Tíminn - 03.05.1986, Page 10
10 Tíminn r
Laugardagur 3. maí 1986
llllllllllliilllllllllllllll NEYTENDASÍÐAN
Heitir ávaxtaeftirréttir
Þaö cru fáir sem ekki eru hrifnir af heitum ávaxtaeftirréttum
og þær eru líklega óteljandi uppskriftirnar að eplatertum. Hér
kemur líka ein en hún er óvenjuleg að því leyti að eplin eru fyrst
soðin á pönnu í sykurlegi sem verður smám santan að karamellu.
Hin upskriftin er af heitum ávöxtum og er mjög góð með þeyttum
rjóma eða ís.
Eplaterta
% bolli kalt smjör
2 bollar sykur
10-12 stór matarepli
Tertudeigið:
2 bollar hveiti
Vi bolli smjör
1 eggjarauða
3 msk. flórsykur
Vi tsk. salt
3-5 msk. kalt vatn
Það er nauðsynlegt að nota þykkbotna pönnu þegar verið er
að undirbúa þessa tertu. Pannan þarf líka að þola það að fara í
ofn svo það er best að nota pottpönnu.
Skerið smjörið í þunnar sneiðar og dreifið jafnt yfir botninn á
pönnunni. Stráið sykrinum yfir smjörið. Afhýðið eplin, skerið
þau í tvennt og takið kjarnaitúsin úr þeim. Raðið þeim þannig í
pönnuna að þau standi upp á endann í röð, fyrst meðfram
köntunum á pönnunni og síðan iinnan í henni þangað til þau fylla
hana. Sjóðið þau við meðalhita án þess að hræra í á meðan í um
það bil 30^45 mínútur eða þangað til sykurinn verður að
Ijósbrúnni karamellu.
Búið til tertudeigið: Sigtið hveitið á borð eða í skál og búið til
holu í miðjuna. Þar í er sett smjörið, eggjarauðan, sykurinn,
saltið og 3 matskeiðar af vatninu. Hrærið þessu saman með
fingrunum þangað til deigið er eins og gróft rasp, bætið við meira
vatni ef með þarf.
Pressið deigið í bolta á hveitistráðu borði og hnoðið í um það
bil mínútu eða þangað til það er orðið mjúkt en klístrast ekki við
hendurnar. Kælið í ísskáp í um það bil 30 mínútur. Breiðið það
síðan út í hring sem er um það bil 1 cm meira í þvermál heldur
en pannan.
Látið eplin kólna þangað til það rýkur ekki iengur úr þeim eða
um það bil 5 mínútur. Leggið deigið ofan á eplin svo þau séu
alveg þakin og skerið frá allt aukadeig.
Bakið við 210° C heitum ofni í um það bil 15-20 mínútur eða
þangað til deigið er orðið fallega brúnt. Takið pönnuna úr
ofninum og látið tertuna kólna í 5 mínútur. Berið tertuna frant
volga með þeyttum rjóma eða ís ef vill.
Heitir ávextir
V<\ bolli smjör'
'/i bolli púðursykur
rifið hýði af 1 appelsínu
Va bolli appelsínusafi
Vi tsk. múskat
1 Iítil dós plómur, síaðar
1 stór dós ferskjur í sneiðum, síaðar
2 bananar í sneiðum
Va bolli romm (má sleppa)
Hitið saman í litlum potti smjör, sykur, hýði, appelsínusafa og
múskat þangað til smjörið er bráðnað og allt hefur blandast vel
saman.
Blandið saman ávöxtunum í 1 Vi-2 lítra ofnfast mót. Hellið
smjörblöndunni yfir ávextina. Bakið án loks í 170° C heitum ofni
í um það bil 20 mínútur eða þangað til allt &r orðið vel heitt og
fatið að sjóða. Velgið rommið og hellið yfir ávextina, kveikið í
því ef vill. Þetta er mjög gott með þeyttum rjónta eða ís.
Uppskriftin nægir handa 8 manns.
Það kennir margra grasa á sýningunni í Laugardalshöll um matreiðslu, brauð- og kökugerðarlist og
sælgætisgerð.
