Tíminn - 04.04.1986, Qupperneq 6

Tíminn - 04.04.1986, Qupperneq 6
Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Ritstjóri: NíelsÁrniLund Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason Innblaösstjóri: OddurÓlafsson Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:1 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaöaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.- Markvisst æskulýðsstarf í komandi sveitarstjórnarkosningum verða mörg málefni sett á oddinn hjá frambjóðendum flokkanna um allt land. í mörgum tilvikum eru það sömu málin sem barist er fyrri enda þóttt mismunandi sé hvaða áherslu frambjóðendur leggja á þeirra framgang. Einn er sá málaflokkur sem ekki má gleymast, en það eru æskulýðsmálin. Æskulýðsmál eru fyrst og fremst sveitarstjórnarmál enda þótt ríkið styrki þau í mörgum tilvikum. Framsóknarflokkurinn leggur í þessum kosningum mikla áherslu á þennan málaflokk eins og hann hefur jafnan gert, enda gerir hann sér ljósa grein fyrir þýðingu heilbrigðs æskulýðsstarfs. Tengsl hans við íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna hafa alltaf verið mikil og hann hefur stutt þessar hreyfingar svo sem kostur hefur verið. Má þar m.a. benda á setningu íþróttalaganna sem framsóknarmenn höfðu forgöngu um, og mörkuðu tímamót í íþróttastarfinu. Þótt æskulýðs- og íþróttamálum sé mjög víða vel sinnt má gera betur. Breyttir tímar krefjast þess að þau séu í sífelldri endurskoðun, þannig að starfið sé ávallt ferskt, og veki áhuga þeirra sem það stunda. Sífellt er verið að leggja áherslu á fyrir byggjandi starf í ýmsum greinum. í heilbrigðu æskulýðsstarfi felst mikið forvarnarstarf. Það er viðurkennd staðreynd að þátttaka í æskulýðsstarfi dregur úr þeirri hættu að ungt fólk lendi á villigötum og leiðist út í vafasamt líferni. Enda þótt æskulýðsstarfið kosti mikla fjármuni er þeim fjármunum vel varið og ætti það að vera kappsmál hverju sveitarfélagi að hlúa sem best að því. Ekki síst þarf að styðja viö æskulýðs- og íþróttafélögin sjálf. Þau hafa borið hitann og þungann af æskulýðs- starfinu hingað til og eðlilegast er að það sé áfram í þeirra höndum. Samt sem áður er það þýðingarmikið að ríki og sveitarfélög styðji þau ekki síst hvað varðar aðstöðu sem er dýr. Við athugun á æskulýðsstarfinu kemur í ljós að það er fjölbreytt og tengist flestum þáttum þjóðlífsins. Áhugi fyrir félags- og tómstundastarf hefur vaxið og gera má ráð fyrir að með aukinni tæknivæðingu og styttingu vinnutímans verði enn brýnni þörf fyrir félags og tómstundstarf . Mikilsvert er að sveitarfélög geri sér grein fyrir þessari þróun og mæti henni á réttan hátt. Markmiðið ætti að vera það að hver einstaklingur eigi að geta notið sinna frístunda í hollu og þroskandi tómstundastarfi. Gera verður mun á tómstundastrfi sem felst í mötun og óvirkri þátttöku og skapandi tómstsundastarfi hins vegar. Enginn unglingur endist lengi við það starf þar sem hann er hlutlaus þiggjandi án þess að leggja nokkuð af mörkum sjálfur. Hann vill sjá árangur af vinnu sinni hvort heldur það er í tómstundum eða annarri vinnu. Með vel skilgreindu markmiði og góðri skipulagningu ber æskulýðsstarfið árangur. Leita þarf til unglinganna sjálfra og fá álit þeirra. Hvað er gott og hverju vilja þeir breyta? Óskir þeirra ber að virða og samræma verður sjónarmið. Með virkri þátttöku þeirra í mótun æskulýðsstarfsins finna þeir til