Tíminn - 20.03.1986, Qupperneq 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 20. mars 1986
Lögtök
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurði verða lögtök látin fram fara án
frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en ábyrgð
ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu aug-
lýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Söluskatti fyrir okt., nóv. og des. 1985, svo og sölu-
skattshækkunum, álögðum 27. nóv. 1985 - 14.
mars 1986; vörugjaldi af innlendri framleiðslu fyrir
okt., nóv. og des. 1985; skipulagsgjaldi af nýbygg-
ingum, gjaldföllnu 1985; þungaskatti af dísilbifreið-
um fyrir árið 1986 og skoðunargjaldi bifreiða og
vátryggingariðgjaldi ökumanna fyrir árið 1986;
mælagjaldi af dísilbifreiðum, gjaldföllnu 11. febr.
1986, aðflutningsgjöldum 1985, svo og skemmt-
anaskatti fyrir árið 1985.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
14. mars 1986.
^rarik úthnA
N RAFMAGNSVEITUR RlKISINS U IUUU
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftir-
farandi: Rarik-86003: Háspennuskápar 12 kV í
dreifistöðvar.
Opnunardagur: Fimmtudagur 17. apríl 1986, kl.
14.00.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá og með
fimmtudegi 20. mars 1986 og kosta kr. 200,- hvert
eintak.
Reykjavík 17. mars 1986
Rafmagnsveitur ríkisins
F býður þér þjónustu sína við ny-
byggingar eða endurbætur eldra húsnæðis
Við sögum í steinsteypu fyrir dyrum, gluggum, stigaopum, lögnum
- bæði í vegg og gólf.
Ennfremur kjafnaborum við fyrir lögnum í veggi og gólf.
Þvermál boranna 28 mm til 500 mm.
Þá sögum við malbik og ef þú þarft að láta fjarlægja reykháfinn þá,
tökum við það að okkur.
Hifir leitast við að leysa vanda þinn fljótt og vel, hvar sem þu ert
búsettur á landinu.
Greiðsluskilmálar við allra hæfi
Fífuseli 12
109 Reykjavík
sími91-73747
Bílasími 002-2183
Lögvemdun á starfs heiti kennara:
Almennur stuðningur
við stjórnarfrumvarpið
Svcrrir Hermannsson menntamála-
ráðherra mælti fyrir frumvarpi um
lögverndun á starfsheiti kennara og
skólastjóra í neðri deild Alþingis í
gær. í kjölfar þess fylgdu nokkrar
umræður þar sem fram kom almenn-
ur vilji til að hraða afgreiðslu
málsins.
Sverrir Hermannsson hóf mál sitt
með því að greina frá efnisatriðum
fruntvarpsins og aðdragana þess að
það var lagt fram. Hann viðurkenndi
að það hefði dregist úr hömlu að
mæla fyrir því en kvaðst Itafa lagt til
við formann menntamálanefndar
neðri deildar að afgreiðslu þess yrði
hraðað fyrir þinglok með því að
konta á sameiginlegri umfjöllun
þeirrar nefndar og menntamála-
nefndar efri deildar um frumvarpið..
Sverrir bætti því við að hann liti svo á
að samþykkt þess væri hluti af ný-
gerðunt kjarasamningum við
kennara.
Páll Pétursson tók næstur til máls
og lýsti yfir stuðningi sínum við
fruntvarpið og sagði það rétt að
koma til móts við þetta gantla
baráttumál kenhara. Sjálfsagt væri
að efla menntun í landinu án þess að
réttindi væru tekin af þeim sem nú
skipa stööur án þeirra. Páll sagði
ennfremur að kennarastarfið væri í
sjálfu sér mjög mikilvægt og lögfest-
ing á fruntvarpinu væri staðfesting á
því. Hins vegar bæri að muna að rétt-
indalaust fólk hefði unniðprýðisgott
starf víða í skólum úti á landi.
Hjörlcifur Guttormsson sagðist
hljóta að gleðjast yfir því að þetta
fruntvarp sem lagt var fram 20. febrú
ar s.l. væri nú tekið á dagskrá þó
seint væri. Ef einhugur væri um þetta
ntál í báðum deildum þingsins þá ætti
frumvarpið að geta orðið að lögum
hið fyrsta. Hann sagði að hér væri til
meðferðar mál sem varðaði ekki ein-
vörðungu kennara heldur nemendur,
foreldra og landsmenn alla og þess
væri að vænta að sú skipan sem gerð
væri tillaga um hlyti að bæta skóla-
starf allt og kjör kennarastéttarinn-
ar. Hjörleifur kvaðst vonast til að
samþykkt fruntvarpsins yrði til að
binda enda á þá öfugþróun sent fælist
í því að launakjör og bágar aðstæður
hrektu menntaða kennara í önnur
störf.
