Tíminn - 04.04.1986, Qupperneq 8

Tíminn - 04.04.1986, Qupperneq 8
8 Tíminn Föstudagur4. apríl 1986 VETTVANGUR llllllllll; Jens í Kaldalóni: Nokkur orð til EiðsGuðna sonar, alþingismanns Af því þú ert orðinn svo mikill bændavinur Eiður minn, samanber grein þína í Tímanum 5. mars, þar sem þú algerlega vilt afplána þá syndasögu að ykkur krötunum hafi aldrei nokkurntíma verið í minnsta máta í nöp við bændurna hér á landi voru, en bara verið um skipu- lagsmál þeirra sem þið hafið svo mjög gagnrýnt, og með sínu frána gestsauga hafi það í upphafi vega verið dr. Gylfi okkar Gíslason, sem fyrstur manna hafi komið auga á, að nauðsynlegt væri að skipuleggja landbúnaðarfram- leiðsluna. En af því við erum nú báðir svo miklir jafnaðarmenn Eiður minn, en þú þó sennilega öllu meiri, langar mig nú að biðja þig að skreppa snöggvast niður á jörðina, svo ég geti rabbað við þig dulítið um þessi þjóðþrifa mál okkar í ró og spekt, og þá kanna hvernig samkomulagið verður. Ef þú svo fengist til aö gera þér grcin fyrir því, að við búum hér á eylandi langt norður í höfum, köldu.oft, snjóa og hrakviðrasömu, og í öðru lagi þú gerir þér grein fyrir því, að á þessu blessaða landi fáum við hvergi efni í nagla, tvinna- spotta eða nokkurt það efni, sem orð er á gerandi, til neinna þeirra hluta sem við óhjákvæmilega gctum ekki án verið, svo við hér getum líftór- unni haldið á nokkurn máta, og til þess að geta keypt öll þau ósköp frá útlöndum, sem þjóð okkar þarfnast, þá hlýtur okkur að koma saman um það, að við verðum að vinna úr skauti okkar eigin jarðar öll þau efni, sem þaðan við mögu- lega getum liaft hin minnstu not af, hvað þá hin lífsnauðsynlegustu fæðuefni, sem svo kjarnaríkum eiginleikum gædd eru, að uppfylla öll þau skilvrði sem hinn kraftaríki íslenski mannsskrokkur þarf á að halda til fullkomnunar allri vel- gengni. Það veist þú Eiöur Guðnason, ;tð oft hafið þið kratarnir staðið með kollegum ykkar öðrum í þrautapínu útaf samningum um kaup og kjör fyrir umbjóðendur ykkar. Ríkið sjálft hefur oftast verið þar þrautalendingin viö að eiga, og oftast lofað ykkur: að ef þið gangið að hinu eða þessu þá skuli það fórna svona og svona mörgum milljónum til þess að borga úr sjóðum ríkisins niður- greiðslur. sem svo eru kallaðar, á kjöti, mjólk og kartöflum. Þegar svo upp hefur verið staðið eftir hvern samninginn af öðrum, hafið þið útum öll stræti og götur hrópað ókvæðisskammir á alla bændastétt þessa lands, sem ölmusukvikindi væru af versta tagi, og ckki nóg meö hrópin á götum úti, og manna- mótum öllum, heldur þá og ekki síður notað til þess allan þann blaðakost, sem til hafið náð, og mcð sætabrauðsprinsinn í farar- broddi, sjálfan DV ritstjórann, um að hætta þessum andskotagangi öllum í einum kórað framleiða hér búvörur og flytja inn frá útlöndum öll þau gæði lífsins, ekki einungis til hnífs og skeiðar, heldur bókstaf- lega allt það sem þjóðin þarfnast þá í öllu formi. Þegar svo þessar niðurgreiðslusneiðar allar hafa harðnað og myglað í fjárreiðum ríkisins, og þá sveiflurnar mestar í ncysluverðlagi neytandans, hafa hin sárustu ramakvein ykkar staðið fjöllunum hærra um hið óguðleg- asta okur bændanna á öllu þessu dóti, og talið það