Tíminn - 20.03.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 20.03.1986, Blaðsíða 1
■ A _ STOFNAÐUR1917 I -JU i íminii RAUSTIR MENN 25050 SEJlDIBÍLJiSTÖÐin SNJÓSKAFL geymdi manninn sem braust inn hjá fyrirtækinu Vélar og þjónusta aðfaranótt þriðjudags, og olli þar miklum skemmdum eins og Tíminn sagði frá í gær. Maðurinn fannst liggjandi í skafli í grennd við fyrirtækið, sömu nótt, kaldurog máttfarinn og var hann fluttur á sjúkrahús. Rannsókn lög- reglu leiddi í Ijós að hann hafði farið í fjögur fyrirtæki á svipuðum slóðum, auk fyrirtækis- ins Vélar og þjónusta, fyrirtækin Plastos, Þýsk-íslenska og Kristján Siggeirsson hf. SJÁVARÚTVEGSRÁÐ- UNEYTIÐ hefur ákveðið að bann við öllum veiðum á svæði á Selvogsbanka, sem undanfarin ár hefur tekið gildi 20. mars og staðið til 15. maí, taki ekki gildi fyrr en kl. 20.00 þriðjudaginn 25. mars, en gildi eftir sem áðurtil 15. mars. UNESCO á ekki upp á pallborðið hjá þingmönnunum Halldóri Blöndal og Birni Dagbjartssyni, en þeir hafa lagt fram þings- ályktunartillögu í sameinuðu þingi um endur- skoðun á aðild íslands að alþjóðastofnunum. í greinargerð með tillögunni segir að sú við- leitni fslands að taka þátt í hvers konar sam- vinnu á alþjóðavettvangi geti hljómað hjákát- lega, ekki síst í Ijósi þess að sumar stórþjóðir velja og hafna í þessum efnum. Þekkt sé úr- sögn Breta og Bandaríkjamanna úr UNESCO og sé það vissulega umhugsunar- efni fyrir Islendinga að þessar þjóðir skuli ekki teljaþessa stofnun verða fjárveitinga enda hafi við- gengist kring- um forstjóra stofnunarinnar hin versta spill- ing og siðleysi. 7% LÆKKUN á gjaldskrám Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar var ákveðin á stjórnarfundi veitunnar í gær, samkvæmt eindregnum tilmælum ríkisstjórnarinnar. FULLORÐINN MAÐUR varð fyrir bíl á Nýlendugötu í fyrrakvöld. Hann var á leið frá vinnu sinni, skömmu eftir kvöldmat þegar hann varð fyrir bílnum. Maðurinn sem er fæddur árið 1911 var lagður inn á sjúkra- hús, en hann hlaut töluverð höfuðmeiðsl. Hann er þó ekki í lífshættu. PENINGASKÁP var stolið frá fyrir- tækinu Al og plast í Ármúla í innbroti í fyrri- nótt. Skápurinn fannst snemma í gærmorg- un, og hafði þá verið opnaður með logsuðu- tækjum. Hann var vita tómur og því höfðu þjóf- arnir lítið upp úr krafsinu. VESTUR-ÞYSK stjórnvöld virðast nú vera reiðubúin að taka þátt í „stjörnustríðs- áætlun" Bandaríkjastjórnar. Helmut Kohl kanslari V-Þýskalands sagði helstu ágrein- ingsmál stjórnanna tveggja hafa verið leyst á fundi sínum með Caspar Weinberger varn- armálaráðherra Bandaríkjanna. Kohl sagðist vonast til að skrifað yrði undir samkomulagið strax í næstu viku. KRUMMI Nú er hægt að fara að skrifa íslendingasögur um víkingatímann se- inni... Vísitölufjölskyldan: Sparar stórfé á saman- burði í matarinnkaupum Allt að 70 þúsund króna sparnaður á ári Líklega hýðst láglaunafólki hvergi hærri tímakaup - og það m.a.s. skattfrjálst -en þá tíma sem það ver til að bera saman verð ein- stakra vörutegunda milli búðarhill- anna og einstakra verslana. Sam- kvæmt nýrri könnun Verðlags- stofnunar getur það munað mörg- um tugum þúsunda á ári - allt upp í 70 þús. krónum - þvort fjölskylda kaupir ódýrustu vörumerki hverrar vörutegundar í ódýrustu verslun- unum eða dýrustu merkin í dýrustu búðunum, oger þá cingöngu átt við mat- og hreinlætisvörur. Þcnnan tuga þúsunda sparnað má líta á sem skattfrjálsar tekjur. Svo dæmi séu nefnd fundu verð- lagsstofnunarmenn í sömu verslun- inni dæmi um t.d. grænar baunirfrá 55-192 kr. kílóið, kakó frá 160-402 kr. kílóið, kaffi frá 219-543 kr. kíló- ið og upp|rvottalög frá 44-137 kr. lítrann. Fyrrverandi borgarstjórar Reykja- víkur anda að sér kunnuglegu and- rúmslofti í sal borgarstjórnar við Skúlatún í gær. Fremst situr Egill Skúli Ingibergsson, þá Birgir ísleif- ur Gunnarsson, síðan Geir Hall- grímsson og loks Auður Auðuns. I'ímamynd-Sverrir 200 ára afmæli