Tíminn - 04.04.1986, Síða 2
2 Tíminn
Föstudagur 4. apríl 1986
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Iðnaðarbanka íslands M. árið 1986 verður
haldinn í Súlnasal Hótels Sögu fímmtudaginn 17. apríl 1986
oghefst kl. 14:00.
______________DAGSKRÁ:______________
1. Aðalfundarstörf skv. ákvæðum 18. gr. samþykkta
bankans.
2. Tiilaga um hækkun hlutafjár.
3. Tillaga um nýjar samþykktir fyrir bankann. Meginefni
breytinga frá gildandi samþykktum eru til samræmis við
ákvæði laga nr. 86/1985 um viðskiptabanka er tóku gildi
1. janúar sl.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða
umboðsmönnum þeirra í Iðnaðarbankanum,
Lækjargötu 12,2. hæð frá 10. apríl nk. Reikningar bankans
fyrir árið 1985, ásamt tillögum þeim sem fyrir fundinum
liggja, verða Muthöfum til sýms á sama stað.
Tillögur, sem Muthafar vilja leggja fyrir fundinn,
þurfa að hafa borist bankaráðinu skriflega í síðasta lagi
9. apríl nk.
Reykjavík, 21. mars 1986.
BANKARÁÐ
IÐNAÐARBANKA ÍSLANDS HF.
Verkamannafélagið »HLÍF«
Umsóknir um orlofshús
Þeir félagsmenn Hlífar sem hafa hug á aö dvelja í
sumar í orlofshúsum félagsins í Ölfusborgum og
Húsafellsskógi eöa íbúðinni á Akureyri eru beðnir
aö sækja um þaö fyrir 15. apríl.
Gert er ráö fyrir vikudvöl hverju sinni.
Ef fleiri umsóknir berast en hægt verður aö sinna
munu þeirgangafyrirsem sækja um í fyrstasinn.
Umsóknareyöublöð fást á skrifstofu Hlífar Reykja-
víkurvegi 64, Hafnarfiröi. Símar 50987 og 50944.
HALLBJORG BJARNADOTTIR
&
FISCHER
opna
MÁLVERKASÝNINGU
í ÁSMUNDARSAL
Freyjugötu 41 laugardaginn 5. apríl
Sýningin er opin daglega frá kl. 2-10 e.h.
og stendur fram til 13. þ.m.
A&ALFUHDUR
Aðalfunctur Reykjavíkurdeildar Rauða
Kross íslands fyrir árið 1985 verður
haldinn í Múíabæ að Ármúla 34
fimmtudaginn 17. apríl 1986.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Fundurinn hefst kl. 20.30.
Stjórnin.
Vilja varnir gegn
hagsmunaárekstrum
Guðmundur Einarsson, Kolbrún
Jónsdóttir og Stcfán Bencdiktssön
hafa lagt fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um varnirgegn hags-
munaárekstrum. í tillögunni er gert
ráð fyrir að allsherjarnefnd Alþingis
verði falið að semja frumvarp tii laga
um þetta efni og skal það ná til
valdþáttanna þriggja þ.c. löggjafar-,
framkvæmdar-, og dómsvalds.
Flutningsmenn vilja að markmið
slíks frumvarps verði að framfylgja
undirstöðureglum um aðskilnað
valdþáttanna þriggja. að skýrt verði
kveðið á um ábyrgð cinstaklings í
þjónustu almennings og að komið
verði í veg fyrir að árekstur verði
milli einkahagsmuna og hagsmuna
liins opinbera, að sett verði greinileg
fyrirmæli um vanhæfni þeirra sem
með mikilvægt úrskurðarvald fara,
að alþingismenn, ráðherrar. dómar-
ar. embættismenn og opinberir
starfsmenn vcrði skyldaðir í upphafi
starfs síns til að gefa upplýsingar um
viðskipti sín og eignir sínar og fjöl-
skyldna sinna sent nauðsynlegt er
talið til að varnir gegn hagsmuna-
árekstrum verði mögulegar.
