Tíminn - 03.05.1986, Blaðsíða 7
Laugardagur 3. maí 1986
Tíminn 7
ssspSSS&'
Hvert sæti skipað,
Það var margt um manninn á Hótel Hofi hinn 1. maí þar sem frambjóðendur Franisóknarflokks-
ins höfðu opið hús.
Frambjóðendur Framsóknar-
flokksins við borgarstjórnarkosn-
ingarnar í Reykjavík höfðu opið hús
1. maí. Frambjóðendurnir tóku á
móti gestum að Hótel Hofi og var
þar fjölmenni.
Sigrún Magnúsdóttir, sem skipar
efsta sætið á lista framsóknarmanna
og Alfreð Þorsteinsson, sem skipar
annað sætið, fluttu ávörp og vísna-
söngkonan Bergþóra Árnadóttir
skemmti.
Fjöldi manns lagði leið sína á
opna húsið, en þar voru kaffiveiting-
ar og ræddi fólk saman auk þess að
hlýða á frambjóðendur og söngkon-
una.
Myndirnar hér á síðunni eru tekn-
ar af þessari samkomu framsókn-
armanna, sem var í alla staði hin
ánægjulegasta.
Sigrún Magnúsdóttir á tali við gesti,
Ungur maður skrifar í gestabókina,
(Tímamyndir Sverrir).
Um margt að spjalla,
** 'í. 1*
.> W
íæwJIH■ flHfc
fn
Rétt hjálparhönd.
Alfreð Þorsteinsson og Einar Eysteinsson bera saman bækur sínar.