Tíminn - 21.05.1986, Blaðsíða 20
ÖRty
Akureyri
GUÐRUN EINARSDÓTTIR
skipar 9. sæti á lista Framsóknarflokks-
ins við borgarstjórnarkosningarnar 31.
maí 1986.
EFLUM TENGSL HEIMILA OG SKÓLA.
T
Ttminn
Miðvikudagur 21. maí 1986
Bætur til mjólkurframleiðenda:
Bænduráriðusvæðum
fá viðbót á kvótann
- og allir fá 25% af verði umframmjólkur
Mjólkurframleiðendur munu fá
fjárhagslegan stuðning til að mæta
þeim áföllum sem takmarkaður full-
virðisréttur þeirra hefur í för með
sér. Er þar annarsvegar um að ræða
verðábyrgð vegna aukins fullvirðis-
réttar á þremur svæðum sem orðið
hafa illa úti vegna riðu undanfarin ár
og bændur því hvattir til að auka
mjólkurframleiðslu tímabundið, og
hinsvegar viðbótargreiðsla vcgna
mjólkur umfram fullvirðisrétt en inn-
an búmarks og gildir þetta fyrir alla
mjólkurframleiðendur á landinu.
Riðusvæðin sem um ræðir eru á
svæðum mjólkursamlaganna á
Djúpavogi, Norðfirði og Patreks-
firði og þýðir það mjólkuraukningu
um 307 þúsund lítra samanlagt.
Útgjöld Framleiðnisjóðs landbúnað-
arins verða tæpar 7,7 milljónir af
þessum sökum. Svæði þessi komu
mjög ilia út úr skiptingu fullvirðis-
réttar vegna þess að búmark var í
miklu ósamræmi við framleiðslu
þeirra.
Framleiðnisjóður mun greiða
10% af grundvallarverði mjólkur fyrir
alla umframmjólk og er það bundið
því skilyrði að mjólkursamlögin hafi
staðið bændum skil á a.m.k. 15% af
grundvallarvcrði fyrir þá mjólk.,
Bændur fá því 6,25 krónur greiddar
fyrir hvern umframlítra en þurfa af
því að greiða rúma krónuí flutnings-
og sjóðagjöld.
Talið er líklegt að bændur telji
það borga sig að leggja umfram-
mjólkina inn á þessum kjörum því
mjólk er ódýrari í frameiðslu eftir
því sem líður á verðlagsárið. Einnig
er markaður fyrir nautakjöt mjög
þröngur. Mjólkursamsalan og Fram-
leiðsluráð töldu nauðsynlegt að
grípa til þessara aðgerða til að
mjólkursamlögin gætu annað eftir-
spurn eftir mjólk þegar líða tekur á
verðlagsárið. Þegar var búið að
framleiða tæp 68% mjólkur innan
fullvirðisréttar í apríl.
Þessar aðgerðir, sem staðfestar
voru af landbúnaðarráðherra í gær,
voru ákveðnar til að koma til móts
við það óhagræði sem bændur urðu
fyrir vegna þess hve seint reglugerð-
in um skiptingu framleiðslunnar
kom.
ABS
Hæsta
sveitin
fékk
tæpt tonn
Tæpt tonn var afli fengsælustu
sveitarinnar á sjóstangaveiði-
móti sem haldið var fyrir utan
Vestmannacyjar um helgina. Sveit
Boga Sigurðssonar frá Eyjum
veiddi alls 906,3 kíló og fékk
að launum farandbikar sem
Flugleiðir gáfu. I sveitinni voru
auk Boga Jón Svansson, Lárus
Einarsson og Örn Andreasson.
Alls tóku 82 keppendur þátt í
mótinu í blíðskaparveðri og því
voru eðlilcga allir í sólskinsskapi
að sögn Péturs Steingrímssonar
sem sá um mótið. Þetta er mesta
þátttaka í sjóstangaveiðimóti frá
upphafi.
Heimamenn voru sigursælir á
mótinu og hirtu flest öll verðlaun-
in. Aflahæstu einstaklingar í
kvenna- og karlaflokki voru bæði
úr Eyjum, Gunnar Snorrason
(349,7 kg) og Esther Óskarsdóttir
(298,2 kg). Sá sem stærsta fiskinn
fékk var Friðleifur Stefánsson úr
Reykjavík, 21,1 kílóa lúðu og
Friðleifur veiddi einnig flestar teg-
undir eða 9. Andri Páll Sveinsson
fékk síðan flesta fiska eða yfir 200.
Verðlaun fyrir stærstu fiska af
hverri tegund fengu: Hannes Ein-
arsson fyrir 16,3 kg þorsk. Ing-
veldur Gísladóttir fyrir 4,8 kg ýsu,
Örn Andreasson fyrir 10,3 kg
ufsa, Birgir Rögnvaldsson fyrir 6,3
kg löngu, Pétur Ármannsson fyrir
2,7 kg keilu, Magnús Magnússon
fyrir 1,9 kg karfa, Jóhann Þor-
steinsson fyrir 1,8 kg lýsu, Aðal-
björg Bernódusdóttir fyrir 400 gr.
síld og Ásgeir Þorvaldsson fyrir
400 gramma kola.
Alls veiddust 13.686,1 kíló í
mótinu. Aflahæsti báturinn var
Andvari með 270,5 kg meðalvikt
á stöng.
