Tíminn - 03.05.1986, Blaðsíða 3
Laugardagur 3. maí 1986
Tíminn 3
Rekstur Þörungavinnslunnar á Reykhólum að stöðvast:
„Yrði ríkasti maður
á íslandi eftir 6 ár“
- ef ég ætti Þörungavinnsluna, segir framkvæmdastjórinn
Rekstur Þörungavinnslunnar á
Reykhólum mun stöðvast nú á næst-
unni, ef ríkisstjórnin grípur ekki í
taumana. „Við höfum verið að bíða
eftir því að eitthvað gerðist í málum
Þörungavinnslunnar af hálfu iðnað-
arráðherra og fjármálaráðherra, en
síðan Albert tók við stöðu iðnaðar-
ráðherra hefur akkúrat ekkert gerst
og engar viðræður hafa átt sér stað
milli heimamanna og ríkisstjórnar-
innar um að koma rekstri Þörunga-
vinnslunnar í hendur heimamanna,
en það var sú leið sem Sverrir
Hermannsson fyrrverandi iðnaðar-
ráðherra var byrjaður á. Hann var
búinn að fá heimild í lögum frá
Alþingi til þess að koma þessum
hlutum heim og saman á vormánuð-
um 1985, en frá því í haust hefur allt
stoppað," sagði Kristján Þór Kristj-
ánsson framkvæmdastjóri Þörunga-
vinnslunnar.
Hjá Þörungavinnslunni hafa unn-
ið 20-25 manns allt árið, en á sumrin
hafa bæst við 8-10 manns og sláttu-
menn eru um 30-50 að sögn
Kristjáns. Þeir sem hafa haft fasta
Grænlenska verslunarfélagið:
Siglir milli fs-
lands og Grænlands
Grænlenska verslunarfélagið
eða Grönlands Handel, sem áður
var Hin konunglega Grænlands-
verslun, hefur ákveðið að hefja
áætlunarflutninga með skipi milli
fslands og Grænlands. Vörur sem
fluttar verða frá Grænlandi til ís-
lands munu koma í gegnum Ála-
borg, en vörur frá íslandi fara
síðan beint til Grænlands. Fyrsta
reglubundna ferðin frá Reykjavík
verður farin um miðjan maí og
síðan verða ferðir frá Reykjavík
áttundu hverja viku. Viðkomuhöfn
í Grænlandi verður Maniitsoq rétt
‘norðan við Nuuk, en þaðan verður
vörunum dreift um allt landið.
Umboðsmaður á íslandi er Þor-
valdur Jónsson skipamiðlari og
sagði hann í samtali við Tímann í
gær að með þessum ferðum væri
verið að kanna grundvöllinn fyrir
áætlunarsiglingum á þessari leið.
Ef vel gengi kæmi til álita að fleiri
skipum yrði bætt við á þessari leið,
en fyrirhugað er að Ms. Magnús
Jensen sjái um flutningana til að
byrja með. -BG
atvinnu við Þörungavinnsluna missa
því atvinnu sína og ekki eru horfur
á að takist að útvega þeim aðra
vinnu. „Með þessu er verið að leggja
byggðina og fyrirtækið í eyði,“ sagði
Kristján. Hann sagðist harrna það
að þetta væri dæmi um að nýiðnaður
með íslenskum hráefnum og ís-
lensku hugviti væri lagður í rúst.
„Heimamenn hafa lagt á það
áherslu, að fengju þeir að taka við
rekstri Þörungavinnslunnar, án þess
að taka þær langtímaskuldir sem
hvíla á henni gætu þeir rekið hana
með hagnaði - eða eins og ég sagði
við einhvern - ef ég ætti Þörunga-
vinnsluna yrði ég sennilega ríkasti
niaður á íslandi eftir 6-8 ár,“ sagði
Kristján. - ABS
Þórður Jónsson og Jóhann Einvarðsson afhenda fyrir hönd Lions-hreyfing-
arinnar 17. m.kr. til kaupa á línuhraðli Landspítalans. Tímamynd-Svcrrir
Lions gefur línuhraðal
Sl. miðvikudag afhenti Þórður
Jónsson fjölumdæmisstjóri Lions-
hreyfingarinnar á íslandi Ragnhildi
Helgadóttur heilbrigðismálaráð-
herra. ávísun að upphæð 17 millj.
kr. til kaupa á línuhraðli til krabba-
meinslækninga. Hallgrímur Snorra-
son hagstofustjóri sem er formaður
yfirstjórnar mannvirkjagerðar á
Landspítalalóð, veitti ávísuninni
síðan viðtöku fyrir hönd Landspítal-
ans.
Línuhraðall þcssi er sambærilegur
við önnur tæki til geislalækninga
sem til eru í dag. cn mun nákvæmari.
Því mun meðferð verða árangursrík-
ari og hliðarverkanir niinni. Verð
hraðalsins er um 35 millj. kr. með
uppsetningu og varahlutum, og mun
ríkissjóður standa í ábyrgð fyrir
greiðslu þeirra upphæðar sem á
vantar.
- Þeini 17 millj. kr. sem nú voru
afhentar, var safnað af Lionsfélög-
um í apríl í l'yrra, er þeir gengu í hús
og seldu rauðar fjaðrir. Áætlað er að
tækið verði tilbúið til notkunar í
ársbyrjun 1987, og veröur það sett
upp í K-álmu Landspítalans.
