Tíminn - 03.05.1986, Qupperneq 2
2 Tíminn
Laugardagur 3. maí 1986
Framfærsluvísitalan:
Gæti farið örlítið
yf ir rauða strikið
„Það er mjög tvísýnt hvort hún fer
yfir rauða strikið eða ekki,“ sagði
Vilhjálmur Ólafsson á Hagstofunni
í samtali við Tímann í gær aðspurður
um líkur á að vísitalan haldist innan
þeirra viðmiðunarmarka sem sett
voru í kjarasamningunum í febrúar
sl. Vilhjálmur sagði að venjan væri
að nota fyrstu viku hvers mánaðar
til að kanna verðlag og að þeir
myndu ganga í það strax eftir helg-
ina. Hann sagði, að það væri mjög
lítið af upplýsingum sem lægju fyrir
nú þegar því útreikningarnir byggð-
ust nær eingöngu á verði í verslun-
um, að frátöldu bensínverði, hús-
næðisliðum, skyldutryggingum á
bifreiðum, og þess háttar. Miðað við
útlitið eins og það er nú og með
ofangreindum fyrirvörum taldi hann
þó sennilegt að vísitalan myndi fara
ca 0,1-0,3% yfir rauða strikið.
Ákveðið hefur verið að auka nið-
urgreiðslur á kjöti um 5% og mun
það hafa í för með sér um 0,25%
lækkun vísitölunnar. Áfengis- og
tóbakshækkunin sem varð nýlega
hækkaði hins vegar vísitöluna um
ca. 0,25% þannig að auknar niður-
greiðslur jafna út áhrif áfengis- og
tóbakshækkunarinnar. Að sögn Vil-
hjálms Ólafssonar mun framfærslu-
vísitalan ekki liggja endanlega fyrir
fyrr en eftir fund kauplagsnefndar,
,en hann verður haldinn mánudaginn
12- maí. - BG
Kirkjukór Fljótshlíöar:
Söngskemmtun
í Goðalandi
Kirkjukór Fljótsdalshlíðar býð-
ur fyrrverandi kórfélögum til söng-
skemmtunar, laugardaginn 3. maí
í Félagsheimilinu Goðalandi kl.
14.00. Á dagskrá verður kórsöngur,
kvartettsöngur og stuttur leikþátt-
ur auk kaffiveitinga.
Kirkjukórinn var stofnaður 1947
með sameiningu kóra Hlíðarenda
og Breiðabólsstaðarkirkna en þeir
kórar voru stofnaður 1942. Aðal-
verkefni kórsins hefur verið að
annast söng við messur og aðrar
kirkjulegar athafnir, auk annarra
athafna.
Kórinn hefur átt því láni að
fagna á síðustu árum að mikið af
ungu fólki hefur sungið með kórn-
um og hefur það lífgað upp á
starfsemina. Kórfélagar eru nú um ,
20 talsins og organisti og söngstjóri
er frú Margrét Runólfsdóttir í
Fljótsdal.
Skemmtunin verður endurtekin
sunnudaginn 4. maí kl. 21.00 oger
þá opin almenningi.
Sjúkrahús Vestmannaeyja:
Sjúkraliðarnir
genguútl.maí
Annarri deild sjúkrahússins var lokað
„Þetta er ófremdarástand," sagði
hjúkrðnarfræðingur á Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja um ástandið sem
þar skapaðist við það að allir sjúkra-
liðar sem þar störfuðu - sem fylltu
um 14 stöðugildi - hættu störfum frá
og með 1. maí eftir 3ja mánaða
framlengdan uppsagnarfrest frá því
í vetur. Afleiðingin er sú að búið er
að senda heim eða á sjúkrahús í
Reykjavík aliflesta sjúklinga er voru
á handlæknis- og lyflæknisdeild
sjúkrahússins, sem nú helur verið
lokað fyrir aðra sjúklinga en sæng-
urkonur. Þeir sjúklingar sem hvorki
var hægt að senda heim eða „suður"
voru fluttir á öldunardeildina sem
enn er haldið opinni.
Að sögn hjúkrunarfræðings verð-
ur reynt að senda flesta scm á bráðri
læknishjálp þurfa að halda til
Reykjavíkur meðan þetta ástand
varir. En mikið álag er nú sagt á því
starfsliði sjúkrahússins sem eftir er í
starfi.
„Það er ekkert að frétta - við
erum bara hættar og förum að leita
okkur að öðrum störfum þar sem við
losnum þá væntanlega við þessa
miklu nætur-, helgar- og hátíðavinnu
en förum að eiga frí eins og aðrir,“
sagði Sigurleif Guðfinnsdóttir, trún-
aðarmaður sjúkraliða.
Hún sagði bæjaryfirvöld lítið hafa
við þær rætt áður en þær hættu og
ekkert síðan. Sjúkraliðar hafi nú í
nær heilt ár haldið fram kröfu um
4.500 kr. launauppbót á mánuði
fyrir fullt starf bæði til samræmis við
hjúkrunarfræðinga og vegna mikils
vinnuálags. Bæjarstjórn hafi í síð-
ustu viku boðið á móti 1 launaflokks
hækkun - 7-800 kr,- og ítrekað það
boð á fundi nú s.l. þriðjudag, sem
sjúkraliðar hafa í báðum tilvikum
hafnað.
