Tíminn - 26.04.1986, Qupperneq 5

Tíminn - 26.04.1986, Qupperneq 5
Laugardagur 26. apríl 1986 lllllllllllllllllllllll ÚTLÖND Jlllllllllllllllllillll Tíminn 5 MALNING - MÁLNING ARVÖRUR Áður en þú byrjar að mála er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir hvar best er að kaupa efni til verksins. JL-Byggingavörur hafa mikið úrval af málningarvörum og ráðleggingar starfsmanna okkar eru fyrsta skrefíð í vali á besta og hagstæðasta efninu. Afsláttarkjörin okkar á málningu er hagstæðasta verðið í dag. 5% afsláttur af kaupum yfir kr. 2500,- 10% afsláttur af kaupum yfir kr. 3200,- 15% afsláttur af kaupum yfir kr. 4600,- 20% afsláttur af heimkeyrðum heilum tunnum. bycgingavöbSrI MÁI.NINGARVÖRUDEILD, HRINGBRAUT 120. RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND ÍTALÍA: Bílaástir fái að blómstra Nupólí-Rcutcr Embættismaöur í Napólí á ítal- íu hcfur lagt til að byggður vcrði scrstakur skcmmtigarður t'yrir ungt fólk scm vill njóta ásta í bílum sínum. Hugmynd þcssa á Maurizio Cardano scm starfar viö skipulag í úthvcrfum Napólí og scgir hann garðinn nauðsyn- lcgan, þar scm mikiö cr um þjófnaði og líkamsárásir á pör scm gcra scr dælt viö hvort annað í bílum sínum á afviknum stöðum í borginni. Ástand þctta ku hafa lcitt til þcss að fólk leggi nú bílum sínum á almannafæri og noti dagblöð fyrir glugga til að fela atlot sín. Cardano og öðrum þykir á- stand þctta óhæft og því cr garð- hugmyndin tilkomin. Ekki hefur tillagan cnn verið samþykkt í bæjarráði cn á ntcðan bcðið cr eftir ákvörðun yfirvalda hcfur Cardano ákveðið að cfna til skoð- anakönnunar urn þcssi málcfni öll. INDLAND: Gamlingjar gegn Gandhi Óánægja er mikil í röðum eldri manna innan Kongressflokksins Útlönd Umsjón: HEIMIR BERGSSON Víetnamreynslan hefur lagt líf margra bandaríska manna í rúst. Hér sjást bandarískir hcrmenn yfirgefa Hué árið 1968. Bandaríkin: Víetnamreynslan varð dýrkeypt Flórída-Reuter David Livingston Funchess, stríðshetja úr Víetnamstríðinu, var tekinn af lífi í rafmagnsstól Flór- ídaumdæmis í vikunni. Livingston var dæmdur til dauða fyrir að hafa banað tveimur einstaklingum með hnífsstungum í kráarþjófnaði fyrir 12 árum síðan. Lögfræðingar Livirigstons hafa haldið því fram að hræðileg reynsla hans frá Víetnamstríðinu hafi orðið til þess að hann varð valdur að morðunum. Livingston fékk fimm heiðursmerki fyrir framgöngu sína í Víetnam. Stríðshetjan kom fyrst fyrir rétt árið 1975 en lögfræðingar hans hafa bent á að lítið hafi þá verið vitað um þau áhrif stríðsins sem skilið hafa eftir sig djúp ör í hjörtum þúsunda hermanna er börðust í Víetnam. Livingston. sem kom heim úr stríðinu árið 1967, særðist alvarlega af völdum jarðsprengju. Lækning á meiðslum hans leiddi hann síðan út í heróínneyslu. Það að dauðarefsingunni skyldi verða framfylgt hefur vakið nokkra athygli í Bandaríkjunum og hafa t.d. hópar hcrmanna eráður börðust í Víetnam verið duglegir við að mótmæla ákvörðun þessari. Allt kom þó fyrir ekki. Livingston er fimmtándi einstaklingurinn sem tekinn er af lífi í Flórída síðan dauðarefsing var þar tekin upp að nýju árið 1976. ÍRLAND: Þjóðaratkvæði um skilnaði Dyflinni-Rcutcr. írska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að þjóðarakvæðagreiðsla muni fara fram um hvort breyta eigi stjórnar- skránni og lögleiða skilnaði í land- inu. Samkvæmt stjórnarskránni er hjónum