Reykjavíkur: Borgar- stjórar fá minja- gripi Öllum fyrrverandi borgarstjór- um Reykjavíkurborgar voru í gær gefnir sérstakir minnispeningar sem gerðir hafa verið í tilefni þess að í ár fagnar borgin 200 ára afmæli sínu. Voru peningarnir afhentir við hátíðlega athöfn í borgarstjórnar- salnum í Skúlatúni í Reykjavík að viðstöddum reykvískum blaða- og fréttamönnum ásamt kollegum þeirra víðs vegar af landinu. Við þetta tækifæri sagði Davíð Oddsson borgarstjóri að blaða- mönnum landsbyggðarinnar hefði verið sérstaklega boðið til borgar- innar til þess að kynna sér undir- búning og framkvæmd afmælishá- tíðarinnar, vegna þess að hér væri um afmæli höfuðborgar alira fs- lendinga að ræða, ekki bara þeirra íslendinga sem byggju í Reykja- vík. Kvaðst hann og afmælisnefnd- in öll vilja draga úr þeirri togstreitu landsbyggðar og borgar sem oft og tíðum hafi gert vart við sig, með því að tryggja að hátíðahöldin verði kynnt öllum landsmönnum. Tilefni þess að borgarstjórunum fjórum, þeim Auði Auðuns, Geir Hallgrímssyni, Birgi ísleifi Gunn- arssyni og Agli Skúla Ingibergs- syni voru færðir minnispeningarn- ir var að í gær hófst sala þeirra ásamt öðrum minjagripum til al- mennings. Minnispeninga er hægt að fá bæði úr silfri og bronsi, ýmist sitt í hvoru lagi eða saman í öskju. Ekki verða gefin út fleiri en 3000 eintök og eru þau tölusett, en pen- ing númer eitt fékk Vigdís Finn- bogadóttir forseti og eintök númer 2-5 voru síðan afhent borgar- stjórunum í gær. Við úrvinnslu könnunarinnar myndaði Verðlagsstofnun „inn- kaupakörfu" eða innkaupalista miðaðan við almenn mat- og hreinlætisvöruinnkaup 4ra manna fjölskyldu í einn mánuð. Á listanum voru rúmlega 60 vörutegundir og það magn af hverri sem áætlað var eðlilegt fyrir 4ra manna fjölskyld- una. Verðið var kannað í 50 versl- unum á höfuðborgarsvæðinu og valin þau vörumerki sem ódýrust voru í hverri verslun. f ódýrustu búðinni fékkst þessi mánaðarskammtur fyrir 20.800 kr. en í Ireirri dýrustu 26.100 krónur. Munurinn var 5.300 krónur, eða 26% sem þannig mátti spara með því einu að kaupa ódýrustu pakkningarnar í ódýrustu verslun- inni, í stað þess að grípa það sem hendi var næst. Athygli skal vakin á að í þcssari „innkaupakörfu" var vitanlega mikið al'mjólk og öðrum vörum sem kosta allsstaöar það santa og verðmunurinn því raun- verulega mun meiri ef aðeins voru teknar vörurnar með „frjálsu" álagningunni. Miðað við hæsta og lægsta verð innan sömu vcrslunar fannst 15% verðmunur á „innkaupakörfunni". Á ársútgjöldum 4ra manna fjöl- skyldu getur því munað upp í 40 þús. krónum hvort keyptar cru ódýrustu eða dýrustu tegundirnar (vörumerkin) í einni og sömu búð- inni, eins og dæmin hér framar sýna. Verðlagsstofnun í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins vinnur nú að miklu átaki í verðlagsmálum og mun á báðum vígstöðvum verða fylgst grannt með þróun mála á næstunni. -HEI Lögreglan missir menn: Víkingasveitin hætt - átta af tólf meðlimum farnir Víkingasveit lögreglunnar í Reykjavík heyrirnú fortíðinni til. Af þessari vel þjálfuðu tólf manna sveit eru nú fjórir menn eftir. Sjö eru þegar hættir hjá lög- reglunni og sá áttundi hefur sagt upp störfum og hættir í vor. Tím- inn fékk staðfestingu á þessum upplýsingum hjá Einari Bjarna- syni lögregluvarðstjóra í gær. Þá segja heimildir Tímans að svipað ástand sé hjá fíkni- efnadeild lögreglunnar, að flestir af vönustu mönnum deildarinnar hafi sagt upp eða hafi það í hyggju. Tíminn hefur undanfarið sagt frá flótta úr lögregluliðum víðsvegar umlándið. Nú er svo komið að þessi flótti hefur lamað nokkrar deildir lögreglunnar. Menntun og þjálfun vík- ingasveitarmanns er dýr, kostar allt að tveimur milljónum króna, á meðan menntun almenns lög- regluþjóns kostar um fimm hundruð þúsund krónur. Það verður því dýrt fyrir lög- regluembættið ef endurreisa á Víkingasveitina. -ES

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.