Tíminn - 26.04.1986, Page 11
Tíminn 15
Laugardagur 26. apríl 1986
Frá síðasta íslandsmóti. íslandsmeistararnir Sigtryggur Sigurðsson og Páll Valdemarsson spila við Símon
Símonarson og lón Ásbjörnsson. Tímamynd Sverrir
Bridgesambandið styrkir 5 pör til Miami:
Aukabúnaður fyrir
einmenningstölvur
23. apríl 1986
í framhaldi af útboði á einmenningstölvum , sem
fram fór 1984, óskar einmenningstölvunefnd ríkis-
ins eftir upplýsingum um búnað sem á boðstólum
er og getur aukið fjölhæfni og vinnslugetu IBM
einmenningstölva og samlíkra tölva.
Þar á meðal: Diskar, segulbandsstöðvar, minnis-
stækkanir, hliðargjörvar, fjölnotaspjöld með tengi-
búnaði s.s. einrása (seríai port), fjölrása hliðum
(parallel port), og klukku.
Ennfremur er óskað eftir upplýsingum um prent-
ara: nálaprentara, leturhjólsprentara og hljóðláta
hágæðaprentara.
Nánari upplýsingar veita Bjarni Júlíusson, Fjár-
laga- og hagsýslustofnun og Jón Þór Þórhallsson,
SKÝRR.
Upplýsingarnar óskast sendar til: Einmennings-
tölvunefndar ríkisins, Fjárlaga- og hagsýslustofn-
un, Arnarhvoli.
Islandsmeistararnir
fá ferð í verðlaun
Bridgesambandið hefur ákveðið
að styrkja fimm pör til farar á
Heimsmeistaramótið í tvímenning
sem halda á í Miami í Bandaríkjun-
um í haust. Þrjú efstu pörin á
íslandsmótinu í tvímenning fá kost
á þessum styrk en önnur pör geta
sótt um hin sætin tvö, fyrir 15. maí.
Flugfarið til Miami verður senni-
lega borgað fyrir íslendsmeistarana
í tvímenning, en Bridgesambandið
hefur ekki ákveðið hvað styrkur til
annarra para verður hár. Þó er
sennilegt að hann verði fólginn í því
að keppnisgjaldið verður greitt, en
það er 250 dollarar á par.
Það verður því til nokkurs að
vinna, auk heiðursins og dollunnar,
á íslandsmótinu í tvímenning sem
spilaður verður nú um helgina.
Spilamennskan hefst í dag á Loft-
leiðum kl. 13.00 og lýkur seinni part
sunnudags. 24 pör berjast þar um
íslandsmeistaratitilinn, og spiluð
verða 5 spil á milli para, alls 115 spil.
Þar sem þetta verður síðasta ís-
landsmót á keppnistímabilinu verða
veitt verðlaun til þeirra sem unnið
hafa til slíks í vetur. Auk þess fá 11
manns afhent viðurkenningarskjöl
frá Alþjóðabridgesambandinu fyrir
að hafa tekið þátt í tveim eða fleiri
Ólympíumótum. Að auki fær einn
nýbakaður stórmeistari afhenta
grandnál.
Landsliðsmál
Samþykkt hefur verið að bæta
tveim spilurum í lið yngri spilara
sem keppir á Evrópumótinu í Ung-
verjalandi, þeim Antoni Gunnars-
syni og Ragnari Magnússyni. Þá
hefur verið ákveðið að skrá Sævar
Þorbjörnsson og Dröfn Guðmunds-
dóttur í liðin sem keppa á Norður-
landamótinu í Noregi í Júní, en þau
eru bæði búsett í Danmörku. Þau
Dröfn og Sævar verða til taks á
mótsstað ef eitthvað kemur upp á.
Bridgedeild
Breiðfirðinga
Matthías Þorvaldsson og Hrannár
Erlingsson unnu Mitchelltvímenn-
ing félagsins og eina parið sem veitti
þeim einhverja keppni voru foreldr-
ar Matthíasar, Þorvaldur og Svava.