Það voru stundum hörð átök við fiskana á sjóstangaveiðimótinu í Éyjum,
og hendur veiðimannanna voru bláar og bólgnar að mótinu loknu.
Nýi Fokker Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli í gærmorgun. Tímamynd Árni Bjama
Nýr fokker til Flugleiða
Ný flugvél bættist í flota íslend-
inga í gær, Fokker sem Flugleiðir
keyptu af Finnair og á að koma í stað
Árfara sem „strandaði" á Suðurgöt-
unni.
Að sögn Kristins Halldórssonar
hjá Flugleiðum er vél þessi um 20
ára gömul en Finnair keypti vélina
frá Kóreu um leið og Flugleiðir
keyptu sínar vélar þaðan. Flugleiða-
menn kannast við gripinn því þeir
gerðu á henni stórskoðun fyrir ekki
svo ýkja löngu, og telja hana því
vera í góðu ásigkomulagi.
Vélin kemst þó ekki strax í gagnið
hér því gera þarf á henni smávægi-
legar breytingar til að uppfylla þau
skilyrði sem flugmálayfirvöld hér
setja.
Markaðsverð á vélum af þessu
tagi er um 2 milljónir dala eða
rúmlega 80 milljónir króna.
Kaupið fylgir
vísitölunni
- veröbólgan 8-8,5% á árinu
Launanefnd aðila vinnumarkað-
arins hefur komist að þeirri niður-
stöðu að laun skuli hækka um 3,06%
hinn 1. júní næstkomandi. Þetta
þýðir að laun munu hækka jafn
mikið og vísitala framfærslukostnað-
ar hækkaði á tímabilinu janúar til 1.
maí.
Launanefndin, sem er skipuð
tveimur fulltrúum frá vinnuveitend-
um og tveimur frá ASÍ varð sammála
um þessa niðurstöðu. 1 kjarasamn-
ingunum frá því í febrúar var gert
ráð fyrir að vísitalan hækkaði um
2,5% frá áramótum til 1. maí, en
reyndin varð sú að hún hækkaði um
3,06% og fór því um 0,5% fram úr
viðmiðunarmörkum.
í greinargerð launanefndarinnar
með þessari ákvörðun kemur fram,
að umframhækkun vísitölunnar má
að verulegu leyti rekja til lækkunar
Bandaríkjadollars á alþjóðlegum
gjaldeyrismarkaði, en það hefur aft-
ur leitt til nokkurs gengissigs ís-
lensku krónunnar. Þá kemur einnig
fram í greinargerðinni að viðskipta-
kjör hafa ekki versnað þrátt fyrir
þetta gengissig, miðað við það sem
reiknað var með, og stafar það af því
að olíuverð hefur lækkað meira en
gert var ráð fyrir. Lækkun dollars
hefur þó valdið tekjutapi fyrir fisk-
vinnsluna en lækkun olíuverðs hefur
fyrst og fremst skilað sér til útgerðar-
innar. Séu botnfiskveiðar og vinnsla
skoðaðar í heild lætur nærri að
tekjutapið vegna gengisbreytinga sé
vegið upp af lækkun olíuverðsins.
Þessi munur milli veiða og vinnslu er
væntanlega til umræðu við ákvörðun
fiskverðs sem væntanleg er á næst-
unni.
Þar sem ekki er fyyirsjáanleg stór-
vægileg breyting á þjóðartekjum frá
því sem gert var ráð fyrir og ekki
heldur á stefnunni í peninga-, láns-
fjár- og ríkisfjármálum, telur launa-
nefndin meginmarkmið kjarasamn-
inganna varandi verðlags- og kaup-
máttarþróun enn vera í fullu gildi.
Einn liður í starfi launanefndarinnar
var að bera saman verðlagsspár þær
sem lagðar voru til grundvallar
kjarasamningunum og vísitöluna
eins og hún varð í raun og veru.
Nefndin hefur síðan gert endur-
skoðaða verðbólguspá fyrir síðari
hluta ársins og samkvæmt henni er
áætlað að verðlagsbreytingar verði
1% umfram það sem gert var ráð
fyrir í samningunum, eða að fram-
færsluvísitalan hækki um 8-8,5% á
árinu.
-BG
Hafnir á Stór-
Reykjavíkursvæðinu:
Keppastum
Þó svo að nefnd sem vinnur á
vegum sjávarútvegsráðuneytisins
að könnun á hugsanlegum fisk-
markaði hérlendis hafi nýverið
hafið störf eru hafnaryfirvöld á
Stór-Reykjavíkursvæðinu þegar
farin að keppa um að fá markað-
inn til sín. Reykjavíkurhöfn hef-
ur sent nefndinni bréf þar sem
henni er skýrt frá því að hugsan-
legt sé að fá markaðinum aðstöðu
í vesturhöfninni og óskað er eftir
viðræðum við nefndina þess
efnis. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði
hafa rætt um möguleika þess að
bjóða nefndinni aðstöðu fyrir
markaðinn þar, en ákvörðun um
slíkt verðurtekin áfundi hafnar-
nefndar seinna í vikunni.
Sú höfn er hreppir markaðinn
mun fá af honum miklar tekjur í
formi hafnargjalda. Eins er lík-
legt að tekjur hafnar sem er í
nágrenni markaðarins muni drag-
ast saman þar sem fiskiskip munu
fremur landa þar sem markaður-
inn verður. ' - gse