Tíminn - 26.04.1986, Qupperneq 16
ATVINNUMENN - ,
íþróttum munu ekki fá aö taka þátt í
næstu Ólympíuleikum sem veröa í
Seoul. Alþjóöaólympíunefndin ákvaö
þetta eftir fund meö fulltrúum ólympíu-
nefndar víðsvegar úr heiminum.
Nefndirnar vildu fá meiri tíma til aö
hugsa málið. Viö munum því varla sjá
Maradona, Becker eða Larry Bird á
næstu Ólympiuleikum.
Kynning á dagvistarmálum Reykjavíkur:
Allir á dag-
heimili í
næstu viku
í tilefni 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar
Athafnasamur hópur á Grænuborg. Bak við þau er líkan sem þau hafa búið til - meö aðstoð fóstranna sinna - af
hverfinu sínu í nágrenni heimilisins. Á líkanið hafa þau búið til húsin sem þau búa í, byggð úr Legokubbum. Allir
borgarbúar eru velkomnir í heimsókn í næstu viku. Tímamynd Sverrir.
Lögreglan á Akureyri:
„Stefnan að ráða
ekki konur í ár“
- segir yfirlögregluþjónninn Erlingur Pálmason
Foreldrum og öðrum þeim sem
áhuga liafa á að kynnast starfi harna
á dagheimilum Reykjavikurborgar
gefst kjörið tækifæri til þess í riæstu
viku. I tilefni af 200 ára almæli
borgarinnar hefur verið ákveðið að
bjóða alla vclkomna í heimsókn á
heimilin frá kl. S-l I fyrir hádegi og
13 til. 17 eftir hádcgi alla vikuna frá
mánudegi til föstudags.
Á mörgum hcimilanna hafa börn-
in undirbúið þessa viku meö vinnu
við ýmiss vcrkefni er tcngjast borg-
inni þcirra, sem þau hafa útfært i
líkönum og myndum.
Alls starfrækti Rcykjavíkurborg
57 dagvistarstofnanir á síðasta ári
fyrir samtals 3.746 börn. Til viöbótar
þeim tæplega 76 milljónum króna
scm foreldrarnir greiddu fyrir giesl-
una lagði borgin fram um 255 millj-
ónir króna niöurgreiðslu cða að
meðaltali um 68 þús. krónur meö
hverju barni. Lang dýrust er dvölin
á dagheimilunum - eða 142 þús.
krónur að meðaltali fyrir hvert pláss
á síðasta ári. þar af var hlutur
borgarsjóðs tæplega 110 þús. krónur
en foreldranna rúmlcga 31 þús
krónur. Ekki cr því ólíklegt að finna
megi dæmi þess að kostað hafi um
280 þús. krónur að gæta tveggja
Arnarflug:
„Jú ætli þeir Arnarflugsmcnn sem
á annað borð hafa misst svefn að
undanförnu geti ekki sofnað rólegir,
þetta er orðið ákveðið." sagði
Agnar Friðgeirsson framkvæmda-
stjóri Arnarflugs í gær aðspurður
um hvort ákvörðun um hlutafjár-
aukningu bindi enda á andvökunæt-
ur Amarflugsmanna.
Þeir aðilar, sem að undanförnu
hafa staðið í viðræðum við núver-
andi stjórn Arnarflugs um hlutafjár-
aukningu félagsins ákváðu í gær að
veita 96,7 milljónum króna nýju
hlutafé í fyrirtækið. Er það öll sú
hlutafjáraukning sem heimild var
veitt fyrir á síðasta aðalfundi félags-
ins.
Alls mun hið nýja hlutafé koma
frá 13 aðilum að minnsta kosti, en
það eru Helgi Þór Jónsson, Magnús
Gunnarsson, Guðlaugur Bergmann,
Hörður Einarsson, Sveinn R.
barna láglaunakonu til þess að hún
gæti sjálf farið út að vinna fyrir
220-240 þús. króna árstekjum.
Leikskólaplássin eru miklu ódýr-
ari eða tæplega 40 þús. krónur ú
livert barn í fyrra, hvarafforeldrarn-
ir greiddu hútt í helminginn.
Auk þeirra 3,746 barna scm borg-
in sá um daggæslu á, voru 1.237 í
gæslu hjú dagmæðrum um síðustu
áramót, en slíka gæslu greiddi borgin
niður um rúmar 16 millj. króna
samtals á síðásta ári.
Þá cru ónefndir 28 gæsluvellir sem
börn heimsóttu um 191 þús. sinnum
á síðasta úri. Kostnaður borgarinnar
af rekstri þeirra var um 28 millj.
króna á árinu, eða 147 krónur á
hverja heimsókn til viðbótar við þær
10 krónur sem forcldrarnir greiddu.
Það gjald er nú 15 krónur fyrir
hvcrja heimsókn. en stendur undir
aðeins bróti af kostnaöinum.
