Tíminn - 26.04.1986, Blaðsíða 15
Laugardagur 26. apríl 1986
Tíminn 19
ÚTVARP/SJÓNVARP
Sjónvarp sunnudag kl. 20.50 og mánudag kl. 21.50:
Á mánudagskvöld kl. 21.50 sýnir sjónvarpið Frostrósir Jökuls Jakobsson-
ar. Þar fara m.a. Róbert Arnfinnsson og Herdís Þorvaldsdóttir með
hlutverk.
Verk Jökuls Jakobssonar
Aðdáendur leikrita Jökuls Jakobssonar eiga nú góða daga í vændum.
Sjónvarpið er að hefja endursýningar á þeim leikritum hans sem það á í
fórum sínum.
Fyrsta sýning er á sunnudag kl. 20.50. Það er Romm handa Rósalind
sem frumsýnt var í sjónvarpinu árið 1968. Á mánudagskvöld kl. 21.50
verða Frostrósir sýndar og um næstu helgi Keramik.
Útvarp laugardag kl. 21.35:
Lögregla og fólk
„Lögregla og fólk“ nefnist frásögu-
þáttur sem Steingrímur St. Th.
Sigurðsson listmálari og rithöfund-
ur les í útvarpi í kvöld kl. 21.35.
Þátturinn birtist í bók Steingríms
„Spegill samtíðar" sem kom út
1967 en var upphaflega skrifaður
fyrir 22-23 árum, þegar Steingrím-
ur starfaði við blaðamennsku.
Almenningur hefur dagleg sam-
skipti við lögreglu án þess þó að
gera sér fulla grein fyrir því í
hverju starf hennar er fólgið.
Steingrímur fékk leyfi lögreglu-
stjóra til að fylgjast með lögreglu-
þjónum að störfum að kvöld- og
næturlagi fyrir yfir 20 árum, „sem
áhorfandi en ekki þátttakandi,“
vill hann taka fram. En þó að langt
sé um liðið má gera því skóna að
næturstörf lögreglunnar séu eitt af
því fáa sem ekki hefur tekið mikl-
um breytinguiti á þessum tíma.
Steingrímur St. Th. Sigurðsson
„Þetta er „inside story“ og ég
lýsi m.a. andrúmsloftinu á gömlu
lögreglustöðinni í Pósthús-
stræti,“ segir Steingrímur.
Tónlist er skotið inn í frásögn-
ina, valin samkvæmt efninu „og eru
það áhrif frá því þegar Ragnheið-
ur Davíðsdóttir yfirheyrði mig á
Rás 2,“ segir Steingrímur.
Útvarp mánudag kl. 22.20:
Erfátækt
í velferðarríkinu?
- lokaþáttur
Undanfarna tvo mánudaga hafa
menn velt fyrir sér spurningunni: er
fátækt í velferðarríkinu? í þáttum
í útvarpinu í umsjá Einars Kristj-
ánssonar. Þriðji og síðasti þáttur
verður nú á mánudaginn kl. 22.20.
Þá verður efnt til hringborðsum-
ræðna með þátttöku Steingríms
Hermannssonar forsætisráðherra,
Þórarins V. Þórarinssonar og Ás-
mundar Stefánssonar forseta Al-
þýðusambands íslands. Fjallað
verður m.a. um kjararannsóknir
og kjarasamninga hér á landi eink-
um með tilliti til febrúarsamning-
anna í vetur. Einnig verður rætt
um framtíð velferðarríkisins hér á
landi.
Snorri Hjartarson var sæmdur bók-
menntaverðlaunum Norðurlanda-
ráðs 1981.
Útvarp sunnudag kl. 13.30:
„ÁN VONAR
EKKERT LÍF“
I tilefni áttræðisafmælis Snorra
Hjartarsonar skálds 22. apríl sl. sér
Páll Valsson um dagskrá um hann
í útvarpi á morgun, sunnudag kl.
13.30.
Þar segir frá Snorra og ljóðum
hans sem eru vel þekkt og kær
íslenskum Ijóðaunnendum. Páll
bendir á einkenni skáldsins og
lesin verða fjölmörg ljóð úr bókum
hans, en þær eru fjórar talsins:
Kvæði (1944), Á Gnitaheiði
(1952), Lauf og stjörnur (1966) og
Hauströkkrið yfir mér (1979). Les-
arar með Páli eru Svanhildur Ósk-
arsdóttir og Guðmundur Andri
Thorsson.
Laugardagur
26. apríl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Tónleikar, þulur velur og kynnir.
7.20 Morgunteygjur.
7.30 íslenskir einsöngvarar og kórar
syngja.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veöurfregnir. Tónleikar.