eitt, og aðeins eitt til lífsbjargar að flytja þessar vörur í öllu formi til landsins. Ykkar skynsemi hefur aldrei náð útfyrir þann sjónhring, að til þcss að kaupa allt frá útlöndum þyrftum við peninga, þ.c. að flytja eitthvað útúr landinu í staðinn og því síður nokkurn tímann ýjað að því, að til þyrfti nokkurn skapaðan hlut til þess að sjá því fólki farborða, sem að búskapnum stæði, bara að fækka þeim lýð, rétt eins og rollun- um í sláturhúsi á haustin. Heldur aldrei ýjað að því þótt þjóðin þar með yrði að henda öllum þeim verðmætum, útum allar sveitir íslands, sem hvarvctna blasa við sjónum á öllum okkar byggðu bólum, hvað þá heldur leitt hugann að því tilfinningamáli, sem óneit- anlega cr því samfara, að slíta rætur sínar upp með rótum frá upprunalegu heimkynni sínu, með öllum þeim kvíða sárindum og óvissu um framtíðartilveru sína, sem því óneitanlega fylgir. Alþýðuflokkurinn hefur gagn- rýnt stefnuna í landbúnaðarmál- um, en ekki fjandskapast við ís- lcnska bændur, segir þú, og á öðrum stað segir þú „Gagnrýni okkar hefur bcinst að vitlausri landbúnaðarstefnu, ekki gegn bændum". Vitlausara hef ég nú sjaldan heyrt, og þó allra síst frá ekki óskynsamari manni en þér. Þetta er svona ekki ólíkt og ég segði: Ég var að gagnrýna Alþýðu- flokkinn og hans stefnumörkun í stjórnmálum, en ekki alþýðu- flokksmcnn," svo sem að það væri allt annað. Ekki linnti látum ykkar kratanna að skattyrðast útí bændur fyrir allan þann óguðlega innflutning á fóðurbæti áratugum saman, en þegar gerð var á því könnun, hvað mikið af innfluttu fóðurméli læri í hinar hefðbundnu búgreinar, og hvað í hænsni, svín og annað, og þegar þá ,kom upp sú staðreynd að af 60 milljón kr. ársinnflutningi af þeirri vöru fóru 30 milljónir til svína og alifuglaræktar, hefur ekki kval^ heyrst um þá hluti frá ykkar munni síðan. Lítil reisn, og lélegar úrbætur Það er óneitanlega lítil reisn, og lélegar úrbætur, sem svifið hafa yfir vötnum í níðsöng ykkar al- þýöuflokksmanna um íslcnskan landbúnað alla tíð. Það er bara eins og þetta stórmál í íslensku þjóðlífi væri ekki til annars en skammast útí bændur, og þeirra fyrirtæki, og mættu fara öll lönd og leið, án þess að nokkrum kæmi það við nema bændunum einum, að útflutningsmarkaður þeirra lokað- ist svo gjörsamlega á cinu bretti, og ekki einungis hann, heldur aö miklum hluta sá inniendi líka, bæði að miklum hluta fyrir ómann- legan áróður ykkar, og verðsveifl- ur, scm ríkisvaldið er beinn aðili að, og raunar potturinn og pannan, sem og ekki síður hitt, að áróður ykkar fyrir innfluttum nauðsynjum öllum væri sá einlægi verndari allra manna hér á landi, að ckki einu sinni væru nankinsbuxur sem saumaðar væru af íslcnskum hönd- 'um þess virði að klæðast í þær, hvað þá hcldur skónum á fætur sér. Eða Irvenær hafið þið beitt áróðri fyrir neyslu íslenskra vara hér . undanfarna áratugi. Þú gætir kannski dundað þér við að lesa eitthvað af öllum eggja- kjúk- linga og kartöflu greinunum í Al- þýðublaðinu og DV. undanfarin ár, og þarf ckki að fara lengra aftur í tímann en lyfta upp Dagblaðinu, þar sem ritstjórinn telur helst til ágætis ríkissjóðshallanum núna að hætta að framleiða „arðlausan búskap“. En það er kannski