Tíminn - 02.03.1986, Blaðsíða 19

Tíminn - 02.03.1986, Blaðsíða 19
Sunnudagur2. mars 1986 Tíminn 19 Rússar ræða stefn- unaíkvikmyndagerð ÚTSALA - NEI! LÁGTVERÐ-JÁ! JL-BYGGINGAVÖRUR # TEPPADEILD Greiðslukjör gerast varla betri. Við höldum ekki útsölu. En með hagstæðum innkaupum reynum við að hafa vöruverð alltaf sem lægst. Teg. DÆMIUM VERÐ: Eftir að Pravda birti fyrir nokkru viðtal við rússneska leikstjórann Grigory Chukhrai hafa spunnist miklar umræður á síðum blaðsins um stefnuna í kvikmyndaframleiðslu í Sovef. Chukhrai starfrækti nefnilega tilraunakvikmyndaver fyrir nokkr- um árum, sem yfirvöldin létu loka 1977. „Það er nauðsynlegt að hafna gamla kerfinu, sem búið er að ganga sér til húðar," sagði Chukhrai í við- talinu. „Gamla stefnan er orðin kvikmyndagerð í Sovétríkjunum fjötur um fót.“ Chukhrai rak kvikmyndaver sitt frá 1965 og kallaði það „Framsækna tilraunakvikmyndaverið'*. Þarna fjallaði hann um óvenjuleg efni og greiddi kostnaðinn með afrakstri af miðasölu mynda sinna. En loksgripu yfirvöld í taumana sem fyrr segir. Meðal mynda hans er „Sá fertugasti og fyrsti", sem fjallaði um rússneska stúlku í Rauða hernum á dögum borgarastríðsins, sem sett er til að gæta fanga úr her hvítliða. Er ekki að orðlengja það að stúlkan verður ást- fanginn af fanga sínum. Yfirleitt voru viðfangsefni Chuk- hrai þannig ekki í stíl við mörg al- geng efni sovéskra kvikmynda, -svo sem um vinnuhetjur eða skarp- skyggna föðurlandsvini, sem kné- setja skemmdarverkamenn. Heimsfrægur gim steinasali látinn Fyrir nokkrum dögum lést í New York Lazare Kaplan, heimsfrægur gimsteinasali, sem átti fyrirtæki er ber nafn hans. Hann var þá orðinn 102 ára. Einkunt öðlaðist hann frægð fyrir að hafa skorið hinn fræga Jonk- er demant, sent var 726 karöt. Kaplan, sem cr stórt nafn í heimi eðalsteinanna, tók að sér þetta áhættusama verkefni á hátindi ferils síns, en Jonker demanturinn fannst á búgarði nærri Pretoríu í S-Afríku. Úr steininum fengust tólf minni steinar og var sá stærsti 126.65 karöt. Hann varsíðarseldur Farouk, Egyptalandskóngi fyrir eina milljón dollara. Síðasti eigandi er sagður hafa greitt fyrir hann fjórar milljónir dollara, en hann er talinn vera Jap- ani. Kaplan kom til Bandaríkjanna frá Rússlandi árið 1914 en hann var barn fátækra foreldra í rússneska bænum Zabludova, fæddur 17. júlí 1883. Hann átti 12 systkini. Hann hugðist heimsækja ættingja í Bandaríkjun- um, en þar sem heimstyrjöldin fyrri skall á er hann dvaldist þar hætti hann við að fara heim og stofnaði Kaplan gimsteinafyrirtækið ásamt börnum sínum síðar. BYGGINGAVÖRUDEILD HRINGBRAUT 120 sími 28600 STÓRHÖFÐA simi 671100 RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND Fll BYCGlNEABOBnBl per m2 per m2 per m2 per m2 per m2 per m2 per m2 per m2 BOLERO 100% polyamid...........kr. LYON100% zinthetic.....................kr. TURBO 50% polyprop. 50% polyamid.kr. CARDIFF 100% polyamid..........kr. SANDRA 20% ull 80% polyamid...kr. BRENNER 20% ull 80% polyamid...kr. MARZ 100% acryl.....................kr. ALICE 50% ull 50% polyamid.....kr. 385 410 495 580 595 655 710 875

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.