Tíminn - 20.03.1986, Síða 3
Fimmtudagur20. mars 1986
Póstur og sími
heldur Sigtúni
Aðalfundur VMS:
Ánægja með samningana
Aðalfundur Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna var
haldinn í gær. Auk venjulegra
aðalfundastarfa fóru fram skipu-
legar umræður um áhrif kjara-
samninganna á atvinnulífið eink-
um með tilliti til þess atvinnu-
rekstrar sem aðiiar Vinnumála-
sambandsins stunda. Fulltrúar
hinna ýmsu greina höfðu framsögu
í þessari umræðu og kom fram, að
almennt eru samvinnumenn
ánægðir með að þessi tilraun hafi
verið gerð, þó hún komi sér mis-
jafnlega vel fyrir greinarnar.
Þó komu fram áhyggjur vegna
þróunar vaxtámála þar sem ekki
væri fyrirsjáanlegt að raunvextir
lækkuðu strax og því gætu sumar
greinar sem þyrftu á fjármagni að
halda, s.s. vinnslustöðvar og verslun
lent í erfiðleikum á næstunni þar
sem ekki væri hægt að velta fjár-
magnskostnaði út í verðlagið. Hins
vegar virtust menn sammála um
það að þegar til lengri tíma væri lit-
ið hefði minnkandi verðbólga og sá
stöðugleiki sem fylgdi bætt áhrif á
umhverfi alls atvinnurekstrar.
f>á spunnust nokkrar umræður
um hvernig samvinnufyrirtæki
gætu á sem bestan hátt straumlínu-
lagað starfsemi sína, án þess að
minnka þá þjónustu sem þau veita
eða vanrækja það hlutverk sem þau
eiga að gegna, til þess að mæta auk-
inni samkeppni á ýmsum sviðum.
Komu þar m.a. fram hugmyndir
um aukið samstarf t.d. í flutninga-
málum þar sem sparnaður gæti
hlotist af samræmingu og skipu-
lagningu.
Stjórn Vinnumálasambandsins
er óbreytt en hana skipa, Þorsteinn
Ólafsson, formaður, Ólafur Sverr-
isson, Jón Alfreðsson, Gísli Har-
aldsson, Ólafur Ólafsson, Árni
Benediktsson og Gunnar V. Sig-
urðsson. Framkvæmdastjóri er
Hjörtur Eiríksson.
- BG
Innlenda mjólk
í matvælaiðnað
Jóhanna Leopoldsdóttir, vara-
þingmaður Alþýðubandalagsins,
hefur borið fram þingsályktunartil-
lögu í sameinuðu Alþingi um nýt-
ingu mjólkur í matvælaiðnaði. Til-
lagan gerir ráð fyrir að ríkisstjórn-
inni verðifalið að láta kanna hvernig
nýta megi mjólk og mjólkurvörur í
auknum mæli í innlendum mat-
vælaiðnaði í stað innfluttra mjólk-
urafurða.
f greinargerð að þingsályktunartil-
lögunni segir m.a.: „Nýlega hefur
komið fram í fréttum að mikið er
flutt til landsins af mjólk í formi
mjólkurafurða, svo sem brauðbæti-
efna. Samkvæmt upplýsingum frá
bökurum er þessi innflutningur, sem
nemur jafngildi milljóna lítra af
mjólk, einvörðungu til brauðgerðar.
Einnig er flutt inn mjólk í ýmsu öðru
formi, t.d. búðingum og barnaþurr-
mjólk. Samkvæmt upplýsingum
mjólkurfræðinga og matvælafræð-
inga er sú þekking, sem þarf til fram-
leiðslu þessara efna, til í landinu.
Ljóst er að fyrsta skrefið til aðgerða á
þessu sviði er könnun á notkun og
innflutningi mjólkur og mjóikur-
afurða til matvælaiðnaðar. Einnig
þarf að athuga hvernig best verður
staðið að því að koma á fót sem fjöl-
breyttastri framleiðslu slíkra vara
hér innanlands og hvernig* stuðla
megi að því að íslenskur matvæ-
laiðnaður noti innlend efni eftir því
sem frekast er kostur".