arð- samara að flytja inn tvö þúsund tonn af pappír undir fleiri hundruð tímarit, svo sem sýnt var í sjón- varpinu nýlega. Mannskemmandi og þjóðarsmán Þessi manngerð ykkar, og áróð- ur allur, er mannskemmandi og þjóðarsmán vegna þess að hann á við engin rök að styðjast. Hann er pólitískur atvinnurógur af verstu gerð athafna ykkar í því formi að sverta og níða eina aðalatvinnu- stétt þessarar þjóðar, sem ekkert hefur sér til saka unnið annað en með heiðarlegu móti að stunda atvinnu sína, sér til lífsframfæris og stórkostlegustu uppbyggingar þjóð sinni allri til handa, og hafa það eitt sér til raka, að henda nú helmingi allra bænda þessa lands blákalt útá guð og gaddinn í öllu formi, án þess að geta á nokkurn hátt gert sér, eða bændunum, hina minnstu grein fyrir því, að hverju sé að hverfa, þá burt sé farið frá búum sínum, og sú kenning ykkar, að kaupa bændur til að bregða búi sínu. og fara í citthvað það sem enginn gctur bent á hvað vera eigi, er svo ábygrðarlaus kjaftháttur, að það sæmir ekki siðuðum alþingis- mönnum að tyggja svoleiðis rjól og rullu, í auðnu þeirrar tilveru, scm þið svo sannarlega eruð búnir að meðhöndla. í athöfnuni ykkar öll- um í stjórnun fjármála þessa lands um tugi ára. Þvi það er enginn krossnefur þessa lands svo vitvana eða illa gcrður, sem utandyra al- þingislögsögu þessa lands stendur, og fyrir sér þarf að hafa með eigin hendi, að ekki sjái, og jafnvel með stórum stöfum blasir við auga hvers sjáandi manns og konu, að 40% verðbætur, og að auki 35% vextir af eðlilegum skuldum manna á ári hverju, getur enginn arkað þann veg í neinu formi. að nokkursstað- ar finni þann gullbrunn úr að ausa, að slíkt dæmi geti gengið upp. Það vaknar þá ekki síður sú spurning upp, hvort ekki séu neinar aðrar vörur á landi hér aðrar en búnaðar- vörur bænda dýrar. Ég var að fá smádót í pappakassa núna í fyrra- dag, bara rétt fyrir 3 manneskjur í matinn, ekki ein einasta landbún- aðarafurð var í því, en þctta kost- aði hálfan skrokk af hálfs annars árs gömlum kálfi, fyrir hinn helm- inginn af skrokknum fékk ég 2 dekk undir bílinn minn. Þá var sú aíurðin kláruð. Það var éinn ágæt- ur kennari úr Reykjavík í sumar- bústaðnum sínum ekki langt frá mér í sumar. Hann fékk eina olíutunnu og 2 dekk undir bílinn sinn fyrir akkúrat helminginn af kennaralaununum sínum yfir mán- uðinn. Hann borgaði tryggingarnar af bílnum sínum áður en hann fór í sumarfríiið, og það fór allt heilt mánaðarkaupið eins og það lagði sig uppí það. Þá var aðeins hálft mánaðarkaupið eftir til að forsorga sig á í hálfan annan mánuð. Ég fékk líka 25 þúsund kr. fyrir einn kálfsskrokk í haust, af nær tveggja ára gömlum kálfi, og þótti gott, en þegar ég var búinn að kaupa eitt, aðeins eitt tonn af fóðurblöndu fyrir andvirði skrokksins, voru eftir aðeins 2000 krónur. Það var ekki til einskis unnið að ala kálfinn þann arna í nær 2 ár. Þótt þetta séu bara smádæmi um allan þann and- skotagang í íslensku verðlags og viðskiptalífi okkar, þá er af svo ótal dæmum að taka ekki betri eða kostaríkari í fjármálatuski okkar íslendinga, að það væri ykkur nær, að þenkja eitthvað um þá hluti, af viti, alþingismönnum og pólitíkus- um, en að neyta allra ykkar krafta í