Tíminn - 04.04.1986, Side 19

Tíminn - 04.04.1986, Side 19
Föstudagur 4. apríl 1986 lllllllllll HELGIN FRAMUNDAN Úr balletinum „Stöðugir ferðalangar“ (Tímamynd Sverrir) ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sýningar Þjóðleikhússins um helgina: Stöðugir ferðalangar Balletfrumsýning á sunnudagskvöld Á sunnudagkvöld frumsýna Þjóð- leikhúsið og Islenski dansflokkurinn þrjú balletverk eftir hollenska danshöfundinn Ed Wubbe, sem er nú kominn í fremstu röð evrópskra danshöfunda. Eitt verk- anna er samið sérstaklega fyrir dansflokk- inn hér, en hin tvö hafa áður verið sýnd í Hollandi þar sem þau vöktu mikla hrifn- ingu, en Wubbe hlaut í síðasta mánuði æðstu viðurkenningu sem skapandi lista- manni í Hollandi er veitt. Sérstök athygli er vakin á því að þessi balletsýning er meðal áskriftarverkefna Þjóðleikhússins í vetur. Ríkarður þriðji. 8. sýning Á föstudagskvöld verður 8. sýning Þjóðleikhússins á Ríkarði þriðja, eftir William Shakespe are, í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Leikstjóri er John Burgess, en með helstu hlutverk fara Helgi Skúlason, sem leikur titilhlutverk- ið, Róbert Arnfinnsson, Kristbjörg Kjeld, Margrét Guðmundsdóttir, Ragn- heiður Steindórsdóttir, Herdís Þorvalds- dó;tir, Rúrik Haraldsson, Erlingur Gísla- son, Flosi Ólafsson og Sigurður Skúlason. Með vífið í lúkunum Fáar sýningar eftir Á laugardagskvöld verður sýning á breska farsanum, Með vífið í lúkunum, eftir Ray Cooney, og er vakin athygli á því að nú eru einungis fáar sýningar eftir á þessum vinsæla gamanleik, en búið að er að sýna verkið nálægt 50 sinnum í Þjóðleikhúsinu og hátt í 70 sinnum alls. Kardemommubærinn Næst síðasta sinn Næst síöasta sýning á barnaleikritinu Kardemommubænum, eftir Thorbjörn Egner, veröur í Þjóðleikhúsinu á sunnu- dagkl. 14.00. Sex í sama rúmi Allra síðasta sinn á miðnætursýningu Ein miðnætursýning verður enn á SEX- INU í Austurbæjarbíói á morgun laugar- dagskvöldið 5. apríl. Með helstu hlutverk fara Þorsteinn Gunnarsson, Hanna María Karlsdóttir, Valgerður Dan, Kjartan Ragnarsson, Kjartan Bjargmundsson og Margrét Ól- afsdóttir. Leikstjóri er Jón Sigurbjörns- son. Karl Guðmundsson þýddi leikritið en leikmynd og búninga gerði Jón Þóris- son. Úr „SEX í SAMA RÚMI“ LEIKFEIAC, REYKiAVlKUR SÍM116620 Svartfugl Leikfélagið frumsýndi SVARTFUGL Gunnars Gunnarssonar í nýrri leikgerð Bríetar Héðinsdóttur nú um miðjan stð- asta mánuð og hefur leikritið hlotið mjög góðar viðtökur og góða aðsókn. Með helstu hlutverk fara Þorsteinn Gunnars- son, Jakob Þór Einarsson, Sigurður Karlsson og Margrét Helga Jóhannsdótt- ir. Leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir, tón- list er eftir Jón Þórarinsson og David Walters sá um lýsingu. Land míns föður Stríðsárasöngleikurinn LAND MÍNS FÖÐUR hefur verið sýndur frá október- byrjun oftast sex sinnum í viku, og alltaf fyrir fullu húsi. Um helgina verða sýning- ar á laugardags- og sunnudagskvöld. í helstu hlutverkum eru: Sigrún Edda Björnsdóttir, Helgi Björnsson, Jón Sigur- björnsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Ragn- heiður Arnardóttir og Aðalsteinn Bergdal. Leikstjóri er Kjartan Ragnars- son, tónlist Atli Heimir Sveinsson, en Jóhann G. Jóhannsson sér um tónlistar- stjórn, Ólafía Bjarnleifsdóttir samdi dansa, leikmynd gerði Steinþór Sigurðs- son en Daníel Williamsson sér um lýs- ingu. Blóðbræður á Akureyri Leikfélag Akureyrar sýnir söngleikinn Blóðbræður eftir Willy Russel í þýðingu Megasar, föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.30 í Samkomuhúsinu á Akurcyri. Leikstjóri