Tíminn - 04.04.1986, Blaðsíða 10

Tíminn - 04.04.1986, Blaðsíða 10
10 Tíminn Föstudagur 4. apríl 1986 NEYTENDASÍÐAN Einn af ferðaþjónustubæjunum, Syðri Vik á Árskógsströnd. Ferðaþjónusta bænda vaxandi búgrein Ferðaþjónusta bænda er ný og vaxandi búgrein og nú fyrir nokkrum dögum var gefinn út bæklingur yfir þá bæi sem verða með í þjónustunni í ár. í tilefni af því var Oddný Björgvinsdóttir tekin tali og spurð um tildrög þess að ferðaþjónusta bænda fór af stað. Að sögn Oddnýjar fór ferðaþjón- ustan af stað t framhaldi af því að Flugleiðir voru í vandræðum með gistingu fyrir erlenda ferðamenn. Kannað var hvaða bæir gætu hugs- anlega tekið við ferðamönnum í gistingu-15 bæir svöruðu auglýsingu og 9 bæir voru svo valdir úr. Af þeim eru ennþá eftir 3 bæir. Flugleiðir voru svo með þessa þjónustu í nokkur ár. Ferðaþjónustan byggist líka upp á erlendum fyrirmyndum. Eftir því sem hinar hefðbundnu landbúnaðargreinar hafa dregist saman þá hefur verið farið að hugsa um hvað hægt væri að gera í sveitun- um. „Það er eins og til dæmis í Austurríki í litlu fjallaþorpunum þar, að þegar búskapurinn var farinn að minnka og fólkið að flytja unn- vörpum í burtu, þá tók ríkisstjórnin þá stefnu að styrkja uppbygginguna við að koma á fót ferðaþjónustu. Það varð til þess að nú lifa bændur þar eingöngu á henni. Þeir bjuggu náttúrlega yfir geysilega sterkri að- stöðu, áttu stór og mikil hús og því auðvelt fyrir þá að gera þar falíeg gistiherbergi," sagði Oddný. - Er góð samvinna með ferða- þjónustubændum? „Já, við þurfum að standa saman þannig að engir komi inn í nema þeir sem eru með reglulega góða þjón- ustu. Eins er það að bindast samtök- um og vinna hvert með öðru. Taka til dæmis mið af því sem búið er að gera í héraðinu og hvað vantar. Ef tekið er tillit til þess sem búið er að gera og ferðaþjónustan samræmd þá getur þetta orðið öflugur hringur eða keðja allt í kringum landið." - Hvers konar þjónusta er veitt þar? „Það verður auðvitað að gera sér grein fyrir því hvemig aðstaðan er, það er reginmunur á því til dæmis að dvelja í sumarhúsi, sem er staðsett í stærðar sumarhúsahverfi með kannski upp undir tvö hundruð bú- stöðum eða vera í sumarhúsi sem tengt er sveitabæ, það gefur miklu skemmtilegri möguleika. Það er líka ódýrari og persónulegri þjónusta á sveitabæjunum.“ - Hver heldur þú að sé framtíð ferðaþjónustunnar og hvers er vænst? Oddný Björgvinsdóttir. „Ég hef alltaf verið bjartsýn á ferðaþjónustuna og held að hún eigi mikla framtíð fyrir sér. Það er hægt að segja að þetta hafi þróast alveg óskaplega hratt núna síðasta ár til hins betri vegar. Það eru orðnir miklu fleiri á hverju ári sem vilja nota sér þessa þjónustu. Á meðan svo er getur maður ekki verið annað en bjartsýnn.“ Tíminn er grafinn í sveitinni Húsráð Svanfríðar Sveppir Þegar kcyptir eru nýir sveppir eru þeir ekki alltaf notaðir allii í einu . Hreinsið vandlega það sem eftir er með því að skera rótendann af. það má alls ekki þvó sveppina cf það á að gcyrna þá. Leggið síðan sveppina í hrcina sultukrukku með skrúfuðu loki og geymið í ísskáp. Þannig eiga þeir að geymast í uppundir viku. Fallegri brúnaðar kartöflur Prófið að nota herta sojaolíu á pönnuna í staðinn fyrir smjörlíki, þá verða brúnuðu kartöflurnar fallegri. Eldföst mót Stundum kentur fyrir að það flís- ast út úr kantinum á uppáhalds eldfasta mótinu.