Tíminn - 20.03.1986, Blaðsíða 8

Tíminn - 20.03.1986, Blaðsíða 8
8 Tíminn Fimmtudagur 20. mars 1986 Stjórnarfrumvarp um skógvernd og skógrækt Lagt hefur verið fram í neðri deild Alþingis stjórnarfrumvarp um skóg- vernd og skógrækt. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að markmið væntan- legra laga verði að vernda, auka og bæta skóglendi, að stuðla að ræktun nýrra skóga þar sem það er talið hagkvæmt, og að frætt verði og leið- beint um meðferð og ræktun skóga, skjólbelta og annars trjágróðurs. I frumvarpinu er stuðst við eftir- farandi skýrgreiningar: skóglendi telst land sem að mestu eða öllu leyti er vaxið trjágróðri, náttúrulcgum eða ræktuðum skógi eða kjarri, skógarjörð telst vera jörð eða jarð- arhluti, þarsem skógurerræktaðurá 25 ha lands eða meira, nytjaskógur telst vcra skógur að nánar tilteknu lágmarksflatarmáli, sem ræktaður er til búdrýginda og framleiðslu skóg- arafurða, skjólbelti telst röð eða rað- ir af trjám og runnum, sem ræktaðar eru til þess að draga úr vindhraða á nálægum svæðurn, skógarlundur telst land þar scm skógur er ræktaður á 3-25 ha lands, löggirðing er girðing sem er gerð skv. ákvæðum girðingar- laga. í frumvarpinu er landbúnaðar- ráðherra ætluð yfirstjórn skógrækt- armála. Hins vegar er Skógrækt ríkisins ætluð framkvæmd væntan- legra laga. Meðal ákvæða um meðferð skóg- lendis má nefna að gert er ráð fyrir að eiganda eða notanda skóglendis sé skylt að takmarka svo notkun þess að það rýrni ekki að stærð eða gæðum, að skóg megi ekki höggva nema fyrir liggi samþykki Skógrækt- ar ríkisins og að nýr skógur verði ræktaður í stað þess höggna. -SS Aðstandendur þjóðarsöfnunar Krabbameinsfélagsins á íslandi, með veggspjald sem minnir á söfnunina: Frá vinstri eru Snorri Ingimarsson forstjóri Krabbameinsfélagsins, Pétur Kristjánsson svæðisstjóri JC Reykjavík, Geirlaug Ottósdóttir starfsmaður söfnunarinnar og Árni Gunnarsson frainkvæmdastjóri söfnunarinnar. Tímamynd: Sverrir Norrænt átak gegn krabbameini: „Þjóðarátak - þín vegna“ Landssöfnun á vegum Krabbameinsfélagsins í apríl Landssöfnun á vegum Krabba- méinsfélags íslands fer fram dag- ana 12.-13. apríl undir kjörorðinu „Þjóðarátak gegn krabbameini - þín vegna." Sömu daga fer slík söfnun einnig fram á Norður- löndunum og er liður í heildarátaki sem Norðurlandaráð átti frum- kvæðið að, og er það til eflingar krabbameinsrannsóknum og vörnum. Þeir fjármunir sem safnast verða eingöngu notaðir til þeirra verk- efna sem Krabbameinsfélagið er byrjað á, t.d. hverskonar hóprann- sókna, leit að leghálskrabbameini, brjóstkrabbameini og leit að æxl- um í ristli og endaþarmi. Einnig þarf að festa kaup á leitartækjum utan höfuðborgarinnar og auka fræðslu um áhættuþætti krabba- meins. Þjóðhöfðingjar allra Norður- landanna eru verndarar átaksins sem nú fer fram og forsætisráðherr- ar skipa sérstaka stuðningsnefnd. JC-hreyfingin hefur tekið að sér að skipuleggja starfið söfnunardagana tvo, í samvinnu við mörg kvenfélög og aðildarfélög Krabbameinsfé- lagsins úti á landi. t>ó vantar enn