Tíminn - 03.05.1986, Qupperneq 12
16. Tíminn
Til sölu
Til sölu sumarbústaður (árshús) í Borgarfirði,
ásamt útihúsum og 1 hektara eignarlands. Raf-
magn og heitt vatn. Upplýsingar veitir Skeifan,
fasteignamiðlun, sími 685556
Opið sunnudag kl. 1-4
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
Viö Menntaskólann á Egilsstöðum eru lausar ein til tvær kennara-
stööur í stærðfræöi.
Viö Menntaskólann í Kópavogi eru lausar kennarastööur í eftirtöld-
um greinum: íslensku og v.élritun, félagsfræöi og jaröfræöi, stærð-
fræöi, sögu, dönsku 2/3 staða og hálf til heil staöa í víðskiptagreinum.
Við Fjölbrautaskólann í Garðabæ staöa frönskukennara.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist mennta-
málaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 17. maí.
Menntamálaráðuneytið
Útboð í skipaviðgerðir fyrir
6 skuttogara
Útboðsgögn vegna vélarskipta, lenginga, ýmissra
breytinga og endurbóta á 6 skuttogurum í eigu
útgerðarfyrirtækja, sem eru aðilar að Félagi eig-
enda japanskra skuttogara, verða afhent á skrif-
stofu Ráðgarðs hf., Nóatúni 17, Reykjavík frá 8.
maí til 16. maí 1986.
Þeir aðilar, sem áhuga hafa á að bjóða í allt
verkefnið, eða einhverja hluta þess geta fengið
útboðsgögn gegn 10.000 kr. greiðslu fyrir hvert
gagnasett.
Tilboð í verkefnið verða opnuð 5. júní 1986. Þeir
sem áhuga hafa á að fá útboðsgögn, hafi samband
við Ráðgarð hf. í síma 68-66-88 þann 5. maí 1986
og láti vita hve mörg eintök þeir vilja fá og tilgreini
hvort þau eigi að vera á íslensku eða ensku.
Féiag eigenda japanskra skuttogara.
Ráðgarður hf., tæknideild
RÁÐGARÐUR
STJÓRNUNAR CXJ REKSTRARRÁÐCJJÖF
NÓATÚNI 17, 105 RHYKJAVÍK, SÍMI (91)686688
t
Innilegar þakkir fyrir samúö og hlýju viö andlát og útför eiginmanns
míns, fööur okkar, tengdafööur og afa
Einars Ágústssonar
Þórunn Sigurðardóttir
Helga Einarsdóttir Daníel Sigurðsson
Erna Einarsdóttir Jens R. Ingólfsson
Sigurður Einarsson
Barnabörn og aðrir vandamenn
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug til okkar við fráfall
Maríu Guðmundsdóttur
frá Mýrarkoti í Grimsnesi
Ártúni 13, Selfossi
Kristjana Sigmundsdóttir Þorlákur H. Helgason
Margrét Guðmundsdóttir Sigmundur Bergur Magnússon
Helgi E. B. Þórðarson
Laugardagur 3. maí 1986
GÓDIROG
SLÆMIR HLUTIR
Söngvakeppnin
í Bergen
Blaðamcnn þurfa oft að skrifa
um bæði góða og slæma hluti. Um
þessa helgi er það trúlega einkum
einn viðburður sem er ofar í hugum
landsmanna en flestir aðrir. Það er
söngvakeppnin í Bergen og þátt-
taka íslendinga í henni f fyrsta
skipti. Það ánægjulega við þann
atburð frá sjónarhóli blaðamanns
er að það er góður hlutur til að
skrifa um.
Það sem verið hefur að gerast í
þessu máli núna síðustu vikurnar
er í stuttu máli að um þessa
þátttöku hefur náð að skapast
þjóðareining. Gleðibankinn, lagið
sem fyrir valinu varð í keppnina,
hljómar nú í eyrum okkar á öllum
vinsældalistum og víðar daginn út
og daginn inn, og fólk á öllum aldri
raular það í tíma og ótíma.
Hér hefur það með öðrum orð-
um gerst að þjóðin er ánægð. Þeir
sem að þessu stóðu hafa hitt í
mark. Og þegar íslenska þjóðin er
ánægð þá stendur hún saman. Það
er fylgst af athygli með framgangi
mála úti í Bergen hér heima um
land allt, til sjávar og sveita. Þau
Helga, Pálmi og Eiríkur hafa alla
þjóðina á bak við sig.
Þegar þetta er skrifað er ekkert
vitað um úrslit mála í Bergen. Þau
ráðast á laugardagskvöldið. Það er
ákaflega erfitt að spá fyrir um
hvernig niðurstaðan verður. Við
íslendingar erum trúlega á einu
máli um að Gleðibankinn beri af
öllum hinum lögunum. En smekk-
ur fólks af öðru þjóðerni er máski
annar en okkar. Kannski kemur
þjóðerniskenndin líka til hjá okk-
ur og mótar skoðanir okkar meira
en góðu hófi gegnir.
