Tíminn - 20.03.1986, Síða 6

Tíminn - 20.03.1986, Síða 6
Tímirm MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarfiokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Ritstjóri: NíelsÁrniLund Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason Innblaösstjóri: OddurÓlafsson Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:' 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaöaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.- „Kjarasamningarnir marka tímamót" í ítarlegri ræöu Sem Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins flutti við setningu miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins um síð- ustu helgi, ræddi hann ýmsa málaflokka sem ríkisstjórnin, ráðherrar Framsóknarflokksins hafa unnið að, stjórnar- samstarfið, efnahagsmál og stöðu flokksins. Um efnahagsmálin sagði Steingrímur m.a. „Efnahags- málin hafa verið meginviðfangsefni þessarar ríkisstjórnar. f*að var vegna þess alvarlega ástands sem í þeim málum ríkti vorið 1983, að við framsóknarmenn ákváðum að ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Aðrir flokkar voru ekki reiðubúnir til þess að takast á við þau erfiðu mál. Eins og fyrr töldum við framsóknarmenn ekki sæma að hlaupa frá vandanum". Síðan skýrði hann þann mun sem er á stefnu sjálfstæð- ismanna og Framsóknarflokksins í efnahagsmálum. Sjálf- stæðismenn lögðu á það áherslu við myndun ríkisstjórnar- innar að hún ætti engin afskipti að hafa af samningamálum aðila vinnumarkaðarins, helst ætti hinn frjálsi markaður að ráða ferðinni. Framsóknarmenn hafa haft þá skoðun að meðan verðbólgan er svo mikil sé óhjákvæmilegt annað en að beita ákveðnum og föstum, lögbundnum aðgerðum gegn henni, og að algjört afskiptaleysi stjórnvalda sé óframkvæmanlegt eins og staðan hefur verið í íslensku efnahagslífi. Pað var gert 1983 og náðist verulegur árangur í hjöðnun verðbólgunnnar eða úr 130% niður í um 20%. Eftir að tímabili lögbundinna aðgerða lauk í febrúar 1984 tók við óvissutímabil. Samningarnir sem þá voru gerðir reyndust óhagstæðir m.a. vegna þess að tilboð ríkis- stjórnarinnar um skattalækkanir voru of óákveðin. Af- leiðingin varð sú að verðbólgan jókst að nýju. Um aðdraganda nýgerðra kjarasamninga sagði Stein- grímur: „Við framsóknarmenn lögðum þess vegna höfuð- áherslu á að afskipti stjórnvalda af kjarasamningunum yrðu að vera markvissari. Um það náðist samstaða og því ber að fagna. Pegar ég kvaddi fulltrúa vinnumarkaðarins á minn fund 14. október sl. til þess að ræða við þá um þjóð- hagsáætlun lagði ég jafnframt áherslu á vilja ríkisstjórnar- innar til þess að stuðla að skynsamlegum samningum, þannig að drægi úr verðbólgu.“ Steingrímur ræddi kjarasamningana ítarlega en greindi síðan frá þeim erfiðleikum sem eru þeim samfara. Ríkis- sjóður verður með töluverðan rekstrarhalla í ár, líklega um 1,5 milljarða. Að hluta til verður þetta brúað með kaupum lífeyrissjóða á ríkisskuldabréfum og að öðru leyti með aukinni sölu ríkisskuldabréfa innanlands. Pá mun aukinn kaupmáttur leiða til aukins innflutnings og þarf að • leggja áherslu á að auka innlendan sparnað. Til að svo megi verða er óhjákvæmilegt að jákvæðir raunvextir séu greiddir af sparifé. Ljóst er að úr framkvæmdum hins opin- bera verður að draga og má því búast við að fjárlagagerð fyrir næsta ár verði erfið. Um kjarasamningana sagði Steingrímur þetta: „Ég tel kjarasamningana og efnahagsaðgerðirnar marka ein stærstu tímamót sem orðið hafa í íslensku efnahagslífi. Þrátt fyrir erfiðleikana sem þeim munu fylgja er fullkom- lega til þess vinnandi ef verðbólga verður með þessu kveð- in niður fyrir fullt og allt. Ég fagna því einnig mjög að loks er náð langþráðu markmiði um samstarf aðila vinnumark- aðarins og stjórnvalda um skynsamlegar aðgerðir í kjara og efnahagsmálum.“ ...„Enn er jafnframt óleyst annað ekki síður stórt verkefni í efnahagsmálum þessarar þjóðar, að lækka erlendar skuldir. Pað verður viðfangsefni næstu ára.