Tíminn - 03.05.1986, Blaðsíða 11

Tíminn - 03.05.1986, Blaðsíða 11
Tíminn 15 Laugardagur 3. maí 1986 ÍÞRÓTTIR SK/PAL '4MBA trefjar ['REFJAR TREFJAi TREFJAR; TREFJAí Úrslitaleikurinn í Evrópukeppni bikarhafa: Yfirburðir Kiev Sovéska liðið yfirspilaði Atletico Madrid algjörlega Leiðrétting Hræðileg mistök áttu sér stað hér á íþróttasíðu á miðvikudaginn. Þar var sagt frá keppni í pílukasti og mótið sagt íslandsmeistaramót. Það er alrangt. Mótið var einungis kynn- ingarmót en ekki Islandsmót. íslandsmótið fer fram með haust- inu og eru pílukastmenn um allt land beðnir velvirðingar á þessum leiðu mistökum. Kampakátir bikarmeistarar FH-inga í 2. flokki eftir 20-16 sigur á ÍR í úrslitaleik á miðvikudagskvoldlö. ÞJálfari liðsins er Þorgils Óttar Mathiesen. Týmamynd: Péiur. Oleg Blokhin skoraði gott mark fvrir Kiev í yfírburðarsigri liðsins á At. Madrid í Evrópukeppni bikarhafa í gær. Kveðjuleikur Ossie Ardiles: Snilli Maradona - er Tottenham vann Inter Mílanó fyrir fullu húsi Aðdáendur Tottenham og sér- staklega Ossie Ardiles, litla Argent- ínumannsins sem spilað hefur með liðinu í sjö ár með hléum, mættu í hópum á White Hart Lane til að horfa á kveðjuleik kappans. Totten- ham mætti þá Inter Mílanó og sigraði 2-1. Ardiles spilaði aðeins með í átta mínútur en varð þá að fara af velli vegna meiðsla. Meiðsl þessi hafa háð honum í mörg ár. Það kom þó ekki að sök. Félagi Ardiles og sam- herji, Diego Maradona mætti til leiksins og spilaði á miðjunni með Tottenham. Hann sýndi frábæra samvinnu við Glen Hoddle og fór á kostum í leiknum. Hvað eftir annað sýndi hann snilldar tilþrif og plataði leikmenn Inter uppúr skónum. Á White Hart Lane voru vel yfir 30 þúsund áhorfendur og sáu þeir Falco ná forystu fyrir Tottenham en Liam Brady jafnaði. Clive Allen skoraði síðan sigurmarkið undir lok leiksins. Zico var frábær Brasilíski töframaðurinn í knatt- spyrnunni, Zico, lék með brasilíska NBA-karfan í NBA-körfuknattleiknum í Bandaríkjunum er staðan nú þessi í úrslitakeppninni að Lakers hafa unnið fyrstu tvo leikina gegn Dallas og Houston hafa unnið fyrstu tvo gegn Denver. I Austur- deildinni eru 76ers og Bucks jöfn 1-1 en Boston hefur unnið báða gegn Atlanta. landsliðinu að nýju eftir meiðsl er liðið sigraði Júgoslava í vináttuleik 4-2 í Brasilíu í fyrradag. Zico brást ekki aðdáendum sínum og gerði hann þrennu í leiknunt. Fyrst skor- aði kappinn er hann stýrði knettin- um í netið eftir skot Branco. Þá skoraði hann úr víti og loks einlék hann í gegnum vörn Júkkana og skoraði auðveldlega. Júkkarnir komust yfir 2-1 í leiknum en það dugði ekki. Zico sýndi fallega takta í leiknum og greinilegt að Brassarnir verða að hafa stjörnu í sínu liði til að liafa sjálfstraust. Nú er Zico stjarnan. Það er óhætt að segja að það hafi geislað leikgleðin af leikmönnum sovéska liðsins frá Kiev er þeir hreinlega löbbuðu yfir Spánverjana frá Atletico Madrid í úrslitaleiknum í Evrópukeppni bikarhafa í knatt- spyrnu í gærkvöldi. Dynamo Kiev sigraði í leiknum 3-0 og hefði sá sigur getað orðið stærri - slíkir voru yfirburðir Sovétmannanna. Það eru 11 ár síðan Kiev varð síðast Evrópu- meistari og þá var einn af lcik- mönnunum sem spilaði í gær líka með. Það var Oleg Blokhin. Hann spilaði vel í gær og gerði citt mark- anna. Kiev opnaði leikinn vel og eftir fimm mínútur skoraði Zavarov fal- legt mark eftir að þeir sovésku höfðu tætt Spánverjana í sig. Þannig var staðan t' hálfleik en hefði getað verið 2-3 mörk gegn 6ngu fyrir Kiev. Spánverjarnir voru með hávaða í Stórsigur ÍA Önnur umferðin í Litlu Bikar- keppninni hjá kvenfólkinu var leikin um síðustu helgi. UBK og Stjarnan skildu jöfn án marka, ÍA vann FH 10-0 og ÍBK vann Aftureldingu 5-1. byrjun síðari hálfleiks og áttu ein tvö þokkaleg færi. Síðan tóku þeir sov- ésku leikinn í sínar hendur og voru miklu betri. Á 85. mínútu kom fallegasta markið en Blokhin skoraði eftir mjög skilningsríka sókn Kiev- ntanna. Á