Tíminn - 24.05.1986, Blaðsíða 1
RAUÐI KROSSINN hefur
ákveðið að hefja söfnun vegna flóða í
Perú sem valdið hafa því að 100 þúsund
manns hafa flúið heimili sín. Búist er við
að neyðarástand ríki á flóðasvæðunum,
sem eru í námunda við vatnið. Titicaca, í
6 mánuði, en á þessu svæði búa aðallega
bláfátækir indiánar. Þeim, sem vilja styðja
RKÍ, er bent á að gírónúmer hans er
90000-1.
STÁLFÉLAGIÐ var tekið til gjald-
þrotaskipta hjá bæjarfógeta Hafnarfjarðar
í gær og var um leið aflýst nauðungarupp-
boði sem átti að fara fram á eignum
félaosins innan skamms. Kröfur í þrotabú
Stálfélagsins nema um 15 milljónum og er
stór hluti þeirra erlendur.
HREINSUNARDAGUR er í
Reykjavík í dag • í ýmsum hverfum en
undanfárnar helgar hefur verið efnt tii
hreinsunardaaa í fjölda hverfa í Reykja-
vík. í dag verður hreinsað til í Bakka og
Stekkjahverfi, Grafarvogi, Hvassaleitis-
skólahverfi, Skóga og Seljahverfi, Grjóta-
þorpi, Fossvogshverfi og Vesturbæ syðri.
Hreinsunardeild Reykjavíkur veitir alla þá
aðstoð sem hún megnar og útbýtir m.a.
ókeypis pokum og flytur rusl á haugana.
RÁÐHERRAFUNDUR EFTA
verður haldinn í Reykjavík 4.-5. júní oq
sitja fundinn ráðherrar sem fara með
málefni EFTA í aðildarlöndunum sex.
Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra
mun stjórna ráðherrafundinum í fjarveru
Matthíasar Bjarnasonar viðskiptaráð-
herra.
SÍMASKRA 1986 er komin út
og verður afhent símnotendum næstu
daga gegn afhendingu seðla sem póst-
lagðir hafa verið. Upplag skrárinnar er
130 þúsund eintök og er hún 720 blaðsíð-
ur. í skránni eru fleiri götukort af stærri
kaupstöðum og bæjum áður.
INGI BJÖRNSSON hefurverið
ráðinn framkvæmdastjóri Iðnþróunarfé-
lags Eyjafjarðar og tekur hann við af
Finnboga Jónssyni. Jón var áður rekstrar-
ráðgjafi hjá félaginu.
STORMÓT í pílukasti hefst í
Klúbbnum í dag klukkan ellefu og verður
fram haldið á morgun. Það er Klúbburinn
og verslunin Útil íf sem standa fyrir þessari
keppni og hafa grafið upp sextán bestu
pílukastara landsins, bæði íslendinga og
eins menn úr bandaríska hernum á
Keflavikurflugvelli. Vegleg verðlaun eru í
boði og því ekki ólíklegt að menn vandi
sig við kastið. Keppt verður á sviðinu og
er áhorendum boðið aö fylgjast meo
keppninni endurgjaldslaust.
FIMM MILLJÓNIR BRETA
drekka vafasamt kranavatn sem kemur
frá ám menguðum af efnaúrgangi. Þetta
var haft eftir talsmönnum Grænfriðunaa-
samtakanna sem hyggjast nú gangast fyrir
nákvæmri rannsókn á ástandi breskra áa.
KRUMMI
Hann hefur farið
felulitina, þessi
Laugaveginum.
Félagsmálaráðherra úrskurðar um kæru Kópavogs á hendur Reykjavík:
Fossvogsbrautinni
frestað í fimm ár
- og framkvæmdir ekki hafnar nema með samþykki beggja aðila
Alcxander Stefánsson félags-
málaráðherra ákvað í gær í sam-
ráði við skipulagsstjórn ríkisins
að fyrirhuguðum framkvæmdum við
Fossvogsbraut skuli frestað í fimm
ár, og þess freistað að ná sam-
komulagi milli Reykjavíkur og
Kópavogs um framtíðarlausn á því
máli. Ákvörðun ráðherra kemur í
kjölfar kæru Kópavogs á Aðal-
skipulag Reykjavíkur en þar er
gert ráð fyrir hraðbraut um Foss-
vogsdalinn, sem mun m.a. fara yfir
land í eigu Kópavogs. Það land á
hins vegar samkvæmt aðalskipulagi
bæjarins að vera útivistarsvæði.
