Tíminn - 02.03.1986, Blaðsíða 7

Tíminn - 02.03.1986, Blaðsíða 7
Sunnudagur 2. mars 1986 Tíminn 7 Einmitt þegar blaðamaður Tím- ans var staddur í Svíþjóð um síðustu helgi var flett ofan af einu mesta hneykslismáli sem átt hefur sér stað í sænsku viðskiptalífi í langan tíma, þegar upp komst að einn æðsti stjórnandi sænsku risasamsteypunn- ar Fermenta, sem auk þess var kos- inn maður árins 1985, hefur í fjölda ára logið því upp að hann sé doktor í líffræði frá virtum bandarískum há- skóla. Refaat El-Sayed heitir maðurinn, egypskur innflytjandi sem á ótrúlega skömmum tíma hefur unnið hug og hjörtu Svía og komist upp í æðstu stöður, maðurinn sem hefur fengið viðurnefnin „fjármálasnillingurinn", „margmilljónerinn", og „undrabarn viðskiptaheimsins’1. Það var því ekki að ástæðulausu sem Svíar kusu hann mann ársins, enda er El-Sayed lýs- andi dærni um mann sem hefur brot- ist áfram af eigin rammleik, þrátt fyr- ir að hann hafi sest að í landinu fyrir aðeins tæpum tveimur áratugum, allslaus og ótalandi á sænska tungu. Hvar er doktorsskírteinið? Upp komst unt lygina eftir að sænski líffræðiprófessorinn Björn Gillberg, sem lengi hefur verið einn helsti baráttumaður umhverfis- verndar í Svíþjóð rakst á viðtal við El-Sayed í bandaríska viðskipta- blaðinu Fortune, þar sem'El-Sayed hélt því fram að hann hefði útskrifast með doktorsnafnbót í líffræði frá há- skólanum í Uppsölum árið 1973. Líklega hefði vart vaknað grunur hj á Gillberg, ef El-Sayed hefði ekki einmitt árið 1973 verið að vinna við sænska landbúnaðarháskólann þar sem Gillberg vann einnig, og þá var El-Sayed langt frá því að vera nokkur doktor. Auk þess mundi Gillberg ekki betur en.að El-Sayed héldi því fram að hafa úrskrifast frá Davis háskólanum í Kaliforníu sem doktor í líffræði. En Gillberg var nóg boðið þegar hann rakst á annað viðtal við hann, þá í litiu sænsku viðskiptablaði, þar sem El-Sayed hélt því fram að hann hefði átt gott samstarf við Gillberg sjálfan varðandi umhverfisvernd í kringum lyfjaverksmiðjur Fermenta samsteypunnar, en Gillberg vissi manna best að það var helber lygi. Eftir að hafa gengið úr skugga um að El-Sayed hefði aldrei stundað nám, hvorki við Uppsalaháskóla né Davis háskóla, ákvað Gillberg að koma upp um lygavefinn. Loks um miðja síðustu viku þegar sænska síðdegisblaðið „Expressen", hafði komist á snoðir um málið og hélt því fram í flennistórum fýrir- sögnum að El-Sayed hefði logið til um menntun sína, fór boltinn af stað. En El-Sayed streittist á móti, þótt raunar væri það vita vonlaust eftir að málið varð öllum ljóst. „Skírteini mín og skjöl frá Davis háskóla eru niðri í kjallara heima hjá mér, þið skuluð fá að sjá þau,“ sagði El-Sayed og lét ekki haggast, en ásakaði hins vegar Expressen fyrir rógburð og lygi og að öfundarmenn hans hefðu komið söguburðinum af stað. „Gott og vel, þá bíðum við bara eftir próf- skírteininu," sögðu sænsku fjölmiðl- arnir. Prófskírteinið frá Davis háskóla lét á sér standa eins og búast mátti Aðeins nokkrum dögum áður höfðu þeir El-Sa- yed og Per Gyll- enhammar, for- stjóri Volvo gert samning á milli samsteypanna tveggja, um að leggja út í alþjóð- legan lyfjaiðnaö. Nú er Gyllenhamm- ar legið á hálsi fyrir að hafa sýnt svikahrappnum slíkan trúnað í jafn mikilvægu máli, án þess að grennslast fyrir um bakgrunn hans. „Þeirkjósa mig aftur mann ársins!