ekki leyft að skilja og víst þykir að kaþólska kirkjan muni berjast hatrammlega gegn breyting- um á þessum lögum. Ekki er þó hér um fullkomið frjálsræði í skilnaðarmálum að ræða. Verði stjórnarskrárbreytingin sam- þykkt í komandi þjóðaratkvæða- greiðslu verður hjónum í sumum tilfellum leyft að skilja t.d. hjón sem ekki hafa búið saman í fimm ár cða meir. Garret Fitzgerald forsætisráð- herra tilkynnti um þessa ætlun stjórnvalda nú í vikunni. Búist er við að efnt verði til atkvæðagreiðslunnar strax fyrri hluta sumars. Ástæðan fyrir þessum hraða cr sú að á næsta ári fara fram þingkosningar og vonast ríkisstjórnin eftir að sambandið við yfirvöld kaþólsku kirkjunnar hafi þá aftur komist í viðunandi horf. Skoðanakannanir hafa sýnt að meirihluti írsku þjóðarinnar styður skilnaðarlöggjöf í vissum tilfcllum. Alls munu um 70 þúsund einstakl- ingar í landinu vcra í hjónaböndum sem ekki hafa gengið. Norska olían OPECtilama Arjun Singh, náinn fylgismann sinn, í cmbætti varaforseta flokksins í janúar síðastliðnum. Gandhi vann stóran sigur í þing- kosningunum árið 1984 og fjórir af hvcrjum fimm þingmanna neðri deildar þingsins koma úr röðum hans. Hinsvegar hefur flokkurinn farið hallloka síðan og misst tök sín í nokkrum af hinum 22 héruðum Indlands. Kosningar innan flokksins, þær fyrstu í tólf ár, munu fara fram í júní og júlí á þessu ári og hefur Gandhi sagt þær koma til með að hreinsa andrúmsloftið. Lundúnir-Reutcr Olíuverð varð enn á ný fyrir þrýstingi í gær þegar norska stjórnin ákvað að blanda sér inn í deilur þær sem valdið hafa nítján daga vinnu- stöðvun á norskum olíuborpöllum. Sérfræðingar lýstu því yfir að olíuverð myndi að öllum líkindum lækka enn meir á næstu vikum þar sem heildarframleiðsla er enn hátt yfir markaðsþörf. Þær 900 þúsund olíutunnur á dag sem koma frá norskum olíuborpöll- um munu nú koma á ný inn í heildarframleiðslumagnið og því verður fátt til varnar að verðið lækki enn. Ahmed Zaki Yamani olíumála- ráðherra Saudi-Arabíu sagði í gær að olíuverð myndi enn á ný fara undir tíu dollara hver tunna ef ríki utan OPEC-samtakanna hjálpuðu ekki til við að endurreisa stöðugleika Rajiv Gandhi ræddi í gær við sam- starfsmenn sína um vaxandi óánægju eldri manna innan flokks síns. Nýja-Dclhi-Rcutcr. Rajiv Gandhi forsætisráðherra Indlands hélt mikilvægan fund með samstarfsmönnum sínunt í gær og var þar rædd óánægja eldri mcðlima Kongressflokksins. Hafa sumir sagt þá óánægju geta átt eftir að valda klofningi í flokknum verði ckkert að gert. Gandhi ræddi við samstarfsmenn sína eftir að hafa fengið bréf frá Kamlapati Tripathi forscta fram- kvæmdastjórnar flokksins. Þar var flokkurinn sagður í hættu yrðu ekki gerðar „viðhhtandi ráðstafanir". Að sögn heimildarmanna Rcuters fréttastofunnar mun Tripathi tala fyrir munn gamalla flokksforystu- manna sem finnst þeir vera skildir út undan í starfi flokksins. Þessi hópur mun hittast í Nýju Delhi í næsta mánuði. Gandhi scm nú cr 41 árs tók við forystuhlutverki í indverskum stjórnmálum af móður sinni, Indiru Gandhi, sem myrt var árið 1984. Að sögn forystumanns innan flokksins mun Tripathi, sem cr 82 ára gamall, hafa þótt sem hann og stuðningsmenn hans hafi verið niðurlægðir þegar Gandhi útncfndi á markaðinum. Olíuverð fór fyrst undir tíu dollara á tunnu fyrr í þessum mánuði.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.