Tíminn - 04.04.1986, Blaðsíða 15

Tíminn - 04.04.1986, Blaðsíða 15
Tíminn 19 Föstudagur4. apríl 1986 lllliillllllllllllllllllll! MINNING lllllllllllllillllllllll Ásgrímur Jónssson Fæddur 8. júní 1917 Dáinn 25. mars 1986 Menn setti hljóða þegar sú óvænta fregn barst okkur að Ásgnmur Jóns- son væri dáinn. bað var eins og dökkt ský drægi fyrir sólu á góðviðr- isdegi. Ágríntur Jónsson, fyrruni garð- yrkjubóndi og síðar tilraunastjóri á tilraunastöð Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á Korpu við Korp- úlfsstaði. var Ijúfmenni í ailri við- kynningu. Hanti var glaðvær og hnyttinn í tilsvörum, fróður og minnugur. sagnamaður ágætur, vel hagmæltur og lét oft fjúka í kviðling- um. Hann varsamviskusamun starfi og vildi hvers manns vanda leysa sem til hans leitaði. Á tilraunastöðinni á Korpu er fengist við fjölþætt tilraunaverkefni, einkum á sviði jarðræktar, bæði utanhúss og í gróðurhúsi. Þar sá Ásgrímur um daglegan rekstur og fórst það svo vcl úr hendi með fulltingi samhents starfsliðs að hann naut óskoraðs trausts allra þeirra sem áttu rannsóknavcrkefni í umsjá hans. En það var fleira fólgið í starfinu á Korpu heldur en vísindaverkefnin ein. Starfsemin þar er mjög árstíða- bundin, miklar annir frá vori til hausts en minna umleikis á veturna. Því hefur raunin orðið sú að mikill hluti starfsliðsins á Korpu hefur verið skólafólk. allt frá krökkum á fermingaraldri og upp f háskóla- stúdenta. Ásgrímur stýröi sumarvinnuliði sínu með mikilli lagni og nærfærni. Honum tókst á undraverðan hátt að láta óvana unglinga temja sér þá vandvirkni í vinnubrögðum sem er frumskilyrði í allri tilraunastarfsemi. Samtímis því tókst honum að láta unglingana skila drjúgu dagsverki með glöðu geöi. Þótt kröfurnar um nákvæmni væru strangar og crfiðið á mestu annatímunum oft mikið, varö útkoman meö þeim ágætum aö verk- unt tókst að Ijúka með tilskilinni nákvæmni á tilskildum tíma með brosi á vör. Þeir eru margir unglingarnir sem hafa notið hlýlegrar handleiöslu Ás- gríms á Korpu og hugsa til hans með þakklæti og söknuði þegar iiann er horfinn. Samstarfsfólk Ásgríms á Rann- sóknastofnun landbúnaðarins syrgir góðan, traustan og glaðsinna vin. Við sendum fjölskyldu Itans innileg- ar samúðarkveðjur. Starfsfólk Rannsóknastofnunar landhúnaðarins Pétur W. Jóhannsson frá Reyðarfirði Fæddur 3. nóvember 1892 Dáinn 25. febr. 1986. Sumir samferðamanna okkar vekja á sér athygli með leiftrandi ákafa og ærnum tilþrifum. Aðrir fara hljóðlegar, vinna verk sín í kyrrlátri önn hversdagsins, bera með sér gersemi góðvildar, dagfarsprýði er dyggð þeirra. Síðbúin kveðja mín til Péturs Jóhannssonar er þessu síðara tengd. Fram í hugann leitar einkar geð- þekk minningamynd allt frá barnsár- um mínum, mynd af vönduðum og vænum dreng til orðs og æðis, þar sem saman fóru gerhyglin góð og hög hönd. Þeim sem Pétur þekktu kemur án efa prúðmennskan fyrst í hug, en á bak við leyndist býsna heitt skap og allir vissu, að fastur var hann fyrir og flysjungur enginn. Hið næsta sem athygli vakti var verklagni hans og natni við hvað eina, sem hann tók sér fyrir hendur. Það var ekki asinn og ákefðin, en sem fleirum slíkum vannst honum ágæta vel og hann ígrundaði ætíð, hvernig málum yrði haganlegast og best fyrir komið og því voru afköst hans oftlega meira en