Tíminn - 20.03.1986, Page 4
4 Tíminn
Hún Carla í „Staupasteini“
var barnshafandi í raun og veru
- atriðin í sjón-
varpsþáttunum
voru umskrifuðtil
að þau pössuðu
við meðgöngu-
tíma leikkonunn-
ar Rea Perlman,
sem leikur hina
ógleymanlegu
gengilbeinu
Carla
Þau cru mjög áþckk hjónakornin Rhea Perlman og Danny Dc Vito, bæði
lágvaxin, kát og hress frá New York og voru ákveðin að koma sér áfram í
kvikmyndum.
SJÓNVARPSÁHORFENDUR
hér á landi kannast orðið vel
við leikkonuna Rhea Perlman sem
leikur ffammistöðustúíkuna Carla
í „Staupastcini". Síðast þegar hún
sást á skjánum var hún „komin
langt á leið.“
Pað var ekki leikur, því aö
lcikkonan gckk með barn um þetta
leyti sjálf. Paö var systir hennar
Hcidc, sem bjargaði málunum með
því að endurrita þættina, en hún er
Það liggur heldur illa á frammi-
stöðustúlkunni henni Carb Tor-
telli í Staupastcini þarna. Hún er
„samanbitin“ á svipinn.
höfundur að sjönvarpsþáttunum
„Cheers".
Rhea Perlman er ekki hávaxin,
eins og þeir vita sem hafa horft á
Staupastein, - en eiginmaður
hennar, leikarinn Danny De Vito
(Martini í Gaukshreiðrinu o.fl.) er
þó aðeins lágvaxnari en hún! Þau
höfðu búið saman í 11 ár þegar
þeim fannst allt í einu að þau yrðu
nú að láta verða af því að gifta sig.
„Það var eins og atriði úr einhverj-
um grínþætti, t.d. Staupastcini,
þegar við rukum til og létum gifta
okkur. Ég var m.a.s. í lánskjól. því
ég komst ekki í neinn almennilegan
kjól sem ég átti," sagði Rhea hlæj-
andi, þegar hún talar um brúð-
kaupið.
Flókin fjölskyldu
samsetning
», j
LEE PEARCE er rétt eins og
hver annar umhyggjusamur
nútímafaðir. Þcgar hann hefurlok-
ið við að skipta æfðum höndum um
bleiu á Natan litla, 15 mánaða
gömlum syni sínum, tekur hann
yngri son sinn Paul, 5 ntánaða
gamlan, upp úr barnavagninum
jafn fagmannlega, gefur honum
pelann, lætur hann ropa og umvef-
ur hann hlýjunt örmum.
Alvanaleg sjón, en þó er ekki allt
venjulcgt í þessari fjölskyldu. Lee
er nefnilega ekki ncma 16 ára
gamall, þó að útlitið bendi kannski
til annars. Hann er yfir 180 cnt hár
og samsvarar sér vel. Ann Dyke,
barnsntóðir hans, er þrítug að
aldri, gift og Tnóðir besta vinar
Lees.
Eins og að líkum lætur hafa ná-
grannar og aðrir sem álíta sér málið
skylt ekki látið sér þessa fjölskyldu
afskiptalausa. Hún verður fyrir
meira og minna aðkasti. Og liggur
vel við höggi, því að enn er ekki öll
sagan sögð.
í næsta húsi við Ann og Lee býr
Litlu synirnir tvcir livílu í fangi'
foreldra sinna, en hálfbræö-
urnir fá líka að vcra með á fjöl-
skylduniyndinni. Sá eldri
þeirra er besti vinur föðurins
unga, en heimilisfriðurinn er
stunduni rofinn þcgar stjúpinn
þarf.að aga strákinn.
maður Ann, sent Hún hefur að vísu
skilið við að borði og sæng, ásamt
kærustu og dóttur þeirra Ann,
Sharon 10 ára gamalli. Og foreldr-
ar Lees búa í nánasta nágrenni. í
heimili með Ann og Lee eru hins
vegar, auk litlu drengjanna þeirra,
tveir synir Ann úr hjónabandinu,
Wayne besti vinur Lees og næstum
jafnaldri, og Petcr, 9 ára gamall
snáði sem tæpast gerir sér grein fyr-
ir flóknum fjölskyldumálum.
Foreldrar Lees cru litlu eldri en
Ann og hafa átt bágt með að kyngja
því að vcra orðin afi og amma, og
það á þennan hátt. Og til að gera
illt verra var eiginntaður Ann í
vinnu hjá þeini við pípulagnir þeg-
Starfsfólkið á Staupasteini og tveir
fastagestir
ÉP
~
ar blaðran sprakk og hafði m.a.s.
boðið Lee að flytjast til þeirra Ann,
þar sem húsnæði var þröngt heinta
hjá foreldrum hans!