Úrslit í 3. umferð mótsins urðu þessi:
Úrslit í 3. umferð mótsins urðu þessi:
A-riðill:
Karen-Þorvaldur Óskarsson 439
Bragi Erlendss.-Ríkarður Steinbergs. 423
Jóhann Jóhannss.-Kristján Sigurgeirss. 420
B-riðill:
Gunnar Þorkelsson-Bergsveinn Breiðfj. 425
Baldur Ásgeirsson-Magnús Halldórsson 424
Guðlaugur Sveinsson-Magnús Svcrrisson 413
Heildarúrslitin urðu þessi:
Matthías Þorvaldss.-Hrannar Erlingss. 1290
Þorvaldur Matthíasson-Svava Ásgeirsd. 1268
Magnús Oddsson-Jón Stefánsson 1251
Bragi Erlendsson-RíkarðurSteinbergss. 1236
Jóhann Jóhannss.-Kristján Sigurgeirss. 1197
Árshátíð deildarinnar verður
haldin í Hreyfilshúsinu föstudaginn
2. maí, kl. 20.30 og hefst með
félagsvist í léttum dúr. Síðan verða
afhent verðlaun fyrir keppnir vetrar-
ins og að því búnu stiginn dans fram
eftir nóttu.
Fyrirhugað er síðan að spila eins
kvölds tvímenningskeppni í maí þar
til sumarspilamennska hefst.
Frá Bridgefélagi
Akureyrar:
Lokið er 14 umferðum af 17 í
Halldórsmótinu, sem er sveita-
keppni með board-a-match sniði.
Alls taka 18 sveitir þátt í mótinu.
Staða efstu sveita fyrir síðasta spila-
kvöldið er:
Mörður Blöndal ...................... 252
Jón Stefánsson ..................... 232
Stefán Vilhjálmsson.................. 232
Páll Pálsson . .................... 231
Gunnar Berg ........................ 231
Stefán Sveinbjörnsson ............... 230
Sl. helgi var spilað á Húsavík,
sveitakeppni á 8 borðum við heima-
menn þar. Keppt var um bikar sem
Búnaðarbankinn, útibú á Akureyri
gaf til keppninnar. Akureyringar
sigruðu með talsverðum mun.
Þess má að lokum geta, að stjórn
Bridgefélags Akureyrar hefur í
hyggju að tölvuvæða félagið, og í því
sambandi festa kaup á tölvu. Senni-
lega eru þeir þar með orðnir fyrstir
hérlendis bridgefélaga til að tölvu-
væða starfsemina.
Frá Bridgefélagi
Tálknafjarðar:
Firmakeppni félagsins, sem jafn-
framt er meistaramót í einmennings-
keppni hófst sl. mánudag. Alls taka
20 spilarar þátt í keppninni. Eftir 1.
spilakvöldið af 3 er staða efstu
firma/spilara þessi:
Bókhaldsstofan 155,
spilari Krístín Magnúsdóttir.
Hraðfrystihús Tálknafiarðar 136 stig,
spilari Þórður Reimarsson.
Þórsberg 134 stig,
spilari Heiðar Jóhannsson.
V.B. Frigg 130 stig,
spilari Steinberg Ríkharðsson
KaupfélagV. Barðstrendinga 128 stig,
spilari Stefán Haukur Ólafsson
Bridgefélag Sauðárkróks
Aðalsveitakeppni félagsins er lok-
ið og urðu úrslit þessi:
Bjarki Tryggvason..................... 166
Sigurgeir Angantýsson ............... 119
Kristján Sölvason ................... 117
Margrét Guðvinsdóttir................ 108
Stubbur.............................. 102
í sigursveitinni spiluðu Einar
Svansson, Skúli Jónsson, Halldór
Tryggvason og Bjarki Tryggvason.
