Tíminn - 20.03.1986, Qupperneq 5
Fimmtudagur 20. mars 1986
Tíminn 5
ÚTLÖND
SVÍÞJÓÐ:
Laus úr haldi
- MAÐURINN SEM ÁTTIAÐ KOMA FYRIR RÉTT í DAG VEGNA
GRUNS UM AÐILD AÐ MORÐINU Á OLOF PALME ER NÚ LAUS
- SÖNNUNARGÖGNIN HÉLDU EKKI ÞEGAR Á REYNDI
Stokkhólmur-Rcutcr
Sænska lögreglan ákvað í gærdag
að láta lausan hægrisinnaða öfga-
manninn sem haldið var vegna gruns
um þátttöku í morðinu á Olof
Palmc. Að sögn lögreglunnar reynd-
ust mikilvæg sönnunargögn gegn
manninum ekki halda þegar á
reyndi.
Áke Lennart Viktor Gunnarsson
heitir maðurinn og átti hann að
koma í fyrsta sinn fyrir rétt í dag.
Hans Holmer yfirmaður Stokk-
hólmslögreglunnar sagði hins vegar
lykilvitni ekki hafa getað aðgreint
manninn frá öðrum og því hefði .....
allt málið fallið um sjálft sig".
Þessi niðurstaða virðist hafa fært
rannsóknina aftur í sömu spor og
byrjað var. Engar góðar vísbendingar
eru fyrir hendi um hver eða hverjir
framkvæmdu ódæðisverkið og hvaða
ástæða lá að baki því.
Holmer lögregluforingi gagnrýndi
mjög sænsk dagblöð á blaðamanna-
fundi þeim sem hann hélt í gær.
Hann benti á að nafnbirtingin og
mynd sú sem birtist í sænskum blöð-
um bryti íbágavið sænskar venjurog
sakaði fjölmiðla um að hafa sett á
stað „galdraofsóknir" í þessu máli.
Holmer var einnig harðorður í
garð verjanda Gunnarsson fyrir að
hafa gefið of miklar upplýsingar um
skjólstæðing sinn.
Gunnarsson, fyrrum meðlimur
Evrópska verkamannaflokksins
(EAP) sem staðsettur er mjög langt
til hægri á mciði stjórnmálanna, var
handtekinn stuttu áður en helstu
leiðtogar heims héldu til Svíþjóðar
til að vera viðstaddir útför Palrnes.
Hann hefur ávallt haldið fram sak-
leysi sínu í þessu máli en Holmer
neitaði þó að svara spurningunni uni
hvort lausn Gunnarsson þýddi að
hann væri ekki undir grun lengur í
morðmálinu.
MIKIÐ ÉTID AF SYKRI
Á ÁRINU1363 í ÍRAN
Teheran-Rculer
Þeir sem hafa gaman af tölum ell-
egar íran eða bæði ættu að líta á nýj-
ustu útgáfu árbókar írans þar sem
gefur að líta tölulegar upplýsingar
um flest sem forvitnilegt er í þessu
stranga múhameðstrúarríki.
Alls telja íbúar landsins 43,4 mill-
jónir og er vinnufært fólk um 12,5
milljónir. Hinsvegar eru 15,2% hins
vinnufæra alrnúga atvinnulaus.
í öðruni tölulegum dálkum hinnar
írönsku árbókar fyrir árið 1363
(mars 1984 til mars 1985 að okkar
tímatali) má sjá að innflutningsvörur
eru greiddar að langmestum hluta
með olíutekjum eða rúmlega 95%.
Samkvæmt árbókinni var vélabún-
aður ýmiskonar alls um 25,2% af
innflutningskostnaðinum og vara-
hlutir í bíla og önnur farartæki
fylgdu skammt á eftir og námu alls
21,6% af kostnaðinum við innflutn-
inginn.
Nú ku vera um 700.000 ísskáp-
ar og kælikistur til í landinu en hins-
vegar átu Iranir heilmikið af sykri á ár-
inu 1363 eða 27,4 kíló hver einstak-
lingur. Allt stendur þetta í árbókinni
góðu.
Ætli þessar írönsku konur eigi allar
ísskáp?
AMNESTY INTERNATIONAL:
Pyndingar í Zaire
Lundúnir-Rcutcr
Mannréttindasamtökin Amnesty
International hafa skýrt frá miklum
ofbeldisaðgerðum hersveita ríkis-
stjórnarinnar í Zaire. Þar hafa mörg
hundruð andstæðingar stjórnvalda
verið handteknir, pyndaðir og sumir
þeirra drepnir.
Samtökin, sem fylgjast með fram-
gangi mannréttindamála um allan
Lundúnir-Rcuter
Breska þjóðin varpaði öndinni
léttar í gærmorgun. Dagar óvissu og
sögusagna voru að baki. Já, það
hlaut að koma að því. Elísabet Eng-
landsdrottning tilkynnti í gær um trú-
lofun Andrews sonar síns og almúga-
stúlkunnar Söru Ferguson.
Þau nýtrúlofuðu eru bæði 26 ára
gömul og munu gifta sig sfðar á þessu
ári fari allt samkvæmt áætlun.
heim, hafa farið fram átvið stjórnina
í Zaire að hún láti fara fram óháða
rannsókn á slæmri meðferð, pynd-
ingum og drápum á föngum í land-
inu.
Amnesty sagði meira en hundrað
stjórnarandstæðinga hafa verið
handtekna á tímabilinu október til
janúar í höfuðborginni Kinshasa og á
Kasaisvæðinu. Samkvæmt heimild-
Tilkynningin sem allir biðu eftir
var hengd á hlið Buckinghamhallar í
gærmorgun. Þarstóð:
„Drottningin og hertoginn af
Edinborg tilkynna með mikilli
ánægju um trúlofun hins ástkæra
sonar þeirra Andrews prins og Söru
Ferguson, dóttur Ronalds Ferguson
og frú Hector Barrantes".
um samtakanna dó einn maður í
varðhaldinu og fjórir aðrir létu lífið í
einangrun eftir að hafa verið illa
pyndaðir.