lokamínútunni bætti stð- an Yevtushenko við þriðja markinu. Fram í úrslit Guðmundur Steinsson skoraði sigurmark Fram í viðureigninni við Val í undanúrslitum Reykjavíkur- mótsins í knattspyrnu á fimmtudags- kvöldið. Markið kom á síðustu mín- útu leiksins. Fram er því í úrslitum. Hreinsun hjá Val Eins og kunnugt er, verður Knatt- spyrnufélagið Valur 75 ára 11. maí n.k. og þá mun verða mikið um dýrðir á Hlíðarenda. í tilefni þessa hefur verið ákveðið að efna til sérstaks hreinsunardags á laugardaginn kemur, þann 3. maí n.k., og heitir aðalstjórn félagsins á félagsmenn að koma og taka þátt í hreinsun á félagssvæðiriu. Byrjað verður kl. 9.30 og verða verkfæri og ruslapokar á staðnum. MOLAR ■ Miklar líkur eru á því að franska liðið Auxerre sem spilar í 1. deild knattspyrnunnar þar í landi, kaupi pólska markaskorar- ann Andrzej Zgutczynski frá pólsku meisturunum Gornik Zabrze. Hann varð markahæsti leikinaðurinn í pólsku knatt- spyrnuni í vctur og hefur leyfí frá liöi sínu til að skrifa undir samn- ing við Auxerre. Enn eiga þó pólsk kanttspyrnuyfírvöld eftir að leggja hlcssun sína yfír þann samning. ■ Hollcndingar og Skotar gerðu jafntcfli án marka í vináttulands- lcik í knattspyrnu í vikunni. Leik- ið var í Hollandi og voru Skotar án margra fastamanna sinna. Leikurinn var jafn og steindauö- ur. ■ Landsliðsmarkvörður Þjóð- verja, Harald Schumacher, þarf að fara í uppskurð sem lyrst vegna meiðsla á magavöðva. Hann staöfcsti þetta sjálfur í vikunni en tók jafnframt fram að hann yrði að fresta þcssari aðgerð fram í desember, eða þegar vetrarfrí hefst í þýsku knattspyrn- uni. Tíminn fram að því væri það naumur vegna HM að frcsta þyrfti aðgerðinni. Ef honum versnar hinsvegar þá gæti það haft áhrif á frammistöðu hans í HM. ■ GKS Katowic sigraði deild- armcistarana Gornik í úrslitalcik pólsku bikarkeppninnar í knatt- spyrnu í vikunni. Leiknum lauk 4-1 og gerði Furtok þrennu fyrir bikarmeistarana. ■ Forniaður enska knattspyrnu- liðsins Liverpool, John Sniith, sagði á fundi í London ■ fyrradag að hann væri hlynntur því að allir úrslitaleikir í Evrópukcppnununi væru spilaðir heima og heiman. Þetta fyrirkoinulag er á UEFA- kcppninni en ekki hinuin Evrópu- keppnunum tveimur. Smith sagði að ef spilaöir væru tvcir úrslitalcikir væri minna hætta á því að til óeirða kæmi þar sem um nánast eingöngu hcimamenn væri að ræða á hciuialcik liðanna. ■ Nokkrir leikir voru í sviss- nesku deildarkeppninni í knatt- spyrnu í vikunni. Baden tapaði fyrir Wettingen 1-2 en Luzern lék ekki. Staðan á topnum breyttist lítið. ■ S-Kóreumenn hafa kallað á sinn besta leikmann í knattspyrn- unni, Kim Jong-Boo, og beðið hann um að snúa aftur til æfínga meö landsliðinu fyrir HM. Jong- Boo var rekinn úr liðinu fyrir vandræði er urðu vegna félaga- skipta hans. Var hann sakaður um óheiðarleika og óvirðingu við fööurlandi. Nú er hins vegar allt gleymt. ■ Borgin Luzern í Sviss hcfur hætt við að sækja um að fá að halda vctrarólympíuleikana 1995 vcgna mótmæla umhverfísvernd- arsinna þar um slóðir. ■ í gær varð að fresta leik í júgóslavncsku knattspyrnunni vegna þess að áhangendur heima- liðsins höfðu barið flesta leik- menn aðkomuliðsins fyrir leik. Aðdáendurnir voru vopnaðir kylfuni og hnífum. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS í HÁSKÓLABÍÓI_________________ NORRÆN TÓNLIST Stjórnandi: Páll P. Pálsson Einleikari: Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla Einsöngvari: Sigríður Gröndal, sópran Karlakórinn Fóstbræður og Karlakór Reykjavíkur HELGARTONLEIKAR LAUGARDAGINN 10. MAÍ KL: 17.00 Efnisskrá Edvard Grieg: Landkjenning Chr. Sinding: Svíta fyrir fiðlu og hljómsveit Hugo Alfvén: Midsommarvaka Páll ísólfsson: Brennið þið, vitar Jón Ásgeirsson: Þjóðvísa Jean Sibelius: Finlandia Skúli Halldórsson: Pourquoi pas? Miðasala í bókaverslun Eymundssonar, Lárusar Blöndal og í ístóni

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.