8.30 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna. Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga Helga Þ. Step-
hensen kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Örn Ólafsson flytur.
10.10 Veðurfregnir. Óskalög sjúklinga,
framhald.
11.00 Á tólfta timanum Blandaður þáttur
úr menningarlífinu í umsjá Þorgeirs
Ólafssonar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.50 Hér og nú Fréttaþáttur I vikulokin.
15.00 Miðdegistónleikar Sinfónia i g-moll
eftir Ernst John Moeran. Enska sinfóníu-
hljómsveitin leikur; Neville Dilkes
stjórnar.
15.50 íslenskt mál Guðrún Kvaran flytur
þáttinn.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Listagrip Þáttur um listir og menn-
ingarmál. Umsjón: Sigrún Björnsdóttir.
17.00 „Kattarloppann", saga af stfgvél-
aða kettinum eftir Marcel Aymé Jón B.
Guðlaugsson þýddi. Kristján Viggósson
les.
17.40 Siðdegistónleikar. a. „Boðið upp i
dans“, konsertvals eftir Carl Maria von
Weber. Útvarpshljómsveitin í Berlin leik-
ur; Robert Hanell stjórnar. b. „Létta
riddaraliðið", forleikur eftir Franz von
Suppé. Sinfóníuhljómsveitin í Detroit
leikur; Paul Paray stjórnar. c. „Espana",
hljómsveitarverk eftir Emanuel Chabrier.
Sinfóniuhljómsveit spánska útvarpsins
leikur; igor Markevitsj stjórnar. d.
„Stundadansinn“, balletttónlist eftir Am-
ilcare Ponchielli. Útvarpshljómsveitin í
Berlín leikur; Robert Hanell stjórnar.
Tónleikar tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 „Sama og þegið“ Umsjón: Karl
Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson og
Örn Árnason.
20.00 Harmonikuþáttur. Umsjón: Bjarni
Marteinsson.
20.30 Atvinnusaga frá kreppuárunum
Guðrún Guðlaugsdóttir ræðir við Boga
Jónsson, Gljúfraborg í Breiðdal. (Áður
útvarpað 4. febrúar sl.).
21.05 Óperettutónlist Heinz Hoppe,
Ingeborg Hallstein, Anna Moffo, Réne
Kollo o.fl. syngja lög úr óperettum eftir
Lehar, Strauss, Lanner og Offenbach
með Rafaelhljómsveitinni; Peter Walden
stjórnar.
21.35 „Lögregla og fólk“ Steingrímur Sig-
urðsson les þátt úr bók sinni „Spegill
samtíðar".
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins.
22.20 I' hnotskurn Umsjón: Valgaröur Stef-
ánsson. Lesari með honum: Signý Páls-
dóttir. (Frá Akureyri).
23.00 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn
Marinósson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á RÁS 2 til kl. 03.00.
Jl?
10.00 Morgunþáttur Stjórnandi Sigurður
Blöndal.
12.00 HLÉ
14.00 Laugardagur til lukku Stjórnandi:
Svavar Gests.
16.00 Listapopp í umsjá Gunnars Salvars-
sonar.
17.00 Hringborðið Erna Arnardóttir stjórn-
ar umræðuþætti um tónlist.
18.00 HLÉ.
20.00 Bylgjur Ásmundur Jónsson og Árni
Daníel Júlíusson kynnaframsækna rokk-
tónlist.
' 21.00 Djassspjall Umsjón: Vernharður
Linnet.
22.00 Bárujárn Þáttur úm þungarokk í
umsjá Sigurðar Sverrissonar.
23.00 Svifflugur Stjórnandi: Hákon Sigur-
jónsson.
24.00 Á næturvakt með Þórarni Stefáns-
syni.
03.00 Dagskrárlok.
Laugardagur
26. apríl
16.00 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
19.20 Búrabyggð (Fraggle Rock)
Fimmtándi þáttur Brúðumyndaflokkur
eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Auglýsingar og dagskrá.
20.35Dagbókin hans Dadda (The Secret
Diary of Adrian Mole Aged 13 3/4 Fimmti
þáttur Breskur myndaflokkur í sjö
þáttum, gerður eftir bók Sue Townsends.