“ 6 Tíminn Fimmtudagur 20. mars 1986 ORÐ í TÍMA TÖLUÐ llillllllllllllll11"1 IIIIIÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIí Sex Skoda „forstjóragjöf- in“ frá láglaunakonunum „Ætli þeir bregði ekki á það ráð að niðurgreiða sólarlandaferðirnar næst þegar þeir þurfa að krukka í vísitöluna?,“ sagði einn verka- lýðsforingjanna okkar fyrir nokkr- um árum í samtali við undirritaða og var auðheyrt að honum þótti hugmyndin hámark fáránleikans. Þessi sami verkalýðsforingi ver nú með kjafti og klóm nýjasta „vísitölukrukkið“ - sem fyrst og fremst felst í því að lækka vísitöl- una um 1,5%, með „niðurgreiðsl- um“ á nýjum bílum. Við að kynna sér kringumstæður í hópi fjöl- margra samstarfsmanna, skyld- menna ogrVina (margra hverja á launum undir nýlega skilgreindum fátækramörkum) virðist ljóst að fáir ef nokkur úr þeim hópi eiga eft- ir að njóta þeirrar 1,5% kaupmátt- araukningar sem „vísitölukrukkið" átti að færa þeim. Niðurgreiðsla sólarlandaferðahefðim.a.s. komið mun fleirum til góða, því hún hefði þó ekki rýrt verðmæti hluta, sem fólk hefur þegar aflað sér og er í mörgum tilfellum enn að greiða verðtryggðar afborganir af, þar á meðal bíla. Hámark fáránleikans virðist þó að verkalýðsforingjar skuli í nafni samninga um kjarabætur til lág- launafóiks semja um 2ja til 3ja árs- launa (þess) lækkun á verði banka- stjóra og forstjórabíla. Þeir úr hópi slíkra sem nú kaupa sér t.d. Merc- edes Benz 500 gætu í leiðinni keypt 6 Skoda eða 4 Lödur í sumargjöf handa börnum og barnabörnum fyrir þær 837 þús. krónur sem „vísitölukrukk“ verkalýðsforingj- anna færði þeim á silfurfati - og átt þó afgang fyrir svo sem 1-2 farmið- um til útlanda. Láglaunakonunni - með 25 þús. króna mánaðarlaunin - sem aldrei hefur átt bil og getur enn ekki keypt sér Skoda þótt kominn sé niður í 135 þús. - færa verka- lýðsforingjarnir hins vegar einfald- lega 1,5% kaupmáttarrýrnun. Þótt 1,5% þýði að vfsu ekki nema 375 krónur á mánuði fyrir hana, dygði það þó til þess að hún kæmist á bíó mánaðarlega með barnið sitt og kannski fyrir einum poka af „poppi“. Á heilu ári þýðir þetta 4.500 króna kaupmáttarrýrnun, sem er upphæð sem flestar lág- launakonur munar heilmikið um. Raunar er dæmið þó ennþá verra. 837 þús. króna tollalækkun á „forstjóra-Bensinum“ þýðir jafn- framt 837 þús. króna tekjulækkun fyrir ríkissjóð. Við því verður ríkið að bregðast annað hvort með niðurskurði á þjónustu, sem í flest- um tilfellum bitnar þá á þeim sem minna mega sín, ellegar með því að ná upphæðinni inn á annan hátt, þ.e. sækja hana með einum eða öðrum hætti í vasa þeirra sem ein- mitt var verið að semja um kjara- bæturnar fyrir. Það er á hinn bóginn opinbert leyndarmál að mennirnir sem kaupa dýru/fínu Bensana eru oft ótrúlega „tekjulitlir" þegar litið er í skattskrárnar. Til þessa hefur það verið nokkur huggun (þegar maður áttar sig á að af lágum launum á maður að borga hærri skatta en þessir ,,Bens-menn“) að ríkissjóð- ur hafi þó af þeim góðan skilding út á „bílasnobbið" í staðinn. Einnig þessa „snobbskatta" hafa ástsælir verkalýðsforingjar okkar nú losað þá við. 1 nafni kjarasamn- inga fyrir láglaunafólk hafa þeir rétt þessum „fátæku ríkisbubbum“ andvirði meira en 6 nýrra Skoda á silfurfati sem gjöf frá ríkissjóði, sem hann aftur verður að sækja í vasa þeirra sem hafa kannski ekki einu sinni efni á að kaupa einn Skoda eða Lödu. Er nema von að „íhaldskarlar“ af öllum flokkum séu glaðir og stoltir? Hefði ekki verið eðlilegra að niðurgreiða einhverjar matvörur sem enginn getur verið án um þetta 1,5% í vísitölunni? Sú niður- greiðsla hefði einmitt komið lág- launafólki lang mest til góða - ein- faldlega vegna þess að það þarf að verja stærri hluta heildartekna sinna til matvörukaupa heldur en „fátæklingarnir“ á fínu bílunum. Fyrir „Meðal-Jón“ - sem skiptir á gamla bílnum fyrir annan nýjan eða nýrri skiptir „vísitöluleikur- inn“ fremur litlu máli, því báðir lækka, sá nýi og sá gamli. -HEI VÍTT OG BREITT Einsýni og ofstæki Málgagn vcrkalýðshreyfingar kallar Þjóðviljinn sig með tals- vcrðu yfirlæti og þegar mikið er haft við er málgagnið „baráttutæki verkalýðshreyfingariiinar.