Tíminn - 20.03.1986, Blaðsíða 11

Tíminn - 20.03.1986, Blaðsíða 11
Tíminn 11 Fimmtudagur 20. mars 1986 MINNING minningarræðu. að ekki færri en 90 börn hefðu notið dvalar á Sunnu- hvoli um lengri eða skemmri tíma hjá þeim hjónum og segir það nokkra sögu. og ekki síst um húsbóndann. Notalegt er það á tímum þeirra sí- felldu svigurmæla um oss eiginmenn og feður með nafngiftum slíkum sem „karlrembusvín" og viðhöfð jafnvel á þjóðarþingum. Gunnlaugur var mörg ár í ung- mennafélaginu „Einingin " og var þar í stjórn og þátitt sinn málshefj- andi til að lífga umræður á fundi og talaði fyrir flutningi fólks af Islandi til hagstæðari landkosta sem auðvelt væri að finna. Að uniræðu lokinni og eftir áeggjan fundarstjóra, sem var Karl á Mýri orti hann þessa vísu, sem lærð var þegar og sungin þar á staðnum: Blómgist allt í Bárðardal bjóði öllum gœfultagi skorti aldrei skemmtisal skuldir kvelji engan lial. Breiðist um þig blómaval bltða vors í hœsta lagi. Blessist allt í Bárðardal bjóði öllum gœfuhagi. Og þegar Bretar börðu á íslend- ingum í landhelgisdeilunni þá lagði hann þetta til mála: Herlu þig norðri - hertu á hrektu þá bresku dalla þangað sem engan fisk er að fá og fjandinn hirði þá alla. Og þegar Baldur bróðir Gunn- laugs var sextugur sagði hann þetta við hann: Hafið árið nýtt er nú njóttu þess best af öllum. Þitt sé dalsins besta bú Baldttr á Stóruvöllum. Nokkur ár var Gunnlaugur í sveit- arstjórn, en það voru ekki ár vel- megunar ellegar viðburðarmikilla daga alltaf, en þó áttum við þar eftir- minnilegar umræðursaman um eins- konar sjúkra- ellegar hjúkrunarfé- lag í okkar hrepp, þó ekki markaði djúp spor, enda drjúglöng mannsævi síðan var-og löng leið til hinna rúm- góðu trygginga. Og svo var það vorið 1928 og reyndar fleiri vor þar í kring ef segja má. Það hafði með vissum hætti risið upp ný morgunsól yfir íslensku þjóð- lífi árið 1927. Mcð pólitísku geisla- skini sem stráð var yfir gjörvalla þjóð var hafin vakningaralda sú er leiddi af sér undursamleg mannaverk á næstu árurn. Ekki þar fyrir sú himin- sól sem stundum er getið um á björt- um morgnum að ljómi um hverfið í nálægð við ntargnefnda Skúlagötu, hún ljómaði líka þá eins og nú. Og í bæði skiptin fram undan hin óvið- jafnanlega hátíð á Þingvöllum: árið 1930 og væntanlega árið 2000. En þegar Bjarni Runólfsson frá Hólmi í Landbroti í Skaftafellssýslu, mætir til verks í Bárðardal í maímán- uði vorið 1928 og hafði meðferðis eða í eftirdragi nokkrar heimilisraf- stöðvar, sem hann hafði áður valið stað fyrir, þá var Bjarni og allt hans föruneyti í samverki við þetta mikla sólskin, og hafði auk þess miklar birgðir meðferðis að létta ofurlitlum hópi fólks langa skammdegisvetra. Það er mikil upplifun að lesa í dag- bókum Þórólfs bróður míns í Stóru- tungu, frásagnir um þessa viðburði. Það mega heita hópferðir að vinnustöðum Bjarna og manna hans, svo þótti þetta allt merkilegt. Þar eru í för menn sem urðu héraðskunnir með skjótum hætti eins og þeir Þorgeir Jakobsson frá Haga, Jón Sig- urgeirsson á Helluvaði og Gunnlaug- ur á Sigurðarstöðum, þar sem ein þessi rafstöð var ( uppsetningu, og var gangsett hinn 25. júní. Og Þór- ólfur í Stórutungu sem vel má njóta dagbókar sinnar og einnig þess að hafa verið meðal hinna hugkvæmu áhugamanna þessa tíma, hann skrif- ar hinn 29. júní 1928. „Rafvélarnar voru settar af stað og gekk það vel og komu Ijós og hiti á vél. Stöðin upp- komin kostar ca. 4500 krónur." Og enn segir Þórólfur: „Stöðvarnar reynast ágætlega, búnir að setja upp 8 og eiga eftir 1, allar hér í sýslunni." En hlutverki Gunnlaugs varðandi rafstöðvarbyggingar var ekki lokið hér með því hann vann að byggingu fleiri stöðva bæði í Bárðardal og utan hans, en frægastur þó af Víðikersraf- stöðinni sem hann átti mikinn hlut að sumarið 1930. Og þegarallt áað vera tilbúið og stóra brúðkaupsveislan þeirra Kára og Margrétar á að hcfj- ast þar heima í nýja húsinu hinn 30. ágúst að ég held. Þá er djnamórinn brotinn, alveg eins og áður var hjá Bjarna Runólfssyni með Stóru- tungudínamóinn 1928, og hann þá logsauð gripinn þar úti á fljótsbakka undir beru lofti og gerði sem hcilan. Gunnlaugi varð að nægja í bráð gamla leiðin, hann boraði með „brjóstbor" batt saman með vír. og það var gift og dansað við rafljós og ég trúi að allt það lof og þakklæti sem eftir fylgdi liafi lengi enst. Líklega hefur svo eitt síðast verka