Mannréttindasamtökin höfðu í
fórum sínum fleiri lýsingar af glæpa-
verkum og pyndingaraðferðum hcr-
sveita stjórnarinnar s.s. fjöldadráp í
Shabahéraði snemma á síðasta ári.
ÚTLÖND
Umsjón: Heimir
Bergsson
TRÚLOFUN í BUCKINGHAMHÖLL:
ÓVISSAN ÚR SÓGUNNI
Hér er Sihanouk prins (t.v.) á tali við áhrifamesta mann Kínaveldis Deng Xi-
aoping (t.h.). í baksýn eru félagar Sihanouks í samtökunum sem barist hafa
gegn núverandi stjórn Kanibódíu.
Sihanouk fer
fram á sættir
- KÍNVERSK STJÓRNVÖLD ÁNÆGÐ
MEÐ FRIÐARTILLÖGUR HANS
Peking-Rcutcr
Stjórnvöld í Kína hafa lýst yfir
ánægju með friðartillögur þær sem
miða að því að binda enda á átökin í
Kambódíu. Tillögurnar voru kynnt-
ar af Sihanouk prins.
Sihanouk og hin þriggja flokka
skæruliðasamtök scm hann er í
forsvari fyrir hafa lýst sig reiðubúin
til samstarfs við núverandi stjórn-
völd í Kambódíu svo framarlega
sem Víctnamstjórn kallar hcrsveitir
sínar burt frá landinu.
Tillögurnar gera ráð fyrir að stofn-
uð veröi ný stjórn og eigi sæti í hcnni
fulltrúar frá skæruliðasamtökun-
um sem og fulltrúar frá núverandi
stjórn landsins sem er undir forsæti
Heng Samrins og studd af Víet-
nömum. Samkvæmt tillögunum á Si-
hanouk að verða forseti landsins og
Son Sann, sem situr í lorsæti skæru-
liðasamtakanna, á að fá forsætisráð-
herraembættið.
Kínverska fréttastofan hafði eftir
Hu Yaobang formanni kommúnista-
flokksins að tillögur Sihanouks og
hinna tveggja leiðtoga skæruliða-
samtakanna væru sögulega séð mjög
mikilvægar og þar væri tekið lullt til-
lit til vilja víetnömsku þjóðarinnar.
Kínversk stjórnvöld hafa hingað
til verið helsti stuðningsaðili skæru-
liðasamtakanna sem barist hafa,
bæði með vopnum og á alþjóðavett-
vangi, gegn stjórn Heng Samrins í
Kambódíu. Skæruliðasamtökin cru
viðurkennd af Sameinuðu þjóðun-
um og í tillögum Sihanouks og sam-
starfsmanna hans er gert ráð fyrir að
Santeinuðu þjóðirnar hafi eftirlit
með brottför víetnamskra hersveita,
viðhaldi vopnahlés milli stríðandi
fylkinga og væntanlegum kosning-
um.
VAXTALÆKKUN í BRETLANDI:
Englandsbanki
reið á vaðið
Lundúnir-Rcutcr
Englandsbanki varð fyrstur
breskra peningastofnana til að lækka
vexti eftir að Nigel Lawson fjármála-
ráðherra hafði spáð auknum efna-
hagsvexti í landinu.
I tilkynningu Englandsbanka í gær
var sagt að vextir myndu lækka um
1%. Stuttu síðar kom tilkynning frá
Barclaysbanka, stærsta viðskipta-
bankanum í Bretlandi, og var þar
lýst yfir að bankinn myndi lækka
vexti sína frá 12,5% niður í 11,5%.
Þessi lækkun kemur til móts við
1% hækkun vaxta sem varð í janúar
cftir að ört lækkandi olíuverð hafði
vcrulega veikt stöðu breska sterl-
ingspundsins.
Lawson fjármálaráðherra bresku
ríkisstjórnarinnar gerði ráð fyrir í spá
sinni aö verðbólga væri komin niður
í 3,5% í lok ársins. Hún er nú 5,5%.
Hann sagði einnig um 3% efnahags-
vöxt nokkuð líklegan á þessu ári.
Þessar fréttir glöddu greinilcga
stjórnendur breskra pcningastofn-
ana eins og vaxtalækkunin sýnir.
DEMANTAFUNDUR:
MIKILVÆGT SKREF
Rio de Janciro-Rcuter
Brasilískur gullleitarmaður steig
mikilvægt skref á leið sinni hcim frá
vinnu í síðustu viku. Honum varð
nefnilega stigið ofan á stein einn á
stærð við egg sem við nánari athug-
un reyndist vera demantur. Við
enn nánari athugun reyndist dem-
anturinn vera virði um 40 milljóna
íslenskra króna.
Demanturinn fannst í bænum
Carmo do Paranaiba sem er í hér-
aðinu Minas Gerais í Suðvestur
Brasilíu. Bæjarstjórinn í Carmo
sagði í sjónvarpsviðtali að stcinn-
inn dýrmæti væri geymdur í banka-
útibúi Brasilíubanka þar í bæ og
bætti því við að hann væri 165,5
karatar og japanskir sem og amer-
ískir skartgripasalar væru þegar
farnir að bjóða í gripinn.
Launaþrællsá sem ofan á stein-
inn steig verður þó varla mikið bet-
ur settur þrátt fyrir fund sinn.
Vinnuveitandi lians ntun hirða
andvirði sölunnar.