Tíminn - 26.04.1986, Blaðsíða 10

Tíminn - 26.04.1986, Blaðsíða 10
14 Tíminn Fiskeldi íslandslax hf. erfiskeldisfyrirtæki í eigu innlendra og norskra aðila. Aðsetur er að Stað vestan Grindavíkur. Óskum eftir að ráða karla eða konur í eftirtalin störf. 1. Fiskeldismann til starfa við laxeldi. Menntun og reynsla í fiskeldi nauðsynleg. Ráðningartími er frá 1. júní nk. 2. Vélstjóra/fiskeldismann til starfa við laxeldi, ásamt vélgæslu og minniháttar viðhaldi á vélum. Vélstjóramenntun áskilin. Reynsla í fiskeldi æskileg. Ráðningartími erfrá 1. júní nk. 3. Fiskeldismann til starfa við lúðueldi. Reynsla í fiskeldi æskileg. Ráðningartími frá 1. júní nk. 4. Fiskeldismann til starfa í seiðaeldisstöð. Menntun og reynsla í fiskeldi æskileg. Ráðning- artími frá 1. sept. nk. Störfin krefjast búsetu í Grindavík. Skriflegar umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf skulu sendartil íslandslax hf., pósthólf 55, 240 Grindavík. Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. Fyrirspurnum verður ekki svarað í síma. íslandslax hf. Skattskrá Norðurlandsumdæmis vestra 1985 Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga nr 75/1981 verða skattskrár í Norðurlandsumdæmi vestra ásamt launaskattskrám fyrir gjaldárið 1985, lagðar fram til sýnis dagana 29. apríl til 12. maí 1986. Skattskrárnar liggja frammi á eftirtöldum stöðum í umdæminu: Á skattstofunni Siglufirði. Á bæjarskrifstofunum Sauðárkróki í öðrum sveitarfélögum í umdæminu, hjá umboðs- mönnum skattstjóra. Á sömu stöðum og tíma liggja frammi til sýnis sölugjaldsskrár fyrir árið 1984 skv. 27. gr. laga nr. 10/1960 um söluskatt, sbr. 6. gr. laga nr. 33/1982. Athygli er vakin á því að enginn kæruréttur myndast við framlagningu skattskránna. Siglufirði 25. apríl 1986. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra. Bogi Sigurbjörnsson. Fyrirlestrar um fiskeldi og kynbætur Sunnudaginn 27. apríl kl. 4 síðdegis verða fluttir fyrirlestrar um fiskeldi og kynbótamál í sal A á annarri hæð í nýju álmu Bændahallarinnar. 1. Dr. Harald Skjervold prófessor frá Ási í Noregi fjallar um notkun á erfðatækni í kynbótum búfjár og eldisfiska. 2. Sivert Gröntvedt formaður sölusamtaka norskra fiskeldisfyrirtækja og dr. Harald Skjer- vold greina frá þróun fiskeldis í Noregi með tilliti til líffræðilegra þátta og markaðsmála. Fundurinn er öllum opinn. Búnaðarfélag íslands, -Veiðlmálastofnun og Rannsóknarstofnun landbúnaðarins. Hjúkrunarfræðingar Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar að ráða hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga á gjör- gæsludeild, barnadeild, slysadeild, handlækninga- lyflækningadeild og bæklunardeild. Hafið samband við hjúkrunarforstjóra eða hjúkrun- arframkvæmdastjóra og fáið upplýsingar um störf og aðbúnað í síma 96-22100. Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri Laugardagur 26. apríl 1986 BESTA SKÁKIN Með 40. hefti sínu sem kom út fyrir nokkrum vikum varð júgóslavn- eska skáktímaritið Informant 20 ára. Informant hefur mest allan þennan tíma verið talið kjörbók skákmanns- ins, eitt mikilvægasta fræðirit sem kemur út ár hvert þó það eigi í sívaxandi samkeppni við önnur ámóta rit. Informant kemur út tvisvar á ári og þar er að finna úrvals skákir ákveðins tímabils. Rit nr. 40 gerir skil seinni parti síðasta árs með mótatöflum, skákum sem í flestum tilvikum eru skýrðar af teflendunum sjálfum ásamt aragrúa af upplýsing- um öðrum. Hinum nýja stigalista FIDE er þarna gerð skil. Skákirnar eru flokkaðar af mikilli nákvæmni eftir byrjanakerfum og athugasemd- irnar eru á alþjóðamáli sem hvert mannsbarn skilur auðveldlega. Bestu skákmenn heims hafa löngum haldið mikið upp á þetta rit. Bobby Fischer sótti þangað allmikinn fróð- leik auk þess að gera athugasemdir við nokkrar skákir sínar og í dag eru þeir Karpov og Kasparov, sem óumdeilanlega bera höfuð og herðar yfir aðra skákmenn, með mikilvirk- ustu höfundum. Þeir gera báðir ítarlega grein fyrir taflmennsku sinni í síðasta heimsmeistaraeinvígi og varpa þær athugasemdir, margar hverjar a.m.k., nýju