það að níða og rægja bændur þessa lands og leggjast svo á náinn, þegar uppflosnun og dauðinn blasir við fótmáli þeirra, í framvindú þeirra mála, að geta lifað eins og aðrir menn af atvinnu sinni og umfangi. Hengingaról bænda „Það er sama og rétta bændum hengingaról, að bjóða þeim gengis- tryggð lán með 8% vöxtum. Undir þeim kringumstæðum verður seint losnað við vaxandi niðurborganir og útflutningsbætur f einhverju formi,“ segir Þórarinn Þórarins- son, fyrrv. ritstjóri. En 8% vextirn- ir cru kannski ekki versta henging- arólin, þótt nógu sé hún stór, en þegar ryðjast 45% dráttarvextir og aðrar 45% verðbætur á alla summ- una, þá ætti enga sérfræðinga þurfa til að sjá hengingarólina blasa við öllum mönnum, bæði í húsnæðis, sjávarútvegs og landbún- aðarkapítalinu. Þarna í er nefni- lega m.a. að finna þá hengingaról, sem blasað hefur við að herðist að hálsi allrar starfsemi okkar svo annars ágæta þjóðlífi. En hann segir líka annað hann Þórarinn Þórarinsson, sem sé: að það hafi verið í stjórnartíð AlþýðuÓokksins 1959, að niðurgreiðslur landbúnað- arvara hafi náð hámarki sínu í glímu stjórnarinnar þá við dýrtíð- arvísitöluna. Já, sko þarna hitti hann Þórarinn okkar ritstjóri, svo sannarlega naglann á höfuðið. Það er nefni- lega þannig að síðastliðin 40 ár hafið þið kratarnir verið að elta skottið á ykkur sjálfum í kapp- hlaupi fyrir niðurgreiðslum og kauphækkunum, sem aldrei hafa annan árangur borið, en magna á ykkur skömmina, fánýti og fífla- skap, sem engum hefur oröið til brautargengis. Nærri því komið okkar annars ágæta Alþýðuflokki í gröfina og rótgróinni bændastétt þjóðarinnar útá vergang, sem í svæsnustu móðuharðindum. Svo kemur þú hinn blíðasti nú og biðst vægðar á þann veg, að aldrei hafið þið alþýðuflokksmenn nokkurn- tímann hallað styggðaryrði til bænda í hinu minnsta formi. En það er kannski seint að iðrast eftir dauðann Eiður minn, en betra þó seint en aldrei að viðurkenna sann- leikann. En það er engin heldur smáræðis rúsína sem kemur í pylsuendann á grein þinni í Tímanum 5. mars, þar sem þú segir. „Það er kannski alvarlegasti vandinn, sem blasir við í íslenskum landbúnaði í dag og hann er ekki aðeins afleiðing rangrar stjórnarstefnu, heldur langrar óstjórnar í efnahagsmál- um.“ Já. og hún er kannski ekki síður ástæða þess, sem þú hefur eftir bónda á bændafundinum í Heiðarborg, Logalandi og Valfelli: „Eigum að hætta þcssari hclvítis vitleysu með útflutningsbæturnar og taka upp tekjutryggingu með beinum greiðslum til bænda.“ Það er nefnilega ekki nokkur heilbrigði í því hvernig hefur verið haldið á efnahagsmálum þjóðarinnars.l. 40 ár. Það er fyrst í vetur, að örlað hefur á því að nokkurt vit hafi verið í samningum um kaup og kjör, ef þá skyldi vit kalla, en þó miklu mun nær því en áður. Én það er ekki heldur neitt vit í því að kaupmenn taki einn dilkskrokk fyrir að selja 2 skrokka sem okkur er skilað verði fyrir, og aukin heldur er ótrúlega lítið vit í því, að sölufyrirtæki bændanna. Samband- ið taki umboðslaun af niðurgreið- slukapítali því sem fram er lagt, svo bændur fái eitthvað nálægt grundvallarverði því sem þeim er ætlað, það er nær því að þeir peningar séu seldir útúr landinu með kjötinu, og