er Páll Baldvin Baldvinsson Tvíburabræðurnir á ströndinni, ásamt stúlkunni sem þeir báðir elska, - en aðeins annar fær (Barði, Ellert og Vilborg Halldórsdóttir). Skottuleikur út um iand Revíuleikhúsið hefur í vetur sýnt barnaleikritið Skottuleik eftir Brynju Benediktsdóttur við miklar vinsældir. Skottuleikur fjallar um þrjár nútíma- skottur sem eru að leita sér að húsaskjóli fyrir nóttina. Þær eru skrýtnar og skemmtilegar persónur..' Nú ætla skotturnar að leggja land undir fót og hitta krakka á Norðurlandi á næstunni. Þær verða i Nýja bíói á Siglufírði laugardaginn 5. apríl kl. 15.00. Tjarnar- borg Ólafsfírði, sunnud. 6. apríl kl. 15.00. Síðan á Akureyri laugard. og sunnud. 12. og 13. apríl.Hvammstanga 1'9. apríl og Blönduósi 20. apríl, í byrjun Húna- vöku. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir, Una Collins sá um búninga, David Walt- ers um Ijósahönnun. Jón Ólafsson samdi tónlistina og Karl Ágúst Úlfsson söng- texta. Guðrún Alfreðsdóttir, Saga Jóns- dóttir og Guðrún Þórðardóttir leika skott- urnar. Hitt leikhúsið: Rauðhóla Rannsý í Vestmannaeyjum Hitt leikhúsið hefur ákveðið að ferðast með sýninguna RAUÐHÓLA RANNSÝ um landið. Fyrst til Vestmannaeyja, en síðar til Sauðárkróks og Akureyrar. Þessa helgi verðurgamansöngleikurinn RAUÐHÓLA RANNSÝ sýndur í Sam- komuhúsi Vestmannacyinga á föstudag- inn (í kvöld) 4. apríl kl. 20.30 og laugar- daginn 5. apríl kl. 15.00 og 20.30. Þýðing leiksins er eftir Magnús Þór Jónsson og Pál Baldvin Baldvinsson. Yfirumsjón og leikstjórn: Páll Baldvin Baldvinsson. Leikendur eru: Edda Heiðrún Backman, Guðjón Pedersen, Edda Björgvinsdóttir Leifur Hauksson, Kristín S. Kristjáns- dóttir, Andri Örn Clausen og Kolbrún Halldórsdóttir. Viðar Eggertsson í hlutverki sínu í leikrit- inu ELLA. EGG-ieikhúsið: ELLA í kjaliara Hiaðvarpans Sýningar helgarinnar á ELLU eru á föstudags-, laugardags- og sunnudags- kvöld kl. 21.00 í kjallara Hlaðvarpans. Reykjavíkursögur Astu á Akranesi og Suðurnesjum Kjallaraleikhúsið, sem hefur sýnt Reykjavíkursögur Ástu í vetur við mjög góða aðsókn, mun um helgina sýna á Akranesi laugard. kl. 17.00, þ.e. 87. sýning. Sunnud. 6. apríl verður 88. sýning kl. 17.00 í Stapa, Njarðvík. Leikgerðin er eftir Helgu Bachmann, sem einnig er leikstjóri. Leikendur eru: Guðrún S. Gísladóttir, Guðlaug M. Bjarnadóttir, Emil G. Guðmundsson, Helgi Skúlason o.fl. Leikfélagið „Veit mamma hvað ég vil?“ sýnir MYRKUR Leikfélagið „Veit mamma hvað ég vil?“ er að sýna leikritið Myrkur (Wait Until Dark) eftir Frederick Knott á Galdraloftinu að Hafnarstærti 9. Pétur Einarsson sér um leikstjórn og leikmynd og Vilhjálmur Hjálmarsson um lýsingu. Með helstu hlutverk fara: Þórunn Helga- dóttir, Már W. Mixa og Felix Bergsson. Næstu sýningar eru: laugardags-, sunnudags- og mánudagskvöld og hefjast kl. 20.30. Miðapantanir eru í síma 24650 kl. 16.00 til 20.00 sýningardaga og kl. 16.00-19.00 aðra daga. Ósóttar pantanir verða seldar eftir kl. 20.00 sýningardaga. Tíminn 23 Hallbjorg Bjarnadottir og madur hennar Fisher í skemmtiatriði, þegar þau tróðu upp saman á skemmtunum. Hallbjörg og Fisher í Ásmundarsal Hallbjörg Bjarnadóttir og Fisher halda málverkasýningu í Ásmundarsal dagana 5.-13. apríl. Þau sýna 46 olíumálverk. Tæp 10 ár cru frá því að hjónin sýndu hér síðast. Sýningin er opin kl. 14.00-22.00 alla daga og er sölusýning. Norræna húsið: Þjóðsagnamyndir Ásgríms í sýningarsölum Norræna hússins stendur yfir sýningin „Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar“. Þetta er síðasta sýn- ingarhelgi. Opið er kl. 14.00-19.00. Sýn- ingunni lýkúr sunnud. 