En hvernig sem úrslitin verða þá
er hitt víst að til þessa hefur allur
framgangur þessa máls verið
ánægjulegur. Það kveikir alltaf
þægilega tilfinningu í brjóstum
okkar hinna þegar landinn stendur
sig vel erlendis. Hvort sem þau
Helga, Pálmi og Eiríkur koma
heim með sigurverðlaun eða ekki
þá er hitt víst að þjóðin er ánægð
með sitt fólk. Það virðist tryggt að
þessi þátttaka verði landi og þjóð
til sóma.
Skinnaiðnaður
Eins og menn vita hefur ullar- og
prjónaiðnaður landsmanna átt við
verulega erfiðleika að stríða nú
undanfarið. Raunar er ekki enn
séð fyrir endann á þeim málum, en
út úr blaðaumræðu hefur helst
mátt lesa að þar sé um að kenna
skorti á því að hugsað hafi verið
fyrir hönnun. Með öðrum orðum
þá hefur þar ekki verið gætt nægi-
lega vel að því að fylgjast með
tískusveiflum í markaðslöndunum
og laga framleiðsluna eftir þeim.
Að úrbótum á þessu er þó unnið
og væntanlega tekst vel til um
árangur. Að minnsta kosti verður
að vænta þess, meðan ekki kemur
annað í ljós, og bíða eftir að
mönnum takist að snúa dæminu
við.
En sauðkindin gefur fleira af sér
en ullina, og skinnaiðnaðurinn er
blómlegur og hefur gengið mun
betur nú undanfarið. Þar eru líka
ýmsir skemmtilegir hlutir að
gerast.
Sá er hér ritar átti þess kost í
síðustu viku að vera viðstaddur
tískusýningu og kynningu á fatnaði
framleiddum úr sauðskinnum hjá
Skinnaiðnaði Sambands ísl. sam-
vinnufélaga á Akureyri. Svo er
skemmst af að segja að þar var
fjöldamargt athyglisvert að sjá.
Það fór ekki á milli mála að á
þessu sviði hefur verið hugsað vel
Alklæðnaður unninn úr sauðskinn um hjá Skinnaiðnaði Sambands
ísl. samvinnufélaga á Akureyri.
fyrir hönnuninni og hinum óhjá-
kvæmilega og stöðuga eltingarleik
við duttlunga tískunnar. Þarna
voru sýndar bráðfallegar kuldaflík-
ur úr mokkaskinnum fyrir bæði
kynin, og einnig töluvert af léttari
leðurfatnaði til hversdagsbrúks.
Venjulegum fataberanda, alls
ófróðum um vinnslu og meðferð
skinna, kom kannski mest á óvart
að sjá þarna léttar og meðfærilegar
flíkur úr leðri í skærum litum,
bláum og rauðum. í hugum manna
er skinnfatnaður trúlega oftast
tengdur kulda, frosti og vetrar-
hörkum, en þarna kom í ljós að
fatnað úr þessum efnum má ekki
síður bera á heitum sumardögum.
Hér hefur verið vel að staðið,
enda skilar það sér í sölu, sem
gengur vel. Til þessa hefur megin-
hlutinn af þessum fatnaði farið til
útflutnings. Hvenær kemur að því
að hann verði hversdagsbúningur
fólks á íslandi - eins konar þjóð-
búningur líkt og grænu skinnfóðr-
uðu kuldaúlpurnar forðum daga?
Landhelgisgæslan
Slæmi hluturinn, sem á dagskrá
er í dag, er hins vegar grein sem
birtist í Morgunblaðinu á fimmtu-
daginn var um Landhelgisgæsluna.
Þar skrifar Guðbrandur Jónsson
flugmaður um þyrluslysið þegar
TF-RÁN fórst í Jökulfjörðum í
hittiðfyrra.
I greininni ber höfundur for-
svarsmenn gæslunnar vægast sagt
mjög þungum sökum. Meðal ann-
ars gagnrýnir hann ferð þyrlunnar,
þegar slysið varð, og segir að það
virki á sig „sem algjört tilgangs-
leysi, því yfirlýstur tilgangur flugs-
ins er svo óraunhæfur galeiðuþræl-
dómur fyrir áhöfn þyrlunnar að
með ólíkindum má teljast." Þar
segir hann líka að uppgefin dagskrá
frá yfirstjórn Landhelgisgæslunnar
hafi hljóðað upp á 17 klukkustunda
vinnudag í vikulok fyrir þyrluna og
áhöfn hennar, um miðja nótt og
langt fram á morgun. Engin flug-
áætlun hafi verið gerð og engin
vakt hafi verið í stjórnstöð gæsl-
unnar þessa nótt.
Þetta er vægast sagt hroðalegur
áburður sem forsvarsmenn Land-
helgisgæslu íslands fá hér á sig.
Allir vita að varðskipin vinna gott
starf, og í þorskastríðunum voru
áhafnir þeirra nánast þjóðhetjur.
En eins og menn vita er öryggi
fyrir öllu í sambandi við hvaðeina
sem snýr að flugi. Og í þessu tilviki
lét öll áhöfn þyrlunnar lífið. Hér er
með öðrum orðum hætta á trúnað-
arbresti á milli gæslunnar og
landsmanna. Slíkt má ekki eiga sér
stað. Það fer ekki á milli mála að
hér verða forráðamenn gæslunnar
að koma með fullnægjandi skýring-
ar. Áburður um að hafa valdið
manntjóni með gáleysi um flug-
öryggi er ekkert gamanmál.
-esig.