Tíminn - 23.04.1986, Page 6

Tíminn - 23.04.1986, Page 6
6 Tíminn Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Ritstjóri: NíelsÁrniLund Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason Innblaðsstjóri: OddurÓlafsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.- Oréttlæti sem verðuraðuppræta Skýrsla fjármálaráðherra um störf nefndar sem kannaði umfang skattsvika í þjóðfélaginu hefur vakið verulega athygli og umtal síðan hún var lögð fram. í skýrslunni kemur fram að umfang nótu- lausra viðskipta var mjög verulegt og er ástæða til þess að ætla að slík viðskipti nemi um 900 milljónum króna, og þar af um 440 milljónum í byggingariðnaðinum, þar „sem möguleikar til dul- innar starfsemi og skattsvika, eru mestir,“ eins og segir í skýrslunni. Alþýðuflokksmenn sperra nú stélið í framhaldi af þessum upplýsingum og halda fundi um skatt- svikin og þykjast hinir einu og sönnu mótherjar skattsvikaranna í þjóðfélaginu. Þessi umræða þeirra og annarra mun halda áfram nú um hríð, en síðan dettur hún niður á ný ef að líkum lætur. Framsóknarmenn hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir þeirri óhæfu sem skattsvikin eru, og þessi skýrsla kemur alveg heim við kenningar þeirra. Þingmenn flokksins hafa nú á tveimur þingum í röð flutt tillögu um úttekt á svartri atvinnustarfsemi og nótulausum viðskiptum, en af einhverjum óskiljan- legum ástæðum dagaði tillagan upp í nefnd á síðasta þingi. Tillagan var flutt aftur á síðasta þingi og hefur nú verið vísað til ríkisstjórnarinnar, og er þess að vænta að nú verði tekið á þessu vandamáli og reynt að komast fyrir rætur þess. Það er betra seint en aldrei. Það má geta þess að ef tillaga framsóknarþingmanna, sem Stefán Guðmundsson var fyrsti flutningsmaður að, hefði verið samþykkt fyrir ári, og unnið í framhaldi af henni, væru menn nú miklu betur í stakk búnir til þess að fást við þetta höfuðmein í skattsvikunum, nótulaus viðskipti. Nú þurfa stjórnvöld að láta hendur standa fram úr ermum og koma lögum yfir skattsvikarana. Skattsvikin eru óþolandi þjóðfélagslegt óréttlæti sem verður að uppræta. Hin öfgafulla umræða sem hefur verið um skattpíningu og ríkisútgjöldin í þjóðfélaginu, hefur verið vatn á millu skattsvikaranna, jafnvel réttlæt- ing á gerðum þeirra. Þessi öfgaumræða um útgjöld til sameiginlegra þarfa er því undarlegri þar sem það liggur nú fyrir að ríkisútgjöld eru lægst hér miðað við öll okkar nágrannalönd. Því ber nú að vænta að þessari umræðu linni, og almenn fordæming flokkanna á skattsvikum endist lengur en fram yfir þær kosningar sem fram undan eru. Miövikudagur 23. apríl 1986 llllllllllllllllfllllllllll GARRI ■ Æ Hin heilaga prósenta Áratugum saman hefur kjara- barátta allra launastétta á íslandi verið háð undir merkjum hinna lægst launuðu í landinu, vcrka- munnum og verkakonum. I>au voru l'ramvarðarsveitin og oftar en ekki voru það þcirra félög, sem ein voru spennt fyrir verkfallsvagninn til að færa fórnir fvrir þá hópa í verkalýðshreyfingunni, scm miklu meira báru úr býtum fyrir vinnu sína. Þeir betur settu tóku allt sitt á þurru. Verkfalli erfiöisfólksins lauk svo meö samningum um prós- entuhækkun kaupgjalds. Sömu prósentu fyrir alla. Krónunum í launaumslögum hinna bctur settu Ijölgaði hclniingi meira en hjá erfiðismönnunum ineð fórnarlund- ina, sem cinir báru kjaruskerðingu verkfallsins. Það voru þakkirnar til þeirra, sem brutu ísinn fyrir alla hina. Þessari útgerð stjórnuðu hinir pólitísku verkalýðseigendur. Þeirra pólitík virtist byggjast á því, að unnt væri að halda baráttunni fyrir „alræði öreiganna" áfram