Tíminn - 03.05.1986, Qupperneq 1

Tíminn - 03.05.1986, Qupperneq 1
STOFNAÐUR 1917 SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. KVENNALISTINN hefur sent Gorbasjef leiötoga Sovétríkjanna orö- sendingu vegna kjarnorkuslyssins í Chernobyl. Þar er m.a. mótmælt og fordæmd sú leynd sem sovésk yfirvöld hafa viöhaft vegna slyssins og þess krafist aö Sovétríkin sýni i framtíoinni ábyrgari viöhorf gagnvart þeim sem áttu á hættu aö fá yfir sig geislavirkt úrfelli. SUÐURNESJAMENN efna til atvinnumálaráðstefnu á laugardaginn þar sem fjallað veröur um ýmsa atvinnumögu- leika. Þingmenn kjördæmisins veröa sér- staklega boðaöir. ben^Ínlítrinn lækkaði í gær urrf2 krónur, í 28 krónur og hefur hann þá lækkað um 7 krónur frá áramótum. I landinu eru nú birgðir af bensíni til fjögurra mánaða og voru þær keyptar í mars og apríl á mjög hagstæöu verði eöa 129$ tonnið. Undanfarna daga hefur veröiö hækkað og er nú 152$ tonnið en verðið fór í 210$ tonnið í byrjun ársins. FARGJALDALÆKKUN Flugleiða á Luxemborg - New York leiðinni mun einungis standa í stuttan tíma. Eins og fram hefur komið var fargjaldið lækkað í rúmar 8 þús. kr. fyrir stuttu og er það sama verð og People Express býður upp á. En hátíðin stendur stutt. Flugleiðamenn lækkuðu verðið ein- ungis til þess að komast í bandarísku pressuna. FLAK TF-ORM hefur nú verið rannsakað að hluta. Ljóst er að getgátur sem komu fram í dagblöðum hafa margar hverjar reynst sannar. Karl Eiríksson formaður flugslysanefndar sagði á blaða- mannafundi sem haldinn var í gær að líklegt væri að vélin hefði flogið í gegnum mikla fallvinda og fengið á sig ísingu. Þá er talið sannað að ekki hafi verið afl á öðrum hreyflinum. Ákveðið hefur verið að senda út hluta úr hreyflinum til frekari rannsóknar. SJÖ ÁKÆRUR sem lagðar hafa verið fram á hendur Hermanni Björgvins- syni fyrir fjársvik, hafa verið sendar til ríkissaksóknara frá rannsóknarlögreglu. Að sögn Þóris Oddssonar hjá rannsóknar- lögreglunni var málið sent til saksóknara og hann beðinn um að taka afstöðu til þeirra atriða sem voru kærð af skjólstæð- ingum Bergs. NORSKA ríkisstjórnin sagði form- lega af sér í gær og hefur Verkamanna- flokkurinn fallist á að mynda nýja minni- hlutastjórn. Leiðtogi Verkamannaflokks- ins er Gro Harlem Brundtland og mun hún taka við forsætisráðherraembættinu af Kára Willoch. KRUMMI Ríkisskattstjóri vinnur eftir læknisvottorðum lækna SÁÁ: Læknisvottorð upp á skattaniðurfellingu Dæmi þess að menn fari í meðferð gagngert til þess að fá niðurfellingu á sköttum „Auðvitað er þetta misnotað eins og allt annað,“ sagði Þórarinn Tyrfingsson, læknir SÁÁ að Vogi, þegar hann var inntur eftir því hvort menn notuðu áfengismeð- ferð gagngert til þess að fá niður- fellingu á sköttum. En samkvæmt heimildum Tímans hafa verið brögð að því að menn færu í meðferð við áfengisneyslu til þess að verða sér úti um læknisvottorð sem tryggði þeim skattafslátt. Samkvæmt 66. grein laga um tekjuskatt er ríkisskattstjóra heimilt að fella niður gjöld ein- staklinga sem vegna veikinda hafa átt í erfiðleikum með að standa í skilum, og hefur þetta ákvæði sjálf- sagt verið sett í lögin vegna núver- andi skattafyrirkomulags, þar sem menn greiða gjöld af tekjum ársins á undan. Hjá embætti ríkisskatt- stjóra fengust þær upplýsingar að þar teldust alkóhólistar, sem farið hefðu í meðferð, falla undir þetta ákvæði. Hefur umsóknum þeirra stórfjölgað undanfarin ár og eru til dæmi þess að menn hafi komið strax daginn eftir að þeir útskrifuð- ust til þess að fá klippt af skulda- halanum. Þegar slíkar umsóknir