Gunnlaugs og þeirra Sigurðarstaða- manna að orkumálum verið að endurbyggja gömlu rafstöðina þar frá árinu 1928. Það gerðist árið 1958 og enn þeytir vatnshjólið hans Bjarna vatninu og mokar upp þess- um „hvítu kolum" sem Sigfús á Grýtubakka skrifaði eitt sinn um, og gangráðurinn sem Jón í Árteigi lagði þarna í púkkið varð þar ein dverga- smíðin til. - Víða má sjá í túnum, gömul, lítil steinhús af svipaðri gerð, sem áður hvinu af vélarhljóði en eru nú köld og hljóð, kannski með hrúts- magál í reyk á haustin eins og hérna niður á túninu, þar sem jafnvel Gvendarbrunnur er þurr í mínu Frcmstafelli. Ef svo Gunnlaugi á Sunnuhvoli mislíkaði þetta fjas í mér sem er hon- um ólíkt, þá getum við rætt það seinna ef, - nú við vorum heldur ekki ævinlega sammála í gamla daga. En ég hefi vakið athygli á þessurn manni, sem var í frændsemi við Jón í Möðrudal og við báðir meira að segja. En mikið á ég öllum þeim að þakka sem leiddi til þcss að ég sat á þóftu hjá Bjarna Runólfssyni í bát- kríli, sem þó hét lögferja, yfir Skjálf- andafljót og hann sagði mér nokkuð frá félagsskap sínum við „hestaflið", en var þó enn að bæta við safngripi sína, sem áðurergetið, en þá var það rafstöðin á Stóruvöllum, sem bættist við. Áratugir liðu frá Kaupangsóhapp- inu þar til Gunnlaugur leitaði við- gerðar á sinni eða sínuni mjöðmum, en ég hitti hann einna síðast þá. - Einhver hefði kennt slíkt ástand til örkumla, en það fer þá eftir því hver í hlut á, og veit ég nokkuð um það, og einnig frá annarri og eldri tíð. Hversu mörg ár sem þau bjuggu á Akureyri Ardís og Gunnlaugur í sinni rúmgóðu íbúð þar til yfirlauk, þykir mér ekki líklegt að það verði þeirra síðastur Sunnuhvoll. Að svo mæltu bið ég Gunnlaug og þau hin öll, að virða þessi orð mín til liins betra og mælist til þess við for- lögin að þau megi góðs lífs njóta. 24. febrúar 1986 Jón Jónsson Frcmstafelli. Drekkum mjólk daglega Talið er að þriðjungur kvenna yfir sextugu þjáist af beinþynningu Afleiðingar beinþynningar geta orðið ískyggilegar; alvarleg bœklun vegna minnstu áfalla, þvf beinin verða stökk og gróa seint og illa Mjólk í hvert mál Aldurshópur Ráðlagður dagskammtur af kalkiímg Samsvarandi kalk- skammtur (mjólkur- glösum (2,5 dl glös)* Lágmarks- skammturf mjólkurglösum (2,5 dl glös)** Böm l-10ára 800 3 2 Unglingarn-18ára 1200 4 3 Ungtfólkogfullorðlð 800"* 3 2 Ófrískar konur og brjóstmœður 1200**“ 4 3 saman. Tíðni beinþynningar hjá körlum er miklu minni en afleiðingarnar ekki síður slœmar. Með að minnsta kosti tveimur mjólkurglösum á dag má spoma gegn kalkskortinum og vinna þannig á móti þessum óvœgna hrörnunarsjúkdómi og afieiðing- um hans. Fyrir þennan aldurshóp er mœlt með léttmjólk eða undanrennu fremur en fullfeitri mjólk. ' Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk, eða undanrenna * Hér ©r gert ráð fyrir að allur dagskammturinn af kalkl komi úr mjólk. “ Að sjálfsögðu ©r mágulegt að fá allt kalk s©m likamlnn þarf úr öðrum matvœlum ©n mjólkurmat ©n slíkt krefst nákvœmrar þekkingar á nœringarfrc©ði. Hór ©r mlðaö vlð neysluvenjur ©Ins og þœr tíökast I dag hér á landl. *** Marglrsórfrœðlngartelja nú að kalkþörf kvenna ©ftirtíðahvörf só mun melri ©ða 1200-1500 mg á dag. **** Nýjustu staðlar fyrir RDS í Bandaríkjunum gera ráð fyrir 1200 til 1600 mg á dag fyrir þennan hóp. Mjólk inniheldur meira kalk en nœr allar aðrar fœðutegundlr og auk þess B-vrtamln, A-vítamín, kallum, magnlum, zink og fleiri efni. Um 99% af kalkinu notar llkaminn til vaxtar og við- halds beina og tanna. Tœplega 1 % er uppleyst I líkamsvökvum, holdvefjum og frumuhimnum, og er það nauðsynlegt m.a. fyrir þlóð- storknun, vöðvasamdrátt, hjartastarf- semi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum efnaskiptahvðtum. Til þess að líkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D-vítamln, sem hann fœr m.a. með sólþöðum og úr ýmsum fœðutegundum, t.d. lýsi. Neysla annarra fœðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300-400 mg á dag, en það er langt undlr ráðlögðum dagskammti. Úr mjólkurmat fœst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr u.þ.þ. þremur glösum af mjólk. Helstu hemikír Bækfngurinn Kak og beinþynning eftir dr. Jón Ragnarsson og Nutrition and Physical Fitness, 11. útg., eftir Briggs og Calbway, Holt Reinhardt and Winston, 1984. MJÓLKURDAGSNEFND

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.