hér ekki rakin nánar, en ljóst má vera af því sem nefnt hefur verið að afköst hans voru með hreinum ólíkindum og þó enn frekar þegar þess er gætt að hann átti löngum við vanheilsu að stríða og þurfti oft að vera frá störf- um vegna dvala á sjúkrahúsum. En þó að eitthvað hrjáði líkamann var hugurinn stöðugt jafn óbugaður og bjartsýnin ódrepandi. Gísli var mikill gæfumaður í einkalífi sínu. Þeim Þóru varð fimm barna auðið, þau eru: Rúna, kennari og rithöfundur, fædd 1940, Stína, kennari og les nú guðfræði við Há- skóla íslands, fædd 1943. Edda kennari og fóstra, fædd 1944, Lilja hjúkrunarfræðingur og Hans bif- vélavirki eru tvíburar og fædd 1949. Fram til 1956 bjó þessi stóra fjöl- skylda á loftinu í Búnaðarfélagshús- inu við Lækjargötu að þau fluttu í ný- byggt hús að Hlíðartúni 6 í Mosfells- sveit. Þar ræktuðu þau og prýddu, og fjölskyldan eignaðist fagurt heimili í gróðursælum garði allt í samræmi við hugsjónir og ævistörf húsfreyjunnar, bóndans og barnanna. Gísla var sýndur margháttuður sómi og hlaut heiðursmerki fyrir störf sín bæði innlend og erlend. Hann var heiðursfélagi Búnaðarfé- lags íslands og Æðarræktarfélags ís- lands enda eiiffi afstofnendum þess. Er ég leit yfir ávarpsorðin þegar Gísli heilsar lesendum Freys í árs- byrjun 1946 vöktu m.a. athygli mína eftirfarandi setningar: „Það er veg- legt starf að yrkja land og skapa gró- anda í brekku eða á bás. Nýgræðingurinn og ungviðið, sem bregða sér á leik í blíðu vorsins, eru vísar þeirrar búmegunar, sem ís- lenskum bændum er falið að vernda og efla. Það er göfugt hlutverk að hjálpa skaparanum til að skapa." í þessum anda starfaði Gísli Kristjánsson all- an sinn langa starfsdag. Er Gísli lét af ritstjórn Freys fyrir réttum ellefu árum þakkaði dr. Hall- dór Pálsson honum störfin með eftir- farandi orðum sem skulu verða loka- orð þessarar greinar og ítrekun á þakklæti Búnaðarfélags (slands fyrir öll hans störf einnig þau sem þá áttu eftir að bætast við: „Búnaðarfélag ís- lands fær aldrei fullþakkað það happ að fá Gísla Kristjánsson til að taka að sér ritstjórn Freys, er hann rúm- lega fertugur kom heirn frá Dan- mörku í lok síðari heimsstyrjaldar- innar eftir nær tveggja áratuga dvöl þar í landi við nám og störf. Gísli var þá og er'enn gæddur frábæru vilja- þreki, óvenjulegri atorku og starfs- gleöi og þrá til þess að verða öðrum að liði. Hann hefur óbilandi trú á því, að það starf, sem unnið er af góðum huga, komi að tilætluðu gagni. Gísli bjóyfirhafsjóþekkingar á búnaðarmálum, er hann tók við rit- stjórn Freys, og hefur sífellt haldið henni við og aukið hana. Hugsjón hans var að miðla öðrum af þekkingu sinni og annarra. Hann hóf því glað- ur starfið við Frey. Þar gafst tækifær- ið til að þjóna íslenskum bændum og búaliöi. “ Við hjónin sendum Þóru, börnun- um og barnabörnunum, okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Jónas Jónsson. Við óskum landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Hinum 705 Toyota eigendum sem bættust í hópinn á árinu óskum við til hamingju með nýju bílana og vonum að bæði þeim og öðrum vegfarendum farnist vel s á ferðum sínum. 1 Oj $ TOYOTA 041 cf *féo. Nybylavegi 8 200 Kopavogi S 91-44144'

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.