Tíminn - 03.05.1986, Side 14
1
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftirtilboöum í endur-
nýjun lagna í steyptum stokk í hluta Breiöholts I,
þriðja áfanga.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000 skilatryggingu.
Tilboöin verða opnuð á sama staö, þriðjudaginn
13. maí nk. kl. 14.00
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuv«g! 3 — Sími 25800
Útboð
Sm
VEGAGERÐIN
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboöum í gerö efra
buröarlags og klæðningar á Þingvallaveg (Móa-
kotsá - Stóralandstjörn) og Vesturlandsveg í
Hvalfirði, (alls 11,2 km).
Verki skal lokið fyrir 1. ágúst 1986.
Útboösgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 6. maí nk.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann
20. maí 1986.
Vegamálastjóri
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Staða deildarfulltrúa í unglingaathvarfi.
Verksvið deildarfulltrúa er að veita daglegu starfi
athvarfsins forstöðu.
Áskilin er háskólamenntun á sviði félags- og
uppeldismála og a.m.k. 3ja ára starfsreynsla í
málefnum og meðferð unglinga.
Upplýsingar veitir Snjólaug Stefánsdóttir í síma
622760 e.h.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar á sérstökum umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 20.
maí.
LAUSAR STÖÐURHJÁ
REYKJAVIKURBORG
Er í þér einhver unglingur?
Langar þig til að starfa með unglingum, fyrir
unglinga og í þeirra hópi? Úti og inni? í gleði og
sorg? Er það?
Þá er útideildin þín deild.
Og svo skemmtilega vill einmitt til að við ætlum að
fara að bæta við starfsmanni. Við veitum upplýs-
ingar um starfið í síma 621611 alla virka daga frá
13-17. En það má alveg koma fram strax að auk
starfsgleðinnar þarf umsækjandi að hafa reynslu
af unglingastarfi eða menntun sem tengist því.
Þá er bara að skrifa umsókn og leggja hana inn á
starfsmannahald Reykjavíkurborgar, Pósthús-
stræti 9, 5. hæð fyrir 20. maí nk.
Það sakar sko ekki að sækja um.
Útideildin
FRAMTÆKNI s/f Skemmuveg 34 N
Vélsmiðja 200 Kópavogur
Járnsmíði - Viðgerðir lceland Tel. 91-641055
Vélaviðgerðir - Nýsmíði
18 Tíminn
Laugardagur 3. maí 1986
SKÁK
Meistaramót í námunda
við kjarnorkuslys
53. Skákþings Sovétríkjanna
verður sennilega minnst fyrir þær
sakir, að þegar dró undir lok þess
varð kjarnorkuslys í næstu námunda
við Kiev þar sem mótið fór fram. Því
lauk um mánaðamótin apríl - maí,
en fréttir af því voru ekki síður lengi
að berast en af kjarnorkuslysinu í
Chernobyl. Eins og kunnugt er þá
mun Kiev eða Kænugarður vera ein
sú borga Sovétríkjanna sem verst
hefur orðið úti af völdum slyssins og
er raunar ekki vitað hvernig meist-
aramótinu reiddi af.
Mótið einkenndist mjög af fjar-
veru fremstu skákmanna Sovétríkj-
anna. Karpov og Kasparov tóku
ekki þátt og heldur ekki þeir Sokolov
og Yusupov sem innan skamms
hcfja einvígi sitt í áskorendakeppn-
inni, né heldur Rafael Vaganian sem
var sleginn út af Sokoloví í fyrstu
hrinu einvíganna.
Keppendur voru 18 og margir
þeirra bestu fulltrúar yngstu kyn-
slóðarinnar í Sovét. Þar í flokki er
t.d. Alexander Khalifman fyrrum
Evrópumeistari unglinga og einn
mesti vonarpeningur Sovétmanna
um þessar mundir. Þekktasti skák-
maðurinn í hópnum var Alexander
Beljavskí en svo merkilegt er það
með þennan Alexander að honum
gengur fremur illa á mótum innan
Sovétríkjanna en stendur sig manna
best þegar út fyrir landamærin er
komið. Það er t.d. hæpið að hann
verði á næstu árum settur út úr
Olympíuliði Sovétmanna því hann
var í raun maðurinn á bak við
árangur sovésku sveitarinnar í Þess-
alonikíu. hlaut 8 vinninga úr 10
skákum og lagði margan snjallan
kappann að velli.