Ijósi á vopna- viðskiptin í Moskvu. Einhver forvitnilegasti þáttur bókarinnar er val nokkurra þekktra stórmeistara á bestu skákum hvers undangengis heftis. Mikhael Tal þótti koma fram með mikilvægustu nýjungina fyrri part árs 1985 en þar var á ferðinni endurbót sem Anatoly Karpov lúrði á þegar hann tefldi við Kasparov en fékk aldrei að nota. Endurbótin ku vera runnin undan rifjum skákmeist- arans Vitolins sem er afar hug- myndaríkur skákmaður og er þekkt- ur fyrir framlag sitt til skákteór- íunnar meðal annars með magnaðri endurbót á „eitraða - peðsafbrigð- inu" í Sikileyjarvörn. Besta skákin var talin viðureign sovéska skákmeistarans Alexander Beljavskí og Englendingsins John Nunn sem tefld var í ársbyrjun 1985 á skákmótinu í Wijk aan Zee. Þessi skák er til meðferðar hér. Dómnefndin gaf henni 78 stig af 90 mögulegum. Sigur Kasparovs yfir Húbner í 1. einvígisskák þeirra kom næst á eftir með 75 stig: Wijk aan Zee 1985 Hvítt: Alexander Beljavskí. Svart: John Nunn. Kóngsindversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. f3 0-0 6. Be3 Rbd7 (Óvenjulegt afbrigði sem Nunn beitti fyrst í sigurskák sinni við Rúmenann Cheorghiu. Cheorghiu lék 7. Rh3). 7. Dd2 c5 8. d5 Re5 9. h3?! (Eðlilegur leikur en Nunn getur þess í aths. sínum að hann hafi rannsakað afleiðingar hans niður í kjölinn. Síðar í þessu móti lék Jan Timman 9. Bg5 gegn Nunn og fékk betri stöðu.) 9. ..Rh5 10. Bf2 f5 11. exf5 Hxf5! (Upphaf að djúphugsaðri leikfléttu. Eftir 11. - gxf5 12. f4! nær hvítur betri stöðu. Svartur fórnar manni en fær mikið spil fyrir.). 12. g4 Hxf3 13. gxh5 Df8! £ IV (II i I ■ i 1 I i III Ifi A 1 A A 2 A A 0 0 IBI B 1 0n Nunn getur þess að fram að þessu hafi hann fylgt heimarannsóknum en með 14. leik sínum hafi Beljavskí brugðið út af. Hvítur á afar erfitt um vik þó hann sé manni yfir en hann finnur besta varnarmöguleikann.) 14. Re4! Bh6 15. Dc2? (Hér átti hvítur að leika 15. De2 og reyna að berjast í hinni flóknu stöðu sem kemur upp eftir 15. - Rd3t 16. Dxd3 Hxd3 17. Bxd3 Df4. Svartur hótar 18. - Bf5 en með 18. Hdl! heldur hvítur í horfinu.) 15. .. Df4! (Fallegur leikur. Menn svarts bætast í sóknina með endurnýjuðum krafti. Nú hótar svartur 16. - Bf5 o.s.frv.) 16. Re2 Hxf2! 17. Rxf2 Rf3t 18. Kdl Dh4! 19. Rd3 (Hvítur getur sig vart hrært þó hann sé heilum hrók yfir. Þetta er eina leið hvíts til að forðast mannstap.) 19. .. Bf5 20. Recl (Hér var best að leika 20. Rc3 og Nunn gefur upp framhaldið 20. - Rd2 21. b3 Rxfl 22. Hxfl Dxh5t 23. Re2 Dxh3 24. Hxf5 Dxf5 og svartur hefur þrjú peð fyrir manninn og betri stöðu.) 20. .. Rd2! (Hótar 21. - De 22. Hgl De3.) 21. hxg6 hxg6 22. Bg2 Rxc4 23. Df2 Re3t 24. Ke2 Dc4 £ 1 i 1 | 11 11 | 1 11! I A 11 ± II # 1 11 II 1 P V A A 0 Æ m On Álllllll IBII H 11 111 fí (Hvítur er enn hrók yfir en er varnarlaus engu að síður. Það er eftirtektarvert að Nunn hefur náð að yfirspila hinn öfluga andstæðing sinn á afar rólegan hátt þó miklu liði sé undir.) 25. Bf3 Hf8 (Nýr maður bætist í sóknina. Það hillir undir leikslok.) 26. Hgl Rc2 27. Kdl Bxd3 - og hvítur gafst upp. Glæsileg skák sem Nunn telur eina sína bestu. Gpps, klaufi varstu ... en þetta gerir svo sem ekkert til Effco þurrkan gerir hluti sem þessa að smámáli utan. Það er alltaf öruggara að hafa Effco þurrkuna við hendina, hvort sem það er á heimilinu, í sumar- bústaðnum, bátnum eða bílnum. Já, það er fátt sem reynist Effco þurrkunni ofraun. Enginn sem á Effco þurrku kipp- ir sér upp við svona smáslys. Enda þurrkar Effco þurrkan upp allt sem sullast og hellist niður. Með Effco þurrkunni er enginn vandi að halda eldhúsinu fínu, sama hvað gengur á. Hún gerir eldhússtörfin ánægju- legri en nokkru sinni fyrr. En hún er ekki bara til að þrífa þess háttar ósköp. Þú notar hana líka til að þrífa bílinn - jafnt að innan sem Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum og verslunum. Heildsala Höggdeyfir — EFFCO sfmi 73233 veffíco-ÞurrKan W-, ÞEGAR KOMIÐ ER AF VEGUM MEÐ BUNDNU SLITLAGI.. . FÖRUM VARLEGA! y UMFERÐAR RÁÐ —------k

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.