Fullt hús matar:
Vörn gegn skaðsemi tóbaks:
Dagana 9.-18. maí n.k. efnirNem-
endafélag Hótel og veitingaskóla
Islands til 10 daga matvælasýningar
í Laugardalshöll. Sýningin berheitið
Matarlist ’86, og er án efa stærsta
sýning sinnar tegundar sem haldin
hefur verið hér á landi. Um 40
fyrirtæki taka þátt í sýningunni, þar
á meðal stærstu matvælafram-
leiðslufyrirtæki landsins.
Sýningin verður bæði í anddyri og
sal Laugardalshallarinnar. Fram-
leiðendur munu sýna vörur sínar í
sérstökum básum og gestum verður
gefinn kostur á að bragða á þeim,
auk þess sem matvæli verða til sölu
á sérstöku kynningarverði. Meðal
annars verður komið upp litlum'
mörkuðum, þar sem grænmeti,
ávextir, kjöt, brauð og mjólkurvörur
verða seldar á hagstæðu verði.
1 miðjum sal Laugardalshallarinn-
ar verður komið fyrir palli, þar sem
nemendur Hótel- og veitingaskól-
ans, margir fremstu matreiðslu-
meistarar landsins auk þekktra er-
lendra matreiðslumeistara munu
sýna listir sínar. Þá munu íslenskir
og erlendir bakarameistarar sýna
brauð- og kökugerðarlist, ásamt
sælgætisgerð.
Takið þátt í
verðlaunasamkeppni
gesta um
lambakjötsrétti.
Vegleg verðlaun í boði.
Þjónar munu sýna hvernig lagt er
á borð, allt frá hversdagsborði upp í
veisluborð. Þá verða mörg veitinga-
hús með kynningu á rekstri sínum.
í tilefni sýningarinnar verður gefin
út bókin „Handbók sælkerans“, sem
hefur að geyma margvíslegt efni um
matreiðslu og vín, auk frásagna af
siðum og venjum tengdum mat og
drykk.
Bifreiðastöð íslands veitir afslátt
á fargjöldum meðan á sýningunni
stendur og gildir farmiði jafnframt
sem afsláttarmiði á sýninguna.
Flugleiðir gefa einnig kost á helg-
arpökkum fyrir landsbyggðafólk þær
tvær helgar sem sýningin stendur.
Matarlist ’86, er liður í 200 ára
afmælishátfð Reykjavíkurborgar.
Loks má geta þess, að á sýning-
unni verður efnt til verðlaunakeppni
meðal gesta um lambakjötsrétti.
Veitt verða vegleg verðlaun.
Munnstykki sem draga úr
skaðsemi sígaretturey ki nga
Nýlega hófst hér á landi sala
sígarettumunnstykkja af gerðinni
TAR-GARD, sem ætluð eru til að
draga úr skaðsemi reykinga á þann
hátt, að megnið af tóbakstjörunni
verður eftir í munnstykkinu í stað
þess að fara niður í lungu reykinga-
manna.
TAR-GARD munnstykkin eru
gagnsæ, svo reykingafólk getur fylgst
með því hversu ntikil tjara berst úr
hverri sígarettu, og að sögn hafa
áhrif þess auðveldað mörgum að
hætta að reykja.
í fréttatilkynningu frá innflytjend-
um segir:
„Uppgötvun TAR-GARD tjöru-
síunnar byggist á lögmáli ítalska
eðlisfræðingsins Venturis, sem var
uppi á 18. öld. Reykurinn dregst
gegnum örmjótt op og síðan er hraði
hans aukinn upp í urn það bil 300 km
á klst. Þá rekst reykurinn á haft sem
stöðvar tjöru og nikótín, reykurinn
fer síðan frani hjá haftinu og út í
gegnum munnstykkið án þess að
þessi meðferð hafi áhrif á bragð
hans.“
Hver TAR-GARD sía dugar fyr-
ir 35-40 sígarettur og þær eru seldar
fimm saman í pakka, sem kostar 135
kr. Innflytjandi er ÍSPRÓ. en það er
Söluþjónustan í Kópavogi sem ann-
ast dreifingu.
Hér á landi eru um það bil 700
útsölustaðir sem selja tóbak. Inn-
flytjendur síunnar vonast til að selj-
endur tóbaks bjóði reykingafólki
upp á þessa vörn gegn skaðsenti
tóbaksins.
Þegar reykingafólk sér tjöruna
úr hverri sígarettu, sem eftir
verður í gagnsæju munnstykk-
inu, auðveldar það mörgum að
hætta að reykja.
MATARLIST ’86
Tíu daga veislustemmning í Laugardalshöllinni