“ Eftir langar viðræður hjá ráða- mönnum Fermenta samsteypunnar alla aðfaranótt mánudagsins var El- Sayed látinn segja af sér sem aðal- framkvæmdastjóri samsteypunnar og gerður að varaformanni stjórnar Fermenta. Þar meðer hann búinn að missa að mestu leyti sín völd, og þótt hann eigi enn meirihluta hlutabréfa í Fermenta munu áhrif hans hverfa að mestu. Lygin varð því undrabarni við- Egyptinn Refaat El-Sayed varð eins og vænta mátti áhyggjufullur þegar byrjað var að spyrjast fyrir um doktorsgráðuna hans. Nokkrum dögum síðar baðst hann opinberlega fyrirgefningar á því að hafa logið. Lygin varð honum að falli. Björg Thorarensen fréttaritari Tímans í Kaupmannahöfn við og allt komst á suðupunkt í Fermenta samsteypunni meðan á biðinni stóð. Hræðsla greip um sig meðal hlutabréfahafa í fyrirtækiríu. allir fóru að selja þannig að um 50% verðfall varð á hlutabréfunr, sem ,þýðir ekki svo lítið tap hjá fyrirtæki sem veltir milljörðum sænskra króna á ári hverju. Öllum var orðið Ijóst að hneyksli var óumflýjanlegt. „Fyrirgefið, ég hef logið“ Þar með hrundi ímynd Refaat El- Sayed, „kraftaverkamannsins sem reyndist vera loddari", en á sunnu- dagkvöldið játaði hann sekt sína frammi fyrir alþjóð þegar hann kom fram í sænskum sjónvarpsfréttum. „Fyrirgefið mér, ég hef logið, fyrir- gefið," sagði El-Sayed niðurbrotinn maður og fól andlitið í höndum sér. Það er kaldhæðnislegt að aðeins nokkrum dögum áður hafði hann líka verið í sjónvarpi og öðrum fjöl- miðlum, en af ólíku tilefni. þá með Gyllenhammar, forstjóra Volvo samsteypunnar. Þeir höfðu þá verið að ræða möguleika á að stofna í sam- einingu alþjóðlega samsteypu í lyfja- iðnaði. Það er hætta á að af þeirri sam- vinnu verði ekki í bráð, enda er El- Sayed búinn að glata því feikna trausti sem menn höfðu á honum fyr- ir hneykslið. VIÐ BYGGJUMÁ REYNSLUNNI BYGGINGAVORUR ÓUDURLANDSBRAÚT 32 S. 82033 skiptaheimsins að falli, þótt áður hefði hún verið honum til framdrátt- ar því ólíklegt er að hann hefði kom- ist svo langt sem hann náði án þess að geta sýnt fram á nokkra menntun. Hæfileikarnir eru þó a.m.k. fyrir hendi því eins og El-Sayed segir sjálfur núna: „Mér tókst að láta hagnað Fermenta vaxa um 300% sl. ár. Bendið mér á annað fyrirtæki hér í landi.sem hefur náð sama árangri. Þótt fortíðin hafi brugðið fæti fyrir mig núna, þá rís ég upp aftur. Þeir eiga ettir að kjósa mig mann ársins á ný!“ SMIÐIR- HÚSBYGGJENDUR Maðurársins í Svíþjóð: KRAFTAVERKAMAÐURINN SEM REYNDIST VERA LODDARI - Laug til um doktorsgráðu og neyddist til að segja af sér valdastöðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.