Tíminn - 26.04.1986, Side 8
v^pAS'o
sis
W
%/s\^'
Heilsugæslustöð
og viðbygging við
Sóivang í Hafnarfirði
Tilboð óskast í að steypa upp 1. hæð og gera
tilbúna undir tréverk heilsugæslustöð við Sólvang
í Hafnarfirði 650m2.
Einnig að gera tilbúna undir tréverk viðbyggingu
við Sólvang, sem búið er að steypa upp, kjallara
575m2 og 1. hæð 790m2.
Verkinu skal að fullu lokið 1. mars 1987. Útboðs-
gögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7.
Rvk. gegn 5.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstud. 23. maí
1986, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsóknar
starf tæknifulltrúa á svæðisskrifstofu Rafmagns-
veitnanna á Hvolsvelli. Óskað er eftir rafmagns
tæknifræðingi eða manni með sambærilega
menntun. Starfið felst m.a. í hönnum, áætlana-
gerð, eftirliti, uppbyggingu og rekstri rafveitukerfis.
Nánari upplýsingar um starfið gefur rafveitustjóri
Rafmagnsveitnanna á Hvolsvelli.
Umsóknir er greini menntun, aldur og fyrri störf
sendist starfsmannadeild fyrir 15. maí 1986.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118,
105 Reykjavík.
''/m
\
Útboð
VEGAGERÐIN
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Efn-
isvinnslu á Suðurlandi 1986. (Magn 54.500m3).
Verki skal lokið fyrir 1. október 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Selfossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
28. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 12. maí 1986.
Vegamálastjóri.
Auglýsing um verð á
grásleppuhrognum
Samkvæmt framreiknuðum grunni á verði upp úr
sjó 1985, er verð grásleppuhrogna á þessari vertíð
upp úr sjó kr. 93,10 pr. kg. í þessu verði er
kostnaðarhlutdeild og stofnfjársjóðstillag innifal-
ið.
Samtök grásleppuhrognaframleiðenda
Bændur
Tvo mjög samrýmda duglega stráka á fimmtánda
aldursári vana sveitarstörfum langar til þess að fá
vinnu í sveit ef mögulegt er á sama bæ, eða
nálægt hvor öðrum.
Geta byrjað upp úr mánaðamótum apríl-maí.
Upplýsingar í síma 76352 Heiðar og 73508
Sigmar._____________
8 Tíminn
Laugardagur 26. apríl 1986
ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllll
Pressuleikur í blaki
Lárus Guðmundsson skaut Uer-
dingen í þriðja sætið í þýsku 1.
deildinni í knattspyrnu fyrir leikina í
dag er hann skoraði eina mark leiks
Uerdingen gegn Frankfurt á fimmtu-
daginn. Lárus fékk þá sendingu frá
Atla Eðvaldssyni félaga sínum og
skoraði af öryggi sitt annað mark í
tveimur leikjum. Lárus hefur leikið
mjög vcl í lokaslagnum hjá Uerding-
en og Atli rcyndar líka.
■ Nú er Ijóst hvaða lið spila í
undanúrslitum hollensku bikar-
kcppninnar í knattspyrnu. Ajax,
sem teljast líklegastir til sigurs,
mæta NEC Nijmegen og í hinum
leiknum spila 2. deildarlið RBC
Roosendaal og Den Haag.
Leikirnir fara fram þann 8. maí.
■ Nú er líklegast að ítalir muni
ekki heimila liðum að kaupa er-
lenda knattspyrnumcnn fyrir
næsta keppnistímabil. í tvö ár
hafa ítölsk lið ekki fengið að
kaupa erlenda leikmenn. Búist
var við að þessu banni yrði aflétt
eftir HM í Mexíkó en ef marka má
orð forseta Knattspyrnusambands
Italíu, Matarrese, þá verður bann-
ið í gildi áfram. Ástæðan er sú að
knattspyrnuyfirvöld óttast að liðin
rjúki upp til handa og fóta og
kaupi leikmenn of dýrum dómi og
hljóti af fjárhagslcgan skaða.