Guðrún Agnarsdóttir steig í
ræðustól og sagði að lögverndun á
starfsheiti kennara hefði um árabil
verið eitt helsta baráttumál þeirra.
Vanmat á starfi þeirra hefði skilað
sér í lágum launum og flótta úr stétt-
inni. Réttindalausir einstaklingar
hefðu svo tekið að sér kennslu t.d. til
að bjarga dreifbyggðum landshlut-
um frá neyð. Hún bætti við að það
væri því löngu tímabært að frumvarp
þetta væri lagt fram.
Guðrún sagðist geta sætt sig við
meginatriðin í frumvarpinu en að
frekari athugasemdir yrðu gerðar
sfðar í umræðum. Hún fór fram á
það að fá að sitja fundi menntamála-
nefndar sem áheyrnarfulltrúi meðan
fjallað væri um málið, þar sem
Kvennalistinn ætti engan fulltrúa
þar.
Bjarni Guðnason sagðist geta lýst
yfir stuðningi sínum við þetta
frumvarp. Þó svo að ráðherra hefði
lýst því yfir að þetta væri hluti af
kjarasantningum kennara, þá yrðu
menn að gera sér fulla grein fyrir því
að það Itefði komið í hlut kennara að
berjast fyrir þessum starfsréttindum
sínum og að ekki væri um einkamál
einnar starfsstéttar að ræða heldur
þjóðarinnar allrar.
Bjarni sagði að það gegndi furðu
að þetta frumvarp hefði ekki verið
lagt fram fyrr. Launamál kennara
væru fslendingum til háborinnar
skammar. Ráðamönnum þætti hæfa
að greiða bifreiðastyrki fyrir banka-
stjóra sem næmu 15 árslaunum
kennara og eðlilegt að senda ráð-
herra til Kóreu til að „bjarga sjálf-
stæði þjóðarinnar" fyrir upphæð sem
næmi 25 mánaðarlaunum kennara. í
lok niáls síns gagnrýndi Bjarni nokk-
uð ákvæði í frumvarpinu um tilskilin
einingafjölda í uppeldis- og kennslu-
fræðum.
Sverrir Hermannsson þakkaði
góðar undirtektir og sagðist vona að
frumvarpið fengi skjótan framgang.
Sjálfur kvaðst hann ætla að beita sér
fyrir því að fulltrúi Kvennalistans fái
inni í menntamálanefnd neðri deild-
ar meðan málið verður í umfjöllun.
Ráðherra bætti því við að augu al-
mennings væru að opnast fyrir al-
vöru málsins og því nyti það mikils
skilnings í hvívetna. -SS
Mjólk á Grænlandi
og ferð Steingríms
Tvær fyrirspurnir hafa verið
lagðar fram á Alþingi. Annars veg-
ar um sölu mjólkur til Grænlands
og hins vegar um viðrstður
forsætisráðherra við Alusuisse.
í fyrirspurn sinni til landbúnað-
arráðherra innir Guðrún Agnars-
dóttir hann eftir því hvort að land-
búnaðarráðuneytið hafi látið
kanna ntöguleika á því að selja
íslenska mjólk og mjólkurafurðir
til Grænlands.
í fyrirspurn til forsætisráðhcrra
spyrja þeir Svavar Gestsson og
Kjartan Jóhannsson hvert tilefni
ferðar forsætisráðherra hafi verið
til Sviss í fyrri hluta marsmánaðar
og hvenær ferðin hafi verið ákveð-
in. Pá vilja þeir vita hvort að for-
sætisráðherra fór til þessara við-
ræðnavið Alusuisse í umboði iðn-
aðarráðherra eða í samráði við
hann. Hversu margir fundir hafi
verið haldnir og hversuTengi þeir
hafi staðið, hvaða forystumenn
Alusuisse hafi sótt þá og hver hafi
verið niðurstaða viðræðnanna.
Loks spyrja þihgmennirnir tveir
hvort fjallað hafi verið um niður-
stöður viðræðnanna í ríkisstjórn
þegar fyrirspurnin er lögð frant.
-SS
KRANALEIGA • STEINSTEYPUSÖGUN • KJARNABORUN
BÍLALEIGA
Útibú / kringum landið
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:.......96-21715/23515
BORGARNES:............ 93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:.....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.... 97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303
interRent
VÉLSLEDA
ÞJÓNUSTAN
Viögeröaþjónusta fyrir vélsleöa
og minni háttar snjóruöningstæki
FRAMTÆKNI s/f
Skemmuveg 34 N -
200 Kópavogur
Simi64 10 55
Aðalfundur
Aðalfundur hf. Skallagríms veröur haldinn föstu-
daginn 11. apríl 1986, kl. 14.00 að Heiðarbraut 40.
Akranesi (bókasafn Akraness).
Dagskrá.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Nú skuluni við sýna þeim réttu sveifluna!