Leikstjóri Peter Sasdy. Aöalhlutverk:
Gian Sanmarco, Julie Walters, Stephen
Moore Og Beryl Reid. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21.05 Ævintýri í Austurlandahraðlestinni
(Minder on the Orient Express) Ný bresk
sjónvarpsmynd um söguhetjur vinsælla
sjónvarpsþátta. Leikstjóri: Francis Meg-
ahy. Aðalhlutverk: Dennis Waterman og
George Cole. Söguhetjunum, Terry og
Arthur, býðst óvænt tækifæri til að ferðast
með Austurlandahraðlestinni. En böggull
fylgir skammrifi. Þeir blandast i illdeilur
glæpamanna og lögreglan er heldur ekki
fjarri góðu gamni. Þýðandi Jóhanna Þrá-
insdóttir.
22.50 Innrásin frá Mars (The War of the
Worlds) Bandarisk biómynd frá 1952,
gerð eftir vísindaskáldsögu eftir H.G.
Wells. Leikstjóri: Byron Haskin. Aðalhlut-
verk: Gene Barry. og Ann Robinson.
Marsbúar búnir fullkomnum vígvélum
ætla að leggja undir sig jörðina. Svo
virðist sem þá bíti engin vopn en fámenn-
ur hópur vísindamanna lætur ekki deigan
síga. Þýðandi Baldur Hólmgeirsson.
0025 Dagskrárlok.
Hjúkrunarfræðingar
Leiðbeinendanámsekið fyrir hjúkrunarfræðinga í
skyndihjálp verður haldið 2.-6. júní n.k. að báðum
dögum meðtöldum.
Kennt verður frá kl. 08.00-16.00 og fer kennslan
fram í kennslusal R.K.Í. að Nóatúni 21, Rvk.
Námskeiðsgjald verður kr. 4.500.- og eru kennslu-
gögn innifalin. Umsóknarfrestur rennur út 10. maí
n.k.
Nánari upplýsingar verða veittar á aðalskrifstofu
R.K.Í. Nóatúni 21, Rvk. s. 91-26722
Rauði kross íslands.
1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 E i 1 7\
Hm F býður þér þjónustu sina við ný- ■ a
byggingar eða endurbætur eldra húsnæðis j
Við sögum i steinsteypu fyrir dyrum, gluggum, stigaopum, lögnum
- bæði i vegg og gólf. M
Ennfremur kjarnaborum við fyrir lögnum i veggi oy gólf.
Þvermál boranna 28 mm til 500 mm.
Þá sögum við malbik og ef þu þarft að láta fjarlægja reykháfinn þá
■ tökum við það að okkur.
■ Hifir leitast við að leysa vanda þinn fljótt og vel, hvar sem þu ert ■
j i búsettur á landlnu. L,
■ Greiðsluskilmálar við allra hæfi m
Fífuseli 12
il H HTCS HBS
sími 91-73747
33 Bílasími 002-2183
KRANALEIGA »£TEINSTEYPUSÖGUN • KJARNABORUN
“4
St. Jósepsspítali
Landakoti
Staöa reynds AÐSTOÐARLÆKNIS viö handlækningadeild Landa-
kotsspítala er laus til umsóknar. Staðan er veitt frá 1. sept. til eins
árs. Umsóknir sendist inn fyrir 1. júní 1986, til yfirlæknis deildarinnar
sem jafnframt gefur nánari upplýsingar.
H JÚKRUNARFÆÐINGA vantar á vöknun og á svæfingar. Upplýsing-
ar gefnar í síma 19600-290 alla virka daga.
STARFSFÓLK vantar í þvottahús spítalans nú þegar og til sumarafl-
eysinga. Upplýsingar eru veittar í síma 31460.
Reykjavik 25.4. 1986.
t
Innilegar þakkir fyrir hlýhug viö andlát og útför föður okkar,
tengdaföður og afa
Jóns H. Árnasonar,
frá Steinnýjarstööum.
Ingiríður Jónsdóttir,
Una G. Jónsdóttir, Geir H. Hansen,
Stefán H. Ingólfsson, Rúna S. Geirsdóttir
t
Öllum þeim er heiöruðu minningu föður okkar
Andrésar Eyjólfssonar
fyrrv. bónda og alþingismanns,
Síðumúla í Hvítársíðu
og sendu samúðarkveðjur, þökkum við innilega. Sérstakar þakkir til
Hvítsíðinga og Ungmennafélags Reykdæla.
Þorbjörg Andrésdóttir, Ingibjörg Andrésdóttir,
Eyjólfur Andrésson, Magnús Andrésson,
Guðrún Andrésdóttir
t
Okkar innilegustu þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur hlýhug
og samúð vegna fráfalls litlu drengjanna okkar,
Bjarka Ólafssonar og Vilbergs Örvars Egilssonar
er létust af slysförum þann 12. apríl sl.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Þórðardóttir
Ólafur Axelsson
Jónína Bára Óskarsdóttir
Egill Pálsson
systkini og aðstandendur.