berast er unnið út frá læknisvottorði sem læknar meðferðarstofnunarinnar gefa út. í þeim er tilgreint hvenær sjúklingurinn kom til meðferðar og hversu lengi hann hafi átt við áfengisvandamál að stríða. í ljósi hæstaréttardóms sem nýverið féll, og skar úr um að drykkjusýki félli ekki undir veikindi í lögum um Tryggingarstofnunina, kann mörg- um að þykja einkennilegt að lækn- ar hafi í raun vald til þess að strika yfir skuldir alkóhólista. Tíminn hefur fregnað af fleirum en einum einstaklingi sem hefur lagt það á sig að „ljúga“ uppá sig alkóhólisma, gagngert til þess að nýta sér þessa leið til þess að hreinsa til í fjármálunum. Þó svo að áfengismeðferð sé enginn leikur töldu þessir menn til mikils að vinna, þar sem þeir skulduðu hundruð þúsunda í skatt. Þegar Þórarinn Tyrfingsson var spurður að því hvort mögulegt væri að menn kæmust í gegnum áfengismeðferð á fölskum forsend- um, taldi hann að þar sem með- ferðin væri alvarlegt mál, væri ótrúlegt að einhver legði það á sig að fara í gegnum hana án þess að eiga við vandamá! að stríða. -gse Björgunar- báturvígður 21. landsþing Slysavarnafélags íslands hófst í gærdag, og stendur alla helgina. Þingið fer fram í félagsheimili slysavarna- félagsins á Seltjarnarnesi. Helstu mál sem rædd verða á þinginu eru skipulagsbreyting- ar hjá félaginu, kaupin á varð- skipinu Þór, kaupin á björgun- arbátunum frá Danmörku og Englandi og fleira. Á myndinni sést þegar vígður er nýr björgun- arbátur í sundlauginni á Sel- tjarnarnesi í gærdag að við- stöddu fjölmenni. Báturinn hlaut nafnið Ásgeir M. Tíma-mynd Pétur „Tilbúin fyrir löngu“ - segir Pálmi Gunnarsson sem lítur björtum augum á söngvakeppnina í kvöld Þannig kemur Icy til með að líta út á skjánum í fötum frá Doris Day and Night. Pálmi Gunnarsson, Helga Möller og Eiríkur Hauksson. „Við vöknum klukkan tíu og fáum okkur morgunmat," sagði Pálmi Gunnarsson, einn af fuli- trúum íslands í „Eurovision"- keppninni, þegar Tíminn hafði samband við hann til að forvitnast um hvernig dagurinn í dag gengi fyrir sig í Bergen. „Síðan förum við að hita okkur upp“, bætti hann við, „förum yfir lagið og hitum upp raddböndin í morgun- sturtunni. Síðan verður rennsli í höllinni klukkan tvö og það stendur til fimm. Þá verður frí fram að sjálfri úrslitakeppninni. Þá slappar maður bara af og bíður rólegur.“ - Taugaspenntur? „Ég hugsa að það sé hjá flest- um ákveðinn taugaspenningur, en ég er kannski orðinn það gamall sjóari að ég er voða róleg- ur yfir þessu.“ - Hvernig líst þér á hin lögin? „Eg held að það verði sex lög sem koma til með að bítast um toppinn, þó svo að lögin í keppn- inni séu frekar jöfn. Það er ekkert sem er áberandi glimrandi. Fjöl- miðlar hafa verið duglegir við að spá og spekúlera, því þetta er mikil fjölmiðlakeppni. En það er erfitt fyrir mig að dæma um þessi lög.“ - Er þetta góð tónlist? „Mér finnst þetta vera að fær- ast meira í átt að poppmúsík. Það hefur verið sagt að það hafi verið mikil „Eurovision-slykja“ yfir þessari keppni, en þjóðirnar eru nú að reyna að koma með eitt- hvað nýtt.“ - Eruð þið vel undirbúin? „Já, við voruni tilbúin í slaginn fyrir löngu. Allar æfingarnar hafa gengið eins og í sögu, og þetta hefur verið mjög gaman. Við höfum kynnst mörgu góðu fólki og það hefur ekki verið neinn rígur á milli keppenda." - Eitthvað að lokum? „Já, ég vil skila kveðju til allra heima á íslandi, Við finnum virki- lega mikið fyrir því að það standa allir þar á bak við okkur, og við vonum að við stöndum undir því.“ -gsc

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.