Tíminn - 26.04.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 26.04.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn ALLIR SKEMMTA SÉR í ÞÓRSCAFÉ Linda Gray (Sue Ellen) með Ijósa hárið í staðinn fyrir dökku lokkana. Linda Gray í nýju hlutverki Þórscal'é á 40 ára afmæli um þessar munciir og cr afmælisins minnst á margvíslegan hátt. M.;i hefur verkið sett upp nýtt og full- kornið diskótek á fyrstu hæðinni og í suniar stendur til að breyta öllum skem mtistaönum. Allar helgar er boðiö upp á fjölbreytta skemmtidagskrá. m.a. skemmtir Ómar Ragnarsson mat- argestum öll föstudags og laugar- dagskvöld. Miðnætursviði hefur veriö komið l'yrir á annarri hæð hússins og þar hefur Pálmi Gunn- arsson sungicð undanfarið. Meðan hann bregður sér til Bergen í byrjun maí til að syngja í Eurovis- ionkeppninni munu Magnús og Jóhann Ieysa hann af, en þegar Icyflokkurinn kemur frá Bcrgen mun Pálnti taka aftur þráðinn og vænta má þess að Icy komi fram með honum og syngi Gleðibank- ann. Pálmi mun troða upp á Mið- nætursviðinu öll föstudags og laug- ardagskvöld. Á annarri hæð hússins halda Ponik og Einar uppi fjörinu og spila undir dansi cn á neðri hæðinni er diskótekið, sem einnig er opið öll fimmtudagskvöld og er þá boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá. Um helgar á föstudags og laugar- dagskvöldum er opið frá kl. 20.00 fyrir matargesti og er boðið upp á þríréttaða veislumáltíð. Svipmynd frá diskótekinu í Þórs- café, ásamt Óniari Ragnarssyni. Christa McAuliffe var vinsæl kennslukona. „Hjá henni var alltaf eitthvað að gerast. Það var ekki námsleiðinn í nemendum hennar,“ sagði Charles Foley skólastjóri í Concord Higli, skólanum þar sem Christa kenndi. Hin átakanlega saga um kennslu- konuna, sem var í áhöfn banda- ríska geimfarsins sem fórst í flug- taki, hefur nú orðið tilcfni að kvikmynd. Kennslukonan Christa Auliffe hafði sótt um að komast í geimfcrð og var valin úr stórum hópi um- sækjanda til ælinga fyrir ferðina. Nemendur hennar og fjölskylda fylgdust með því þegar eldflaugin tókst á loft, - en fagnaðarópin hljóðnuðu og breyttust í grát þegar áhorfendur gerðu sér grein lyrir hvað hafði gersl. Kontið hefur til greina að Linda Gray lciki kennslukonuna Christa McAulilfi. sem fórst þarna 37 ára gömul. Linda hefur verið að breyta um hárgreiðslu og háralit smám saman. Nú er hún með Ijósbrúnt hár, cn ekki hið dökka, síða hár, scm prýðir „Sue Ellcn" í DALLAS- þáttunum. Á leið í sína hinstu för: Christa McAuliffe og nokkrir félagar hennar ganga hrosandi og hress til gcimflaiigarinnar. Linda sagðist ekki hafa þorað að breyta um háralit í einu vctfangi, en verið að sntálýsa hárið. „Nú kann ég Ijómandi vel við að vera ljóshærð," sagði hún er þcssi mynd var tekin af henni. ÚTLÖND FRÉTTAYFIRLIT MADRID — Bílasprengja sprakk fyrir utan sjúkrahús í miðborg Madríd í gærmorgun oa varð fimm þjóðvarðliðum að bana. Þetta var versta skæruliðaaðgerð á Spáni á síðustu tveimur árum. BONN — Evrópubandalags- rikin athuga nú hvort þau eigi að koma á sérstökum öryggis- reglum er varða farangur sendiráðsmanna og sendi- ráðsmenn sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkastarf- semi í evrópskum borgum. MADRÍD — Stjórnvöld á Spáni sögðust ætla að vísa 11 Líbýumönnum úr landi og eru þrír þeirra sendiráðsstarfs- menn. Tilkynning þessi fylgdi í kjölfar samþykktar Evrópu- bandalagsríkjanna um að minnka umsvif líbýskra sendi- ráða í Evropubandalags- löndunum tólf. LÚXEMBORG — Land- búnaðarráðherrar ríkja Evrópubandalagsins (EC) komust að grunnsamkomulagi um mikilvægar breytingar á landbúnaðarstefnu þessara ríkja. Breytingunum er ætlað að draga úr offramleiðslu á landbúnaðarvörum. BEIRÚT - Óþekkt samtök sem kalla sig „Byltingin heldur áfram“ lýstu ábyrgð á hendur sér vegna sprengingarinnar í miðborg Lundúna. Sprenging- in eyðilagði skrifstofu breska flugfélagsins „British Airways“ við Oxfordstræti. TRÍPÓLÍ — Muammar Gaddafi Líbýuleiðtogi átti viðtal við sovéskan blaðamann og hvatti þar til alþjóðabaráttu „í samvinnu við Sovétríkin og önnur sósíalistaríki" gegn heimsvaldastefnu. LYON — Breskur viðskipta- maður sem vann fyrir banda- rískt fyrirtæki var skotinn til bana í Frakklandi í gær. Ónafngreindur símahringjandi sem sagðist tala fyrir hönd arabahóps lýsti morðinu á hendur sér. VIN — Samstarfsmenn Kurt Waldheims, fyrrum aðalritara SÞ og nú forsetaframbjóðanda í Austurríki, sögðust í gær vera að athuga fréttir um að bandarísk stjórnvöld hefðu í hyggju að neita honum um ferðaleyfi til landsins. LUNDÚNIR — Breska kon- ungsfjölskyldan syrgði í gær lát hertogynjunnar af Windsor, bandarísku konunnar sem Eð- varð VIII gekk að eiga á kostn- að konungsnafnbótar. í gær voru margar hugleiðingar á lofti um örlög skartgripa og annarra persónulegra eigna hertogynjunar sem lést í París 89 ára að aldri. MANILA — Corazon Aquino forseti Filippseyja sagði árás þá er varð Willie Vicoy Ijós- myndara Reuters fréttasto- funnar og sjö öðrum að bana hafa mjög minnkað líkurnar á samkomulagi við uppreisnar- her kommúnista.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.