-SS.
Frá aðalfundi Vinnumálasambands samvinnufélaganna í gær.
Tímamynd-Sverrir
Tryggingafélögin:
Idgjalda-
hækkun19%
Eftir ósk Alþýðusambandsins
hafa tryggingafélögin nú fallist á
að iðgjald bifreiðatrygginga skuli
hækka um 19% f stað 22% sem
áður hafði verið ákveðið. Að
teknu tilliti til bónusgreiðslna
telja félögin þetta þýða 12-13%
hækkun að meðaltali í stað 15-
16% miðað við fyrri ákvörðun um
22% hækkun grunngjalda.
í bréfi frá tryggingafélögunum
til ASÍ segir að fyrri ákvörðun um
22% hækkun sé í algeru lág-
marki. Hins vegar varði miklu að
jákvæð viðhorf skapist gagnvart
tilraunum til minnkunar verðbólgu
og þar verði allir að leggja
sitt af mörkum til að árangur
náist. Lækkunin sé gerð í trausti
þess að markvissar aðgerðir verði
gerðar á árinu til að bæta umferð-
armenninguna.
-HEI
Óvíst um sölu hvalkjöts til Japan:
Hótanir Bandaríkjamanna
litnar alvarlegum augum
- segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra
í svari Halldórs Ásgrímssonar,
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn
Guðrúnar Helgadóttur um fjár-
mögnun rannsókna á hvalastofnin-
um, í sameinuðu Alþingi sl. þriðju-
dag, koin fram að Japanir eru tregir
til að heimila innflutning á hvalkjöti
nema fyrir liggi að sá innflutningur
muni ekki leiða til refsiaðgerða af
hálfu Bandaríkjamanna gegn fisk-
veiðum Japana sjálfra í bandarískri
lögsögu.
Halldór greindi frá því að í sept-
ember 1985 hefði fulltrúi japanska
sendiráðsins í Stokkhólmi afhent
sendiráði íslands þar í borg minn-
isblað þar sem því er lýst yfir að til að
forðast gagnaðgerðir Bandaríkja-
manna á grundvelli svokallaðra Pac-
kwood-Magnusson laga muni ríkis-
stjóm Japans tilneydd til að takmarka
innflutning á hvalkjöti sem fæst af
vísindaveiðum fslendinga. Síðar
fjölluðu þeir Pétur Thorsteinsson
sendiherra og Matthías Á. Mathies-
en viðskiptaráðherra um þetta mál í
viðræðum við japanska ráðamenn.
Sjávarútvegsráðherra bætti við að
enn ríkir nokkur óvissa um sölu á
þessu kjöti til Japans og hún því eng-
an veginn tryggð.
Halldór lagði á það áherslu í svari
sínu að það yrði litið mjög alvarleg-
um augum af íslenskum stjórnvöld-
um efbandarísk stjórnvöld ættu að-
ild að því að torvelda vísindaveiðar
íslendinga með hótunum gegn Jap-
önum.
- SS
Skákþing Norðlendinga:
Gylfi skákmeistari í 3. sinn
Frá frétlarítara Tímans í Skagafírði, Ö.Þ.:
Gylfi Pórhallsson frá Akureyri
varð öruggur sigurvegari á Skákþingi
Norðlendinga, sem lauk á Siglufirði á
sunnudag. Gylfi hlaut 6 vinninga úr 7
skákum og varð heilum vinningi ofan
við næstu keppendur. Þetta er í 3.
skipti sem Gylfi hlýtur titilinn „skák-
meistari Norðurlands", en hann
vann einnig árið 1980 og 1984.
í 2. sæti varð Jón Garðar Viðars-
son frá Akureyri með 5 vinninga, en
hann varð hærri á stigum en Örn Þór-
arinsson sem var í 3. sæti einnig með
5 vinninga. 1 4.-7. sæti urðu: Arnar
Þorsteinsson, Jón Árni Jónsson, Sig-
urjón Sigurbjörnsson og Þór Valtýs-
son, allir frá Akureyri með 4 og Ví
vinning.