af þeim séu svo greidd sölulaun. Svona verslunar- máti er ekki í takt við þá lýðræðis- legu hugsjón, sem samvinnustarf:- semin upphaflega byggðist á. Kaffibaunamálið ekki heldur. Það er heldur ekki fagurt ford- æmi kaupmanna, þá frjáls verslun- artrúnaður er færður þeim í fangið, í frjálsri álagningu á vörur sínar, að það skuli vera allt uppí 500% álagningarmismunur á lambakjöt- inu. Þetta er langt fyrir neðan alla reisn og trúnað með frelsið og velsæmið í okkar verslunarvið- skiptum, aukin heldur að gera sig svo að opinberum þjófsnaut, að talið er, að nokkrum mjólkurpott- um í vafasömu tilboði. En hroðalegast af öllu illu, svo sem nú er málum komið, að flutt skuli inní landið unnin mjólkurefni úr milljónum lítra af mjólk í bökunar og brauðvörur. Það þorði enginn að slá á þær tölur sem um væri að ræða í sjónvarpinu um daginn, en aftóku þó ekki að um 10 milljónir lítra af mjólk gæti verið að ræða. Gjaldeyrissnauð þjóð með búskap sinn í argasta niðurdrepi, sem svífur svo langt frá tilveru sinni útí dáðlausa óráðssí- una, er litlu betri en hjá ofdrýkkju vesalingnum, sem ekki kann fótum sínum forráð. Undanrennumusterin og of dýru fjárhúsin En svona í lokin Eiður minn, að ekki má gleyma garminum honum Katli. Og ekki mun það allt svo framhjá þér farið hafa, lofgjörðin ykkar um undanrennumusterið á Bitruhálsinum, eða hitt þó heldur. Auðvitað vita allir að slfkt eru dýrar framkvæmdir. En hvernig eru ekki kröfurnar sem gerðar eru í dag til sláturhúsa, kjötvinnslu- stöðva og mjólkurbúa. Lítið inní fiskvinnslustöðvarnar í dag, og spyrjið hvort þetta sé ekki dýrt. En það cru þó mannlegar vistarverur því fólki til handa, sem þar eyðir mestri ævi sinni til framleiðslu þeirra matvæla, sem gerðar eru kröfur til að standist það strangasta hreinlæti, og albestu aðstöðu sem í dag þekkist til slíkra hluta. Stefán Aðalsteinsson segir fjár- húsin á íslandi vera einnig svo dýr, að enganveginn geti búskapur bor- ið sig í slíkum höllum, og ber saman við búskap í Ástralíu og Sjálandi, en hann bara ber ekki það saman að fjárhúsin á íslandi eru vinnustaður bænda í 7-8 mán- uði á ári hverju en hinna kannski í mánuð sem hýsa þarf fé. En svo að auki, er það nokkur vitrun, þótt fjárhúsin á íslandi séu dýr? Eru ekki öll hús á íslandi of dýr, bæði fyrir menn, iðnað og skepnur. Svona sleggjudómar um að úrelta eina atvinnugrein þjóðarinnar, landbúnaðinn einan, um leið og sólundað er í eins og stærstu fursta- hallir veraldarinnar. fleiri hektarar að flatarmáli verslana- og skemmti- hallir í því óhugnanlegasta óhófi, að ég ekki svo nefni hina heilögu happakú sjálfa Seðlabankahöllina, rétt si svona með svo litla pinkilinn hjá Landsbankanum ofaní milli á klakkanum einar litlar 260 milljón- ir í hreinan tekjuafgang, en svo síðast en ekki síst það fagurfágaða stjórnkerfi þessarar elskulegu þjóðar okkar. að þegar skattleggja átti sætabrauðið hjá bökurunum, voru karlar ekki lengi að snúa sér við. Láta bara baka kökurnar úti í Danmörku, þá þyrfti ekki að borga af þeim skatt. Getið þið sagt mér svona í laumi, hvar á stalli við stöndum í siðferðinu. Með bestu kveðjum Eiður minn. Jcns í Kaldalóni

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.