Tíminn - 03.05.1986, Side 5
Laugardagur 3. maí 1986
-Tíminn 5
Kanada:
Heimssýningin hafin
Vancouvcr-Reuter
Heimsins stærsta sýning er hafin.
Heimssýningin EXPO ’86 hófst í
gær. Búist er við að um 20 milljónir
manna leggi leið sína til kanadísku
borgarinnar Vancouver í sumar til
að skoða heimssýninguna.
Hjónakorn ein voru a.m.k. mætt
á staðinn í gær til að setja sýning-
una. Það voru Karl Bretaprins og
kona hans Díana. Pils Díönu olli
annars nokkrum úlfaþyt í Kanada
í gær. Það mun vera 8 sentimetrum
styttra en tískan segir til um þar í
landi.
Heimssýningin mun standa yfir
næstu sex mánuðina í þessari fal-
legu borg í Bresku-Kólumbíu en
alls eru 54 lönd viðriðin það sem
gestum verður boðið að skoða.
Bandaríkin og Sovétríkin munu
sýna það nýjasta í geimtæknimál-
um sínum og Kínverjar hafa komið
upp líkani af sjálfum Kt'namúrn-
um. Svisslendingar eru einnigfyrir-
ferðamiklir á sýningunni þvt' 24
metra háu svissnesku gæða- og
risaúri hefur verið komið upp í
Vancouver.
Hér verður allt milli himins og jarðar sýnt næstu sex mánuðina. Þetta er sú
fallega borg Vancouver í Kanada.
SVlÞJÓÐ:
Fimm Tékkar fá
reisupassann
Stokkhólmur-Reuter
Sænsk stjórnvöld vísuðu í gær
fimm Tékkum úr landi. Þeir voru
allir starfsmenn tékkneska sendi-
ráðsins í Stokkhólmi og fengu reisu-
passann vegna „aðgerða sem sam-
rýmdust ekki störfum þeirra sem
sendiráðsmanna” - orðasamband
sem venjulega er notað til að lýsa
njósnum.
Þetta ku vera fyrsta brottvísun
austur-cvrópskra sendiráðsmanna
frá Svíþjóð síðan Ingvar Carlsson
tók við forsætisráðherraembættinu
eftir að Olof Palme var myrtur þann
28. febrúar síðastliðinn.
í desember árið 1983 ráku sænsk
yfirvöld tvo sovéska sendiráðsmenn
og sovéskan borgara úr landi. Var
það gcrt eftir að heimildir bárust um
að þeir hefðu njósnað um viðkvæmt
iðnaðarmál í Svíaríki.
Sænskir embættismenn sögðu í
Fréttaskýring:
Hundraðföld hernaðaraðstoð
Barátta Reagans Bandaríkjafor-
seta fyrir auknum vopnasendingum
til skæruliða þeirra sem berjast gegn
Nicaraguastjórn, hefur á ný beint
athyglinni að hinni gífurlegu aukn-
ingu í bandarískri hernaðaríhlutun í
Mið-Ameríku. Bandarísk stjórn-
völd eyða nú meira en þremur
milljónum dollara (um 120 milljónir
íslenskra króna) á dag í hernaðarað-
stoð til Mið-Ameríku.
Er Reagan forseti settist í valda-
stól árið 1981 lýsti hann yfir að
„dregin yrði lína gegn kommúnistum
í Mið-Ameríku“. Hernaðaraðstoðin
til svæðisins hefur síðan aukist í
samræmi við yfirlýsingu Reagans.
„Ekkert annað svæði hefur verið
eins mikið hervætt á svo skömmum
tíma,“ segir vestrænn stjórnarerind-
reki sem kunnugur er ástandi mála í
Mið-Ameríku. „Aukningin hefur
verið mikil og stöðug."
Samkvæmt tölum stjórnarinnar í
Washington nemur hernaðaraðstoð
til E1 Salvador, Honduras, Costa
Rica, Panama, Guatemala og
Contra-skæruliðanna, sem berjast
gegn stjórn sandinista í Nicaragua,
alls um 1,2 milljörðum dollara á ári.
Tölur sjálfstæðra stofnana eru raunar
mun hærri, allt frá sjö upp í tuttugu
milljarða dollara.
En jafnvel þótt farið sé eftir
opinberum tölum er ljóst að hernað-
araðstoðinni hefur vaxið fiskur um
hrygg svo ekki sé meira sagt. El
Salvador er gott dæmi um það. Árið
1980 fengu stjórnvöld þar tæplega
sex milljónir dollara (um 240 mill-
jónir króna) í hernaðarstyrk frá
Bandaríkjastjórn. Aðstoð þessi er
nú rúmlega milljón dollarar á dag.