- PHH
Sex skip hafa stöðvast
Næsti sáttafundur á sunnudag
Sex skip hafa nú stöðvast vegna
verkfalls undirmanna á kaupskipum
sem staðið hefur síðan á miðviku-
dag. Engar viðræður hafa verið í
gangi síðan á þriðjudag „hvorki úti
í horni né hjá sáttasemjara,“ eins og
Guðmundur Hallvarðsson formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur orðaði
það í samtali við Tímann í gær.
Sáttasemjari hefur boðað deiluaðila
til fundar kl. 13 á sunnudag.
Kröfur undirmanna eru þær að
grunnkaup verði hækkað úr 20 þús-
I und krónum á mánuði í 27 þúsund
krónur og að álag á yfirvinnu verði
hækkað úr 60% upp í 80%.
Að sögn Guðmundar Hallvarðs-
sonar hafa forsendur fyrir grunn-
kaupsútreikningum breyst á síðustu
árum og samfara fækkun háseta á
skipunum hefur fjöldi þeirra sem
eru á vöktum aukist hlutfallslega.
Þannig er t.d. aðeins cinn dagmaður
á dekki á flestum skipum, scm skilar
48 tíma vinnuviku cn hinir þrír sem
eru á vöktum skila 56 tímum.
Skipin sem stöðvast hafa eru:
Lagarfoss sem stöðvaðist í Straums-
vík, Reykjafoss í Reykjavík, Skeiðs-
foss á Akureyri, Jökulfell í Reykja-
vík, Skaftafell á Sauðárkróki og
Kyndill II í Reykjavík. Verkfalls-
■ menn hafa þann háttinn á, að skip
sem koma til landsins losa út vörurn-
ar áður en þau stöðvast. Þau skip
sem koma í heimahöfn eru losuð og
síðan færð til og lagt til þess að rýma
fyriröðrum skipum. Ekkierþórýmt
fyrir erlendum leiguskipum með út-
lendum áhöfnum. Mun fleiri skip
munu stöðvast strax eftir helgitia ef
dcilan leysist ekki. - BG
Austur-
evrópskur
matur
bannaður
I gær tók gildi bann við innflutn-
ingi á matvælum, hverju nafni sem
þau nefnast, frá Sovétríkjunum,
Póllandi, Tékkóslavíu, Búlgaríu,
Ungverjalandi og Rúmeníu.
Þetta bann er sett til þess að
hindra að matvæli sem menguð eru
af geislavirkum efnum berist til
landsins, þar sem mikil geislavirkni
hefur mælst í þessum löndum eftir
kjarnorkuslysið við Kænugarð.
Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt
Hollustuvernd ríkisins heimild til að
veita undanþágur frá banninu, ef
sannað þykir að matvælin hafi ekki
orðið fyrir geislun.
Bann þetta gildir um óákveðinn
tíma. - gse
Árfara-slysiö: .
Hávaði á
hljóðrita
Hlustað hefur verið á hljóðrita í
Árfara, vél Flugleiða sem fór út af
flugbraut á Reykjavíkurflugvelli fyr- ,
ir nokkrum mánuðum.
Að sögn formanns flugslysanefnd-
arheyrist þegarflugmaðurvélarinn-
ar spyr. „Hvað er þetta?“ en ærandi
hávaði heyrist á hljóðritanum og
yfirgnæfir hann vélardyn vélarinnar.
Þetta endurtekur sig í þrígang. Flug-
maðurinn sagðist halda að sprungið
hefði á vélinni og hætti við flugtak.
Ekki er vitað hvað þessi hávaði
táknar, en líkur hafa verið leiddar
að því að vélin sé að fara í poll, en
gífurleg rigning var þennán dag.-ES
Íl4d ÍSLKNSKH
Ttl>:< \i)A8MA V
rétti
Tímamynd-Sverrír
Frá fundinum á Lækjartorgi 1. maí
Fámennt 1. maí, en kraftur í konum
Óvenju fámennt var á baráttu-
og hátíðasamkomu verkalýðsins í
Reykjavík í ár. Lögðu ræðukonur
þar áherslu á að varnarsigur hefði
unnist í síðustu kjarasamningum
en voru þó engan veginn ánægðar
með núverandi ástand mála.
Margir kenndu leiðindaveðri um
dræma þátttöku þó fleira hjálpi þar
eflaust til. Veldur þar ekki síst að
mörgum finnst þessar samkomur
fremur tilgangslitlar, þar sem bar-
áttan hefur orðið æ fyrirferðar-
minni á kostnað lítt spennandi
skemmtiatriða.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
héldu sérfund á Hallærisplani og
lögðu ræðukonur áherslu á 30 þús.
kr. lágmarkslaun strax í dag og
hvöttu til baráttu um að hafna
síðustu kjarasamningum. Flutti
sönghópurinn Lóurnar þar braginn
„Skuldabankann" (við lag Gleði-
bankans) við góðar undirtektir.
Að sögn Birnu Þórðardóttur, sem
flutti ávarp samtakanna á fundin-
um, var samkoman vel heppnuð og
fjöldi fundarmanna um 500 þegar
flest var.
- P.H.