í desember sl. voru 1.010 manns á
launum hjá Reykjnvíkurborg vegna
framungreindrar daggæslu barna
auk rúmlega 4(M) dagmæðra sem þá
voru starfandi. Þcss skal getiö að
skrifstofa Dagvistar Reykjavíkur-
borgar hefur nú flutt í Hafnárhúsið
í Reykjavík, en lokað skrifstofum
sem áður voru á Njálsgötu og Forn-
haga.
Eyjólfsson, Einar Sveinsson, Sam-
vinnuferðir, Ferðaskrifstofan Atl-
antic, Ferðaskrifstofan Terra, Hótel
Holt, Hótel Saga, Vífilfell hf. og
Hagvirki.
Ekki er ákveðið hvernig hlutafjár-
aukningin skiptist milli þessara að-
ila, en þeir funduðu með stjórn
Arnarflugs í gær og kom þar fram að
þeir telja að skilyrðum sem upphaf-
lega voru sett um niðurfærslu núver-
andi hlutafjár í 10% af nafnvirði og
ríkisábyrgð á 2,5 milljón dollara
láni, hafi verið fullnægt, og að þeir
telja líklegt að viðunandi samningar
takist við lánardrottna Arnarflugs.
Samkvæmt frétt frá þeim hópi sem
að hlutafjáraukningunni standa, var
þessi ákvörðún þeirra skriflega stað-
fest í bréfi til stjórnar Arnarflugs í
gær. Stefnt er að því að ganga
endanlega frá þessum málum á
næstu 2-3 vikum.
-BG
Fimm konur sóttu um sumar-
störf hjá lögreglunni á Akureyri
nú fyrir skömmu. Aö sögn Erl-
ings Pálmasonar yfirlögreglu-
þjóns á Akureyri var tekin upp
sú stefna að ráöa cngan kven-
mann í lögreglunaá þessu ári.28
lögregluþjónar eru á Akureyri
ogenginn kvenmaðurstarfandi.
„Það hefur fækkað í lögregl-
unni hér og því er verra að hafa
fólk sem ekki er fært í hvað sem
er. Við erum vissir um að kven-
maður getur komið að gagni við
sum störf en ekki öll. Það
liggur alveg ljóst fyrir. Hvað er
það annars sem rekur ykkur til
þess að vera að skipta ykkur af
því sem ykkur kemur bókstaf-
lega ekkert við,“ sagði Erlingur.
Það kom fram í samtalinu við
Erling að konur féllu illa til
átaka og var það eina ástæðan
sem hann tiltók um vanhæfni
kvenna til starfans.
Tíminn hafði samband við
Ólöfu Pétursdóttur formann
Janfréttisráðs og bar málið undir
hana. Hún benti á fimmtu grein
laga um jafna stöðu kvenna og
karla. Þar segir. „Atvinnurek-
endum er óheimilt að mismuna
starfsfólki eftir kynferði og gildir
það m.a. varðandi...." í öðrum
tölulið segir, „ráðningu, setn-
ingu eða skipun í starf.“
„Til þess að hægt sé að dænia
um það hvort þarna sé um brot
að ræða, þá þarf maður að hafa
umsóknirnar fyrir framan sig og
kanna alveg hlutlægt hvort við-
komandi geti uppfyllt öll þau
skilyrði sem atvinnuveitandinn
óskar eftir að viðkomandi geti
uppfyllt. En það að synja um
starf á grundvclli kynferðis ein-
göngu, án þess að kanna hvort
viðkomandi getur uppfyllt starf-
ið er brot á lögunum,“ sagði
Ólöf þegar hún var spurð hvort
hún teldi vera um brot á þeim
lögum að ræða. Hún tók það
fram að kæra vegna þessa máls
hefði ekki borist til Jafnréttis-
ráðs. - ES
Austantjalds
skip við
landhelgina
Um fimmtíu verksmiðjuskip eru
nú að veiðum rétt utan við 200
mílna landhelgina. Öll eru skipin
frá austantjaldslöndum, Sovétríkj-
unum. Búlgaríu, A-Þýskalandi og
Póllandi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni hafa skipin
haldið sig á þessum slóðum. rétt
fyrir utan landhelgina út af Reykja-
nesi í tæpar þrjár vikur. Gæslan
fylgist náið með ferðum þeirra, en
ekkert ólöglegt athæfi hefur sést.
Talið er að annar hópur verksmiðju-
skipa sé lengra fyrir utan landhelg-
ina, en ekki hefur fengist staðfest-
ing á því.
Fiskur sá sem verksmiðjuskipin
veiða á þessum slóðum er karfa-
stofn sem ekki hefur verið nýttur
af íslendingum. Togarar reyndu að
veiða á þessum slóðum fyrir tveim-
ur árum, en fiskurinn var ekki
talinn nægilega góður til vinnslu.
Skipin sem eru á þessum slóðum eru
geysilega afkastamikil og öll yfir
2.500 tonn. Þau halda sig á mjög
afmörkuðu svæði, sem er um
tuttugu fermílur.
-ES
Hlutafjáraukning
Arnarflugs í höfn