Hernaðaraðstoð Bandaríkja-
stjórnar hefur þó að undanförnu
mest beinst að Honduras, öðru
fátækasta ríki vesturhvels jarðar. f
stað dollaranna sem flæða inn í
landið hafa stjórnvöld veitt um 12
þúsund Contra-skæruliðum leyfi til
að reisa búðir á sínu landsvæði
nálægt landamærunum við
Nicaragua.
Bandaríkjaher hefur einnig komið
sér upp mjög góðri aðstöðu í Hond-
uras og nýlega var hafin bygging á
sjötta herflugvelli Bandaríkjamanna
í landinu. Sá er aðeins í rúmlega 30
kílómetra fjarlægð frá landamærun-
um við Nicaragua.
Stjórn sandinista hefur haldið því
fram að Bandaríkjaher muni gera
innrás í Nicaragua eftir að her þeirra
hafi sigrað Contra-skæruliðana í eitt
skipti fyrir öll. Slíkt virðist óum-
flýjanlegt enda er hinn 64 þúsund
manna Nicaraguaher, sem sovéskir
og kúbanskir hernaðarsérfræðingar
hafa hjálpað til við að byggja upp,
,sá stærsti í Mið-Amen'ku.
Margir sérfræðingar í málefnum
Mið-Ameríku eru einnig á því að
stórveldið láti til skarar skrr'ða gegn
hinni vinstrisinnuðu stjórn t' Nicara-
gua, sem Reagan og hans menn hafa
merkt með kommúnistastimpli.
„Ef herstöðvarnar í Honduras
verða ekki notaðar til innrásar í
Nicaragua hvers vegna þurfa þá
bandarískir skattgreiðendur að
henda svona miklum peningum í
uppbyggingu þeirra,“ var nýlega
spurt í lesendabréfi einu í Banda-
ríkjunum. Spurningin þótti nokkuð
góð.
gær að þarlend rannsóknarlögregla
hefði komist að því að Tékkarnir
,fimm hefðu njósnað um hernaðar-
mannvirki og háþróaðan iðnað
tengdum þeim.
Sexfaldur heimsmeistari:
Allt er
hægt
Koston-Rcutcr
Eigandi verslunarkeðju í
Bandaríkjunum sem verslar með
heilsuvörur bætti í vikunni sitt
eigið heimsmet í samfelldum
kollhnísum. Hann fór 7400 koll-
hnísa fram á við og komst þannig
yfir vegalengd senr telur 19,6
kílómetra.
Ashrita Furman heitir maður-
inn og er 31 árs. Hann á nú sex
heimsmet sem skráð eru í heims-
metabók Guinness. Auk koll-
hnísanna má nefna að Furman
hefur farið upp á Fujifjall í Japan
og niður aftur á svokölluðum
Pogostaf.
„í kollhnísum er mesta vanda-
málið ógleði og f ein tvö skipti
hélt ég að nú væri komið að
endalokunum", sagði Furman.
Hann sagðist hafa farið kollhnís-
ana til að heiðra kennara sinn, Sri
Chinmoy, sem trúir að allt sé
hægt í gegnum hugleiðslu.
Auk áðurnefndra meta hefur
Furman einnig komist í heims-
metabók Guinness út á eftirtalið:
ganga rúma 38 kílómetra með
mjólkurflösku á höfði sínu,
klappa saman höndum í samtals
50 klukkustundir og 17 mínútur,
ganga ásamt þremur öðrum með
63,5 kílóa þunga manneskju leið
sem taldi 204 kílómetra og fyrir
að gefa kennara sínum stærsta
blómvönd heims en sá innihélt
alls 10 þúsund rósir.
FRAMSÓKNARVIST
- HÓTEL SÖGU
Glæsilegasta framsóknarvist ársins verður
spiluð í Súlnasal Hótel Sögu fimmtudaginn
8. maí (uppstigningardag) kl. 14:30.
Aðalverðlaun karla og kvenna eru flugferð
með Flugleiðum til Luxemborgar.
Setning: Þrúður Helgadóttir 3. maður á lista fyrir Fram-
sóknarflokkinn í Reykjavík.
Ávörpflytja: Sigrún Magnúsdóttir 1. maður á lista Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík og Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra.
Stjórnandi: Baldur Hólmgeirsson.
Aðgangseyrir er kr. 200.- og er kaffi og kökur innifalið í því verði.
Allir hjartanlega velkomnir
Framsóknarfélögin í Reykjavík