■ Suður-Kóreumenn hafa
ákveðið að þeirra besti leikmaður
fái ekki að taka þátt í HM í
knattspyrnu vegna þess „að hann
hefur misst alla virðingu fyrir
landi og þjóð“. Knattspyrnumað-
urinn Kim Jong-Boo hefur lent í
hneykslismáli varðandi félaga-
skipti sín. Hann samdi fyrst við
Hyundai en skipti síðan snarlega
og samdi við Daewoo. Bæði liðin
eru styrkt af stórum auðhringum
og hefur mál þetta vakið mikla
athygli. Hefur knattspyrnusam-
band S-Kóreu nú ákveðið að hann
fái ekki að leika í Mexíkó þrátt
fyrir að vera einn besti leikmaður
landsins.
■ Þjálfari Pólverja i knattspyrnu
hefur ákveðið að segja af sér ef
liðinu gengur ekki nógu vel í
Mexíkó. Þjálfarinn, Antoni Piec-
hniczek, hefur þó vaðið fyrir neð-
an sig og segist vonast til að hans
lið komist í aðra umferð í keppn-
inni.
fslenska landsliðið í blaki hefur
nú verið valið. Liðið á að kcppa á
Norðurlandamótinu í blaki sem
hefst um næstu helgi í Digranesi í
Kópavogi. Landsliðið er þannig
skipað:
Landsmót að Varmá
Stjórn Ungmennafélags fslands
hefur ákveðið að fela UMSK að
halda Landsmót UMFÍ árið 1990.
Landsmótsstaður verður Varmá í
Mosfellssveit. Það verður20. Lands-
móti UMFf.
Engir atvinnumenn
Ólympíuleikarnir í Seoul verða
ekki opnir fyrir alla íþróttamenn,
áhuga- sem atvinnumenn. Þetta
staðfesti Juan Antonio Samaranch
forseti Alþjóðaólympóunefndarinn-
ar við blaðamenn í gær. Ólympíu-
nefndir hver í sínu landi hafa farið
fram á meiri tíma til að velta svo
alvarlcgu máli fyrir sér og því er Ijóst
að ekkert verður úr því að atvinnu-
menn fái að keppa í Seoul.
■ San Marino hefur fengið að-
gang að knattspyrnusambandi
Evrópu í tvö ár til reynslu. San
Marino er smáríki á ítaliu og tala
íbúarnir ítölsku. í ríkinu er knatt-
spyrnukeppni árlega sem er eins-
konar smá deildarkeppni.
■ Franski landsliðsmaðurinn
Jean-Marc Ferreri sem spilaði
með Auxerre í frönsku knatt-
spyrnunni hefur gert samning við
Bordeaux til fimm ára. Ferreri er
aðeins 23 ára. Þá hefur
Strassborg, sem sennilega fellur í
2. deild í dag, gert samning við
Peter Reichert frá Stuttgart. Hann
getur þó farið frá félaginu ef það
vinnur sér ekki sæti í 1. deild á ný.
■ Töluverðrar svartsýni gætir nú
hjá bandarískum íþróttayfirvöld-
um varðandi keppnisferðir
íþróttahópa til Evrópu. Vegna
atburðanna í Líbýu og ótta við
hryðjuverk í Evrópu þá hafa
nokkur íþróttasambönd og
íþróttahópar í Bandaríkjunum
hætt við ferðir til Evrópu og nú
eru menn jafnvel uggandi um
hvort Bandaríkjamenn mæti á
stórmót eins og HM í sundi í
Madrid og HM unglinga í frjálsum
í Aþenu.
■ UEFA-þing var haldið í Port-
úgal í þessari viku. Forseti UEFA,
Jacques Georges, var endurkjör-
inn forseti og fjórir af fimm með-
limum framkvæmdanefndarinnar
voru endurkjörnir. Einn þeirra,
Ellert Schram formaður KSÍ, vék
úr ncfndinni fyrir Finnanum Lauri
Poyhonen.
