Tíminn - 04.01.1986, Síða 19
Laugardagur 4. janúar 1986
Tvö Reykjavíkurbörn.
Flautan og vindurinn.
Unglingasaga.
Höfundur Steinunn Jóhannesdóttir.
Teikningar eftir Valgarð Gunnars-
son.
Námsgagnastofnun.
■ Þessi saga hlaut viðurkenningu í
samkeppni Námsgagnastofnunar um
bækur á léttu máli.
Það er sannast sagna að við lestur
þessarar sögu finn ég ekki að á
nokkrun hátt sé vikið frá eðlilegu
máli til að gera málið létt. Ég finn
ekki annað en höfundur segi allt sem
segja þarf.
Sagan gerist einn af þeim fágætu
dögum þegar raunverulegur vetrar-
bylur er í Reykjavík. Meira að segja
dregur svo í skafla að stúlka verður
föst í skafli. Hún snýr við, treystirsér
ekki til að komast í skólann og þigg-
ur síðan húsaskjól hjá skólabróður
sínum sem h'ka er snúinn við og að
vissu leyt i hjálpar henni'úr skaflin-
um.
Og úr þessu verður svo dálítil ást-
arsaga.
Sagan fjallar að mestu um þessi
tvö Reykjavíkurbörn. Þau konta
hvort um sig úrsínu unthverfi. Stúlk-
an á foreldra í sambúð, vel efnurn
búna að því er virðist og móðir henn-
ar er myndlistarmaður. Pilturinn er
hjá einstæðri móður ásamt yngri
hálfbróður. Móðirin hefur átt eða
búið með tveimur drykkjumönnunt.
Hún er fátæk. síntinn er iokaður
vegna vanskila.
Stúlkan unir sér vel í skóla og cr
eftirlæti kennaranna. Pilturinn er
feginn hverjum þeint degi sem hann
er laus við skólann.
Þannig nær Steinunn að leiða fram
ýmsar andstæður úr lífi samtímans.
Allt eru þetta sannar myndir og því
er það forvitnilegt að fylgjast nteð
viðræðum unglinganna þessa
dagstund.
Það ætti ekki að þurfa nein varnaðar
orð til lesenda að forðast allar aíhæf-
■ Steinunn Jóhannesdóttir.
ingar svo sem að þessi börri séu full-
trúar kynja sinna eða ríkra og fá-
tækra. Þetta eru tveir einstaklingar
úr því mannhafi sem kringum okkur
er. tvö Reykjavtkurbörn líðandi
daga. Og þeint er lýst af nærfærni.
Og það er gaman að kynnast þeirn.
H.Kr.
Gunnhildargerðisætt
Lífog hagir bændafólks
■ Sögusteinn-bókaforlag hefur
gefið út bókina Gunnhildargerðis-
ætt, sem er annað bindið í ritröðinni
„íslenskt ættfræðisafn - Niðjatöl -.
Galtarætt er talin frá þeim hjónum
Sigmundi Jónssyni og Guðrúnu Ingi-
björgu Sigfúsdóttur, sem bjuggu í
Gunnhildargerði í Hróarstungu á
seinni hluta nítjándu aldar og í byrj-
un þessarar. Níu börn þeirra hjóna
komust upp og er stór ættleggur frá
þeim kominn, sem ber sterkt ættar-
mót. Auk niðjatals og framætta Sig-
mundar og Guðrúnar eru í bókinni
greinar um gamla bæinn í Gunnhiid-
argerðf og um um þau hjónin, sem
eru góðar heimildir um líf og hagi
bændafólks á Úthéraði á ofanveröri
nítjándu öld og öndvcrðri þessari.
Fjöldi Ijósmynda prýða bókina. Út-
söluverð kr. 2.500.
BÚ
SA
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
REYNSLA-GÆÐI
LISTER um allt land!
LISTER
FJÁR-OG KÚAKLIPPUR
KÚAHAUS EDA FJÁRHAUS
Á SAMA MÓTORINN
LISTER
BARKAKLIPPUR
FJÁRKUPPUR
EINS/ÞRIGGJA HRAÐA
BREIDIR KAMBAR
Tíminn 19
Við óskum eftir að ráða
starfsfólk í eftirtalin störf
Gagnaskráningu
Um er að ræða starf í Verðlagningardeild við móttöku og
skráningu tollskjala. Vaktavinna frá kl. 7.30-13.30 og kl.
13.30-19.30
Starfsreynslaæskileg.
Skrifstofustarf
Um er að ræða starf við innheimtu og uppgjör reikninga.
Kunnátta í bókhaldi æskileg.
Afgreiðslustörf
í byggingarvöruverslun. Um er að ræða hálfsdagsstörf
frá kl. 8.00-13.00 og kl. 13.00-18.00.
Starfsreynsla æskileg.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannastjóra er veitir
nánari uppplýsingar.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉ1AGA
STARFSiyiANNAHALÐ
LINDARGÖTU 9A
Bændur athugið!
Ákveðið er að skipta framleiðslu á mjólk og kindakjöti
sem bændum er tryggt f ullt verð fyrir á milli f ramleiðenda
í hinum einstöku héruðum landsins samkvæmt sérstök-
um reglum.
Því verður ekki í framtíðinni unnt að gera ráð fyrir að
framleiðsluréttur á blönduðum búum færist á milli bú-
greina þó ónotaður réttur sé fyrir hendi í annarri grein-
inni, nema í undantekningartilvikum.
Nú er framleiðendum á blönduðum búum gefinn kostur á
að sækja til Framleiðsluráðs um að breyta hlutföllum í bú-
marki sínu, enda verði slíkar umsóknir vel rökstuddar.
Umsóknarfrestur er til loka janúarmánaðar 1986. Allar
umsóknir um breytingar verða teknar til úrskurðar af bú-
marksnefnd Framleiðsluráðs.
Gera verður ráð fyrir að allar samþykktar breytingar
verði bindandi fyrir framleiðendur um nokkurt skeið. Þær
þurfa að fá staðfestingu landbúnaðarráðuneytisins til að
fá gildi.
Jafnframt er vakin athygli þeirra bænda sem ekki hafa
skipt búmarki sínu að tilkynna um skiptingu þess á milli
búgreina nú þegar.
Bændum er bent á að hafa samráð við héraðsráðunauta
um þetta efni.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
FJÖLBRAUTASKÓLINN
BREIÐHOUI
Frá Fjölbrauta-
skólanum í
Breiðholti
Lokainnritun í Öldungadeild skólansferfram dagana
7.8. og 9. janúar í húsakynnum stofnunarinnar við Aust-
urberg kl. 18.00-21.00.
Greiða á gjöld jafnhliða því sem nemendur velja náms-
áfanga. Mat á fyrra námi svo og sérstök námsráðgjöf er
veitt innritunardagana. Sími skólans er 75600.
Nemendur dagskóla F.B. eiga að koma í skólann mið-
vikudaginn 8. janúar kl. 13.00-15.00 og sækja stunda-
skrár og standa skil á gjöldum.
Kennarar F.B. eru boðaðir á almennan kennarafund
mánudaginn 6. janúar og hefst fundurinn kl. 9.00 árdeg-
is.
Skólameistari