sjálfboðaliða til söfnunar og eru það vinsamleg tilmæli Krabba- meinsfélagsins að þeir sem vilja hjálpa til gefi sig fram í síma 21122 eða 621414. Nýr veitinga- staður Skagamanna Opnaður var nýr veitingastaður á Akranesi um helgina. Á mynd- inni sjást eigendurnir Sigurvin G. Gunnarsson matreiðslumaður og Egill Egilsson veitingamaður fyr- ir utan veitingahúsið Stillholt. Húsið er á tveimur hæðum og verður danssalur og fullkomin veitingaaðstaða á efri hæðinni. Neðri hæðin er enn ekki fullfrá- gengin en verið er að leggja síð- ustu hönd á innréttingar á grillstað, sem Egill veitingamað- ur sagði í samtali við Tímann að yrði opnaður í vor. -ES/Tímamynd Róbert Nanna Leifsdóttir, skíðakona, bíður hér eftir að frauðkvoðan í skíðaskónum stífni. Heimilisvörudeild Sambandsins: GAF SKÍÐADEILD ÍR SKÍÐI 0G SKÓ Frönsku Dynastar skíðin og Trappeur skíðaskór eru þekktar skíðavörur. Pessir framleiðendur leggja árlega nokkurn styrk til ís- lenskrar skíðaiðkunar í formi gjafa og nú nýlega afhenti Heimilisvöru- deild Sambandsins skíðadeild ÍR fjögur sett af skíðum og skóm frá þessum frönsku fyrirtækjum og tóku kennarar skíðadeildar ÍR við gjöfun- um. Skíðin eru af gerðinni Dynastar Course SL en skórnir eru kvoðufyllt- ir Trappeur Carbon skór. Slíkir skór eru nánast sérsteyptir fyrir hvern notanda þannig að „sokkur er fylltur með hraðharðnandi frauðplasti sem lagar sig eftir fætinum. Borgarspítalinn: OPNAR NÝTT HÚSNÆDI FYRIR SJÚKRAÞJÁLFUN Nýtt húsnæði var opnað nýlega fyrir sjúkraþjálfun Borgarspftalans, í nýbyggðri B-álmu spítalans. Fram- kvæmdir við B-álmu hófust 1977 og húsið fokhelt í mars 1982 og tilbúið undir tréverk og málningu á árinu 1983. Verkinu lauk í desember 1985. Það sem af er árinu 1986 hefur ver- ið keyptur búnaður og nauðsynleg- ustu tæki. Einnig hefur farið fram flutningur úr turni spítalans, þar sem sjúkraþjálfunin bjó við mjög þröng- ar aðstæður. í dag starfa í aðalbyggingunni sj úkraþj álfarar í 8 stöðum og aðstoð- armenn í 4 stöðum, þar með talinn starfsmannasjúkraþjálfari sem vinn- ur að því að sporna við atvinnusjúk- dómum starfsfólks á öllum deildum spítalans. Æfingarsalurinn er um 130 m2 og mögulegt er að skipta honum í tvennt með rennihurð. Líklegt er að hægt sé að sinna um 60 manns í einstaklingsmeðferðum á dag frá kl. 8.00-16.00. Þess má geta að það hefur þegar komið í ljós að á þessum örfáum dögum síðan starfsemin hófst á svæðinu, hefur þjónustan við gamla ■jfólkið í B-álmu verið stórbætt og aukin. Það var miklum erfiðleikum bundið að flytja fólkið upp á 11. hæð með óþægilegri lyftu og auk þess sem þrengsli voru mikil þar. í stjórn Borgarspítalans sitja: Páll Gíslason, formaður, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Eygló Stefánsdóttir, Ásgeir Ellertsson, Ingibjörg Stefáns- dóttir, framkvæmdastjóri Borgar- spítalans er Jóhannes Pálmason lög- fræðingur. -SJ Hér sést starfsfólk Borgarspítalans skoða og pnrfa nýju aðstöðu Sjúkra- þjálfunardeildar Borgarspítalans sem opnuð var nýlega.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.