Unglingameistari Norðurlands
varð Sigurður Gunnarsson frá Siglu-
firði eftir mjög harða baráttu við
Skapta Ingimarsson frá Akureyri.
Sigurður hlaut 8 og 'h vinning en
Bjarki 8 vinninga og réðust úrslit í
síðustu umferð í innbyrðis viðureign
þeirra félaga.
Hraðskákmeistari Norðurlands
varð Jón G. Viðarsson hlaut 14 og 'A
vinning af 18 mögulegum. Annar
varð Gylfi Þórhallsson og 3. Þór
Valtýsson. Hraðskákmeistari ung-
linga varð Bogi Pálsson með 10 vinn-
mga.
í motslok bauð bæjarstjórn Siglu-
fjarðar keppendum til kvöldverðar
að Hótel Höfn, og fór þar fram verð-
launaafhending og mótsslit. Skák-
stjóri var Albert Sigurðsson. Næsta
Norðurlandsmót í skák fer fram á
Raufarhöfn að ári.
Á fundi sameinaðs Alþingis á
þriðjudag var tekin fyrir fyrirspurn
Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur til
samgönguráðhcrra um nýtingu á
mötuneyti Pósts og síma í Thorvald-
sensstræti. Þarna var áður Sjálf-
stæðishúsið og Sigtún og munu
margir hafa rennt hýru auga til
húsnæðisins sem samkomuhúss til
flutnings leiklistar og tónlistar.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
mælti fyrir fyrirspurninni og sagði
það engum dyljast að mikil gróska
hefði verið í tónlistar- og leiklistarlífi
í Reykjavík á undanförnum árum.
Margir hópar áhugamanna sem
störfuðu að þessum málum ættu
hvergi í öruggt hús að venda, en
meðan svo væri ástatt standi hús
hér í miðborg Reykjavíkur sem gæti
leyst vandann. Þar væri prýðilegt
svið og sviðsaðstaða en húsið væri
eingöngu nýtt sem mötuneyti Pósts
og síma í hádeginu virka daga. Sig-
ríður benti á að menntamálaráð-
herra hefði ítrekað tekið undir þá
hugmynd að nýta húsið til eflingar
listum, en þar sem málefni Pósts og
síma heyrðu undir samgönguráð-
herra þá væri ákvörðunarvaldið í
,hans höndum.
Matthías Bjarnason samgöngu-
ráðherra sagði að þetta væri ekki í
fyrsta skipti sem svona ósk kæmi
fram, en þessu erindi hefði jafnan
verið synjað að ósk Pósts og síma.
Ráðherra kvaðst sjálfur vera hlynnt-
ur því að tilraun yrði gerð í þessu
sambandi, en hins vegar sagðist hann
ekki vilja ganga gegn skoðunum og
áhuga forráðamanna stofnunarinn-
ar. Að auki bæri að geta þess að það
væri misskilningur að húsið væri ein-
göngu nýtt í hádeginu.
Matthías sagði að hafa skyldi
hugfast að til þess að unnt væri að
halda tónleika eða leiksýningar í
húsinu þyrfti að gera gagngerar
breytingar á því með ærnum til-
kostnaði. Að því viðbættu sagðist
hann ekki treysta sér*til að standa
gegn þeim rökum sem forráðamenn
stofnunarinnar hafa fært gegn þess-
ari hugmynd.
Þeir Árni Johnsen og Helgi Seljan
gerðu örstuttar athugasemdir við
efni fyrirspurnarinnar og lýstu sig
hlynnta þeirri hugmynd að nýta hús-
ið á annan hátt en nú er gert. Fyrr-
nefndur gat þess sérstaklega að hann
vissi ekki til þess að Póstur og sími
stæði þar fyrir „logandi félagslífi".
-SS