“ Glam- uryrði af þessu tagi eru ær og kýr róttæklinga og valdastreitumanna sem lcggja meira upp úr því að rífa niður en byggja upp. Marga hcfur grunað að málgagn- ið sé ekki eins hollt launþegum og það vill vera láta. Það vantar ekki fagurgalann í garð vcrkalýðsins þcgar það á við né stríðsyfirlýsingar á hendur öllum þeim, scm „bar- áttutækið“ ákvcður að sé honum andsnúnir. En ósköp licfur öll liaráttan orðið til lítils ef marka má allar frásagnir blaösins af þeim hörmungarkjörum scm alþýðan býr við. Vcrkalýðsforysta Alþýðubanda- lagsins hcfur undanfarið lýst yfir •hvað eftir annað að skrif blaösms um kjaramál séu ekki annað en liull og blaður. Guðmundur J. Guð- mundsson skrifar grein í Þjóðvilj- ann ■ gær og fer þar hörðum orðum um Þjóöviljann og skríf hans um vcrkalýösmál. Hann rekur hvernig blaðið hefur Ijarlægst verkalýðs- baráttuna og nefnir mörg dæmi um áhugaleysi ritstjórnarinnar á þvi sem verkalýðsleiðtogar Alþýðu- bandalagsins eru að bauka. Guðniundur skrífar: „Ein er sú árátta scm sótt hefur á blaðið liðin misseri og það er að hafa löggildar skoðanir á verkalýðsmálum. Svo löggildar eru skoðanir ýmissa frammámanna blaðsins að síðast af öllu skal rætt við þá menn sem stað- ið hafa í verkalýðsmálum árum saman, kosnir eru til trúnaðar- starfa af félögum sínum og staðið hafa í samningagerð fyrir vcrka- lýðshreyfinguna. Stöðumat slíkra manna og forsendur þcirra fyrir samningagerð gætu nefnilcga orðið til þess að hinar löggildu skoðanir pólitískra hlaupastráka á Þjóðvilj- anum færu eitthvað úr skorðum - og það má ekki.“ En það eru ekki eingöngu hlaupastrákarnir á Þjóðviljanum sem fá sinn skammt. „En varafor- maður Aiþýðubandalagsins og eig- inkona ritstjórnarfulltrúans gaf þá umsögn er Þjóðviljinn mat mest. Þó er ekki til þess vitað að hún hafi nærri samningamálum komið, né verður þcss vart í umsögn hennar að hún hafi kynnt sér samningana til hlítar.“ Síðar: „Ég er ekki að krefjast þess að frammámenn Þjóðviljans séu mér eða félögum mínum við samn- ingagerðina sammála um útkoni- una. Ég er aðeins að krefjast þess að það blað sem ég hef stutt í gegn- um tíðina ástundi heiðarlega blaða- mennsku. Ég vil ekki gera hlaupa- stráka Þjóðviljans að mínum túlk- endum og því síður söguskýrend- um.“ Einsýni og ofstæki er fyrirsögnin á siðasta kafia greinar formanns Dagsbrúnar og Vcrkamanna- sambands fslands. Hún hefst þannig: “Þessar einstrengingslegu og löggildu skoðanir hlaupastráka og bóhema Þjóðviljans ganga svo langt að öll eðlileg fréttamennska verður að víkja og öll hlutlæg túlk- un á samningunum skal einnig víkja að þeirra mati, svo þeir geti stundað sinn pólitíska kúrekaleik.“ Það er orðinn víðar trúnaðar- brestur í Alþýðubandalaginu en milli verkalýðsforystu flokksins og „hlaupastráka" Þjóðviljans. Þing- maðurinn drcgur varaformann flokksins hiklaust inn í málið og gerir meira en lítiö úr ummælum hennar um samningagerðina og dregur í efa að hún hafi yfirlcitt nokkurt vit á vcrkalýðsmálum. Þjóðviljinn er svo nátengdur Al- þýðubandalaginu að engum dettur í hug að rítstjómin leiki ulgjörlcga lausum hala, síst í sambandi við skrif um verkalýðsmál. Það hljóta því að vera áhrifamenn ■ flokknum sem leggja blcssun sína yfir það sem sett er í blaðið og yfir hverju er þagað. Þetta er ekki deila milli verkalýðsarms Aiþýðubandalags- ins og Þjóðviljans einvörðungu. Þarna cr á ferðinni djúpstæður ágreiningur innan forystusveitar flokksins. Hann stendur um hvort meta eigi meira, hag launþega og afkomu eða flokkshagsmuni.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.