Tíminn - 02.03.1986, Blaðsíða 21

Tíminn - 02.03.1986, Blaðsíða 21
Sunnudagur 2. mars 1986 Tíminn 21 nn-listatíminn-listatiminn-lista - - Aif r/bCutúrfi ? Beint áfram, framhjá stöðumæli, Ijósastaur og þriggja hæða húsi með vinnupöllum utaná, til hægri gegnum göngin undirsteinveggnum. „Þarna liggur týnda veskið.“ Áfram mjóa hellulagða stíginn, framhjá kartöflugarðinum, ef það er sumar, annars yfir hann á ská til vinstri, þangað sem stígurinn breikkar og skiptist í tværáttir. „Þarsnéri hann sér við og æpti í vindátt á hlaupunum: Ég læt þig hvorki hafa anda minn né hraða, fyrr en ég hef fundið út hvorn ég má frekar við að missa.“ Sá þrengri liggur meðfram girðingu niður að læknum og sveigir þar upp og verður að tröð sem fylgir hraunjaðrinum meðfram fjallshlíðinni, hinn er mal- bikaður og liggur að einstefnugötu. „Hvort sem þetta er eltingarleikur eða feluleikur, sýna umferð- armerkin að það er bannað að hætta núna.“ Yfir einstefnugötuna liggur sebrabraut, „eins og brú yfir horfinn farveg“. Hinum megin ágötunni er hliðsem opnast út í garð. Þangað liggja nokkrar tröppur nið- ur frá gangstéttinni. Frá valmúanum, fyrir innan hliðið, sé sumar, sést garðhús sem notað er sem verkfærageymsla og kaffiskúr á veturna. „Þegar hausthiminninn er stjörnubjartur er hægt með lagni að seiða upp orð úrfölnuðum morgunfrúm í garðin- um.“ Til hægri við skúrinn er malarvegur sem liggur í hring, „þannig líðurtíminn“, umeinskonarhátíð- arsvæði með palli fyrir skemmtiatriði og áhorfenda- bekkjum sem snúa móti sólu. Stígurinn heldur áfram, á meðan situr sólin föst á himnum. Myndirðu þekkja aftur vandamál ef þú mættir því um nótt? Á&YVl ÁMYYl. Krossfiskur, flugfiskur og silungur við sjóndeildarhringinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.