ábyrgðar sem þeir eru vissulega fær um að standa undir. íslensk æska er dýrmæt og að henni þarf að hlúa. Heilbrigt, öflugt og fjölbreytt æskulýðsstarf gerir það. Níels Árni Lund 6 Tíminn Föstudagur 4. apríl 1986 illllllli ORÐ í TÍMATÖLUÐ llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilH I Egvilgjarnanvera kallaður hálfviti í vikulcgum pistli sfnum í DV í gær gcrir Magnús Bjarnfreðsson fá- tæktina á íslandi að umræðucfni. Einkum beinir Magnús spjótum sínum aö þeirri fátæktarumræðu sem átt hcl'ur sér stað í fjölmiðlum og annars staðar að undanförnu og virðist ckki meta mikils félagsmála- stjórana scnt hrintu þessum málum öllum af stað mcð málþingi sínu. Þá nefnir hann „hálaunaðan gáfu- mannahóp". scm ckki veit hvað fátækt cr. Þeir staðlar scm „gáfu- mennirnir” nota eru svo fráleitir og „yfirþyrmandi vitlausir" scgir Magnús að það þarf hvorki meira né minna cn hálfvita til þcss að taka eitthvað mark á þcim. En þcssi fátæktarumræða cr þó líka öðru illu marki brcnnd, samkvæmt Magnúsi. Eað cr að af hcnni cr „pólitískur kcimur" og því hafa þessi mál ckki veriö rædd „hleypidómalaust". Trúlega ber að skilja það scm svo að það scnt Magnús hefur til málanna að leggja sé þá upplýst, hleypidómalaust og ópólitískt framlag. Magnús telur það rcyndar rétt að hér á íslandi hafi verið fátækt og að hcr sé fátækt og það sem vcrra er að hér muni alítaf vera fátækt. Þcssi fátækt bendir hann hins vcgar hleypidómalaust á, cr ckki eins mikil í Breiðholtinu og í skuggahverfum Lundúnaborgar. Síðan kcmur hann að megin inn- taki skýringar sinnar á fátækt cn hún er sú að gæðunum sé misskipt í þjóðfélaginu, cn þaö cr framlag til umræðunnar sem „gáfnaljósun- unt hálaunuðu" hcfur væntanlega sést yfir. En það er von því gáfna- Ijósin, og við hin.höfum ckki viljað láta neitt af hcndi rakna cða slá af okkar lffsstíl til að útrýma henni! En Magnús vill ekki blanda pólitík í málið og ræðir þetta því ekki nánar enda er það í samræmi við þá kenningu hans að ekki sé mark takandi á umræðu um misskiptingu gæðanna sem af er „pólitískur kcimur"! Þannig tckst honum að „af- greiða" pólitíska umfjöllun áður cn hún er byrjuð, því pólitíkin snýst jú þcgar allt kcmur til alls um uppskiptingu gæðanna. Niöurstað- an verður því í samræmi við það: cngin. Hins vegar hcfur Magnús greini- lega ákveðnari hugmyndir um fá- tæktina en virðist í fyrstu. Pólitík snýst um það að breyta. en hún er óþörf því fátækt cr ncfnilega ekki hægt að breyta, vegna þess að ein megin orsökin er fátæklinganna sjálfra. Þarna eru á fcrðinni drykkjumenn. óreglufólk, og dóp- istar, að vísu á þetta ekki við um alla fátæklinga, segir Magnús, en greinilega það stóran hluta að hann telur ekki að um undantekningar sé að ræða. Raunar spyr Magnús sakleysislega að því hvað menn haldi að mörg heimili niuni haldast í fátækt hversu há laun sem þau komi til með að fá, einmitt vegna drykkjusýki? Hérerhleypidómaleysi Magnús- ar fullkomnað enda fáir orðnir eftir af þeint harðsnúna kjarna sem heldur því fram að fátækt orsakist af drykkjuskap. Ef hleypidómaleysið felst í þvf að líta á fátækt sem ólæknandi drykkjusýki og hálfvitaháttur felst í því að tengja misskiptingu gæð- anna pólitík og taka mark á þeim stöðlum sem „hálaunuðu gáfna- Ijósin" hafa lagt til sem fátæktar- mörk, eins og Magnús Bjarnfreðs- son vill hafa það, er ég ánægður með að vera kallaður hálfviti. -BG IHIIIIII I VlTT OQ BRFITT 1!! .... Neysluvenjur og heilsufar Varðveisla heilbrigðis er talsvert á dagskrá þessa dagana og ekki vonum seinna að sæmilega upplýst fólk farí að leggja áherslu á að varðveita heilsu sína í stað þess að treysta einvörðungu á lækningu þeg- ar í óefni er komið. Heilsufari nútímamannsins fer hrakandi og er óhollum lifnaðar- háttum um að kenna. Beint liggur við að telja upp tóbúksnotkun, áfengisneyslu að ógleymduin öðr- um fíkniefnum. Óhófleg bílanotk- un er líka hættuleg og bætist við kyrrsetur og litla sem enga líkams- áreynslu. Þetta eru allt atríði sem allir þekkja og skilja. En á siðarí árum hefur athyglin cinnig beinst að mataræði. I ofgnóttinni velur hvcr og einn sér það að éta sem honum þykir best, þ.c.a.s. bragðbest. En ef til vill éta fleirí sér til óbóta og bíða tjón á hcilsu sinni af þeim sökum en af öðru óhófi og eftirláts- semi við sjálfan sig. Með aukinni þekkingu og bættrí fræðslu um mataræði og heilsufar er Ijóst orðið að ýmsar matarvenjur sem áður þóttu sjálfsagðar og hollar eru nú taldar varhugaverðar og óhófleg neysla sumra fæðutegunda beinlínis heilsuspillandi. Fræðsla um þessi efni er farín að hafa talsverð áhríf og eiga þau eftir að aukast. Þessi brcyttu viðhorf hafa mikil áhríf á atvinnuvegi á íslandi, sem er að vonum því afkoma landsmanna byggist fyrst og fremst á matvælaframleiðslu. Breyttar neysluvenjur hafa bæði góð og slæm áhríf á atvinnuvegina. Eftirspurn flskmetis eykst hröðum skrefum um hinn upplýsta heim. Eftirspurnin er mikil og fer vaxandi og vcrðið hækkar. Næringar- fræðingar hvetja mjög til aukinnar fiskneyslu og leggja fram sannanir um að fiskur sé holl fæða. Sölu- aukningin er því ekki cndilega vegna þess að neytendum þyki fiskur góður á bragðið heldur af heilsufarsástæðum. Eitt af því sem næríngarfræðing- ar og læknar vara við er óhófleg ncysla á kólesteróli. Hún hefur vond áhríf á blóðrásarkerfið og veldur hjarta- og æðasjúkdómum. En það eru einmitt þeir sjúkdómar sem verða flestum að heilsutjóni í allsnægtaríkjunum. Það er úr fitu spendýra sem við innbvröum mest af þessu efni. Það er að nokkru leyti af þessum sökum að smjör- og kjötfjöll hlað- ast upp. Sú fjallhleösla er engan veginn einskorðuð við ísland held- ur vandamál í öllum ríkjum sem búa við tæknivæddan landbúnað. Þetta atríði sýnist algjörlega utanveltu ■ þeim miklu umræðum sem nú eiga sér stað um vanda landbúnaðaríns. Það er ekki ein- göngu vegna vcrðsins á hefðbundn- um landbúnaðarvörum að dregur úr sölunni. Fyrir nokkru var verð á smjörí lækkað verulega. Söluaukningin er sáraiítil. Smjörltki sem unnið er úr jurtafitu kemur í þess stað. Niðurgreiðslur hafa ekki tilætluð áhrif. Þverhandaþykkir síðubitar af sauð og bringukollar eru ekki leng- ur eftirsótt fæða. Neytendur sneiða hjá fitumiklu kjöti. Góður fall- þungi dilka skilar sér ekki sem eftirsótt söluvara. Áróður gegn ofneyslu á dýrafitu á enn eftir að þyngjast og draga mun enn meira úr neyslu hcnnar til manneldis. Niðurgreiðslur og aðr- ar stjórnvaldsaðgerðir munu ekki auka neysluna svo neinu nemi. Fituskertar mjólkurvörur verða kannski enn eftirsóttari en nú er og kjötát leggst ekki niður þótt fita sé skorin frá vöðva. Engin hætta er því á að landbúnaður leggist af, en þeir sem við búvöruframleiðslu starfa hljóta að verða að gera sér grein fyrir tíreyttum neysluvenjum og iífsviðhorfum. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.