annarra, sem hærra létu og hraðar virtust fara. Sem barn kynntist ég honum og ævinlega hafði hann tíma til að tala við feiminn sveinsstaulann og haga orðum sínum þannig, að andsvar fengist. Hlýtt viðmótið og bjart bros- ið áttu sinn ríka þátt í því, að ég hafði snemma á honum miklar mæt- ur og mat hann því meir, sem kynni urðu meiri og fóru inn á fleiri slóðir. f huga mínum var Pétur alltaf bóndinn, hagsýnn og vandvirkur, umhyggjusamur í umgengni við skepnur sínar, enda báru þær þess merki. Fáir áttu fallegri lömb að hausti, í fjárhúsum hans var allt fágað og ærnar hans báru af. Ærnar voru fyrsta minnisverða umræðuefni okk- ar og sameiginlegur áhugi tengdi saman fulltíða mann og barn. Þó fleiri og fjölbreyttari yrðu sam- ræðuefnin síðar á lífsleiðinni kom þó ævinlega svo að á einhverju stigi væri að þessu vikið. Þeirra samræðna allra nú gott að minnast, ekki síst varðandi þjóðmálin, þar sem skoðanir fóru einkennilega oft saman, þó ekki fylgdum við sama flokki. Þar kom til sterk og einlæg félagshyggja hans, andúð á auðgild- inu og sjónarmið mannúðar og manngildis, sem öllum flokkadrátt- um voru ofar. Flokki sfnum, Fram- sóknarflokknum, fylgdi hann af mikilli staðfestu og varði víxlspor hans af rökvísi og kappi, ef því var að skipta. Hitt fór ekki milli mála að hann vildi skipa honum vel til vinstri og taldi samstarf við róttækustu þjóðfélagsöflin á hverjum tíma rétt og sjálfsögð. Það leiddi því af sjálfu sér, að engan átti ég traustari fylgismann í forystu Verkalýðsfélagsins heima um átta ára skeið, þar sem ég átti hið besta samstarf við ágæta verkalýðs- sinna úr röðum þeirra framsóknar- manna. Sú samfylgd var ánægjuleg og kom ýmsu góðu til leiðar. Pétur var maður mannræktar í bestu merkingu þess orðs, hann las mikið og var mjög fróður, jafnt um liðna lífshætti sem nýjungar nútím- ans. En hann var mikill ræktunarmað ur, hvort sem litið var til gróandi jarðar eða til fjárræktar, sem hann hafi einkar mikinn áhuga á. Það sýndi hann best í forystu sinni fyrir fjárræktarfélagi heima og ó- þreytandi áhuga hans á því að menn fóðruðu vel og skynsamlega og rækt- uðu þau gæði og þá eiginleika ánna, sem mest var um vert. Af honum var gott að læra og sjálfur fór hann þar í fararbroddi, annað hefði ekki verið í samræmi við skaphöfn hans. Æviúttekt skyldi þetta engin verða. Aðeins örfá minningabrot sem brjóta sér leið fram í huga minn. Enginn, sem hitti þennan æðru- lausa dreng, svo sáttan við tilveruna og umhverfi sitt allt, svo hlýlegan og glaðan, enginn mun nokkru sinni hafa fundið biturleika eða beiskju út í lífið. Hart hafði það þó leikið hann, þegar hann á besta aldri sá á bak eiginkonu sinni og heimilið sundraðist. Þann mikla harm bar hann aldrei á torg, þó heit væri lund og viðkvæmnin væri skammt undan. Sú saga og æviatriði almennt skulu ekki rakin hér, enda hefur nafni hans áður gert því hin ágætustu skil. En ég hlaut að festa á blað fáeinar hugleiðingar, þegar slíkur öðlingur er allur,sem ég hafði af svo góð og kær kynni alla tíð. Sem barn fann ég á heimili mínu að þar var Pétur mikils metinn sem gegn drengur og góður vinur. Sú gulltrygging brást aldrei í önn dag- anna. Ern og hress var hann allt fram til þess síðasta. Traust og hlýtt var síðasta handtakið heima á Reyðar- firði. Innileikinn og alúðin söm sem fyrr og gleðin yfir að vera heima lýsti af ljómandi brá. Fyrir samfylgd kæra og bestu kynni er nú þakkað um leið og börnum hans eru sendar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning hins mæta drengs. Helgi Seljan t Útför sonar okkar, bróður, mágs og frænda, Hafþórs Más Haukssonar Fjarðarási 28, Reykjavik sem lést af slysförum 20. janúar 1985, fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 4. apríl kl. 16.