Einar og Skúli unnu einnig aöal-
tvímenning félagsins sem spilaður
var um helgi. Úrslit urðu þessi:
Einar Svansson-Skúli Jónsson 77
Bjarki Tryggvason-Halldór Tryggvason 53
Páll Hjálmarsson-Björn Guðnason 28
Jón Örn Berndsen-Gunnar Þórðarson 26
Gunnar Pétursson-Halldór Jónsson 24
Tafl* og
Bridgeklúbburinn
Síðastliðið fimmtudagskvöld var
keppt í Mitchell tvímenningog urðu
úrslit sem hér segir:
Norður:
Guðm. Thorsteinss.-Gísli Stcingrímss. 259
Anton R. Gunnarss.-Tómas Sigurjónss. 252
Auðunn Guðmundss.-Guðm. Eiríkss. 234
Jón Steinar Ingólfss.-lngólfur Böðvarss. 231
Vestur:
Jakob Ragnarsson-Friðgcir Guðnason 270
Dóra Friðleifsd.-Guðjón Ottósson 241
Guðlaugur Nielsen-Óskar Karlsson 231
Gylfi Gylfason-Jónas Ólafsson 221
Föstudaginn 2. maí n.k. koma
Akureyringar í heimsókn og taka
þátt í sveitakeppni (6-8 sveitir) og
hefst keppnin kl. 19.30. Daginn eftir
eða laugardaginn 3/5 verður opinry
tvímenningur með félögum T.B.Ki.
og B.A. Öllum félögum er heimil
þátttaka. Hefst sú keppni kl. 13.30.
Spilað verður báða dagana að Síðu-
múla 35, (Skagfirðingaheimilið).
Félagar eru hvattir til að mæta þar
sem þetta er síðasta keppni vetrarins
á vegum T.B.K.
Skagfirðingar
Sl. laugardag sóttu Skagfirðingar
norðan heiða okkur heim til spila-
mennsku. Spilað var á 9 borðum.
Leikar fóru þannig, að sunnanmenn
sigruðu á 7 borðum og hlutu 186 stig,
en norðanmenn á 2 borðum og hlutu
72 stig.
Um kvöldið var gestum boðið á
Hótel Sögu og var nokkurt jafnræði
með liðum þar.
Sl. þriðjudag var framhaldið eins
kvölds tvímenning hjá félaginu. Úr-
slit urðu þessi:
N/S:
Ingvar Hauksson-Sverrir Kristinsson 421
Jón Þorvaröarson-Þórir Sigurstcinsson 394
Ari Konráðsson-Kjartan Ingvarsson 387
Jakob Kristinsson-Garöar Hilmarsson 382
A/V:
Hrannar Erlingss.-Matthías Þorvaldss. 366
Jón Viðar Jónmundss.-Þórður Þórðars. 362
Magnús Ólafsson-Páll Bergsson 351
Ármann J. Lárusson-Karólína Svcinsd. 350
32 pör mættu til leiks.
Og næstu þriðjudaga verður fram-
haldið eins kvölds tvímennings-
keppnum. Spilað er í Drangey/
Síðumúla 35. Ollum velkomin þátt-
taka mcðan húsrúm leyfir.
GuðmundurSv. Hermannsson
Laus staða
Laus er til umsóknar hlutastaöa dósents í kven-
sjúkdómafræöi og fæöingarhjálp viö læknadeild
Háskóla íslands, sbr. 10.grein laga nr. 77/1979 um
Háskóla íslands.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf,
rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil og störf
skulu sendar menntamálaráöuneytinu fyrir 25.
maí 1986.
Menntamálaráðuneytið, 22. apríl 1986.
Sóknarfélagar
Aöalfundur starfsmannafélagsins Sóknar veröur
haldinn í fundarsal félagsins Skipholti 50a þriðju-
daginn 29. apríl kl. 20.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál
Sýnið skírteini
Stjórnin.
Aðalfundur Verkakvenna-
félagsins Framsókn
verður haldinn mánudaginn 28. apríl n.k. kl. 20.30
aö Skipholti 50A, Sóknarsalnum.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Félagskonur fjölmenniö. Sýniö skírteini við inn-
ganginn.
Stjórnin.
Félag starfsfólks í
veitingahúsum
auglýsir eftir umsóknum félagsmanna um dvöl í
sumarhúsum að Húsafelli og Svignaskaröi.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 9. maí, úthlutaö
veröur 14. maí.
Stjórn Orlofsheimiiasjóðs.
Bifreiðastjórafélagið
Sleipnir
heldur félagsfund þriöudaginn 29. apríl 1986 kl.
20.00. Fundarstaður Hótel Esja.
Fundarefni: Staöan í samningunum.
Daníel Óskarsson formaður.