6. apríl. Anddyri Norræna hússins: Sænsk grafík í anddyri Norræna hússins sýna um þcssar mundir 8 sænskir grafíklistamenn 30 grafíkverk. Listamennirnir eru: Lisa Andrén, Urban Engström, Ragnar von Holten, Sven Erik Johansson, Franco Leidi, Stefan Sjöberg,Jukka Váwttinen, Gösta Gierow. Sýningin er opin daglcga kl. 09.00- 19.00, nema sunnud. kl. 12.0(1-19.00 til 13. apríl. Dönsk bókakynning ersunnud. 6. apríl kl. 15.00 í fundarsal Norræna hússins. Klaus Rifbjerg les úr verkum sfnum. Klaus Rifbjerg í Norræna húsinu Sunnud. 6. apríl verður dönsk bóka- kynning í Norrænít húsinu. Þá kynnir danski séndikennarinn Lisa Schalcnsee úrval bóka sem út kom í Danmörku árið 1985. Gestur er danski rithöfundurinn Klaus Rifbjerg, sem flytur frumsamin ljóð og segir auk þess frá bókaútgáfu í Danmörku. Rifbjerg er einna þekktastur núlifandi danskra rithöfunda og hefur skriiað mik- inn fjölda bóka, en aðeins ein bóka hans hefur verið þýdd á íslensku. Ánna (jeg) Anna en fyrir þá bók hlaut hann bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs 1970. Klaus Rifbjerg hefur einnig unnið við blaðamennsku', skrifað bókmennta- og kvikmyndagagnrýni um árabil, ritstýrt bókmenntatímaritum, leikstýrt kvik- tnyndum o.fl. S.l. tvö ár hefur hann auk alls þessa verið forstjóri hins þekkta danska útgáfufyrirtækis Gyldendal. Danska bókakynningin hefst kl. 15.00 á sunnud. og er þar úrval danskra bóka frá 1985, sem lánaðar verða út. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan hús- rúm leyfir. Gunnar kvaran, Halldór Haraldsson og Guöný Guðmundsdóttir. Tónleikar Kammermúsíkklúbbsins Kammermúsíkklúbburinn heldur fimmtu (síðustu) tónleika á starfsárinu 1985-’86 mánudaginn 7. apríl kl. 20.30 á Kjarvalsstöðum. Flytjendur á tónleikunum eru: Halldór Haraldsson píanó, Guðný Guðmunds- dóttir. fiðla og Gunnar Kvaran knéfiðla. Á efnisskrá er: Tríó fyrir píanó, fiðlu og knéfiðlu í Es-dúr op. 1.1 (1795) eftir Ludwig van Beethoven (1770-1827). Þá er Tríó fyrir píanó, fiðlu og knéfiðlu í E-moll, op. 67 (1944) eftir Dmitri Shost- akovich og eftir hlé er Tríó eftir Johannes Brahms (1833-1897) í H-dúr, op. 8 (1854). Sigurður Þórir við eitt verka sinna. (Tímamynd Sverrir) Gallerí íslensk list Vesturgötu 17: Sigurður Þórir Sigurðsson sýnir Sigurður Þórir Sigurðsson opnar á laugard. 5. apríl ki. 14.00 sýningu á verkum sínum í Galleríinu Islensk list að Veslurgötu 17: Sigurður er fæddur í Reykjavtk 31. mars 1958. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1968-’70 og síðan við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn 1974- '78. Sigurður Þórir- hefur haldið einkasýn- iiigar í Reykjavík, Kaupmannahöfn og Þórshöfn í Færeyjum og tekið þátt í samsýningum hér hcima og erlendis. Myndirnar á sýningunni eru allar unnar á síðustu 2 -árum og fjalla þær um manninn, togstreitu manns og konu og togstreitu einstaklingsins við sjálfan sig. Sýningin verður opnuð laugard. 5. apríl kl. 14.00 og stendur til sunnud. 27. apríl. Opið er virka daga kl. 09.00-17.00 og um helgar kl. 14.00-18.00. Bubbi Mortens og Megas syngja í Keflavík og á Selfossi Bubbi Mortens og Megas halda sameig- inlega tónleika í Félagsbíói í Keflavík laugardaginn 5. apr(l kl. 21.00 ogí Inghól á Selfossi sunnud. 6. aprtl kl. 21.00. Gallerí Gangskör í Gallerí Gangskör í Bernhöftstorfu stendur yfir sýning á verkum pólsku listamannanna og hjónanna Önnu og Stanislaw Wejman. Sýningin er opin alla virka daga kl. 12.00-18.00 og um helgar kl. 14.00-18.00. Sýningunni lýkur 13. apríl.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.