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á björgunar- og hjálparsveitir. Sigrún Steinsdóttir Haukur Harðarson Dagrún Helga Hauksdóttir Bergþór Bjarnason Vignir Bragi Hauksson Katrín Sif Ragnarsdóttir Andri Már Bergþórsson V6RZLUNRRBRNKI l'SLRNDS Hf Aðalfundur Verzlunarbankaíslands hf. verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu, laugardaginn 12. apríl 1986 og hefst kl. 14.00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf skv. 18. grein samþykktar fyrir bankann. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Tillaga um breytingu á samþykktum bankans vegna nýrra laga um viðskiptabanka nr. 86/1985. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í af- greiðslu aðalbankans Bankastræti 5, miðvikudaginn 9. apríl, fimmtudaginn 10. apríl og föstudaginn 11. apríl 1986 kl. 9.15 - 16.00 alla dagana. Bankaráð Verzlunarbanka íslands hf. ÖLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN TÖLVUEYÐUBLÖÐ • Hönnun • Setning • Filmu- og plötugerð • Prentun • Bókband PRENTSMIDJAN (^clclc Cl HF. SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR SÍML.45000 BÍLALEIGA Útibú í kringum landið REYKJAVÍK:.....91-31815/686915 AKUREYRI:.......96-21715/23515 BORGARNES:.............93-7618 BLÖNDUÓS:....... 95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR:......95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489 HÚSAVÍK:....... 96-41940/41594 EGILSSTAÐIR: ..........97-1550 VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303 Sff Vinnuskóli Reykjavíkur Vinnuskóli Reykjavíkur auglýsir eftir leiðbeinendum til starfa við vinnuskólann í sumar. Starfstími er frá 1. júní til 1. ágúst n.k. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í verkstjórn og þekkingu á gróðursetningu, jarðrækt o.fl. störfum t.d. hellulögn og kanthleðslu. Til greina koma Vz dags störf. Umsóknareyðublöð eru afhent í Ráðning- arstofu Reykjavíkurborgar, Borgartúni 1, sími 18000. Þar eru einnig gefnar upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til 20. apríl n.k. Vinnuskóli Reykjavíkur Laus staða Laus eru til umsóknar staöa lektors í heimspeki viö heimspekideild Háskóla íslands. Umsækjandi skal vera hæfur til aö kenna heimspekisögu og jafnframt ýmsar greinar heimspeki svo sem frum- speki, siöfræði og þekkingarfræði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rannsóknir og ritsmíöar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 1. maí 1986. Menntamálaráðuneytið, 1. apríl 1986. t Maöurinn minn, faðir okkar, sonur og bróöir Jóhann Sveinbjörn Hannesson Felli, Sandgerði er fórst þann 20. mars s.l. verður jarðsunginn frá Hvalneskirkju laugardaginn 5. apríl kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélag íslands Sigurrós Magnúsdóttir og synir Anna H. Sveinbjörnsdóttir og systkini hins látna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.