Tíminn - 02.03.1986, Qupperneq 21
Sunnudagur 2. mars 1986 Tíminn 21
nn-listatíminn-listatiminn-lista
- - Aif
r/bCutúrfi ?
Beint áfram, framhjá stöðumæli, Ijósastaur og
þriggja hæða húsi með vinnupöllum utaná, til
hægri gegnum göngin undirsteinveggnum. „Þarna
liggur týnda veskið.“ Áfram mjóa hellulagða
stíginn, framhjá kartöflugarðinum, ef það er sumar,
annars yfir hann á ská til vinstri, þangað sem
stígurinn breikkar og skiptist í tværáttir. „Þarsnéri
hann sér við og æpti í vindátt á hlaupunum: Ég læt
þig hvorki hafa anda minn né hraða, fyrr en ég hef
fundið út hvorn ég má frekar við að missa.“ Sá
þrengri liggur meðfram girðingu niður að læknum
og sveigir þar upp og verður að tröð sem fylgir
hraunjaðrinum meðfram fjallshlíðinni, hinn er mal-
bikaður og liggur að einstefnugötu. „Hvort sem
þetta er eltingarleikur eða feluleikur, sýna umferð-
armerkin að það er bannað að hætta núna.“ Yfir
einstefnugötuna liggur sebrabraut, „eins og brú yfir
horfinn farveg“. Hinum megin ágötunni er hliðsem
opnast út í garð. Þangað liggja nokkrar tröppur nið-
ur frá gangstéttinni. Frá valmúanum, fyrir innan
hliðið, sé sumar, sést garðhús sem notað er sem
verkfærageymsla og kaffiskúr á veturna. „Þegar
hausthiminninn er stjörnubjartur er hægt með lagni
að seiða upp orð úrfölnuðum morgunfrúm í garðin-
um.“ Til hægri við skúrinn er malarvegur sem liggur
í hring, „þannig líðurtíminn“, umeinskonarhátíð-
arsvæði með palli fyrir skemmtiatriði og áhorfenda-
bekkjum sem snúa móti sólu. Stígurinn heldur
áfram, á meðan situr sólin föst á himnum.
Myndirðu þekkja aftur vandamál
ef þú mættir því um nótt?
Á&YVl ÁMYYl.
Krossfiskur, flugfiskur og silungur við
sjóndeildarhringinn.