En nú hafa þau sætt sig við orð-
inn hlut og hafa gefið samþykki sitt
til að sonur þeirra giftist barnsmóð-
ur sinni. Ætlunin er að brúðkaupið
fari fram í apríl.
Fimmtudagur20. mars 1986
ÚTLÖND
FRÉTTAYFIRLIT
PARIS — í gær var nokkuð
Ijóst orðið að hægrisinnuð
ríkissfjórn yrði mynduð í Frakk-
landi undir forsæti Jacques
Chirac leiðtoga gaullista. Hann
er búinn að eiga viðræður við
Francois Mitterrand forseta og
sagði þær hafa farið fram
vandræðalaust.
GRAFENWOHR, Vestur
Þýskaland - Helmut Kohl
kanslari V-Þýskalands og
Caspar Weinberger varnar-
málaráðherra Bandarikjanna
áttu saman viðræður um þátt-
töku vestur-þýskra stjórnvalda
í hinni svokölluðu „stjörnu
stríðsáætlun" Bandaríkja
stjórnar. V-þýska stjórnin hefur
hingað til séð ýmislegt að
þessari áætlun.
GENF — Sendimenn fimm
ríkja sem ekki eru aðilar að
OPEC áttu fund með viðræðu-
nefndum OPEC-ríkja sem nú
þinga í Genf. Ríkin fimm fram-
leiða samtals um 4,5 milljónir
olíutunna á dag og að sögn
sérfræðinga munu þau ekki
vera reiðubúin til að minnka
framleiðslu sína svo heitið geti.
LUNDÚNIR — Englands-
banki varð í gær fyrstur
breskra peningastofnana til að
lækka vexti eftir að Nigel Law-
son fjármálaráðherra hafði
spáð minnkandi verðbólgu og
auknum efnahagsvexti í land-
inu.
VARSJÁ — Utanríkisráð-
herrar Varsjárbandalagsins
hittust á sínum fyrsta fundi síð-
an Mikhail Gorbachev leiðtogi
Sovétríkjanna bar fram tillögu
um afnám allra kjarnorku-
vopna fyrir árið 2000 í janúar
síðastlionum.
SINGAPÚR — Björgunar-
sveitir héldu áfram í gær að
leita að lifandi fólki í rústum
hótelsins í Singapúr sem
hrundi síðastliðinn laugardag.
Notaðir voru hljóðnemar og
kvikmyndavélar en sú von að
einhverjir séu enn lifandi í rúst-
unum ernú orðin dauf.
BAGDAD — Talsmaður ír-
akshers sagði herflugvélar
hafa farið í árásarferð til her-
búða írana nálægt borginni
Ahvaz í Suður-íran.
FRANKFURT — Pik Botha
utanríkisráðherra Suður-Afr-
íku kom til V-Þýskalands til við-
ræðna við háttsettan banda-
rískan embættismann. Hann
sagði betra andrúmsloft ríkja í
sambandi við málefni Namibíu
og væri nú hægt að hrinda
áætluninni um sjálfstæði í
I framkvæmd.
HAAG — Erlendir verka-
menn kusu í fyrsta sinn með
hollenskum borgurum í hér-
aðsstjórnarkosningum. Úrslitin
úr þeim munu gefa bendingu
um styrk ríkisstjórnarinnar fyrir
hinar almennu kosningar sem
verða eftir tvo mánuði.
STUTTGART — Innflutn-
ingshöft og skuldir ríkja þriðja
heimsins munu verða helstu
umræðuefnin á fundi í Tokyo í
maí þar sem sendinefndir
helstu iðnaðarríkja hins vest-
ræna heims munu eiga við-
ræður saman. V-þýskir hag-
fræðingar telja þó ao lítið verði
um afgerandi ákvarðanatökur í
| þessum efnum.
BELGRAD — Dómstóll í
Bitolahéraði í Júgóslaviu
dæmdi í gær fimm menn af al-
bönskum uppruna til fangels-
isvistar fyrir athæfi sem spillti
fyrir þjóoareiningu í landinu.
Fangelsisdómar mannanna
eru allt frá fimm og upp i þrett-
án ár. [ úrskurði dómstólsins
segir að mennirnir hafi með
rangfærslum túlkað stöðu al-
banska þjóðernisbrotsins í
landinu og reynt að beita valdi
til að umbreyta sambands-
ríkiskerfi Júgóslavíu. Mennirn-
ir eru saqðir hafa viljað koma á
sjálfstæou lýðveldi innan Júg-
óslavíu, eða í héraðinu Kos-
ovo þar sem íbúar eru flestir af
albönskum uþþruna.