Alexander Stefánsson sagði í
samtali við Tímann í gær, að nefnd
sem báðir aðilar ættu aðild að væri
starfandi um það hvernig best yrði
staðið að tengingu umferðar milli
byggðarlaganna. Hann sagðist
leggja þunga áherslu á að endanleg
ákvörðun um þetta yrði tekin með
samkomulagi beggja sveitarfélag-
anna. Því yrðu fimm ár tekin í að
skoða málið, en í millitíðinni yrði
öllum framkvæmdum frestað,
nema samkomulag næðist fyrr.
Ráðherra tilkynnti bæjarstjórn
Kópavogs úrskurð sinn vegna kær-
unnar síðdegis í gær, en síðasti
fundur bæjarstjórnar fyrir kosning-
ar var haldinn í gærkvöld. Kristján
Guðmundsson bæjarstjóri Kópa-
vogs sagði í samtali við Tímann að
bréfið yrði tekið á dagskrá bæjar-
stjórnarfundarins og afstaða tekin
til þess hvort fresta beri öllum
framkvæmdum við Fossvogsbraut
í fimm ár.
„Það sem við erum fyrst og
fremst óánægðir með, er að einu
sveitarfélagi, hvort sem það heitir
Reykjavík eða eitthvað annað, geti
liðist að skipuleggja inn í annað
sveitarfélag án þess að hafa til þess
samþykki viðkomandi sveitarfé-
lags. Það var það, sem við vorum
að biðja um að yrði dregið til baka,
í okkar kæru. í bréfi ráðhcrra er
kveðið skýrt á um það að ekki
komi til framkvæmda við Fossvogs-
braut nema með samþykki beggja
aðila og við höfum marg lýst því
yfir að við séum andvígir lagningu
brautarinnar. Þannig, að þar höf-
um við þó ákveðið neitunarvald,“
sagði Kristján að lokum.
Bréf ráðherra var síðast á
dagskrá bæjarstjórnarfundarins og
var ekki komið til umræðu þegar
Tíminn síðast frétti.
-BG
Fegurðardrottning íslands 1986
Gígja Birgisdóttir var kjörin og krýnd feguröardrottning íslands 1986. Keppnin fór fram á
Broadway og þar fór krýningarathöfnin fram um miðnætti. límamynd: Pétur
Hafskipsmálið hjá
rannsóknarlögreglunni:
Sjöundi
maðurinn
kominn
Var yfirheyrður v
fram á kvöld í gær
Árni Árnason, fv. fjármálastjóri
Hafskips, kom til landsins síðdegis
í gær og var þegar færður til
yfirheyrslu hjá rannsóknarlögregl-
unni. Árni er sjöundi maðurinn
sem átti að handtaka á þriðjudags-
morgun þegar rannsóknarlögregl-
an gerði rúmrusk hjá nokkrum
yfirmönnum Hafskips og færði þá
til yfirheyrslu. Hann var yfirheyrð-
ur fram á kvöld í gær og þegar
Tíminn fór í prentun hafði rann-
sóknarlögreglan enn ekki ákveðið
hvort hún krefðist gæsluvarðhalds-
úrskurðar yfir honum.
Rannsókn Hafskipsmálsins mið-
ar vel áfram hjá rannsóknarlög-
reglunni og í gær voru nokkrir
aðilar yfirheyrðir auk þeirra sem
nú sitja í gæsluvarðhaldi. Mikil
gagnavinnsla fer fram samhliða
yfirheyrslunum og rannsókn þessa
máls nær allt aftur til ársins 1980.
Hnífamaður
á hlaupum
Ungur maður klæddur
skræpóttum buxum og grænni
blússu dró upp hníf í verslun
við Laugaveginn í gær og otaði
honum að afgreiðslustúlku.
Um tíma leit svo út að hér væri
um vopnaðan ræningja að
ræða, en svo var ekki því
fljótlega gafst maðurinn upp á
að finna framhald á atferli sínu
og sá sér þann kost vænstan að
grípa til fótanna .Það þurfti
hann líka að gera því lögreglan
komst brátt á snoðir um mann-
inn og reyndi að veita honum
eftirför. En honum tókst að
forða sér og er nú enn leitað.
Ekki er vitað hvað maðurinn
vildi með hnífinn. - gse