Þó mótinu sé lokið þá hef ég
einungis stöðuna eftir níu umferðir
af 17:
1.-2. Balashov og Lerner 6 v. 3.-4.
Khalifamn og Cheschkovskí 5 Vi v.
5.-7. Elingorn,, Bareew og Malant-
sjúk. 5. v. hver.
Beljavskí var í stórum flokki
manna með 4 Vi v.
Þrátt fyrir yfirburðastöðu Sovét-
manna á skáksviðinu er þó langt í
land með að skákþekking sé að-
gengileg jafnvel sterkustu mönnurn
þeirra. Skákbækur koma út í hlægi-
lega fáum eintökum og blöð og
tímarit eru af furðulega skornum
skammti. Vinnubrögð Sovétmanna
eru því dálítið önnur en skákmanna
á Vesturlöndum sem gleypa í sig
skákefni í miklum skömmtum raun-
ar misjöfnum að gæðum. Sovéska
meistaramótið verður því oft vett-
vangur fræðilegrar umfjöllunar í ein-
stökum byrjunarafbrigðum. Slavn-
eska vörnin hefur um margra ára
skeið verið í stöðugri mótun á meist-
aramótum þar eystra. Þekktar eru
t.d. skákir Kasparovs á meistara-
mótinu 1981/82 þarsemað byrjunar-
leikir féllu nákvæmlega eins í tveim-
ur skákum hans allt fram í 30. leik.
í eftirfarandi skák tekst hvítum eink-
ar vel upp að finna veikleika í
margþvældu afbrigði hinnar slavn-
esku varnar:
Hvítt: Lputian
Svart: Gurewitsch
Slavnesk vörn
1. d4 d5
2. c4 c6
3. Rf3 Rf6
4. Rc3 dxc4
5. a4 Bf5
6. e3 e6
7. Bxc4 Bb4
8. 0-0 Rbd7
9. Rh4 Bg4
10. f3 Bh5
(Annað framhald er 10. - Rd5 11.
fxg4 Dxh4 12. Df3 en þar þykja
möguleikar hvíts heldur betri eins
og fjölmargar skákir hafa sýnt fram
á.)
11. g4 Bg6
12. e4!
(Hvítur hefst þegar handa við að
ræsa peðafylkinguna. Svartur gerir
nú sennilega best í því að leika 12. -
0-0 en teflir í anda þeirra sem segja
að sókn á miðborði skuli svarað með
gagnatlögu á miðborði. En engin
regla er einhlít.)
12. ... c5?!
13. g5 Rg8
14. f4!
(Má mikið vera ef svartur á vörn
eftir þennan leik. Ógæfuleg staða
svarta riddarans á g8 skiptir þar
mestu máli.)
14. ... Rb6
15. Ba2 Bxc3
(Dapurleg ákvörðun, en engu betra
var 15. - Dxd4f 16. Dxd4 cxd4 17.
Rb5 sem hótarbæði 18. Rc7-og 18.
f5)
16. bxc3 Bxe4
17. f5!
(Svartur er ofurseldur atlögu hvíts.)
17. ... Dd7
18. fxe6 fxe6
19. De2 Bd5
20. Dh5t g6
21. Rxg6!
- Svartur gafst upp. Framhaldið
gæti orðið 21. - hxgó 22. Dxh8 0-0-0
23. De5 með hótuninni 24. Bf4.
Innihurðir
Norskar spjaldahurðir
úr furu
Verð 8.400.- kr.
HabO heildverslun, s.26550
Bauganesi 28,101 Reykjavík
LATTU
Iíiiianii
EKKl FLJÚGA FRÁ ÞÉR
ÁSKRIFTARSÍMI
686300
Xil leigu
Efri hæð hússins Snorrabraut 54 er til leigu. Hús-
næðið er um 315 fermetrar að stærð og er innréttað
sem skrifstofuhúsnæði.
Frábær staður - góð bílastæði.
Tilboð óskast send skrifstofu vorri fyrir 30. apríl n.k.
Osta- og smjörsalan sf.
Bitruhálsi 2,
110 Reykjavík.