- SS
Tillaga um tæknimat
Lögð hefur verið fram á Alþingi
tillaga til þingsályktunar um tækni-
mat. Flutningsmenn eru þeir Davíð
Aðalsteinsson, Jón Kristjánsson og
Guðmundur Einarsson. Þeir gera
ráð fyrir að rikisstjórninni verði
falið að láta kanna mcð hvaða hætti
áhrif nútímatækni í atvinnu- og
þjóðlífi verða metin á skipulegan
hátt samkvæmt þeirri fyrirmynd sem
erlendis kallast „Technology Asses-
ment".
I greinargerð að tillögunni segir
m.a.: „Stundum hefur því farið svo
að miklu hefur verið kostað til
stórátaka á tæknisviði, fé sem síðar
kom í Ijós að nýttist ekki nógu vel
vegna yfirsjóna þeirra sem fjölluðu
um tæknina eða tilreiddu upplýsing-
ar um hana. Stundum er slíkum
aðstæðum lýst þannig að tæknin hafi
í sér fólgið innra hreyfiafl sem knýi
áfram stjórnlausan vöxt hennar án
tillits til gagnsemi og áhrifa. Slíkar
lýsingar eru að vísu nokkuð loft-
kenndar. Ffreyfiafl nýrrar tækni er
þekking, áhugi og hagsmunir ein-
staklinga, samtaka og fyrirtækja.
Þetta afl er jákvætt í eðli sínu en það
er iðulega slegið blindu og brenglað
vegna stundarhagsmuna. Framrás
tækninnar þarf því að veita aðhald
nteð tímanlegu og víðsýnu mati í
senn, ekki síst á því sem eyða á
verulegu fé til að þróa og kann að
hafa víðtæk áhrif á hagsmuni þjóð-
félagsþegnanna."
-SS
RALAtil Hvanneyrar?
Þeir Davíð Aðalstcinsson, Jón
Kristjánsson og Ragnar Arnalds
hafa lagt fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar unt flutning Rann-
sóknarstofnun landbúnaðarins til
Hvanneyrar. í tillögunni er gert
rað fyrir að ríkisstjórninni verði
falið að gera áætlun unt þetta efni
sem miðist veröi falið að gera
áætlun um þetta efni scm miðist
við að flutningurinn eigi sér stað
eigi síðar cn að sex árum liðnum.
I greinargerð að tillögunni segir
m.a.: „Margt bendir til þess að
Rannsóknarstofnun landbúnaðar-
ins, sem nú er á höfuðborgarsvæð-
inu, hafi haft tilhneigingu til að
verða einangruð vísindastofnun,
nokkuð vel tengd Háskóla íslands
cn mun lakar tengd þeint vettvangi
sem hún á að þjóna. Tengslin við
Háskólann er góðra gjalda verð og
nauðsynleg. En tengsl við landbún-
aðinn sjálfan og við fræðslustarf-
semi á hans vegum eru mun mikil-
vægari. Hvanneyri, fyrir miðju
landbúnaðarhéraði, er í eðli sínu
mun eðlilegra umhverfi fyrir vís-
indastofnun landbúnaðarins en
malarhólar ofan Reykjavíkur. Og
með því að gera Hvanneyri að
aðsetri vísinda, fræða, rannsókna
og tilraunastarfsemi á vegum land-
búnaðarins eignast íslenskur land-
búnaður faglega miðstöð sem
stenst samjöfnuð við hverja slíka
sem er í öðrum löndunt."
- SS
Fyrirspurnir
Eftirtaldar fyrirspurnir hafa verið
lagðar fram á Alþingi:
Til fjármálaráðherra um takmörk-
un yfirvinnu ríkisstarfsmanna frá
Kristínu Halldórsdóttur.
Til fjármálaráðherra um sparnað
í rekstri Tryggingastofnunar ríkisins
frá Kristínu Halldórsdóttur.
Til fjármálaráðherra um sparnað
í ráðuneytum og ríkisstofnunum frá
Kristínu Halldórsdóttur.
Til heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra um eftirlaun aldraðra frá
Helga Seljan.
Til utanríkisráðherra um tak-
mörkun á umsvifum erlendra sendi-
ráða frá Gunnari G. Schram.
Eftir standa unglingar og gamalmenni