og llokknum hæfilega stórum. Þegar verðbólgan tók að magn- ast og vísitöluskrúfan að snúast hraöar hrakaði kjörum hinna verst settu mest. Vísitalan hafði nefni- lega hina heilögu prósentu inn- byggða í sjálfa sig. Ósennilcgt er, aö þessari prósentu- hefð í kjarasainningum verði breytt að ráði á næstu árum. Svo rótföst virðist hún orðin i íslendingseðl- inu. Þess vegna verður að finna ný ráð og mcöul til að hífa lægst launaöa fólkið upp fyrir fátækra- mörkin. Bolungavíkur- samningarnir Bæjarstjórn Bolungavíkur tók sér fyrir hendur um daginn að gcra samning við verslunarmannafélag- ið iim hækkun lágmarkslauna í 30 þúsund krónur í þágu nokkurra skrifstofumanna í þjónustu bæjar- ins. Forseti bæjarstjórnarinnar lýsti því i sjónvarpi af hvílikum mann- kærlcik þessi saniningur væri gcröur og fylgdi áskorun á alla launagreiðendur að gcra slíkt hið sama. Auðvitað var þetta aðeins pólitískt bellibragð, cn ekki mann- kærleikur. En ýmsir verkalýðsfor- ingjar og að sjálfsögðu Svavar Gestsson renna mjög hýru auga til Bolungavíkursamningsins. Auð- vitað gat bæjarstjórnin gert vel við sína starfsmenn, án þess að gcra um það sérstakan samning við verslunarmannafélagið. Hún gat farið eins að og bæjarfélög gera, sem halda vilja í góða starfsmenn með yfirborgunum, fastri yfirvinnu o.fl. og undarlegur cr sá mannkær- lcikur, sem fer ■ manngreinarálit og skilur lægst launaða l'ólkið í bæjarfélaginu eftir á köldum klaka, t.d. konurnar i frystihúsun- um á staönum. Auðvitað átti mannkærleikur bæjarstjórnarinn- ar einnig að ná til þcirra. Bæjar- stjórnin gat hæglega ákveðið að lækka eða fella niður útsvar af þeim. Það, sem hefur ráðið og mun ráða í næstu framtíð prósentunni í kjarasamninguin á íslandi, er af- koma fyrirtækja í útgerð, fisk- vinnslu og samkcppnisiönaöi. Þessar atvinnugreinar geta ekki ýtt kostnaðarhækkunum í rekstri sín- iim út í verðlagið. Þær cru háðar verðlagi á útflutningsvörum á crlcndum mörkuðum eða keppa við erlendar vörur á innlendum markaöi. Fari kostnaður við rekst- ur þessara greina upp fyrir þær tekjur, sem markaðurinn skanimt- ar þcini, er engin leið til önnur til að koma í veg fyrir stöðvun þeirra en gcngislækkanir með tilheyrandi vcrðbólgu, sem reynslan hefur kennt okkur að bitnar harðast á þeini sem búa við bág kjör. Á sagan að endurtaka sig? Lægstu laun eru nú talin um 19 þúsund krónur. Hækkun þeirra í 30 þúsund (Bolungavíkursamning- urinn) þýðir 57,9 prósent launa- hækkun. Ef slík prósentuhækkun færi á alla línuna og upp allan launastigann á einu ári, myndi skapast ncyðarástand í íslensku atvinnu- og efnahagslifi. Slík launahækkun myndi ekki leiða til aukningu kaupmáttar heldur hins gagnstæða og cftir sætu láglauna- stéttirnar á botninuin í enn verra ásigkomulagi en nú. En segir ekki reynslan okkur að miklar líkur séu á, að slíkt ólán gæti yflr okkur gengið verði ekki sinuaskipti hjá þeim launþegum sem best eru settir? Halda menn t.d. að það sé einhvcr tilviljun, að samið var í síðustu kjarasanmingum um sér- stakar og aðskildar greiðslur til hinna lægst launuöu í tveimur sunimuin (3.000 kr. lS.apríl og 3.000 kr. 15. júní)? Efþessar 6.000 kr. hefðu fariö inn í viku cða mánaöarknupiö (600 kr. á mánuði á samningstímanum) þá hefðu vargarnir í efri flokkunum séð til þess, að þetta lítilræði til láglauna- fólksins hefði hlaupið upp allan launastigann i formi liinnar heilögu prósentu. Er ekki kominn tími til að stjórn- málamenn fari að hugleiða úrræði til að rjúfa vítahringinn um lág- launafólkið. Uin það mun ég fjalla á næstunui. Garri. lllllllillllll VÍTTOG BREITT