■ Bobby Moore, fyrrum fyrirliði
enska landsliðsins, sagði af sér
sem framkvæmdastjóri Southend
í 4. deild ensku knattspyrnunnar.
Ástæðumar voro persónulegar að
hans sögn.
Páll Svansson, ÍS
Einar Hilmarsson, Þrótti
Guðmundur E.Pálsson, Þrótti
Haukur Valtýsson, ÍS
Ástvaldur J. Arthúrsson, HSK
Sveinn Hreinsson, Þrótti
Jón Árnason, Þrótti
Lárentsínus Ágústsson, Þrótti
Þorvaldur Sigfússon, tS
Stefán Jóhannesson, Víkingi
Leifur Harðarson, Þrótti fyrirlidi
Kjartan Busk, HK
Landsliðið mun í dag etja kappi
við harðsnúið Pressulið sem skipað
er einvala mönnum sem ekki fannst
sæti fyrir í landsliðinu. Leikurinn
verður í Digranesi í dag og hefst
hann kl. 14.15. Pressulið er skipað
eftirtöldum mönnum:
Þröstur Friðfinnsson, Víkingi
Kristján Már Unnarsson, Fram
Samúel örn Erlingsson, Þrótti
Ólafur Traustason, Fram
Sigurdur Guðmundsson, Víkingi
Friðjón Bjarnason, ÍS
Þórir Schoith, ÍS
Friðbert Traustason, Víkingi
Guðmundur Kærnested, ÍS
Bjarni Þórhallsson, Víkingi.
ítalir mæta Spánverjum
Pað verða ftalir og Spánverjar
sem spila um Evrópumeistaratitilinn
í knattspyrnu landsliða U-21 árs.
ítalir gcrðu jafntefli við Englend-
inga, núverandi meistara, 1-1 íSwin-
don og unnu 3-1 samanlagt.
Spánverjar unnu Ungverja eftir
framlengingu þar sem tveimur Ung-
verjurn var vikið af velli 4-1 og
samanlagt 5-4. Leikurinn var á Spáni
og ekki ætlar af velgengni og heppni
Spánverja á heimavelli að ganga.
Skemmst er að minnast úrslita í
Evrópukeppnunum í síðustu vikum.
Lakers í úrslit
L.A. Lakers bættust í hóp þeirra
liða sem komin eru áfram í úrslita-
keppninni í NBA körfuknattléikn-
um sem nú stendur yfir í Bandaríkj-
unum. Lakers unnu Spurs 114-94 í
þriðja leik liðanna. Pá eru Nuggets
einnig komnir áfram eftir 116-112
sigur á Trailblazers en Bullets og
76ers hafa unnið tvo leiki hvort eftir
116-111 sigur Bullets í fyrrinótt.
Aukastig til Vals
Valsmenn náðu sér í aukastig í
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu á
fimmtudgskvöldið er þeir sigruðu
Ármenninga 7-1. Pað er ljóst að í
undanúrslitunum mæta Víkingar
KR og Valur spilar við Fram. Þau lið
sem sigra spila um Reykjavíkur-
meistaratitilinn. Fram er núverandi
Reykjavíkurmeistari.
Ribe til landsins
Ribe, danska handknattleiksliðið
með þá Gunnar Gunnarsson, Gísla
Felix Bjarnason og Anders Dal Nils-
en í fararbroddi kemur til landsins
um helgina. Mun liðið leika gegn
Úrvalsliði sem íþróttafréttamenn
velja í Laugardalshöll á mánudags-
kvöldið. Auk þessa leiks þá verða
ýmsar uppákomur m.a. tískusýning,
klappstýrur og innanhússknatt-
spyrna.
M0LAR M0LAR
Þessar kampakátu stúlkur eru landsliðsstelpur í körfuknattleik sem keppa á NM í körfuknattleik um helgina.
Tímamynd: Sverrir.