-Það er liægt að nota mótið áfram með því að nudda staðinn þar sent flísast hefur úr með sandpappír. Þá ber líka minna á skaðanum. Kótelettur Þegar verið er að steikja kótelett- ur er vaninn að dýfa þeini í egg og síðan í rasp. Prófið að búa til deig úr 3 msk af heilhveiti, 1 tsk af salti. pipar eftir smekk og I dl af vatni. Notið þetta deig í staðinn fyrir cggið næst þegar steiktar eru kótelcttur. Rauðsprettuflök á spínatbeði Það cru góð kaup í l'iskiflökum vcgna þcss livc lítill hluti af þcim fcr forgörðum í matrciðslunni. 500 gr rauðsprettutlök 1 pk frosið saxað spínat, soðið 125 gr rjóinaostur I msk. smjör 1 msk. hveiti salt og pipar 2A bolli kjúklingasoð paprika Leggið spínatið í botninn á 1 lítra smurðu ofnföstulnóti. Ef . flökin cru ckki of stór cru þau notuð heil, annars cr þeim skipt i tvcnnt. Stráið salti og pipar yfir þau. Skiptið hclmingnum af rjómaostinum jafnt yfir flökin. Rúllið þcim upp og leggið þau á spínatið. Blandið hvciti, salti og pipar út í bráðið smjörið. Hellið soðinu út í. Sjóðið þangað til sósan cr þykk og jöfn. Bætið afganginum af rjómaostinum út í sósuna og hrærið í þangað til hann cr bráðinn. Hcllið sósunni yfir fiskinn og stráið papriku yfir. Bakið við 230° C í 20 mínútur cða þangað til fiskurinn er gcgnsoðinn. eftir Svanfríði Hagvaag Hveiti og kjötbakstur Þcssi rcttur cr aðcins cinn af mörgum kcimlíkum í Sýrlandi og Líbanon. Allir innihalda þcir kurlað hveiti (burghur) og kjöt, vanalcga hakkað lambakjöt scm cr barið saman í fars í mortcli. Pað cr auðvclt að búa til farsið í hrærivél cöa matvinnsluvcl. Síðan cr kjötiö og kurlað hvcitið lagt í lögunt í mót og bakaö. 175 gr kurlað hveili (hurghul) 375 gr liakkaö lambakjöt 1 meðallaukur, afliýddur og rilínn Vi tsk. allrahanda nýmalaður svartur pipar 25 gr hrætt smjör Fylling: 1 msk. matarolía 1 lítill laukur afliýddur 250 gr liakkað lamhakjöt 'A tsk. allralianda 2 msk. saxaöar hnetur 2 msk. rúsínur Hitið ofninn í 200° C. Þvoið kurlaða livcitið í köldu vatni og látið rcnna vcl af því. Búiö til fars úr kjötinu og lauknum. Ef notuð cr matvinnsluvcl gctur þurft að nota aðeins vatn mcð til að byrja mcð. Bætið út í kryddinu og kurlaða hvcitinu og látið vclina vinna þangaö til dcigið cr mjúkt og mcðfærilegt. Nú cr fyllingin búin til. Hitið olíuna á pönnu. látið laukinn út á og stcikið lumn i fcitinni þangaö til hann cr mjúkur. Bætið út í kjötinu og steikiö það þangað til það byrjar að brúnast. Bætið út í kryddinu, hnctunum og rúsínunum. Smyrjið grunnt ofnfast mót. Sctjið helminginn af farsinu á botninn, þckið yfir mcð fyllingunni og látið afgimginn af farsinu cfst. Skcriö tígla ofan á larsiö og renniö mcð hnífnum mcðfram köntunum á mótinu. Hcllið síðan brædda smjörinu yfir og bakið í 30-40 mínútur cða þangað til baksturinn cr vcl brúnaður. Berið fram hcitt cöa kalt mcðgúrkuogjógúrtsalati.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.