llllllllllllflfllllllllllflflllllllllllllllflflfll^ EIGNARRETTUR AUDUNDAH Smátt og smátt eru augu manna að Ijúkast upp fyrir þeirri stað- reynd að fiskur er verðmæti. Ekki svo að skilja að ekki hafi verið vitað að hann er auðsuppspretta en veiðilag og vinnsluaðferðir hafa yfirleitt ekki verið á þann veg að þeir sem að unnu hafi haft tilfinn- ingu fyrir að þeir hafi verið að stússa við viðkvæma matvöru og verðmikla. Þúsundir og aftur þúsundir tonna af fyrrum góðfiski voru keyrðar í gúanó. Margra nátta netafiskur lá í kös áður en hann var hengdur upp í skreið sólarhringum eftir að honum var landað og fiskur hraðfrystur löngu, löngu eftir að hann var dreginn úr sjó. Þegar kvótakerfið var lögleitt fór öll meðferð vörunnar batnandi og meiri áhersla var lögð á að skila sem verðmætustum afla á land. magnið skipti minna máli. í fisk- vinnslunni er einnig skilningur á því að samhengi cr á milli gæða og markaðsverðs. Viðbrögðin láta ekki á sér standa. Fiskur frá íslandi er orðinn eftirsóttari vara en svo að hægt sé að anna allri eftirspurninni. Þegar svo er komið hækkar verðið sjálf- krafa. En hinu má heldur ekki gleyma að fiskneysla eykst mjög af heilbrigðisástæðum og eru kaup- endur kröfuharðir um vörugæði, sem skiptir ekki síður máli en hvað máltíðin kostar. Útflutningur á gámafiski er orð- ið mikið misklíðarefni milli útgerð- armanna og sjómanna annars veg- ar og fiskverkenda í landi hins vegar. Útgerðin er að rétta úr kútnum eftir margra ára olíuokur og lágt fiskverð, sem reiknað er eftir formúlu sem engir skilja nema fáir útvaldir. Dæmi eru um að margfalt hærra verð fæst fyrir ferskan fisk erlendis en fiskvinnslan getur greitt hér á landi. Það þarf engum að koma á óvart að nýr fiskur er eftirsóttari en „unninn". Með nýjum viðhorfum raskast hefðbundnir markaðir og tekjuskiptingin innanlands tekur heljarstökk. Þegar fiskur er seldur nýr á erlenda markaði rennur ágóðinn nær óskiptur til útgerðar- ogsjómanna. Fiskvinnslustöðvarn- ar og þeir sem þar vinna sitja eftir og geta ekki keppt við fersk- fisksöluna. Friðrik Pálsson, forstjóri SH, heftrr gert þetta að umtalsefni og kennir kvótakerfinu um og spyr hver eigi fiskinn í sjónum, en kvótinn byggist á því að eigendum tiltekinna skipa er úthlutað afla- magni sem þeir mega veiða. Aðri fá ekki að draga bein úr sjó. Vel má fallast á þá skoðun ai ekki sé eðlilegt að einstakir meni eigi lögbundinn rétt á að nýt; auðlindir allrar þjóðarinnar, o; hirði bróðurpartinn af afrakstrin urn. En forstjórinn stingur upp ; þeim möguleika að fiskvinnslu stöðvarnar fái eignarréttinn á fisk þjóðarinnar. Með þessu móti yrði eignarrétt urinn aðeins færður af einni hend á aðra, og fiskverðsformúlan hald; sínu vafasama gildi. Halldór Ásgrímsson, sjávarút vegsráðherra, hefur margítrekac að kvótakerfið sé langt frá því ai vera fullkomið og að sífelldrai endurskoðunar á þvf sé þörf. Er engin skárri aðferð hefur enn kom- ið fram til að leysa það af hólmi Það má heldur aldrei gleymast aé kvótakerfið er fyrst og fremst seti til að koma í veg fyrir ofveiði og I vernda fiskistofna en það atrið; verður sífellt meira utanveltu i fiskveiðiumræðunni. Kvótakerfið hefur leitt margt gott af sér, svo sem meiri vöru- vöndun og verðmeiri nýtingu aflans. Það er ekki síst því að þakka hve eftirspurn er mikil og fiskverð hátt. Þessu vilja þeir gleyma sem telja að skreiðarhjallar og gúanó geymi fiskinn best. En fer ekki að verða tímabært að vekja umræðu um auðlinda- skatt? Það verður að fást úr því skorið hver á fiskinn á miðunum viðlandið.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.