Að sögn Sigurlcifar eru föst laun
sjúkraliða í Eyjum nú frá um 24 þús.
í byrjun upp í hæst 32 þús. eftir 18
ára starf, eftir 3ja launaflokka hækk-
un nú nýlega í kjölfar nýs starfsmats
allra bæjarstarfsmanna, sem færði
mörgum þcirra allt að 3ja launa-
llokka hækkun. -HEI
Listakonan við eitt verka sinna.
Kjarvalsstaöir:
Nína Gautadóttir
sýnir akrýlmálverk
Nína Gautadóttir opnar mál-
verkasýningu á Kjarvalsstöðum í
dag, 3. maí kl. 14.00.Sýnd verða 41
málverk sem unnin eru í akrýl og eru
þau öll til sölu. Er þetta þriðja
einkasýning Nínu á íslandi en hún
hefur haldið fjórar einkasýningar
erlendis auk fjölda samsýninga.
Nína hefur unnið til fjölda verðlauna
á alþjóðlegum sýningum, en auk
málverka hefur hún sýnt veflistaverk
og verk unnin í leður. Nína, sem
búsett hcfur verið í Cameroun sl. ár,
sýndi þessi sömu verk og hér eru
sýnd í boði frönsku mcnningarmið-
stöðvarinnar þar í landi, fyrir
skömmu. Sýningin stendur til 19.
maí og er opin daglega frá kl. 14.00
til 22.00.
Réttarholtsskóli 30 ára
Starfsfólk og nemendur Réttar-
holtsskóla efna til sýningar í skólan-
um í dag í tilefni 30 ára afmælis
skólans og 200 ára afmælis Reykja-
víkur.
Skólinn verður opnaður kl. 13.00
en kl. 13.30 verður sýningin form-
lega opnuð og lýkur henni kl. 18.00.
Allan tímann munu núverandi og
fyrrverandi nemendur sjá um
skemmtiatriði, þar sem kennir
ýmissa grasa.
Meðfylgjandi mynd var tekin við
undirbúning sýningarinnar í gær,
þar sem tveir nemendur standa við
líkan af skólanum.
Tímamynd Pétur
Þýsk-íslenska h/f:
Skattrannsókn lokið
Viðbótarskattar 39 milljónir auk viðurlaga og vaxta
f gær sendi Þýsk-íslenska h/f frá
sér fréttatilkynningu varðandi
skattamál fyrirtækisins.
Tíminn leitaði til Garðars Valdi-
marssonar skattrannsóknarstjóra og
staðfesti hann að þær tölur sem fram
koma í fréttatilkynningunni eru
réttar. Þá sagði Garðar einnig að
ástæðan fyrir því hversu hratt málið
hefði gengið fyrir sig væri m.a.
vegna þess hve allar upplýsingar
hefðu legið vel fyrir og að mikil
samvinna hefði verið við fyrirtækið
að upplýsa málið.
Fréttatilkynning fyrirtækisins er
svohljóðandi:
„Eins og fram kom í fréttum
fjölmiðla í janúar sl. hóf rannsóknar-
deild ríkisskattstjóraembættisins at-
hugun á bókhaldi og skattskilum
Þýzk-íslenzka hf. í nóvember 1985.
Mjög hraður vöxtur félagsins á
undanförnum árum hafði leitt til
verulegra erfiðleika í tölvumálum
fyrirtækisins sem orsökuðu mikla
galla og ónákvæmni í bókhaldi.
Forráðamenn félagsins lýstu þegar
í upphafi yfir fullum vilja til að veita
alla aðstoð við að upplýsa málið,
leggja fram gögn og gefa upplýsing-
ar, sem verða mættu til að komast til
botns í skattskilum fyrirtækisins svo
unnt yrði að leiðrétta þau. Vegna
þessa hefur nú tekist að ljúka málinu
á svo skömmum tíma.
Ríkisskattstjóraembættið hefur
nú lagt á félagið viðbótargjöld með
viðurlögum og dráttarvöxtum. Hækk-
un gjalda er vegna hækkunar á
eignamati vörubirgða, vantalinnar
sölu og lækkunar kostnaðar.
Hækkanir skatta, ásamt viðurlög-
um og dráttarvöxtum eru sem hér
segir: Viðbótarsöluskattur kr.
2.771.659 og viðbótartekju- og eign-
arskattur o.fl. kr. 36.052.834. Við-
bótarskattar eru þannig samtals kr.
38.824.493. Auk þess er lagt á félag-
ið vegna viðurlaga og dráttarvaxta
kr. 12.882.207.
Félagið gerir ráð fyrir að skatt-
rannsóknarstjóri muni fljótlega láta
reyna á sakhæfi vegna máls þessa og
vísa því til úrskurðar dómsyfirvalda
gegnum Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins.
Þýzk-íslenzka hf. mun leitast við
að mæta þessu áfalli með fjölþættum
aðgerðum.“